Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Geitungar eru hættuleg dýr !!!

Menn eru alltaf annað kastið að koma fram á sjónarsviðið  með ,kenningar og yfirlýsingar. sem síðan standast ekki og eru bara í daglegutali kallaðar bull.

Meindýraeyðir nokkur  segir í viðtali við fjölmiðla fólk að  það sé ekkert mál að eyða geitungabúum, bara fá sér galla, gúmí hanska háþrýstikút, andlitsgrímu og öryggisgleraugu og svo bara að úða á geitungabúið, en fólk ætti ekki að reyna þetta þar, sem búin eru undir súð eða upp undir skyggnum, eða að ekki sé hægt að hlaupa frá þeim.

 Þarna talar maður, sem því miður er ekki fagmaður.

Stunga í munn eða háls getur valdið andnauð hjá fólki eftir örfáar mínúndur.

Ef almenningur ætlar að fara að taka geitungabú eftir uppskrft þessa meindýraeyðis,legg ég til að fólk fái sér líftryggingu og slysatryggingu og það mjög háa. Fólk ætti líka að leita læknis til að fá úr því skorið hvort það sé með bráðaofnæmi. Og hvort það sé með ofnæmi fyrir skordýralyfinu sem fólk á að nota. Þa´ætti líka að láta sprauta sig við stífkrampa ef það ætlar að fara að með höndla þessi dýr.

Í dag er notuð önnur tækni en meindýraeyðirinn er að lýsa, en hann segir að það sé best að fara um miðnætti. Það er því miður bara bull. Fagmenn geta eytt búum hvenær, sem er.

Sem betur fer hafa ekki orðið dauðsföll hér á landi af völdum geitungastungna en það hfur skeð erlendis og oftast má rekja það til fólks sem hafði ekki þekkingu við að taka buin.

Umræddur meindýraeyðir er ekki félagi í Félagi Meindýraeyða og garðúðara, sem er fagfélag þessarar stétta.

Vona að fólk átti sig á þessu og láti það alveg vera að taka geitungabúin sjálf en fái til þess fagmenn í Félagi Meindýraeyða sem eru fagmenn.

Þetta finnst mér

 

 


« Fyrri síða

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

Er með bloggsíðu : http://blogg.visir.is/gudmunduroli

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 83926

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband