Fylgi Borgarstjórnar meirihlutans er 45,2% væri kosið í dag !

Samkvæmt könnun Fréttablaðsins 24 janúar 2008 kemur í ljós í því úrtaki sem þar er gert, en hringt var í 600 manns að 72,7% tóku afstöðu til spurninga Fréttablaðsins.

Þá var könnun á vísir.is, þar sem Reykjavík síðdegis hjá Bylgjunni spurði um afstöðu fólks til nýja Borgarstjórans þar voru 94,8 % sem vildu ekki Ólaf F.Magnússon sem borgarstjóra.

Síðan er komið í ljós að Ólafur F. Magnússon  hefur ekki  stuðning varaborgarfulltrúa F- listans.

 Það er von að Reykvíkingar séu reiðir. Og mótmæli þessari Borgarstjórnar myndun.

Þá er því alveg ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn og Ólafur F, Magnússson hafa framið valdarán í Reykjavík.

Það er bara annað bakland flokkanna í Reykjavík í dag en var við kosningarnar forðum daga, Björn Ingi er hættur, og Íslandshreyfingin hefur tekið yfir það sem heitir Frjálslyndir og óháðir.

Það er enginn fulltrúi Frjálslyndra í stjórnunarstöðu fyrir F- listan í Borgarstjórn í dag.

Hvað sem formanni Frjálslyndra finnst um það en hann telur ennþá að Ólafur F Magnússon sé í Frjálslyndaflokknum þó hann sé í Íslandshreyfingunni.

Það eru liðs menn Íslandshreyfingarinnar sem hafa troðið sér í þessar stöður og í raun framið valdarán í nafni F- listans.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ekki síðan í Gúttó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Þeir rændu bara valdinu aftur af þeim sem rændu því fyrir 104 dögum síðan.

Ólafur hefur stuðning formanns flokksins, og er málefnasamningur stjórnarinnar í samræmi við málefna stefnu Frjálslyndra. Ef þessir varaborgarfulltrúar væru málefnalegir, þá myndu þeir styðja þetta samstarf.

En skiljanlega gera þær það ekki, vegna þess að þær hoppuðu í bólið með Samfylkingunni í 100 daga valdaráninu, meðan Ólafur var veikur, og eru að vonum fúlar yfir að hafa misst völdin með þessum hætti.

Svo er það mjög ó-málefnalegt að vísa í einhverjar skyndi kannanir. Það er bara ein könnun sem skiptir máli: það eru kosningarnar! Og það er meirihlutinn í þeim sem ræður.

Viðar Freyr Guðmundsson, 25.1.2008 kl. 18:59

2 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Viðar.

Fyrirgefðu en Ólafur

Guðmundur Óli Scheving, 25.1.2008 kl. 21:46

3 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Viðar.

Fyrirgefðu, en Ólafur sagði sig úr Frjálslyndaflokknum og gekk í Íslandshreyfinguna.

Þessi könnun sem þú kallar skyndikönnun, er viðurkend og tekið mark á henni af öllum stjórnmálaflokkum og stjórnmálamönnum.

Þú veist greinilega lítið um þessi mál.

Þú þarft bara að skoða staðreyndirnar þá skilur þú þetta.

Ólafur hefur viðurkennt fyrir framan alþjóð að hann að hann var höfundur að  fyrra bandalagi Borgarstjórnar með VG, Samfylkingunni, og Framsókn.

Guðmundur Óli Scheving, 25.1.2008 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

Er með bloggsíðu : http://blogg.visir.is/gudmunduroli

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 83864

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband