Aðgerðir vörubílstjóra beinast að almenningi ekki að stjórnvöldum !!!!!

Ég var ákafur stuðningsmaður aðgerða vörubílstjóra fyrst til að byrja með.

En eftir að hafa séð mótmæli þeirra í gær og þar sem lúxuskerrur á stæstu dekkjum sem til eru og eru mjög mengandi í fararbroddi fyrir mótmæum um hátt eldsneytisgjald þá fannst mér þetta ekki vera þeim til framdráttar.

Svo er  líka þetta tal ráðherra blaðskellandi og hlæjandi að þessum aðgerðum sína hvað þeir líta málið alvarlega eða hitt þó heldur. Þeir ætla ekki að gera neitt.

Nei vörubílstjórar þurfa að breyta aðgerðum sínum. Þessar aðgerðir í morgun við kúagerði beindust einungis að fólki sem kemur þessu máli ekkert við.

Og sumt af þesu fólki varð fyrir seinkun og tapaði tengiflugi annarstaðar í heimnum og það eitt kemur hækkun eldsneytisverðs hér á Íslandi ekki við.

Þeir gætu alveg eins lokað fyrir aðkomu fólks á sjúrkahúsin.

Hversvegna loka bílstjórar ekki aðkomu stjórnmálamanna í Stjórnarráðið, Aþingi  og í ráðuneytin.

Loka fyrir aðgengi til og frá heimilum ráðherranna og Alþingismanna bara svo eitthvað sé nefnt. Eitthvað sem kemur við kaunin á þeim sjálfum.

Þeim er alveg sama um almenning.

Ég er alveg sammála mönnum um að eldsneytisverð verði að lækka, en þessar aðgerðir eru að snúast gegn vörubólstjórum sjálfum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Mestu tafir hingað til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snæþór Sigurbjörn Halldórsson

Ég er svo hjartanlega sammála þér. Ég er nú bara búinn að lenda einu sinni í þessu og þá í ekki nema nokkrar mínútur en guð minn góður hvað þessir aðilar eru að fara rangt að í sínum aðgerðum.

Ætli það væri ekki öflugra fyrir þá að fylla allar götur í kringum alþingishúsið og liggja á flautunum í 2-3 tíma frekar en að skaða almenningi fjárhagstjóni. Hvaða hag hafa þessir álfar af því að Jón og Gunna missi af flugi?

Snæþór Sigurbjörn Halldórsson, 2.4.2008 kl. 09:07

2 Smámynd: Hjálmtýr Guðmundsson

Var einmitt að skrifa um þetta áðan og finnst þessar aðgerðir tóm vitleysa og að það eigi að stoppa þessa menn, taka þá úr umferð.  Verðið á olíunni ræðst af heimsmarkaðsverði og genginu og svo bætast skattar við.  Það er auðvitað hægt að vera á móti sköttum en það vantar samt ekki kröfurnar um hvað ríkið á að borga.  Vörubílstjórar geta velt þessum aukna kosntaði áfram á kaupendur en það getur almenningur ekki, það er hann sem borgar brúsann. 

Hjálmtýr Guðmundsson, 2.4.2008 kl. 09:09

3 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Snæþór.

 Þakka þér þitt innlegg

Guðmundur Óli Scheving, 2.4.2008 kl. 09:13

4 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Hjálmtýr.

Þakka þér þitt innlegg.

Guðmundur Óli Scheving, 2.4.2008 kl. 09:13

5 Smámynd: Ólafur Guðmundsson

Ég treysti þessari ríkisstjórn að gera ekki þá heimskulegu aðgerð að lækka álögur á eldsneyti. Það er glapræði að lækka skatta þegar verðbólgan er svona há. Hún fer á enn meira flug ef að ríkið lækkar skatta.

Ólafur Guðmundsson, 2.4.2008 kl. 09:34

6 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Óskar

Þakka þér þitt innlegg

Guðmundur Óli Scheving, 2.4.2008 kl. 12:59

7 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Bjarni.

Þakka þér þitt innlegg

Guðmundur Óli Scheving, 2.4.2008 kl. 13:00

8 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Til þeirra sem eru að koma inn á síðuna nafnlausir og gera athugasemdir.

Eru athugasemdir þeirra fjarlægðar.

 Guðmundur Óli Scheving

Guðmundur Óli Scheving, 2.4.2008 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

Er með bloggsíðu : http://blogg.visir.is/gudmunduroli

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 83863

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband