Framsóknarflórinn mokaður !

Nýr formaður Framsóknarflokksins var kjörinn í dag Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Og flokkseigenda félaginu var sýnd langatöng. Og hafnað.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var búinn að vera í Framsóknarflokknum í rúman mánuð.

Það er alveg ljóst að það átti að hreinsa spillinguna og fortíðina burt úr valdastöðum flokksins, vonandi hefur það tekist með þessum breytingum.

Sama gerðist við varaformannskjör þar var Siv Friðleifsdóttur hafnað, en Birkir J. Jónsson alþingismaður náði kjöri

 Og enn og aftur við kosningu ritara urðu breytingar, þar náði kjöri Eygló Harðardóttir.

Ég vil óska þessu fólki til hamingju með kosningarnar.

Það er alveg ljóst að Framsóknarflokkurinn vill hreinsa til og byrjar í sínum ranni.

Vonandi tekst fólki í öðrum flokkum að hreinsa til í sinum flokkum, hreinsi fortíðina út þetta fólk sem búið er að vera á Alþingi s.l. 20 ár samfleitt á að hætta núna.

Það er ekki nóg að hreinsa bara Framsóknarflórinn.

Þetta finnst mér.


mbl.is Sigmundur kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Tek undir þetta. Ekki verður annað séð en að fullur skilningur sé á því hjá flokksmönnum að uppgjör við fortíðina hafi verið orðið aðkallandi. Framsóknarflokkur er ekki annað en fólkið sem stýrir honum og fólkið sem styður hann.

Og svo er um alla flokka. Þessi flokkur var orðinn tæki og tækifæri fyrir ómerkilega framapotara og spillta fjármálamenn. Nú hefur þeim þætti vonandi lokið,- í bili í það minnsta. En nokkur tími mun líða þar til flokkurinn nær aftur þeim trúverðugleika sem til þarf ef honum á að takast að verða öflugt stjórnmálaafl.

Það sama á reyndar við um alla íslenska stjórnmálaflokka. 

Árni Gunnarsson, 19.1.2009 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

Er með bloggsíðu : http://blogg.visir.is/gudmunduroli

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 83878

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband