Færsluflokkur: Meindýravarnir

Rottur eru stórhættuleg dýr líka á Íslandi !!!!

Ég hlustaði á meindýraeyði um daginn í útvarpinu segja hlustendum að Rottan væri ekki eins hættuleg og menn héldu. Mig setti hljóðan.

Það virðist sem þessi maður viti lítið sem ekkert um Rottur og því síður um það sem finnst á þeim og í.

Það eru til fræðibækur um þessi mál.

Mér finnst að hann ætti að lesa sér betur til um Rottuna og forðast svona yfirlýsingar .

Ég tek ekki mark á þessum meindýraeyði, þetta er sá sami og fyllti öll blöð á forsíðum fyrir nokkru síðan um kakkalakkafár á Keflavíkurflugvelli. sem var og er bara bull.

Um allan heim deyr fólk af völdum rottunar, en hér á Islandi eru mjög öflugar meindýravarnir gegn þeim.

Samkvæmt  mínum heimildum  en ég hef haft samband við meindýraeyða um allt land og er mjög svipað um útköll vegna Rottu og var á síðasta ári hjá þeim.

Henni er ekki að fækka, en það er búið að endurnýja mikið af lögnum í sveitrafélögunum á undanförnum misserum.

Og það gæti verið skýring á að hún er ekki eins sýnileg og oft áður.

En Rotturnar bera í sér alveg það sama og annarstaðr þar sem þær eru í umhverfi sorplagna.

Á síðasta ári dóu t.d. í Indlandi 30 þúsund manns að völdum rottu- og rottuflóarbita.

Ég segi bara förum varlega í meðhöndlun þessara dýra.

Það finnst mér


Viltu eiga Geitung sem gæludýr ?

Það er nokkuð mikið um það núna að Holugeitungur sé að valda fólki leiðindum í görðum sínum.

Trjágeitugur er líka á ferðinni og er ennþá að.

Það er nokkuð mikið um holugeitung núna og eru búin orðin ansi myndarleg sumhver eins og fótboltar. Fólk verðu mikið var við þá núna og má það rekja til þess að fólk er að koma úr fríum og vill vera í garðinum sínum, en þá er bara annar búinn að taka yfir. Það er mjög rík ástæða að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að láta búin vera, en segja frá þeim og láta eyða þeim . Núna er að fara sá tími í hönd að geitungadrotningin er að framleiða nýjar drotningar fyrir næsta sumar.

Um daginn var meindýraeyðir kallaður til vegna þess að barn var stungið í garði á höfuðborgarsvæðinu. Meindýraeyðirinn eyddi búinu en barnið var að kvarta og kvarta og meindýraeyðirinn hvatti móurinna til að fara með barnið í slysavarnarstofuna.

Móðirinn hringdi síðan í meindýraeyðirinn, (þess vegna er þessi saga til) og þakkaði honum fyrir að hafa lagt svona fast að henni að fara með barnið   til læknis,því barnið var með einkenni af bráðaofnæmi og mátti ekki tæpara standa. Og móðirinn fékk þau skilaboð frá læknum að í næsta skipti hefði hún 15 - 30 mín til að koma barninu til læknis.

Þetta segir bara það að fólk á að láta meindýraeyða um að eyða geitungabúum.

Þetta finnst mér


Ég sagði allt sem ég þurfti að segja í þættinum" í bítið" föstudaginn 13.júlí 2007

Spurt var um hvort Geitungar væru hættulegir. Svarið er Já.

Spurt var um Veggjalúsina á Efri - Brú og mér finnst menn hafi farið offari þar.

Annars er best að fara á Bylgjuna og spila upptökunna. Og menn geta síðan dæmt sjálf hvað um er að vera.

Það finnst mér.


Hræðsluáróður og hugsanaleysi !

Ég held áfarm umfjöllun minni um Veggjalúsina á Efri-Brú (Birginu). Ég tel að menn hafi farið offörum í umfjöllun um Veggjalúsina sem fannst  Efri-Brú.

Auðvitað er þetta skelfilegt meindýr og getur verið ansi snúið að uppræta hana.

En fullyrðingar um matmálstíma dýrsins frá kl. þetta til kl. þetta er bara bull, það hefur engan sérstakan matmálstíma, fólk hefur verið stungið um miðjan dag þegar það hefur fengið sér blund eftir hádegi. og líka á nóttinni. Þegar fólk legst upp í rúm skynjar dýrið hitan frá líkamanum og fer á stað.

Það er líka alveg út í hött að vera að segja fólki að taka upp úr töskum útí garði eða úti á plani, þarf þá ekki að pakka ofaní töskurnar úti í garði eða út á plani. Við höfum verið að ferðast all lengi

Ef menn eru svo óheppnir að taka með eitthvað dýr í töskum,eða farangri hefur hingað til verið nægjanlegt að ráðast á meinsemdina eftir að komið er heim.

Fullyrðingar um að ekkert eitur sé til sem drepur veggjalúsina, er bara bull menn eru að nota eitur við góðan árangur Sunnanlands og fyrir norðan.

Aftur á móti er frysting ekki að virka nema 60-70 %, þessi Sænska aðferð hentar ekki nema í mjög takmörkuðum stöðum. Auðvitað þarf að henda rúmum og húsgögnum á Efri-Brú því að frysti græjurnar ,sem notaðar eru þarna ,geta ekki fryst efni, sængur eða rúm.

Fullyrðingar um 100 tilfelli á ári og aukningu er bara ekki rétt heldur, það hefur engin veggjalús fundist á Ísafirði, Egilstöðum eða á Austurlandi og er nú einn stæsti hópur innflytjenda á því svæði.Engin veggjalús hefur fundist á Reykjanessvæðinu.

Engin tilfelli Í Vestmannaeyjum eða Hornafirði. Tvö tilfelli á Vesturlandi, eitt tilfelli á Suðurlandi og núna á Efri-Brú og  þrjú tilfelli á Reykjavíkursvæðinu. Þetta gætu verið 10 - 15 tilfelli á árinu á öllu landinu ekki meira.

En svo kemur fram maður sem segist hafa fengið 100 tilfelli um allt land. Hvað segir þetta. Hverskonar ábyrgðarleysi er þetta að setja svona alvarlega hluti í gang.

Hann segir síðan að lúsin smitist auðveldlega á milli híbýla og manna

Þessi uppá koma  að Efri-Brú er bara sýndar- og sölumennska af verstu og lélegustu gerð og ekki viðkomandi til framdráttar.

Þetta finnst mér.

 


Veggjalúsum hefur verið eitt í gegnum tíðina með eitri og er gert enn.

Í fréttum í kvöld kom fram hjá meindýareyðir, Smára Sveinssyni að ekki væri hægt að eyða Veggjalúsinni með eitri. Þetta er einfaldlega rangt. Til eru nokkur mjög  öflug eiturefni/varnarefni, sem drepur veggjalúsina ,en það getur tekið tíma að gera það.

Veggjalús er alltaf staðbundin þegar hún hefur fundið einstakling ,sem hún lifir á fer hún ekkert annað. Hún finnur alltaf þann ,sem hún passar við.

Þessi efni sem um ræðir er notuð í Englandi og Evrópu og svipuð efni eru notuð í U.S A. Og eru mjög virk. En það þarf að skapa sérstök skilyrði til að nota þau. Þau virka mjög vel þar sem þau eru notuð. Það er líka verið að hugsa um að ekki þurfi að henda eða brenna húsgögnum.

Smári Sveinsson er hinsvegar að nota Sænsku aðferðina að frysta yfirborð hluta, gallinn við  þessa aðferð er að ekki er hægt að frysta málaðahluti, viði,tréverk, gler og fl.án þess að eiga það á hættu að skemma þessa hluti. Opinberlega er það viðurkennt í Svíðþjóð, eftir áralangar þróanir og notkun með þessa aðferð gegn Veggjalús að aðeins er um 60-70 % árangur að ræða.

En ef  fryst er eftir að búið er að eitra eyðileggur frostið úðunarefnið .

Mér sýnist bara Smári Sveinsson ekki ráða við þetta verkefni að Efri-Brú.

Það var hans ákvörðun að henda öllum húsgögnum ekki Veggjalúsarinnar.

Mér finnst menn fara nokkuð geyst  í þessu Veggjalúsarmáli og kannsi þarf að mynnast þegar menn bara kveyktu í húsi í Hafnarfirði út af öðru meindýri Veggjatítlu en það hefðu sennilega verið til lausnir þar, miðað við þær upplýsingar, sem viðarsjúkdómafræðingar höfðu undir höndum.

Í viðræðum mínum við menn út um allt land er um sáralitla aukningu með veggjalús að ræða og stendur í stað hjá sumum. Þannig að ég set bara spurningamerki við þessa gífurlegu aukningu hjá Smára Sveinssyni á veggjalúsartilfellum. Það er eithvað sem er ekki er alveg að koma heim og saman við aðra meindýraeyða.

Þetta finnst mér.


Varúð - Varúð .Það eru skúrkar á ferð - Svindlarar að úða garða !!!!!!

Ég vil ráðleggja fólki að óska eftir því við þá ,sem banka upp á og vilja eitra í görðum að fá að sjá starfsréttindi þeirra sem er útgefið af Umhverfisstofnun(UST) og eiturefnaskírteini gefið út af Lögreglustjóra/Sýslumanni og það mikilvægasta er að viðkomandi hafi starfsleyfi fyrir garðaúðun.

Skoðið sérstaklega hvort leyfin eru í gildi.

Ef réttindi eru ekki í lagi geta menn ekki keypt eitur til að úða með .

Garðúðarar hafa ekki leyfi til að eitra fyrir köngulóm, eitrið sem þeir eru með dugar ekki á kóngulærnar.Niðurbrot á efninu sem þeir eru með er 3 -6 dagar, en hjá meindýraeyðum 3 mánuðir. Meindýraeyðar einir hafa þessi efni.

Fjölmargar kvartanir hafa borist til félagsins út af mönnum sem hafa verið að eitra og ekkert hefur virkað. Félag meindýraeyða og garðúðara hefur haft afskipti af nokkrum mönnum og  kært hefur verið til lögreglu nokkur tilfelli.

Það borgar sig að fá að sjá skírteini þeirra sem vilja úða fyrir þig. Félagar í Félagi Meindýraeyða og garðúðara eru með öll leyfi í lagi.

 

 

 


Geitungar eru hættuleg dýr !!!

Menn eru alltaf annað kastið að koma fram á sjónarsviðið  með ,kenningar og yfirlýsingar. sem síðan standast ekki og eru bara í daglegutali kallaðar bull.

Meindýraeyðir nokkur  segir í viðtali við fjölmiðla fólk að  það sé ekkert mál að eyða geitungabúum, bara fá sér galla, gúmí hanska háþrýstikút, andlitsgrímu og öryggisgleraugu og svo bara að úða á geitungabúið, en fólk ætti ekki að reyna þetta þar, sem búin eru undir súð eða upp undir skyggnum, eða að ekki sé hægt að hlaupa frá þeim.

 Þarna talar maður, sem því miður er ekki fagmaður.

Stunga í munn eða háls getur valdið andnauð hjá fólki eftir örfáar mínúndur.

Ef almenningur ætlar að fara að taka geitungabú eftir uppskrft þessa meindýraeyðis,legg ég til að fólk fái sér líftryggingu og slysatryggingu og það mjög háa. Fólk ætti líka að leita læknis til að fá úr því skorið hvort það sé með bráðaofnæmi. Og hvort það sé með ofnæmi fyrir skordýralyfinu sem fólk á að nota. Þa´ætti líka að láta sprauta sig við stífkrampa ef það ætlar að fara að með höndla þessi dýr.

Í dag er notuð önnur tækni en meindýraeyðirinn er að lýsa, en hann segir að það sé best að fara um miðnætti. Það er því miður bara bull. Fagmenn geta eytt búum hvenær, sem er.

Sem betur fer hafa ekki orðið dauðsföll hér á landi af völdum geitungastungna en það hfur skeð erlendis og oftast má rekja það til fólks sem hafði ekki þekkingu við að taka buin.

Umræddur meindýraeyðir er ekki félagi í Félagi Meindýraeyða og garðúðara, sem er fagfélag þessarar stétta.

Vona að fólk átti sig á þessu og láti það alveg vera að taka geitungabúin sjálf en fái til þess fagmenn í Félagi Meindýraeyða sem eru fagmenn.

Þetta finnst mér

 

 


Geitungar eru seinna á ferðinni

Í fréttablaðinu í dag er fjallað um Geitunga og vitnað í Ómar F. Dabney meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg. Hann segir að það hafi verið lítið um geitunga síðastliðin tvö sumur, það er ekki rétt og það er er ekki rétt að stofninn hafi orðið fyrir áfalli.

Hann er bara seinna á ferðinni  og stundum er hann fyrr á ferðinni eins og síðastliðin tvö sumur. Samkvæmt upplýsingum sem ,meindýraeyðar á öllu landinu hafa sent til Félags Meindýraeyða eru tekin geitungabú á síðustu tveimur árum svipuð og  venjulega.

Núna eftir helgina verður meira um þá en hefur verið og líka verður fólk meira vart við þá í görðum sínum, ferlið er farið á fulla ferð og nú gerast hlutirnir hratt.

Geitungar eru seinna á ferðinni i ár.

Ef þið þurfið aðstoð varðandi Geitunga þá er síminn hjá mér 892 9121

Það er bara málið.


Svindlarar á ferð

 VARNAÐARORÐ

Það er alveg ótrúlegt að þegar vorar, koma fram á sjónarsviðið menn sem kalla sig meindýraeyða og garðúðara og hafa fé af fólki með því að vera að eitra fyrir fólk gegn alkyns meindýrum.

En stór hluti þeirra eru bara svindlarar og hafa engin réttindi og því ekki leyfi til að kaupa eða vera með eiturefni eða skordýralyf.

Ég segi bara það þarf að hafa leyfi fyrir svona starfsemi og ég skora á ykkur að biðja um að  fá  sjá að sjá starfsréttindi þeirra, gefið út af Umhverfisstofnun, eiturefnaleyfi gefið út af lögreglustjóra/ sýslumanni og Starfsleyfi gefið út af Heilbrigðiseftirliti viðkomandi sveitarfélags. Og ekki gleyma að athuga hvort leyfin séu í gildi.

Menn er jafnvel svo ósvífnir að auglýsa sig sem meindýraeyða og vera með réttindi frá öðrum ríkjum og félagasamtökum erlendis. Slík réttindi eru ekki í gildi hér á íslandi.

Ef þið fáið menn til ykkar og þeir geta ekki sýnt réttindaskírteini sín, þegar beðið er um þau skulið þið hringja á lögrelgluna og kæra þá og ef þeir fara undan í flæmingi og segjast hafa gleymt þeim heima, skulið þið skrifa niður bílnúmerið hjá þeim og kæra þá til lögreglu.

En t.d allir sem eru í Félagi meindýraeyða eru með sín réttindi í lagi.

Þið getið t.d hringt þangað og fengið upplýsingar Síminn er 892 9121

Þetta er bara vinsamleg ábending til fólks, sem þarf á aðstoð meindýraeyða og garðúðara.

Það eru bara skúrkar á ferð og út um allt land.

 


« Fyrri síða

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

Er með bloggsíðu : http://blogg.visir.is/gudmunduroli

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 83927

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband