Dagur 2 í mótmælum.... Geir Hilmar ætlar ekki að boða til kosninga !!!!!

Það getur enginn stjórnað Íslandi nema ég sagði Geir Hilmar Haarde í Kastljósi kvöldsins.

Hrokinn, afneitunin sama endalausa bullið um að allt sé á fullu í viðleitni Geirs Haarde og ríkistjórnarinnar með að leysa vandamál líðandi stundar, virkar á mig eins hjákátlegt mjálm í Norskum skógarketti.

Geir Hilmar skilur ekki að hann hefur ekki traust þjóðarinnar lengur, hann heldur bara að þessi mótmæli sem nú breiðast um landið, bara hjaðni ef hann geri nógu lítið úr mótmælum þjóðarinnar.

Það versta er að mótmælin eiga eftir að harðna og um helgina spái ég að mikill mannfjöldi komi til mótmæla.

Og það dragi til alvarlegra tíðinda vegna aukinar gremju og reiði fólksins sem er að mótmæla.

Ríkistjórnin er fallin bara spurnig hvenær Geir Hilmar Haarde skilur hvernig  ástandið er og yfirgefur forsætisráðuneytið.

Í kvöld gerist það líka að Samfylkingin klofnar og ráðherrar Samfylkingarinnar verða víttir og rúnir trausti grasrótarinnar.

Ég held að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir komi ekki til baka í bráð. Vona samt að hún nái sér.

Samfylkingin er líka búin að vera sem eitthvað kjölfestuafl í Íslenskum stjórnmálum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ekkert mælir gegn því að kjósa næsta vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Óháð persónu ISG þá finnst mér  ekki við hæfi að níðast á veikum aðilum í lýðræðislegum flokkum. Formaður eigi alltaf að vera við fullaheilsu.  Allir mega missa sín. Utanríkisráðherra embættið er andlit útá við. Það má alls ekki vakna neinar grunsemdir um hæfni þess sem gegnir því á hverjum tíma.  Menn hljót veljast í það sem eru harðir í horn að taka og [laga]refir.

Forgangsatriðið er víst að koma algjörlega óarðbærum Fjármagnsgeira í lag óður en nýrri stjórn er hleypt að. Væntingarnar eru að kannski verði einhverjum slátrað eftir rannsóknir í haust.

Ef ISG á sér læriföður gæti honum fundist gott að draga ISG úr sviðsljósinu um tíma og koma henni síðan inn þegar næsta stjórn fellur.

Júlíus Björnsson, 21.1.2009 kl. 21:14

2 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Hann skilur ekki íslensku lengur og sér bara það sem hann vill sjá. Búinn á því.

Arinbjörn Kúld, 21.1.2009 kl. 23:06

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

..... hvað sem því líður þá mun Geir ekki verða spurður lengur.. hann er búinn að missa völdin þessu sauður.

Óskar Þorkelsson, 22.1.2009 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

Er með bloggsíðu : http://blogg.visir.is/gudmunduroli

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 83982

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband