Ríkisstjórnin hangir á bláþræði !!!

Það gæti munað einu atkvæði að ICESAVE samningarnir verði samþykktir á Alþingi Íslendinga á næstunni.

Tæplega 1800 manns hafa skráð sig á vefinn www.kjosa.is  til að biðja Forsetan að samþykkja ekki lögin um ICESAVE ef þau verða samþykkt á Alþingi.

Tæplega 45.000 manns hefur sráð sig á andlitsbókina til að mótmæla ICESAVE samningunum þetta fólk ætti að skrá sig á www.kjosa.is    .

Það eru komnir fram þingmenn í Stjórnarflokkunum em ætla ekki að greiða þessu ICESAVE frumvarpi brautargengi.

Það eru líka margir þingmenn VG búnir að bíta sig í tunguna vegna flokspóltísks þrýstings frá forustunni.

Sama er upp á hjá Samfylkingunni þar er róið öllum árum að koma þessu frumvarpi í gegnum þingið.

Svo kemur kúlulánadrottningin Þorgerður Katrín ,sem búinn er að sitja alstaðar við borðið þegar  hún var í ríkistjórn og núna segir hún að það sé hægt að ná betri samningum.

Hvað er að svona fólki ?

Hún ætti nú bara að segja af sér og láta sig hverfa úr þessu umhverfi mér finnst eins og hún hafi misnotað aðstöðu sína.

Ég held að allt fari í bál og brand ef þetta ICESAVE frumvarp verður samþykkt.

Þetta finnst mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ég var krakki þegar fólkið fór til Ástralíu og ungur maður í Síðust þjóðarsátt. Miðaldra núna og átt von á þessu enda eftirtektar samur að eðlisfari. Hingað til mættu íslendingar samdrætti með því að vinna lengur og hraðar á sama kaupi. Þetta voru aðallega líkamlega störf til sjós og lands. Fræðingar kjafta ekki upp í skuldirnar og skuldir verða ekki greiddar með lagasetningum. Unga kynslóðin í undir 40 hefur fengið hið klassíska franskbrauðs uppeldi EU og til undantekninga ef hún hefur kynnst álagi líkamlegu eða andlegu. Við erum að byrja í niðurskurðinum um, 18 mánuðir eftir og kreppa verri en 1930 er spáð í EU.

Ég hef því miður enga trú á þessum bókhaldslega mannauði. Í kreppu er áherslur á aðra hluti svo sem magafylli á hverjum degi.

Júlíus Björnsson, 2.7.2009 kl. 23:32

2 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Júlíus.

Já tímarnir hafa breysts.  Mér finnst líka rosalega leiðinlegt að hlusta á þennan hjáróma hagfræðingakór í tíma og ótíma.

þakka þér innlitið

Guðmundur Óli Scheving, 3.7.2009 kl. 16:46

3 identicon

Heill og sæll; Guðmundur Óli - líka sem, Júlíus og aðrir, hér á síðu !

Samfylkingin; hefir svona, einskonar njóla eðli - hver, hvimleiður þykir, innan um annað illgresi, sem góðgresi einnig, Guðmundur minn.

Með beztu kveðjum; sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.7.2009 kl. 23:47

4 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Óskar Helgi.

Þakka þér fyrir þetta svo ágæta innlegg...

Guðmundur Óli Scheving, 5.7.2009 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

Er með bloggsíðu : http://blogg.visir.is/gudmunduroli

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 83987

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband