Biskupinn er verndari kirkjunar og prestaskarans !

Karl Sigurbjörnsson Biskup hefur enga þekkingu til að vísa ábug ábendingum frá fagfólki hjá opinberum stofnunum um að fagráð á vegum kirkjunar sé að eyðileggja og skaða mál sem snúa að meintum kynferðisofbeldismönnum innan kirkjunar.

Sem verndari presta og kirkjunar finnst honum sjálfsagt að sitja alstaðar við borðið.

Það hafa komið einmitt upp mál áður sem fagráðið fór höndum um eins og í máli Ólafs Skúlassonar  Biskups ,hann var bara ámynntur eftir að kirkjan skoðaði málið og hann var sendur úr landi í ákveðinn tíma.

Og málið dautt, En fórnarlömbin eru trúlega enn í sárum.

Þá sögðu sig úr þjóðkrikjunni þúsundir manna vegna afskipta kirkjunar af því máli.

Biskupinn er sennilega búinn að gleyma því.

Mér finnst þó þú sitjir í einhverjum fílabeinsturni sem andlegur leiðtogi þjóðkirkjunar þurfir þú að sjá lengra en nef þitt nær

Það er sama skítalyktin af þessu máli Biskup núna og áður ef kirkjan ætlar að eyðileggja þetta mál líka með sínum afskiptum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Biskup: „Afar þungbært“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson vissi einn Sjálfstæðismanna af ráðningu Jakobs Frímanns !!

Enn og aftur er það Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sem ekki segir félögum sínum í Sjálfstæðisflokknum frá áformum Ólafs F. Magnússonar, með ráðningu vinar síns Jakobs Frímanns í starf framkvæmdastjóra borgarmála.

Ef marka má ummæli Ólafs F. í Kastljósi í kvöld.

En enginn Sjálfstæðismaður vildi tjá sig við frétastofur. Nú eru Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á fundi og láta ekki ná í sig.

Því var hvíslað að mér að það væri verið að undirbúa að skipta Ólafi F. út og fá stuðning frá Óskari Bergssyni til að halda Sjálfstæðismeirihlutanum.

Þetta er bara að leysast upp í alsherjar klúður á öllum sviðum Borgarmeirihlutans, þar sem ekki er hægt fyrir þessa Borgarfulltrúa að vinna saman.

Þetta verður spennandi á næstu dögum.

Þetta finnst mér.


mbl.is „Ráðning í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverskonar fífl er þessi organisti á Selfossi?

Í meintum kynferðisbrotamálum sem tengjast Gunnari Björnssyni sóknarpresti á Selfossi kemur allt í einu fram organnisti sem var vel kunnugt um að séra Gunnar hafi leitað á stúlkurnar.

Þó hann hafi aldrei séð hann gera það með berum augum.

Ortganistin segist hafa skynjað vanlíðan stúlknana í kórnum, en ekkert gert meira í málinu, bara leyft því að þróast, mér finnst liggja við að organnistinn sé bara samsekur Gunnari Björnssyni, reynist Gunnar verða sekur fundinn um þessi meintu kynferðisbrot.

Hann segist hafa verið ábyrgðarmaður stúlknana á þessum tíma en ákvað að aðhafast ekkert.

Þetta er bara ekki í lagi.

Þetta finnst mér.


mbl.is Þriðja stúlkan kærir sóknarprestinn á Selfossi
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Á að hafa svívirt og nauðgað börnum sínum og vinum þeirra !!!!!

í DV í dag er sagt frá Háskólakennara sem talið er að hafa svívirt og nauðgað börnum sínum og vinum þeirra.Það virðist nóg af svona níðingum út um allt.

Þetta að börn þori að opna sig meir og meir er vegna hinnar miklu umræðu og fræðslu til barna um þessi mál. Það er lykillin að upp kemst um þessa níðinga.

“Háskólakennari hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 11. apríl vegna gruns um að hann hafi ítrekað nauðgað börnum sínum fjórum, dætrum og syni, á fimmtán ára tímabili.

Þá hefur borist kæra vegna brota gegn stúlku utan fjölskyldunnar, vinkonu einnar dóttur kennarans.

Elstu brotin voru framin fyrir hartnær fimmtán árum síðan. Nýjustu brotin voru framin í vetur.”

Þetta finnst mér.


Gleymdi ekki einhver að taka pillurnar sínar ?

Það hlýtur bara að vera eitthvað að, þessir aðilar í Borgarstjórn sem hafa verið að tjá sig vegna umæla og skoðana Ólafs F. Magnússonar um skiplagsmáli í Vatnsmýrinni eru að tala út og suður í sama flokki .

Gísli Marteinn segir eitt og Hanna Birna segir annað og bara búa til skýringar við ummæli Borgarstjórans.

Þeir vilja ekki tala um það sem Ólafur F. Magnússson sagði með íbúum Reykjavíkur og marg oft er búið að spila í fréttatímum og fréttaskýringaþáttum.

Þau vilja endilega skýra út eitthvað sem hann sagði ekki, eitthvað sem hann meinnti en sagði ekki.

Það mætti halda að þau séu öll á lyfjum og hafi gleymt að taka pillurnar sínar.

Því þvílíkt rugl er það sem kemur frá þeim, það er bara talað út og suður.

Þið verðið bara að átta ykkur á þessu bulli í ykkur þið getið ekki starfað saman það er bara svona einfalt.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ólafur segist ekki hafa skipt um skoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prestur, Prestur ertu kannski stóðhestur ? !!!!

Já það eru nú svo að það eru daglega neikvæðar fréttir frá Selfossi undan farið.

Nú hefur Sóknarpresturinn verið kærður af tveimur stúlkum fyrir kynferðiðlega áreitni og talið að fleiri kærur séu á leiðinni.

Ubs …ætli Guð hafi leiðbeint honum Sóknarprestinum á Selfossi….Hann nefnilega leiðbeindi  Birgis - leiðtoganum forðum daga á svipuðum nótum .

Aðrar fréttir voru það að Sýslumaðurinn á Selfossi  kærir mann sem lendir í bifreiðaslysi ásamt konu sinni er kærður á móti vilja konunar.

Já það eru sannarlega stórmenni þarna á Suðurlandi.

Þetta finnst mér.


mbl.is Umkvörtun vegna sóknarprests barst kirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er GAS....Þetta er GAS.. var bara auglýsing !

Þetta er gas, þetta er gas var öskrað í aðgerðum lögreglu á Suðrlandsvegi fyrir stuttu síðan.

En nú hefur komið í ljós að þetta var mögnuð auglýsing fyrir lögregluskólan en í kjölfarið hafa 90 manns sótt um inngöngu í skólan.

En fyrir nokkru síðan var talað um að fáir létu skrá sig í skólan.

Og það væri lítil endunýjun.

Það þarf því að endurtaka þessa auglýsingu með “Gasið” af og til svo fólk fái áhuga á störfum lögrelunar.

Þetta finnst mér.


mbl.is Það sem gerðist var óumflýjanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

+ 5 Rottuútköll á viku hjá Reykjavíkurborg !!!!!

Guðmundur Björnsson, meindýraeyðir Reykjavíkurborgar segir í Fréttablaðinu í dag að á síðasta ári hafi verið farið í 274 útköll vegna rottu og það sé mun sjaldgæfara að rottur sjáist í borginni ef við deilum þessum útköllum á 52 vikur eru þetta 5.2 rottuútköll á viku.

Það er nú allnokkuð finnst mér.

Þetta eru bara tölur frá Reykjavíkurborg. En heimildir frá Meindýraeyðum í Félagi Meindýraeyða sýna að rottuútköll sem þeir eru að sinna eru 2-3 á viku til viðbótar.

Þetta er í raun sama talan ár eftir ár sem Reykjavíkurborg er að sýna og þýðir í raun að einungis tekst að halda stofninum í horfinu.

Ekkert raunhæft er  gert til að útrýma þessu markvist úr holræsunum.

Eða fundin betri leið til að útrýma þessum vágest en gert er í dag, sem auðsýnilega er ekki að virka alveg.  En það er hægt að útrýma þessum vágest, sér í lagi í svona litlu skólpkerfum eins og er hér á landi.

Ég held að formaður umhverfisnefndar ætti að leggja peninga í útrýmingu á Rottum og bjóða þetta verkefni út til meindýraeyða, fyrst Reykjavíkurborg getur ekki annað en haldið Rottustofninum í sömu tölu ár eftir ár.

Nú er lag fyrst eins og Guðmundur Björnsson segir réttilega að það eru komnar sýur og skiljur sem Rottur komast ekki í gegn en halda sig þess vegna í skólplögnum.

Þetta finnst mér.


Þetta lyktar af spillingu !!!

 DV í dag segir frá miljónasamning Akrnesbæjar við tölvufyrirtækð Securstore.

Sem sonur forseta bæjarstjórnar hafði keypt hlut í ásamt endurskoðenda Akranesbæjar sem er líka endurskoðndi fyrir Secustore. 

Hrein tilviljun ?

Þá eru aðrir eigendur tveir fyrrverandi starfsmenn Glitnis, þeir Bjarni Ármannson og Örn Gunnarsson.

Hrein tilviljun ?

Ekkert óeðlilegt við þetta  segir forseti bæjarstjórnar Akranes.

En Örn gunnarsson er einmitt sonur forseta bæjarstjórnar sem greiddi athvæði gegn því í Apríl að bjóða út tölvuþjónustuna.

En vildi að gengið yrði strax til samninga við Securstore.

Þetta lyktar af skítalykt .

Þetta finnst mér.


Full seint í rassinn gripið þegar menn eru búnir að skíta á sig !!!!

Þessar uppsagnir á Landsspítala eru til komar fyrir mörgum mánuðum, þegar stjórnendur Landsspítalans og Heilbrigðisráðherra ákváðu að standa við þetta vaktafyrirkomulag einhliða.

Sem þau vinna ekki sjálf eftir.

Og gætu ekki unnið eftir.

Eina svarið hjá Hjúkrunarfræðingum var að segja upp störfum. Þau geta ekki unnið eftir þessu nýja vaktakerfi.

Guðlaugur Þór reyndu að skilja það !!!

Sára lítil fundarhöld hafa verið hjá þessum aðilum nema síðustu daga.

Og þá er lausnin sú að fresta þessu vaktakerfi þar til í haust. Og reyna að leysa vandan á þessum mánuðum.

Er ekki allt í lagi með með þetta fólk sem stjórnar spítalanum og ráðherran var ekki full seint að grípa í rassinn, eða var hann kanski að sýna þessu fólki beran rassinn.

Þetta er svo alvarlegt mál að lýsingarorð sem maður þekkir duga ekki til að lýsa stöðunni í dag.

Vonandi Ráðherrans vegna deir enginn vegna þessa ástands sem er að skapast.

Mér bara ofbýður þetta tillitssleysi stjórnvalda.

Þetta finnst mér.


mbl.is Enn unnið að lausn deilunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband