Færsluflokkur: Umræðan

Er Óskar Bergsson gegnum litaður af spillingu ?

Óskar Bergsson virðist ekki skilja hvað hagsmunaárekstar eru hann gerði sjálfan sig að algjöru fífli í Kastljósi um daginn þegar hann var spurður um veisluhöld á kosnað Reykvíkinga sem hann hérlt fyrir  framsóknarmenn á ráðstefnu í Reykjavík.

Marg oft hefur verið talað um að Óskar Bergsson hafi setið beggja vegna borðsins í verktakafrumskóginum sem Reykjavíkurborg hefur verið sem mest í viðskiptum við.

Og hægt að rekja slóð einkennilegar hlutverkaskipanar Óskars Bergssonar í útboðum og ekki útboðum frá Reykjavíkurborg alveg aftur til árana þegar Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar, réð Óskar Bergsson í ýms verkefni án auglýsinga eða tilboða.

Auðvitað þarf að rannsaka þessi mál hvað hæft er í þessum vísbendingum sem lúta að meintum hagsmunatenglum Óskars Bergssonar við verktakafyrirtæki sem eru að gera það gott í gegnum Óskar Bergsson.

Ólafur Friðrik Magnússon fyrrverandi Borgarstjóri ætlar að leggja fram á næsta Borgarstjórnarfundi kröfu um opinbera rannsókn  á málum Óskars Bergssonar.

Það líka með eindæmum að Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja ekki tjá sig um þessi mál, fara bara undan í flæmingi.

Borgarstjóranum virðist vera alveg sama þó möguleg spilling sé í farvatnu sem hún er að sulla í.

Þetta finnst mér.


mbl.is Krefst rannsóknar á hagsmunatengslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seðlabankafrumvarpið verður sennilega ekki samþykkt !!!!

Ekki er útilokað að Höskuldur Þórhallson greiði atkvæði á móti Seðlabankafrumvarpinu á morgun.

Þess vegna hefur stjórn og þingflokkur Framsóknarflokksins fundað nokkrum sinnnum saman í dag.

Heyrst hefur að lagt hafi verið að Höskuldi Þórhallsyn iað vera heima veikur á morgun og kalla inn varamann fyrir hann.

Svo Framsóknarflokkurinn tapi ekki sýningarstjórnuninni og trúverðugleika gagnvart kjósendum en mjög er farið að krauma út í þjóðfélaginu.

Það var bara eins gott að Höskuldur Þórhallsson varð ekki Formaður Framsóknarflokksins nema í fimm mínúndur, það væri annars meiri sláttur á honum núna.

Sigmundur Davíð treystir sér ekki til að til að lýsa því yfir að Framsókn standi einhuga að frumvarpinu og muni greiða því brautargengi í gegnum þingið.

Það er því ekki út séð að frumvarpið verði að lögum.

Ef það gerist verður að koma þessum brjálæðinum burt af Aþingi og leysa upp þingið og senda það heim.

Setja bráðbyrgðarlög á alla þá þætti sem gerðir eru til að koma lífi í fjármálamarkaðinn, atvinnulífið  og bjarga heimilinum.

Og fá INTERPOL á staðinn til að rannsaka bankahrunið, peningaþvættið, peninga tilfærslunar  upp á miljarða.

Annars verður bara Borgarastyrjöld... já ég meina það það verða bara átök læti.

En vonandi lætur Framsókn sér segjast

Þetta finnst mér.


mbl.is Seðlabankafrumvarp afgreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú fer fylgi Samfylkingarinnar á botninn !!

Jón Baldvin Hannibalsson ætlar að bjóða sig fram í eitt af átta sætum í prófkjöri Samfylkingarinnar.

Þessi maður Jón Baldvin er orsakavaldur fyrir hverju klofnings framboðinu á fætur öðru þegar hann stýrði Alþýðuflokknnum.

Þar hrakti hann Vilmund Gylfasson út í sér framboð þegar BJ Bandalag Jafnaðarmanna bauð fram og þeir fengu 4 menn kjörna. En VIlmundur vildi einmitt þær breytingar á þjóðfélagsskipan sem nú er mest í umræðunni .

Þá hrakti hann Jóhönnu Sigurðardóttur út í framboð þegar Þjóðvaki bauð fram og sá flokkur fékk 4 þingmenn.

Nú vill hann splundra þeirri einingu sem verið hefur og þeim árangri sem Jafnaðarmenn hafa náð, hann getur ekki unað Jóhönnu Sigurðardóttur að sameina þjóðina ásamt Vinstri Grænum.

Kapitalistinn Jón Baldvin er alveg friðlaus að komast á þing.

Ég er vissum að hann skilur þetta ekki frekar en Davíð. Fólkið vill ekki þessa gömlu menn, sem eru búnir að stuðla að því að koma landinu í kalda kol.

Mér finnst þetta algjörlega fyrir neðan allar hellur, Jón Baldvin á ekkert erindi í framboð hann hefur ekkert fram að færa annað en að eyðileggja það sem búið er að byggja upp.

Hættu við þetta framboð Jón Baldvin það mun skaða flokkinn og bara almennt þjóðlífið.

Það er kannski það sem þú villt og bara það besta sem getur rekið á fjörur Sjálfstæðismanna og Framsóknar.

Þetta finnst mér.


mbl.is Jón Baldvin tilkynnir framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það vantaði bara tár og geislabaug !!!!

Davíð Oddsson var gestur hjá Sigmari í Kastljósinu í kvöld. Eða reyndar Sigmar var gestur Davíðs.

Það er ekki einleikið hvað Davíð Oddsson tuddaðist áfram með frekju og yfirgangi samt var eins og hann væri að bresta í grát, ég beið bara eftir því.

Og hvernig Davíð Oddsson mærði sig og "Bankan sinn " var bara pínlegt.

Allir eru fífl og enginn veit neitt nema hann Davíð Oddsson.

En ekki vildi hann upplýsa þjóðina um orsakir hrunsins en sagðist vita hverjar þær væru.

Hann sagði Sjálfstæðisflokkinn og Geir Hilmar Haarde og ríkistjórnina ekki hafa hlustað á sig þegar hann var að vara við bankahruninu.

Og að hann sjálfur ætti engan þátt í þessu hruni.

 Hann hefði ekki gert nein mistök.

Og að til hans kæmu menn sem segðu að hann ætti traust allra og að hann væri búnin að vara við þessu.

En hvaða fólk var þetta, hann vildi ekki svara því.

Ég held að það séu þessir sem eru límdir við hann eins og Hannes Hólmsteinn, Kjartan Gunnarsson, Halldór Blöndal, Eiríkur Guðnasson svo einhverjir eru nefndir .

Þarna í Kastljósinu sá maður, gamlan mann bitran, saman bitin af heift, ásakandi allt og alla.

Bara aumkunnar verður ,að vera að láta reka sig frá Seðlabankanum með skít og skömm.

Og hótandi því  að þegar hann losnaði úr bankanum, mundi losna um málbeinið hjá sér.

Þetta eru bara spennandi tímar nú fær Sjálfstæðisflokkurinn aldeilis að kenna á því frá Davíð

Þetta finnst mér.


mbl.is Davíð í Kastljósviðtali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höskuldur Þórhallsson á leið í Sjálfstæðisflokkinn !!!!

Höskuldur Þórhallsson er víst á leið í Sjálfstæðisflokkinn eftir að hann var tekinn á teppið af flokkstjórn og þingflokki Framsóknarmanna í dag.

Höskuldur Þórhallsson var búinn að samþykkja þá niðurstöðu sem Framsóknarflokkurinn var búinn að lenda í gær.

Og ákveðið var að vísa málinu úr Viðskiptanefnd.

En hann snéri síðan við blaðinu þegar kom að athvæðagreiðslu um málið.

Og stóð með Sjálfstæðismönnum.

Þarna meig Framsóknarflokkurinn endanlega á sig.

Og Þingflokksformaðurinn, hve trrúverðulega sem Siv Friðleifsdóttir vill láta þennan gjörning Höskuldar líta út þá er þetta feil spor hjá Framsóknarflokknum og sýnir enn og aftur að ekkert er að marka þennan flokk.

En lítill fugl sagði mér að Höskuldur ætti , enga möguleika innan Framsóknarflokksins eftir þetta sjónarspil, honum verður ekki trúað oftar eða treyst.

Og því er opinn armurinn sem hann opnaði hjá Sjálfstæðisflokknum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Mikil fundahöld í þinghúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætla svo þessir aumingjar að bjóða sig fram !!!!

Framsóknarflokkurinn ætlar ekki að samþykkja Seðlabankafrumvarpið.

Nú vilja Framsóknarmenn í Viðskiptanefnd vinna með Sjálfstæðismönnum og tefja Seðlabankafrumvarpið og tefja fyrir allri annari ákvarðanatöku sem þetta frumvarp hefur áhrif á varaðndi peningamál í landinu.

Bullið í Höskuldi Þórhallsyni að það þurfi að bíða eftir áliti einhverja Hagfræðinga ESB, við erum ekki einiu sinni í ESB.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lagt fram tillögur í þetta frumvarp sem farið hefur verið eftir.

Við þurfum ekki fleiri álit Hagfræðinga.

Skammist ykkar Framsóknarmenn það er ykkur að kenna að ekki er hægt að koma heimilnum og atvinnulífinu til hjálpar strax.

Það er von að menn vilji sleikja hönd Sjálfstæðismanna og dilla rófunni í takt við þá.

Það er svo sannarlega ekki gæfulegt framundan hjá Framsóknarflokknum ef svoina heldur áfram.

Þetta finnst mér.


mbl.is Vilja fresta seðlabankaumræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú eru hægust heimatökin að ná í þessa auðmenn

Atli Gíslasson sagði í Silfri Egils vera með nöfnin á þessum 40 -50  auðmönnum sem eru að kaupa fyrirtækin sín gjaldþrota til baka.

Með peningum sem engin veit hvaðan koma.

Hvers vegna er ekki náð í þessa auðmenn sem komu landinu í þessa stöðu.

Ef þarf að breyta lögum eða setja reglugerðir þá eru hæg heimatökin VG og Samfylkingin eru saman í ríkistjórn.

Hættast er að Framsóknarflokkur setji stein í götu Stjórnarflokkana vegna umsvifa Framsóknarflokksins í síðustu ríkistjórnum.

Það verður að koma í veg fyrir að þessir svo kölluðu auðmenn nái feitustu bitunum út úr gjaldþrota fyrirtækjum með peningum sem þeir hafa skotið undan.

Nú er hægt að stoppa þetta  Jóhanna og Steingrímur.

Þetta finnst mér.


mbl.is Útrásarvíkingana á válista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur að undirbúa ríkistjórnarsamstarf eftir kosningar !

Það er að verða ljósara með hverjum degi sem nær dregur Alþingiskosningum að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur ætla sér að mynda ríkistjórn að loknum kosningum.

Þessir tveir flokkar hafa verið algjörlega samstíga með að gagnrýna og leggja fram endalausar breytingartillögur við þau frumvörp sem séð hafa dagsins ljós af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Og tafið fyrir þessum frumvörpum ríkisstjórnarinnar.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei sem fyrr haldið uppi málþófi frá upphafi þings.

Ég held að ríkistjórnin eigi að kappkosta að koma Seðlabankalögum á og koma gjaldeyrismálum þjóðarinnar á fulla ferð.

Lögum um björgun heimilana og fyrirtækja í landinu í gegnum þingið.

Þá eru það kosningalögin og lög um stjórnlagaþing.

Öðru er hægt að ýta til hliðar fram yfir kosningar.

Við bverðum að standa vörð um að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn komist ekki til valda aftur.

Þetta finnst mér.


mbl.is Breytingartillögur til bóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokksræðið í fyrirrúmi hjá Sjálfstæðisflokki !!!

29 manns hafa boðið sig fram í Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Karlar fleiri en konur, bara eins og vanalega

Af þessum 29 eru 11 sem ekkert erindi eiga í framboð að mínu mati.

Þetta eru þeir sem mest hafa haft sig í frammi vegna frjálshyggjunar og verið í þingflokksliði  og þotuliði Sjálfstæðisflokksins.

Þetta er fólk sem á að bera ábyrgð á lagasetningum undan farna ára og útrásarbrjálæðinu, eftirlaunalaögum, einkavinavæðingunni.

Þetta fólk skilur ekki að kjósendur vilja þetta fólk í burtu.

Sjáið bara listan sem fylgir þessum pistli í fréttaskotinu.

Það þarf ekki að nefna nein nöfn þau eru á listanum.

Og ekki þarf að fjölyrða um að þegar frægir fortíðardraugar birtast í framboð, þá er nú fokið i flest skjól hjá Sjálfstæðisflokknum.

Sama er að gerast í öllum öðrum kjördæmum þessir Sjálfstæðismenn sem sitja núna á þingi og eru búnir að drulla mörgum sinnum á sig og um allt þjóðfélagið vilja endilega halda áfram.

En þetta er ekki bara Sjálfstæðisflokkurinn þó framboðsfresturinn sé útrunninn í þeim flokki.

Skoðum seinna hina frambjóðendurna í öðrum flokkum en Sjálfstæðisflokki eftrir að framboðfrestum líkur hverjir neita að víkja.

Þetta finnst mér.


mbl.is Geir gefur ekki kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi eitthvað lært af nasistum ?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kemur til með að velja fólk á uppstillingarlista ásamt öðrum vegna valdastöðu sinnar innan Framsóknarflokksins fyrir næstu kosningar.

Vonandi verður það ekki gert eins og þegar Nasistar völdu fólk til starfa í Útrýmingabúðir. En framsóknarflokkurinn hefur verið í útrýmingarhættu á undan förnum misserum.

En Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sendi fyrirspurn til vísindavefsins 12.09.2000 um það hvernig fólk hafi verið valið til starfa í Útrýmingarbúðum Nasista ?

Og hvort væru til þekkt dæmi um að menn hefðu óhlíðnast skipunum þar ?

Ég ætla ekki að tíunda svörin hér.

Það er sjálfsagt mjög gott að vita allt um þessi mál þegar menn þurfa að taka við slíkum búðum ,sem Sigmundur Davíð hefur tekið við.

Mér hefur fundist nokkuð margir yfirgefa þessar framsóknarbúðir með nokkru þjósti.

Vona bara að Sigmundi Davíð takist að standa við stjórnarsáttmálan. Sick

Þetta finnst mér.


mbl.is Sigmundur Davíð býður sig fram í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 101
  • Frá upphafi: 85232

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband