Nú er að koma fram skemmdin sem Borgastjórnarflokkur Sjálfstæðismanna í Reykjavík er að valda Sjálfstæðisflokknum á landsvísu.
Eitthvað sem dónalegi formaðurinn sagði að ekki mundi gerast.
Fyrirgefðu Geir H. Haarde hvað ég er dónalegur að minnast á þetta.
En heldur þú virkilega að það sé nóg að skipta um einhvern leiðtoga í forustu flokksins í anstöðu við 40% flokksmanna eins og þú lést Vilhjálm Þ. gera án þess að hann þurfi að axla ábyrgð rosalega ertu eitthvað tæpur.
Já eða bara það að enginn í Borgarstjórnaflokknum þurfi að axla ábyrgð og segja af sér vegna embættisglapa og bara það eitt að setja í Borgarstjórastól einhvern mann sem 90% Reykvíkinga vill ekki hafa sem Borgarstjóra og 70 % landsmanna er á móti Ólafi F.Magnússyni sem Borgarstjóra.
Þú skilur ekki þjóðartaktinn eða bara villt ekki heyra það sem fólk vill.
Sjálfstæðisflokkurinn er bara ömurlegt dæmi um fólk sem misbeitir valdi sínu í þágu þeirra ríku og valdamestu innan þjóðfélagins, hyglar þeim mest.
En er svo heppinn að vera með Félagshyggjuflokkshækju sem gerir bara allt sem Sjálfstæðisflokkur segir og vill.
Sú stefna sem keyrð er af Sjálfstæðisflokknum að gera þá ríkari, ríkari á eftir að skila árangri í að fá nýja ríkistjórn eftir næstu kosnigar.
Þessi Borgarstjórnarskrípi Sjálfstæðismanna eiga eftrir að draga flokkinn ennþá meira niður sem betur fer.
Hanna Birna Kristjánsdóttir erfðaprinsessa mun ekki ná einu eða neinu til að auka fylgi við flokkinn, svona frekjudós og framapotari er bara ekki á réttum stað núna, eða er á réttum stað fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Þetta finnst mér.