Yfirgangur rússneskra sprengjuflugvéla í lofthelgi Íslands er stórhættulegt sjónarspil.

Það á að gefa rússneska sendiherranum rauða spjaldið, á teppinu hjá Utanríkisráðherra í fyrramálið finnst mér. Og mér finnst að það eigi að kveða mjög sterkt að orði við sendiherran, ef um fleiri flug verði án tilkynninga Rússneskra yfirvalda til Íslenskra stjórnvalda.

Hann gæti bara átt von á að fara að pakka niður dótinu sínu ef þetta endurtaki sig, mér finnst þetta svo alvarlegt brot. Þetta eru jú flugvélar sem geta borið kjarnavopn.

En kannski er þetta einmitt sá leikur sem Rússar ætla sér, að láta Island kalla á aðgerðir frá NATO vegna þessara flugsýninga . Og geta þá sýnt fram á að við getum ekki tekið sjálfstæða ákvörðun, ef við kæmust í Öryggisráðið, yrðum bara að fara eftir niðurstöðum ákvarðanna í Nato.

En fyrst ég er að tjá mig um Utanríkismál þá er....

Ég er alveg sammála Utanríkisráðherra Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur um að kalla friðarsveitarfulltrúan heim frá Írak.

Hún ætti líka að kalla hina friðarsveitina í Afaganistan heim líka. Ég held nefnilega að með því fengjum við mun fleiri atkvæði í þetta embætti sem sóst er eftir í Öryggisráðinu.

Það gæti nefnilega valdið mun á valdajafnvægi að eitt Natóland í viðbót  Ísland settist í Öryggisráðið.

Og því tel ég að af okkar hálfu eigum við ekki að koma nálægt neinu hernaðarbrölti og bara virða  og verja Íslensku Srjórnarskránna.

Við þurfum ekki NATO þeir þurfa okkur.

Það finnst mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband