Íslensk erfðagreining reynir einu sinni enn að komast yfir upplýsingar um fólk. Núna á að bara að fara bakdyra megin inn !

Íslensk erfðagreining reyndi á sínum tima að fá aðgang að sjúkraskrám landsmanna. Því var komið fyrir að sammþykki einstaklinga þurfti fyrir að nota sjúkraskránnar.

 Þá var fólki líka boðið að senda inn til Landlæknis á sértilgerðum blöðum staðfestingu um að ekki yrði leyft að nota sjúkraskrár viðkomandi.

En Íslensk erfðagreining brást við því, hjá þeim sem ekki vildu láta þessa stofnun nota sjúkraskrár um sig. Þá var farinn önnur leið sem ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir.

Íslensk erfðagreining fékk sérfræðinga á sjúkrahúsunum í lið með sér,og lætur fólk skrifa undir sérstakt eyðublað á sjúkrahúsunum, þegar það er að koma í einhverja aðgerð  um að ransaka megi lífsýnið úr viðkomandi.

(Ég hef lennt í þessu sjálfur) ég hélt þá að ég væri að gefa leyfi til að rannsaka sýnið á spítalanum.

En nokkrum vikum seinna fékk ég bréf frá einhverri stofnun í eigu Íslenskrar erfðagreiningar með þakklæti fyrir að notkunina á lífssýnum frá mér og óskað var eftir að ég svaraði marga síðna spurningalista. sem ég neitaði þeim um.

Ég brást mjög hart við og var þá sagt að ég hefði skrifað  undir sérstakt eyðublað á spítalanum þess efnis að  það mætti rannsaka lífsýni úr mér. Man bara ekki hvort það var fyrir eða eftir aðgerð. Þarna er bara verið að koma aftan að fólki.

Ég vil taka undir þá umræðu og gagnrýni hér og annarstaðar í þjóðfélaginu vegna boða Íslenskrar erfðagreiningar á greiningu erfðamengi hjá öllum. Þetta er gróf leið þessarar stofnunar til að komast í sjúkraskrár landsmanna og misnota segi ég.

Þetta kostar tugi þúsunda króna fyrir hvern einstakling og því ekki hugsað fyrir alla. Þetta  er með ólíkingum að ætla að spá fyrir fólki hvaða sjúkdóma það fær í framtíðinni. Svona forspá getur ekki verið marktæk,það hljóta að vera aðstæður hvers og eins, sem ráða því hvort þú færð einhvern sjukdóm.

Fólk fær t.d lungnakrabba þó það reyki ekki og sé ekki innan um reykingafólk.

Ég held að þarna sé peningaplott að fara af stað og verið að opna bakdyr fyrir Íslenska  erfðagreiningu til að komast fyrirhafnarlaust í sjúkraskrár landsmanna.

Ég spyr Landlækni er þetta löglegt að safna svona sýnum eins og Íslensk erfðagreining ætlar að gera. Hvort það sé löglegt að  framselja lífsýni  sem tekin eru á spítala, til annara stofnana utan spítalans.

Ég spyr Persónuvernd hefur Íslensk erfðagreining gert grein fyrir meðferð á þeim upplýsingum sem um er að ræða með greiningu á erfðamengi fólks.

Þetta finnst mér.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: haraldurhar

Sæll Guðmundur Óli.

    Eg spyr þig Guðmundur Óli  er það ekki betra fyrir þig og þína fjölskyldu, að se til erfðafræðilegar upplýsingar um þig og þína.?  Þú veist að því betri erfðafræðilegar upplýsingar, gefa meiri möguleika að hafa fyrirbyggandi ráðstafanir varðandi erfðasjúkdóma, jafnframt að þróa lyf til að halda aftur af erfðasjúkdómum.  Ætti að vera öllum til gagns.

    Það er hreint ótrúlegt hversu lákúran hefur verið mikil í mörgum íslendingum, þegar kemur að fjalla um Ísl. erfðagreiningu.     Það er hreint ótrúlegt að Íslensk erfðagreining hafi fyrir löngu flutt starfsemi sína erlendis, eins og þú og aðrir kverúlandar hafa látið út í starfsemi þess.   Hluti læknastéttar hefur látið eins og afbrýðissöm smáborn út í starfsemi þess.

   Íslensk erfðagreinin er og verður vonandi á komandi árum merkasta fyrirtæki Íslands, sem við ættum öll    að vera stolt af.

haraldurhar, 23.9.2007 kl. 14:14

2 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Ekki veit ég hver þú ert "haraldurhar"

Enda ertu svo mikill aumingi að geta ekki skrifað undir fullu nafni.

Og athugasemt þín er bara bull enda ertu ekki til, nafnlaus maðurinn eða konan.

Guðmundur Óli Scheving, 23.9.2007 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 85234

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 85
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband