Verkalýðshreyfingin er alveg steindauð í því að vernda sjómenn !

Þeir tala bara og tala þessir svo kölluðu verkalýðsforusta. Og í dag var verið að samþykkja einhverja mótmælayfirlýsingu af þeirra hálfu ,sem allir hlægja bara að.

Þetta koddahjal verkalýðshreyfingarinnar er alveg máttlaust.

Það eru liðnir margir mánuðir síðan aflaskerðingin varð að veruleika og  jú aðeins einn leiðtogi sjómanna , hefur tjáð sig hinir eru bara að hugsa um eithvað allt annað annað held ég.

Það þarf að grípa til aðgerða t.d. láta allt loga í verkföllum, stoppa framkvæmdir við virkjanir og fl stoppa flugið, stoppa landflutninga, stoppa sjóflutninga svo þessi svo kallaða velferðarstjórn komi sjómönnum til hjálpar.

Maður heldur bara að þessi verkalýðsforusta, sem öll virðist vera orðin háskólagengin, að meira og minna leiti, viti bara ekki að kjölfesta íslenskts þjóðlífs eru sjómenn. 

Og nú finnst mér er eins og verið sé að nauðga sjómönnum og hróp þeirra eru farin að heyrast frá hinum ýmsu stöðum á landinu stöðum þar sem fleiri og fleiri eru að missa vinnuna. 

Það vantar alveg brodd í þessa verkalýðshreyfingu það var lamið í borðið og set í gang verkföll og samúðarverkföll þegar menn eins og Eðvarð Sigurðsson og Guðmundur  J Guðmundsson og Halldór Björnsson og Helgi Laxdal voru við stjórnvölin í verkalýðshreyfingunni.

Það er orðið dálítið súrt finnst mér þegar forsvarsmenn sjómanna og heildarsamtaka verklýðsins í landinu láta koma svona fram við sjómenn eins og gert er í dag.

Sjávarútvegsráðherran hefur sagt við sjómenn étiið það em úti frýs og verkalýðshreyfingin tekur bara undir það meða að hefja ekki skipulagðar aðgerðir til að ná fram rétti sjómanna til að lifa lífinu eins og aðrir í þessu landi.

Maður er orðin svo leiður á þessum silkihúfum sem koma fram með vita vonlaus mótmæla yfirlýsingar það þarf einhver áþreyfanleg mótmæli.

Það finnst mér


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 43
  • Sl. sólarhring: 82
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 85222

Annað

  • Innlit í dag: 34
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 34
  • IP-tölur í dag: 34

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband