Kjartan Magnússon er nú orðinn stjórnarformaður REI og OR er ekki allt í lagi með þenann mann.
Mér hefur alltaf fundist hann siðblindur en nú tekur út fyrir allt.
Hann er kominn í oddastöðu í málefnum OR hann er kominn í oddastöðu hjá REI.
Hann er sá aðili sem er valdur að því valdaráni sem varð í borginni núna síðast.
Hann er sá aðili sem er búinn að sundra Borgarstjórnarflokknum.
Hann vill ekki styðja Hönnu Birnu til foringjastarfa í Reykjavík, eða til Borgarstjórastarfa.
Hann er sá aðili sem rær nú með öllum árum að verða næsti Borgarstjóri í Reykjavk og hefur gert samkomulag um það milli hans og Vilhjálms Þ og Ólafs F.
Hann er sá sem alltaf lætur ná í sig til að segja ekki neit um málefni. Hinir eru bara í felum og láta ekki ná í sig.
Hann er orðinn svona opinber gjammari Borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Þá grunar mig hvernig fer fyrir þeim málum sem mestar deilur hafa verið uppi um í þjóðfélaginu málefni OR og REI og stjórnir þessara fyrirtækja eiga að leysa.
Þau verða bara svæfð eða sópað undir teppið fram yfir næstu kosningar.
Þetta finnst mér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.