6.7.2008 | 09:48
Jórunn Frímannsdóttir segðu af þér, mér finnst þú gegnum spillt !!!!
Íbúarnir telja að meðaferðarheimili fíkla eigi ekki heima á þessum stað í Norðlingaholti og ekki á að tala við íbúana fyrr en búið er að semja við rekstraraðila meðferðarheimilsins.
Hafin er undirskriftasöfnun í Norlingaholti gegn fyrirhuguðu áfangaheimili sem stefnt er að hefji starfsemi í haust.
,,Ég er skelfingu lostin yfir þessari ákvörðun, segir Díana Fjölnisdóttir, íbúi í Hólmvaði, en fyrirhugað heimili verður í Hólavaði.
Díana gagnrýnir borgaryfirvöld fyrir að setja áfangaheimili í mitt íbúðarhverfi án þess að málið hafi farið í gegnum grenndarkynningu.
,,Það er allskonar óþveralýður sem fylgir þessu vesalings fólki, segir Díana og bætir við að sér þyki eðlilegra að starfsemi eins og þessi fari fram í dreifbýli þar sem fólk ,,geti andað að sér hreinu lofti.
Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkur, segir að þjónustumiðstöð borgarinnar í hverfinu og Heilsuverndarstöðin muni kynna íbúum væntanlega starfsemi þegar samkomulag liggur fyrir.
,,Það er vont þegar heimili eins og þetta fara í umræðuna með þessum hætti áður en búið er að kynna þau fyrir íbúum í nágrenninu, segir Jórunn og bætir við að fyrirhugað heimili er ætlað einstaklingum sem lokið hafa meðferð og eru ákveðnir í að breyta lífi sínu.
Heilsuverndarstöðin mun sjá um rekstur heimilisins. Ákvörðun velferðarráðs Reykjavíkur að ganga til samninga við fyrirtækið hefur verið gagnrýnd af minnihlutanum í Reykjavík. Fjórir aðilar buðu í reksturinn þar á meðal SÁÁ. Tilboð samtakanna var lægra en tilboð Heilsuverndarstöðvarinnar.
Þetta er sennilega eitt versta spillingarmál sem Sjálfstæðisflokkurinn á aðeild að.
Og makalaust þá standa allir Borgarfulltrúar Sjálfstæðiflokksins að þessu eindæma spillingarmáli.
Góð fjöður í hatt Hönnu Birnu að verja þessa spillingu sem þarna fer fram undir stjórn Jórunnar Frímannsdóttur.
Þetta finnst mér.
![]() |
Hólavað 1-11: Staðfest eftir viku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Umræðan, Vefurinn | Facebook
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.