1.5.2009 | 16:45
Baulað og mótmælt ofurlaunastefnu Verkalýðsforingjana !
1. maí Frídagur verkalýðsins er bara típískur rigningardagur þessara hátíðarhalda eins og svo oft áður.
Engar lausnir eða kröfur um raunhæfar lausnir var að heyra á þessum ræðumönnum sem töluðu á Austurvelli í dag og sér í lagi ekki hjá Gylfa Arnbjörnssyni forseta ASÍ.
Þar heyrði bara þann tón að þetta yrði rosalega erfitt og fólk þyrfti að sætta sig við ýmsa hluti og taka á sig ýmsa hluti.
Ræða Gylfa einkenndist af þessu einstefnu klisjukenda hagfræðibulli ,sem löngu er búið að sanna sig að er úrelt en verkalýðshreyfingin eða forusta ASÍ vill viðhalda.
Þar var ekki beðist afsökunar tapi lífeyrisþega í lífeyrisjóðunum.
En vegna fjárglæfrarspilamennsku stjórnenda Lífeyrissjóðana er nauðsynlegt að lækka lífeyrir.
Kauphækkanir eru allar fyrir bý.
Og ekkert er til ráða frá Verkalýðsforustunni. Ekkert...Ekkert....Ekkert
Enda var baulað og búáhöld barin í takkt við dropatakt rigningarinnar.
Þetta er dómstóll götunar að láta í sér heyra og vonandi að þessi Verkalýðsforusta fari að skammast sín og lækki ofurlaunin sín.
Þetta finnst mér.
Nýjan sáttmála um stöðugleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2009 | 22:25
Kúkarnir í bankalauginni !!
Í helgarblaði DV. og á Dv.is er sagt frá hvernig þetta bankastjóralið sleppur undan mörg hundruð miljónum króna skuldbindingum. Og fá að starfa áfram á ofurlaunum sem bankastjóri.
Eigendur fárfestingarbanka og fjárfestingafélaga flýja land og fela sig, einn í Noregi, nokkrir í London, í Rússlandi og einhverjir eru komnir með sitt til Kína.
Ég ætla að birta lítið dæmi úr DV. Ég skora á fólk að ná sér í helgarblað DV.
"Í lok mars árið 2007 var Kauphöllinni tilkynnt um viðskipti tveggja fruminnherja hjá Glitni sama dag. Helgi Anton Eiríksson, framkvæmdastjóri fjárfestingabankasviðs, og Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, höfðu nýtt sér kauprétti. Hafði Helgi keypt fyrir 211 milljónir en Birna fyrir 185 milljónir króna.
Eins og frægt er orðið urðu tæknileg mistök til þess að kaup Melkorku ehf., félags Birnu, gengu aldrei eftir. Hins vegar gengu kaup félags Helga sem heitir Krem ehf. eftir. Samkvæmt ársreikningi Krems ehf. fyrir árið 2007 var tap félagsins þá 62,4 milljónir króna.
Samkvæmt ársreikningi Krems ehf. fyrir árið 2007 sést að skuldir eru skráðar 238 milljónir króna. Á þeim tíma sem lánið var tekið stóð gengisvísitalan í 120 stigum. Hún stendur nú í 225 stigum og því má áætla að skuldir Krems ehf. séu núna 445 milljónir króna."
Ef kaup Birnu hefðu gengið eftir má áætla að skuld hennar vegna þeirra hefði verið 208 milljónir í lok árs 2007. Miðað við núverandi gengi skuldaði Birna nú bankanum 390 milljónir króna.
Samkvæmt ársreikningi Melkorku ehf., sem var ekki skilað inn fyrr en í september 2008, er félag hennar skuldlaust. Skráð hlutafé er 500 þúsund krónur sem er lágmarksupphæð við stofnun einkahlutafélags. KPMG er endurskoðandi Melkorku ehf.
Í yfirlýsingu sem Birna sendi frá sér í lok október á síðasta ári sagði hún að Glitnir hefði boðið sér fimm ára kúlulán fyrir kaupunum. Það hefði átt að greiða með einni greiðslu árið 2012. Að sögn Birnu óskaði hún eftir atkvæðisrétti á aðalfundi Glitnis í febrúar 2008. Þá kom í ljós að engin hlutabréf voru skráð á félag Birnu. Þegar Birna óskaði eftir atkvæðisrétti á aðalfundi Glitnis höfðu bréf hennar sem hún keypti á 184 milljónir króna lækkað um tæp 30 prósent. Verðmæti þeirra hafði því rýrnað um 55 milljónir króna."
Af hverju er þetta fólk ekki sett í farbann eða bara lokað inni, af hverju er þetta fólk ekki látið sæta ábyrgð ?
Af hverju er ekki bankalaugin hreinsuð ?
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.4.2009 | 20:41
Einræðisherrann Davíð Oddsson !!!!
Í DV í dag er sagt frá innihaldi bókar eftir Ólaf Arnarson sem heitir "Sofandi að feigðarósi", þar rekur blaðamaðurinn Jóhann Hauksson ýmsa þætti í samskiptum Davíðs Oddsonar við aðra og einleik hans í valdakerfi Sjálfstæðisflokksins.
Ólafur Arnarsson er fyrrverandi framkvæmdarstjóri þingflokks Sjálfstæðismanna og aðstoðarmaður Ólafs G Einarssonar fyrrverandi Menntamálaráðherra.
Upplýsingar í blaðinu um innihald bókarinnar er magnað.
Og raunar ekkert eftir annað enn að færa það sem þar stendur í lögreglumál á hendur einum spilltasta embættismanni sem nokkurn tíma hefur verið uppi .
Það var von að menn í Sjálfstæðisflokknum þyrðu ekki að gera neitt, mudu sennilega allir hafa farið á bak við lás og slá, eiga það sennilega eftir.
Ráðlegg öllum að lesa þessa góðu grein Jóhanns Haukssonar.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.4.2009 | 18:44
Burt með þetta fólk sem verið er að stroka út af listum !!
Núna eftir kosningarnar hefur komið í ljós að fólk sem hefur boðið sig fram hefur og náð kjöri er ekki vinsælt
Mikið af fólki er strokað út af listum í kosningunum, þetta hefur líka verið gert í prófkjörunum en það virðist bara ekki skipta neinu máli.
Það má því segja að í prófkjörum/ forvölum hefur þetta fólk náð kjöri innan síns hóps og með fjárhagslegri aðstoð fyrirtækja.
Og sum þeirra hafa fallið niður lista. En það skilur það ekki að það er verið að hafna þessu fólki.
Einn sagði ég tek þetta ekki persónulega þó það sé strokað yfir mig. Sjáið bara helvítis hrokan.
Ein féll útaf þingi og sem ráðherra en segist vilja halda á fram sem ráðherra.
Er ekki allt í lagi með þetta fólk ?
Einn sagði þetta er nú allt innan skekkjumarka. Skekkumarka hvers ?
Ég segi ef 300 - 2000 útstrikanir eru á einstakling á sá hinn sami að víkja af lista.
Þetta finnst mér.
Engar breytingar í RN | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2009 | 00:06
Fjölmiðlar eru að reyna að stýra stjórnarmyndunarferlinu !
Fjölmiðlar hafa í þessari eindema "gúrkutíð" frétta, hjakkað og hjakkað í fari ESB drullupollsins. Endalaust sömu spurningarnar daglega og sömu svörin frá forustumönnunum dag eftir dag.
En nú er ekki unnið dag og nótt við stjórnarmyndun eða verið að lemja fram aðgerðir vegna heimilana og fyrirtækjana.
Nei núna er nægur tími.
Og fjölmiðlum finnst þau mál bara ómerkileg.
Það er í gildi ennþá verkefnaskrá minnihlutastjórnar Samfylkingarinnar og VG.
Og hvert er hún kominn ?
Í fyrsta lið verkefnaskráarinnar Um aukið lýðræði,jöfnuður og upplýsingar.
Þar hefur verið farið í alla undirliði verkefnalistans. En Sjálfstæðisflokkurinn stöðvaði samt þáttinn um aukið lýðræði landsmanna, með málþófi og dónaskap enda hafa þeir svo sannarlega uppskorið eftir því.
Í öðrum lið verkefnaskrárinnar Um endurskipulag í stjórnsýslu
Þar er búið að fara í alla undirliðina.
Í fjórða lið verkefnaskrárinnar Aðgerðir í þágu heimilana
Í þeim undirliðum er búið að gera ótal lagabreytingar og er sá listi tæmdur.
Í fimta lið verkefnaskrárinnar Aðgerðir í þágu atvinnulífsins
Þar er búið að gera ýmsar lagabreytingar á hinum ýmsu málaflokkum, en Sjálfstæðisflokkurinn kom í veg fyrir að hægt var að leggja nokkur frumvörp fram vegna ,málþófs í Stjórnarskrárfrumvarpinu.
Í sjötta lið verkefnaskrárinnar Aðgerðir til að byggja upp fjármálakerfið og greiða úr vanda fyrirtækja
Hafa hlutirnir gengið hægar fyrir sig enda sitja í þessum skiptanefndum bankana menn og konur sem Sjálfstæðisflokkurinn valdi til verka úr smiðju sinni.
Að vísu er komin sérstakur saksóknari og alþjóðlegur ráðgjafi
Í sjöunda lið verkefnaskrárinnar Alþjóðasamningar og Evrópusamstarf
Þar var nefnd að störfum sem átti að standa skil á úttekt á Evrópumálum og viðhorfum hagsmunaaðila til Evrópusambandsins Nefndin átti að skila skýrslu um þessi mál 15.apríl 2009
Hefur einhver séð þessa skýrslu ?
Þar segir líka að stjórnarflokkarnir séu sammála um að aðeild að ESB verði aldrei ákveðin nema í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Og hvað eru fjölmiðlar þá að bulla um þessar gjár og ósamkomulag.
Þeir hinir sömu ættu að lesa verkefnaskrá ríkistjórnarinnar sem er í fullu gildi þar sem ekki er búið að leysa þessa minnihlutastjórn frá völdum.
Þetta finnst mér.
Ekki víst að langt sé í land | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.4.2009 | 22:18
Nýir hagrfæðingar, skáld, rithöfundar og embættismenn !
Þetta er nú í grunninn nýja fólkið sem á eftir að setjast inn á Alþingi. Nýir Alþingismenn.
Mér sýnis svona fljótt á litið að litlar breytingar verði á fjórflokksmunstrinu núna og sem var.
Borgarahreyfingin fellur einmitt mjög vel inn í fjórflokkakerfið sýnist mér alveg stefnulaus hreifing nema í einu máli að breyta Stjórnarskránni.
Undanfarna daga hafa gömlu brínin í flokkunum komið fram með alskonar yfirlýsingar til að minna á að þeir og þær ráði því sem þáða þarf í krafti hefðarinnar inn á Alþingi.
Nú eru fréttamenn búnir að þvaðra og blaðra og móta einhverja niðurstöðu með þjóðinni um ESB bullið sem ekkert er búið að ræða.
En skoðanakannanir hafa sýnt hingað til að þjóðin vill ekki fara í ESB
Og setja það í öndvegi jafnvel þó allir stjórnmálaflokkarnir hafi sagt marg sinnis að kosningarnnar hafi snúist um efnahagsmál ,atvinnuleysið, gjaldeyrirsmálin,Heimilinn.
Ekki veit ég hvort þetta nýja fólk sem flest er úr yngra kantinum hefur þann þroska að verða Alþingismaður kannski ætti að setja einhver aldurstakmörk á Alþingismenn.
Eins og krafist er af vegna Forsetans eða þrjátíu og fimmára aldurstakmark
Það ætti líka að gera kröfu um almenna menntun. Þetta er nú opinbert starf og í öllum stofnunum samfélagains þar sem auglýst er eftir fólki er krafist menntunar.
Þetta finnst mér.
Heillandi starfsvettvangur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 28.4.2009 kl. 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.4.2009 | 14:56
Spillingarflokkarnir ætla að vinna saman eftir kosningar !!!!
Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Samfylkinginn stefna á það að vinna saman eftir kosningar.
Það sýnir bara framkoma stjórnmálamanna þessara flokka undanfarnar vikur.
VG er eini flokkurinn sem ekki ætlar að vinna með Sjálfstæðisflokki eða Framsókn eftir kosningar vegna undirförulsháttar þessara flokka í spillingar-og múturmálum. Og ESB og virkjana-og stóriðjumálum.
Þó hefur VG lýst því yfir að skársti kosturinn sé að vinna með Samfylkingunni eftir kosningar , líka vegna þeirra foringjaskipta sem þar hafa orðið.
Ég vil taka undir orð vinar míns Kjóns á visir.is til þeirra sem eftir eiga að kjósa ,ekki kjósa þessi spillingaröfl
Sjálfstæðisflokkinn,Framsóknarflokkinn eða Samfylkinguna.
Það eru aðrir valkostir til breytinga á þesu rotna kerfi.
Þetta finnst mér.
Kjörfundur hafinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.4.2009 | 23:53
Yfirgaspari Samfylkingarinnar skítur upp á bak sér !!!!
Björgvin Sigurðsson er sannarlega þessi maður sem hann er, ótrúverður gaspari og handbendi Sjálfstæðisflokksins í raun.
Hann drullaði upp á bak sér í kvöld með yfirlýsingum sem ekki er innistæða fyrir.
Hann drullaði líka upp á bak sér í Bankahruninu og þorði ekki að horfast við það mál og sagði af sér embætti Viðskiptaráðherra korter áður en til stjórnarslita kom.
Auðvitað vantaði Sjálfstæðisflokkinn svona gaspara og bullukoll úr röðum andstæðinga til að veikja samtakamáttinn gegn Sjálfstæðisflokknum.
Hverskonar helvítis bull er nú í þingmönnum Samfylkingarinnar um að gefa VG upp á bátinn.
Hefur virkilega verið logið að okkur, augsýnilega vilja Árni Páll og Björgvin freista þess að fara í samstarf með Sjálfstæðisflokknum.
Ja hérna maður maður
Þetta finnst mér.
Evrópustefnan verði á hreinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.4.2009 | 21:44
Heildsalasonurinn Bubbi Morthens í faðmi Sjálfstæðisflokksins !!!
Á DV.is er sagt frá ótrúlegum yfirlýsingum Bubba Morthens þar sem hann hvetur fólk til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Þessi sami maður hélt mótmælatónleika fyrir framan Seðlabankann og öskraði alskonar slagorð gegn fyrrverandi foringja sínum.
Trúverðugt í dag ? Nei
Þessi sami maður hélt líka tónleika á Austurvelli og þar lét hann fólk öskra með sér slagorð gegn þá verandi valdhöfum.
Trúverðugt í dag ? Nei
Hann sagði þjóðinni með brostinni röddu að hann hefði tapað nær allri aleigunni.
Trúverðugt í dag ? Nei
Þessi sami maður kom fram í Kastljósi og fór mikinn og hafði stór orð um þessa fyrrverandi ríkistjórn.
Trúverðugt í dag ? Nei
Þessi sami maður er búinn að vera að kynna sig í gegnum tíðina sem vin litlamansins, farandverkamansins.
Trúverðugt í dag ? Nei
Þessi maður komst sjálfur á digran spenan hjá útrásarvíkingunum þeir keyptu verkin hans til framtíðar nú eigum við þetta rusl, sem er algjörlega verðlaust, því Glitnir er í ríkiseigu og þessi svo kölluðu verðmæti eru bara svona loftbóla sem sprakk.
Er ekki byltingarspíran Bubbi Morthens trúverðugur í dag ? Nei
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.4.2009 | 12:49
Æ...Ólafur Friðrik hættu þessu bulli !
Ólafur Friðrik Magnússon vill að eignir Björgólfsfeðga sem hann segir að þeir hafi fengið með hans tilstuðlans sem Borgarstjóra , verði skilað aftur til borgarinnar.
"Þessir sömu aðilar hafa með ósvífnum hætti auðgast á kostnað fólksins í landinu og betra fyrir alla aðila að þeir geti bætt fyrir misgjörðir sínar en að þeim sé komið á bak við lás og slá," segir Ólafur í tilkynningu sem hann gaf frá sér.
En Ólafur Friðrik þá sem Borgarstjóri samþykkti alla þessa gjörninga gagnvart Björgólfsfeðgum.
Þessi sami Ólafur Friðrik gaf frá sér öll gundvallar báráttumál sín bara til að splundra Tjarnarkvartettinum sem hann sér sárlega eftir, til þess aðeins að setjast valdalaus í Borgarstjórastólinn.
Enda lét Hanna Birna, Ólaf Friðrik fjúka eins og skot og forusta Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafði samið á bak við tjöldin.
Málefni og klúður í Reykjavík er því bara þér Ólafur Friðrik að kenna eins og hinum sem tekið hafa þátt í þessari endalausu og valdagræðgi og er búinn að vera Reykvíkingum dýrt spaug.
Það var Ólafur Friðrik sem splundarði Frjálslynda flokknum í Reykjavík enginn annar með framkomu sinni.
Þetta finnst mér.
Vill að Reykjavík eignist lóðir í miðborginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
- annaeinars
- arikuld
- arndishauks
- utvarpsaga
- reykur
- kaster
- birgitta
- gattin
- brylli
- dansige
- danth
- egvania
- finni
- gelin
- gudbjorng
- straumar
- hallkri
- heidistrand
- hlf
- heimssyn
- snjolfur
- don
- fridust
- jakobjonsson
- jenje
- jon-o-vilhjalmsson
- prakkarinn
- juliusbearsson
- larahanna
- veffari
- olinathorv
- omarragnarsson
- svarthamar
- skari60
- fullvalda
- nimbus
- sigurjonth
- tara
- vga
- thj41
- heilsa
- kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar