12.2.2009 | 13:03
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar lugu að þjóðinni !!!!
Geir Hilmar Haarde sagði í viðtali við Stephen Sackur á BBC News í morgunn, að hann hafi ekki talað við Gordon Brown eftir að Bretar settu hryðjuverkalög á Íslendinga.
En þessi sami maður Geir Hilmar Haarde sagði oft aðspurður að þessi mál væru í góðu ferli.
Og þetta yrði ekki liðið.
Hvað er það sem Geir Hilmar Haarde þarf að reyna að fela fyrir þjóðinni og Davíð Oddsson veit um ?
Bullið og lygin sem þessi maður Geir Hilmar Haarde og samflokksráðherrar hans í síðustu ríkistjórn hafa boðið þjóðinni upp á að trúa á undanförnum mánuðum, gera Baron Munchausen að sannleikspostula miðað við lygavefinn sem þetta fólk hefur ástundað.
Hryðjuverkalögunum Bresku var aldrei mótmælt af æðstu stjórnvöldum á Íslandi.
Þetta var bara sett í ferli.... já lygaferli.
Hver er hlutur Jóhönnu Sigurðardóttur og Samfylkingarinnar í þessu máli ?
Kannski við fáum eina útgáfuna enn um þessi mál.
Þetta stjórnmálapakk er allt að míga í sama skóinn að hilma yfir með hvort öðru, alla vega sé ég það þannig.
Þetta stjórnmálapakk á Alþingi ætlar ekki að leysa málin það er með skrílslæti í Alþingi, framm í köll, málþóf og fyrirspurnir um mál og málefni sem ekki þarf í þessa neyðar umræðu í þjóðfélaginu.
Ég held að Geir Hilmar Haarde ætti að segja af sér þingmennsku, mér finnst að ef einhver hafi drullað upp á bak þá er það Geir Hilmar Haarde.
Honum finnst ekki ástæða til að biðjast afsökunar.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.2.2009 | 20:24
Í þessu eru Íslendingar bestir !!!
Gervigreind Íslendinga er með endæmum góð, svo góð að ESB hefur ákveðið að veita Tölvunardeild Háskólans í Reykjavík 300 miljóna kr styrk í þetta mikilvæga verkefni.
Það hefur nefnilega lengi verið að brjótast í mér að Íslendingar væru sennilega rosalega greindir, en eftir þetta bankahrun sé ég að það voru bara örfáir örvitar með gervigreind sem komu Íslendingum svo sannarlega á heimsgreindarskrá.
Ástæðilaust finnst mér að vera að verðlauna þessa Útrásarvíkinga með gervigreindina og hina sem tóku þátt í darraðardansinum.
Ótrúlegt að Íslendingar með gervigreind skuli fá 300 miljóna styrk frá ESB þegar við erum ekki í ESB.
Eru bara ekki einhverjir með gervigreind hjá ESB að afgreina okkur.
Frá þessu er sagt á visir.is í dag.
Þetta finnst mér
Dægurmál | Breytt 12.2.2009 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2009 | 22:56
Hundruð miljóna hent út um gluggan hjá Borgarstjórn Reykjavíkur !!!!
Mér tókst það, mér tókst að fá mínum vilja framgengt, er Júlíus Vífill Ingvarsson vafalaust að meina þegar hann fagnaði ógurlega, að nú væri búið að slá af hugmyndir fyrri borgarstjórna Sjálfstæðisflokksins og sér í lagi áhuga og beitingu Gísla Marteins Baldurssonar fyrir því að leggja umferð um Mýrargötu í stokk.
Nú á að grafa göng fyrir umferðina.
Það er hægt að fara alveg aftur til ársins t.d. 2004 þá er gerð t.d. endurskipulagning á Mýrargötu og slippsvæði og ákveðið að setja Mýrargötuna í stokk, þar var fjögra manna stýrihópur undir stjórn Steinunar Valdísar Óskarsdóttur og hinum ýmsu embættismönnum Reykjavikurborgar sem tengjast þessari mannvirkjagerð.
Allar götur þar til núna hefur verið rætt um að setja umferðina í stokk.
Í mars 2007 er settur stýrihópur vegna uppbyggingar í Örfyrisey en þar gleymdist stokkurinn í fyrri hluta samgönguáætlunar. í stýrihópnum voru Björn Ingi Hrafnsson,Dagur B Eggertsson,Gísli Martein Baldursson,Hanna Birna Kristjánsdóttir og Árni Þór Sigurðsson. Sturla Böðvarsson þá Samgönguráðherra gerði samt ráð fyrir að þessi mannvirkjagerð yrði á öðru tímabili samgönguáætlunar þess árs.
Í febrúar 2008 er sagt frá samþykkt um að unnið skuli að skipulagningu og undirbúnings vinnu við þetta skipulag að setja Mýrargötuna í stokk og að sögn Gísla Marteins Baldurssonar á þeim tíma að þróunarvinna og hönnunarvinna komin á lokastig.
Í júní 2008 er sagt frá því að hluti Geirsgötu fari líka í stokk og framkvæmdum verði lokið 2010 og þessi stokkur tengist öðrum stokk frá Mýrargötu.
Í september 2008 fundar Borgarstjóri, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Kristján Möller Samgönguráðherra um fyrirhugaðan umferðarstokk undir Geirsgötuna og Mýrargötuna. Fulltrúar allra flokka utan Vinstri grænna hafa samþykkt að fara þessa leið.
Vinstri Grænir hafa verið á móti þessum stokkamálum frá upphafi.
Og nú að byrja upp á nýtt, nýtt hönnunarferli fyrir jarðgöng fyrir Mýrargötu og Geirsgötu og hudruðir miljóna króna í undirbúningi árum saman í undirbúningi og hönnun fyrir stokk ónít.
Svo ætlar þessi söngfugl sem nú stjórnar þessari vitleysu að bjóða sig fram til Alþingis, er ekki bara allt í lagi með svona fólk.
Finnst þessu fólki sem svona hagar sér bara allt í lagi að gera hvað sem er með peninga Reykvíkinga ?
Og Borgarstjórin er sjálf búin að kúvenda stefnu sinni í skiplagsmálum og ekki í fyrsta skipti.
Enn eitt skipulagsslysið í uppsiglingu með stuðningi Framsókansrflokksins en í skiplagsráði situr einmitt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsókarflokksins.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Íslandshreyfingin er að leggja upp í kosningabaráttu og áformar að bjóða fram alstaðar.
Nú fær Ólafur Friðrik Magnússon ekki lengur að vera í Sundurlyndaflokknum, var rekinn af miðstjórnarfundi flokksins um daginn.
Á visir.is er sagt frá því að 'Islandshreyfingin er að hefja kosningabaráttu sína og ætlar að bjóða fram um allt land.
Og nú er eini möguleikinn fyrir hann að ganga aftur í Íslandshreyfinguna og hefja skrípaleikinn með Margréti Sverrisdóttur aftur og nú inn á Alþingi.
En hvaða málefni í umhverfisflokknum geta þau gert að baráttumáli sínu núna eftir að allir flokkar hafa tekið upp stefnu eða hliðstæða stefnu og Íslandshreyfingin hefur haft í umhverfismálum.´
Jú þau gætu sennilega barist fyrir því að ekki verði migið í saltan sjó.
Það var einmitt Íslandshreyfingin og Sundurlindiflokkurinn sem komu Sjálfstæðisflokknum til valda í síðustu kosningum.
Mjög athyglisvert að ætla að stuðla að því aftur.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2009 | 13:03
David Oddsson er bara...........
Davíð Oddsson sýnir sitt xxx eðli í framkomu sinni við ríkistjórnina og þjóðina .
Aldrei hefur slíkur xxxpési í Íslandssögunni komist upp með aðra eins ósvífni og hann gerir í dag.
í heiðni hefði hann sennilega verið veginn.
Eftir kristnitöku ef hann hefði verið þá uppi á þeim tíma, hefði hann sómað sér vel sem dómari í rannsóknarréttinum.
Í dag á hann ekki heima lengur sem embættis- eða stjórnmálamaður í fremstu víglínu hann skilur ekki að frjálshyggjan og vinapólitíkin er búin að vera. Hann skilur ekki reiði þjóðarinnar í hans garð.
Það verður bara að koma honum frá með valdi ef hann skilur ekki vilja þjóðarinnar og ríkistjórnarinnar.
Og nú er það á ábyrgð þingmanna að flýta setningu laga um Seðlabankan og niðurfellingu á störfum Seðlabankastjórana hrokafullu.
Þetta er bara rosalegt að einhver heldur bara að hann sé ósnertanlegur embættismaður. Og geti bara leyft sér allt.
Þetta finnst mér.
Ps. xxx er venjleg meking á eitri. Samanber væri hægt að nota t.d. xxx padda, xxxnaðra, xxxpési og .svo.framv........
![]() |
Hittu ekki seðlabankastjórana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.2.2009 | 21:56
Fýlu-Fépúkinn á Svörtuloftum þarf hjálp !!!!
Davíð Oddsson Seðlabankastjóri er sennilega ekki alveg heill heilsu.
Hann þarf sennilega að fá einhverja hjálp úr heilbrigðiskerfinu og fara í rannsókn á geði held ég.
Hann sendi Forsetisráðherranum æðsta yfirmanni stjórnkerfisins, bréf gegnsýrt af pólitík, valdhroka og eigin sjálfshóli að annað eins hefur ekki sést áður í hinum vestræna heimi ,þar sem hann ræðst á Jóhönnu Sigurðardóttur af því líkri heift og ósvífni að fyrir minni sakir hafa menn sætt ámynningu og verið vikið úr starfi umsvifalaust.
Þetta gerði hann sjálfur með Forstöðumann Þjóðhagsstofnunar og Þjóðhagsstofnun forðum daga.
Hann er sjálfum sér líkur í dag hann hugsar eingöngu um sjálfan sig, hann hlustar ekki á kröfur fólksins eða óskir valdhafa sem hann á að styðja í framgangi stjórnarstefnu,sér í lagi snerti það stofnun þá sem hann veitir forstöðu.
Hann hefur ekki varað neitt við hruninu, hann tók þátt í allri útrásinni og sló skjaldborg utan um vini sína í Landsbankanum.
Hefði hann virkilega verið með á nótunum hefði hann stöðvað þetta útrásraræfintýr starx í apríl 2007.
Nei Davíð Oddsson er hræddur um að upp komist núna, að hann er ekki starfi sínu vaxinn.
Mætum öll kl 08;00 í fyrramálið og mótmælum þessu hroka og yfirgengilegri ósvífni aums embættsmanns.
Þetta finnst mér.
![]() |
Davíð segir ekki af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.2.2009 | 20:55
Búið að breyta aðgangskóða bankastjórana í Seðlabankanum !!!!
Bankastjórarnir tveir sem neita að hætta störfum komast ekki lengur inn í Seðlabankann.
Búið er að loka öllum peningakortum sem þeir hafa undir höndum og eru eign bankans.
Þá er búið að loka tölvuaðgangi þeirra við bankann.
Þessu hvíslaði lítill sjálfstæður fugl áðan að mér.
Þeir Davíð Oddson og Eiríkur Guðnasson sína af sér þvílíkan hroka að annað eins hefur bara ekki sést áður í Íslenskum stjórnmálum og embættismannakerfinu.
Hafa menn vellt fyrir og sér í lagi Sjálfstæðismenn hvað hefði Davíð Oddsson gert ef hann hefði verið í stöðu Jóhönnu Sigurðardóttur og hún í stöðu Davíðs Oddssonar ?
Haldið þið að Davíð Oddsson hefði verið með eitthvað kurteysishjal eða bréfaskrif.
Mitt svar er nei .
Við skulum öll mæta kl 08:00 á mánudagsmorgun fyrir framan Seðlabankan og mótmæla framkomu þessara hrokafullu embættismanna.
Þetta finnst mér.
![]() |
Jóhanna þakklát Ingimundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.2.2009 | 00:04
Þeir halda útrásinni áfram hjá REI þvert á öll loforð !!
Á visir.is er sagt frá uppskiptingu á eignum REI og OR og GGE
Skrípaleikurinn hjá OR og REI heldur áfram. GGE(Geysir Green Enegry) sem er í eigu (FL.group) nú Stoða, Glitnis, VGK -Hönnun og Reykjanesbæ.
Hefur ákveðið að skipta upp fyrirtækinu ENEX en félagið var í eigu GGE.
ENEX saman stendur af Hitaveitu Suðurnesja, Exorku.
Með samkomulaginu yfirtekur REI hlut ENEX Í Iceland America Energy, REI mun vinna að þróunarverkefnum í Kaliforníu.
Þeir voru núna að skipta upp félögum tengdum þessum fyrirtækjum. Það er bara sagt frá % hlutum skiptingarinnar en ekki hvað þetta þýðir í peningum.
Það er alltaf sami feluleikurinn hjá Sjálfstæðismönnum í OR og REI.
Þeir ætla aldrei að læra neitt.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Seðlabankastjórar Íslenska Seðlabankans eru samnefnarar alls þess sem við viljum ekki sjá í Íslensku þjóðlífi.
Hroka ,valdnýðslu, tillitsleysi,óhlýðni og skítlegu eðli.
Hvað ætla þeir Seðlabankastjórar að gera þegar stöður þeirra verða laggðar niður með lögunum sem eru nú að fara fyrir þingið.
Mæta í vinnuna í Seðlabankanum ?
Eru þessir menn í raun lærðir í lögum og stjórnsýslu og hinum ýmsu þáttum í samskiptum við fólk ?
Þetta er bara ótrúlegt.
Enda er heimspressan agndofa yfir framkomu Seðlabankastjórana við æðsta yfirmann stjórnsýslunar á Íslandi forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur..
Við hljótum að mótmæla framkomu þessara manna kröftulega á morgun á Austurvelli.
Þetta finnst mér.
![]() |
Eiríkur og Ingimundur hafa svarað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.2.2009 | 00:09
Landsbanka, Glitni og Seðlabanka tókst að komast yfir BAUG !!!!!!
Baugur eitt helsta flaggskip Íslenskrar Útrásar er fallið í hendur hrægamma Sjálfstæðisflokksins sem starfa fyrir ríkisbankana Landsbanka og Glitnis.
Þar eru til húsa í skilanefndum þessara banka menn sem allir hafa farið í gegn um stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins félagaklíkuna SUS.
Margir af þessum mönnum í skilannefndunum hafa verið í alskonar nefndum sem álitsgjafar fyrir ríkistjórnir Davíðs Oddssonar í gegnum tíðina.
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins fyrrverandi er líka úr þessu SUS liði og réði í skilanefndirnar eingöngu þá sem Davíð Oddsson lagði til að yrðu ráðnir.
Athugið það að þessir kallar eru flestir frímúrarar.
Þá hittast menn undir rós stundum er manni sagt.
Þessir menn eru svo ósvífnir að þegar nýr viðskiptaráðherra óskar eftir að staða Bankastjóra Landsbankans verði auglýst strax. Ákveður bankaráð þessa banka að ráða bankastjóra úr sinum röðum strax og fram á haust.
Ég segi bara við þennan nýja forstjóra Fjármálaeftirlitsins leystu upp þessar skilanefndir þær draga bara lappirnar og eru ekki að ransaka nema einn útrásrar aðila að beiðni Seðlabankans bara Baug.
Hinir eru bara ekki með, eins og Bjarni Ármannsson, Hannes Smárasson, Björgólfur Guðmundsson, Bakkavararbræður,OR og REI og fl. og fl.
Nei bara Jón Ásgeir Jóhannesson og BAUGUR eru teknir niður. Já nú er fullri hefnd náð hjá Davíð Oddssyni eins og hann sagði við Geir Hilmar og fleiri þegar hann var beðinn um að stíga til hliðar áður en ríkistjórnarsamstarfið brast.....Baugur fyrst síðan ég.
Sjálfstæðisflokkurinn ræður öllum bankamálum ennþá. Hvenær á þetta að stoppa.
Þetta finnst mér.
![]() |
Gylfi skipar nýja stjórn FME |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 103
- Frá upphafi: 85234
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 85
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar