Skrifstofur Seðlabankastjórana verða innsiglaðar á morgunn !!!!

Á morgun verður lagt fram frumvarp til laga þar sem bankastjórastöðurnar í Seðlabankanum verða lagðar niður.

Jóhanna Sigurðardóttir Forsætisráðherra og yfirmaður Seðlabankastjórana ritaði bankastjórunum bréf þar sem óskað var eftir svörum þeirrra í síðasta lagi í dag, vegna óska um afsögn þeirra.

Enn hafa ekki nein svör borist Forsætisráðherranum frá þessum þremur Seðlabankastjórum.

Það er því alveg ljóst að Skrifstofur þeirra verða innsiglaðar á morgun og þeir leiddir út.

Öllum samningum við þá verður rift. Þeir bregðast í starfi með því að svara ekki bréfi yfirmans síns.

Og kröfu þjóðarinnar um afsögn.

Þetta verður eftirminnilegur dagur á morgun.

Þetta finnst mér.

 

 


mbl.is Seðlabankafrumvarp lagt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilanefndir bankana tengjast allar Sjálfstæðisflokknum. Það er ráðist einu sinni enn á Baug !!!!!!

Það er alveg klárt að það er verið að fara að tilmælum Davíðs Oddssonar að leggja Baug í rúst.

Áður en hann drullast sjálfur í burtu.

Hvar í Anskotanum er þetta mótmælalið núna.

Davíð Oddsson neitar að fara úr embætti nema þetta skuggalið hans sem hann er búinn að koma allstaðar inn í kerfið, geri endalega út um Baug fyrst Björn Bjarnasson gat ekki beitt dómskerfinu til þess.

Formenn skilanefndana í bönkunum og nokkrir stjórnarmenn  hafa verið formenn SUS eða stjórnarmenn í þeim félagsskap. Sumir hafa tekið þátt í einkavæðinguinni og verið ráðgjafar Einkavæðinaganefnda og Ríkistjórna Davíðs Oddssonar.

Forstjóri Fjármálaeftirlitsins sem skipaði þessar skilanefndir var sjálfur í SUS, hann var rekinn með skít og skömm frá eftirlitinu nú um daginn.

Þessir aðilar sem sitja í skilanefndunum eru allir vanhæfir og liggur við að þeir séu ger spilltir , sitja margir hverjir í fjölda fyrirtækja sem í mörgum tilfellum tengjast hinum ýmsu örmum fjárfestingafyrirtækja,

Ég treysti ekki þessum skilanefndum sem búnar eru að draga lappirnar mánuðum saman og hafa keypt upp alla pappírstætara í landinu á undanförnum mánuðum.

Ég treysti ekki þessu fólki í skilanefndunummér finnst það vera spillt.

Þetta finnst mér.


mbl.is Glitnir gjaldfellir lán Baugs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur mokaði flórinn en gleymdi að losa úr hlandþrónni !

Ótrúlegar yfirlýsingar Framsóknarliðsins sem senn hverfur af þingi.

Hvalveiðar og Álver  eru nú orðið bitbein Framsóknarmanna og komnar fram hótanir gagnvart ríkistjórninni á öðrum starfsdegi hennar.

Þó eingöngu hafi verið rætt um að skoða forsentur fyrrverandi Sjávarútvegsráðherra vegna hvalveiðana og hugsanlegra breytinga ef þörf krefur og að ekki verði neinar ákvarðanir teknar varðandi Álver af þessari ríkistjórn.

Þetta eru 80 dagar sem um er að ræða fyrir þessa ríkistjórn að reyna að sigla þjóðarskútunni út úr brimskaflinum, sem m.a. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn eiga mesta sök á að hafa komið okkur inn í.

Þetta er bara rosalegt Framsóknarflokkurinn með Siv Friðleifsdóttur og Birkir Jón jónsson í fararbroddi, sem eru búin að heita þessari ríkistjórn stuðningi skuli koma fram núna á öðrum degi og hóta að binda endi á líf þessarar ríkistjórnar.

Hverskonar fólk er þetta eginlega.

Það er gott fyrir fólk að leggja þessi nöfn á minnið Siv og Birkir, því við breytingar á kosningalögum geta allir strokað þetta fólk út af listum.

Þetta finnst mér.


Hreinsað til í spilltu embættismannakerfi !

Jóhanna Sigurðardóttir og ríkistjórn hennar er byrjuð að hreinsa til embættismannakerfinu en breyting á ráðuneytisstjórum, Bankastjórum Seðlabanka og bankastjórn, Bankaeftirliti og fl. stendur fyrir dyrum

Það er nauðsynlegt að breyta lögum varðandi ráðningar æðstu embættismanna eins og ráðuneytisstjóra þeir ættu ekki að vera með ráðningu lengur en 4 ár eða þann tíma sem viðkomandi ráðherra situr í ráðuneyti.

Það er óeðlilegt að ráðuneytisstjórar séu æviráðnir.

Þá er boðaðar breytingar á skipan Hæstaréttar - og Héraðsdómara og ráðherravald endurskoðað.

Breytingar á kosningarlögum….. bara spennandi tímar framundan ef Framsóknarflokkurinn fer ekki úr límingunum.

Þetta finnst mér


mbl.is Nýr ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil átök í forustusveit Sjálfstæðisflokksins á næstunni !

Nú kemur fram hver kandidatinn af öðrum sem ætlar að setja mark sitt á forustuna í Sjálfstæðisflokknum.

Það eru allar líkur að hart verði sótt að væntanlegum formannsefni Bjarna Benediktssyni og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur varaformanni Sjálfstæðisflokksins þegar Ásdís Halla Bragadóttir kemur inn í prófkjörsslaginn og jafnvel til forustu í forustusveit Sjálfstæðisflokksins sem kosið verður um á landsfundi flokksins.

Þá eru þeir sem etja kappi til formanns Sjálfstæðisflokksins,eins og Eyþór Arnalds,Guðlaugur Þór Þórðarsson,Kristján Þór Júlíusson, BjarniBenediktsson jafnvel Hanna Birna Kristjánsdóttir, og Hanna Katrín Friðrikssonn, en ég efa að trú fólks á hagfræðingum skili þeim árangri ,efalaust eru fleiri kandidatar áleiðini í framboð.

Ekki má gleyma Davíð Oddssyni sem sagði fyrr í vetur ef hann verður settur af í Seðlabankanum kæmi hann aftur í Stjórnmálin á fullum þunga.

Já það á að naglhreinsa skemmdu og fúnu spíturnar í flokksforustuni og setja nýjar í staðin.

Það eru miklar breytingar og átök um stefnur í Sjálfstæðisflokknum fram undan.

Þetta finnst mér.


mbl.is Fyrstu verk sjálfstæðismanna í stjórnarandstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tökum kvótan af Sægreifunum !!!!

Ég  skora á Steingrím J Sigfússon,nýjan Sjávarútvegsráðherra að endurskoða úthlutun á fiskveiðikvóta.

Ég tel að það taka eigi allan kvótan til baka af þessum aðilum sem hafa braskað með hann til að ná honum öllum til sín og færa hann allan í ríkisjóð.

Nú eiga ríkisbankarnir allar veiðiheimildirnar ( Kvótan) sem eru veðsettar í bönkunum.

Notum þetta tækifæri og setjum upp nýtt kerfi og gerum kvótan að eign allra landsmanna.

Það á að færa kvótan síðan heim í héruð.

Það á að vera í hendi Bæjarfélaga að deila kvótanum til útgerðana og það á ekki að vera hægt að selja kvótan eða braska með hann.

það þarf að höggva á þetta kvótabraskarakerfi og rífa upp byggðarlögin á Íslandi sem búið er að leggja í rúst.

Það eiga ekki örfáir einstaklingar að ráða helstu tekjulind þjóðarinnar.

Það verður að tryggja Nýju Íslandi tryggar tekjur.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ísland er í sárum eftir nýfrjálshyggjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja Davíð Oddsson nú þarftu að pakka niður kallinn !!!!

Ég skora á nýja ríkistjórn að gera að fánadegi þann dag sem Davíð Oddsson verður rekinn úr Seðlabankanum með skít og skömm.

Davíð Oddsson verður rekinn á fyrsta degi sem ríkistjórnin kemur til starfa.

Og ef hann vill ekki fara með góðu  verður hann borin út af lögreglu.

Hann fær sín laun samkvæmt lögum þar til breytingar á lögum hafa verið gerð.

Hans þáttaka í efnahagshruninu verður sérstaklega athuguð af innlendum og erlendum aðilum og allar niðurstöður verða birtar.

Og ef sannað verður saknæmt athæfi af hans hálfu í bankahrunin verður hann sóttur til saka.

Svo verður með alla stóru kallana og konurnar sem sek verða fundinn.

Nú verður vellt við steinum. Og skoðað undir þá.

Þetta finnst mér.


mbl.is Einn Seðlabankastjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni Benediktsson talar fyrir flokksræðinu !

 

 Á visir.is er fjallað um að Sjálfstæðisflokkurinn gæti komið að stjórnarmyndun.

Bjarni Benediktssonsem ætlar að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins er sjálfum sér líkur ef hann hefur virkilega haldið að þjóðin sem búin er að berjast fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn fari frá. Sem tókst.

Setjist aftur á valdastól.

Hann talar digurbarkalega um að Sjálfstæðisflokkurinn komi að borðinu ef Samfylkingunni og Vinstri Grænum hefði mistekist stjórnarmyndun.

Sjálfstæðisflokknum hefði aldrei verið boðið að koma að borðinu.

Þá hefði forsetinn sett á utanþingsstjórn og svift menn eins og Bjarna Benediktsson þingmennsku.

Hann er svona blindur og heyrnarlaus að hann heldur að fólkið í landinu vilji fá þessa ringulreiðarmenn eins og t.d. Bjarna Benediktsson í misheppnaðan björgunarleiðangur einu sinni enn.

Mín skoðun er sú að nú ætlar Samfylkingin, Vinstri Grænir og Framsókn að fletta ofan af spillingaröflunum sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sennilega verið að verja í björgunarleiðanginum.

Ekki lýst mér á Bjarna Benediktsson sem formann Sjálfstæðisflokksins, þarna  kemur fram maður sem talar eingöngu fyrir flokksræðið.

Eimitt það sem við viljum losna við.

Þetta finnst mér.


mbl.is Bjarni staðfestir framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúlulánabraskarinn Björn Ingi Hrafnsson !!!!

Í helgarblaði DV. segir frá að Björn Ingi Hrafnsson fékk 60 miljóna kúlulán hjá KB árið 2005.

Þá var Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður Halldórs Ásgrímssonar Forsætisráðherra.

Hvað eru kúlulán kunna einhverjir að spyrja, "það eru Endurgreiðslulán þar sem lántakandinn borgar ekki af láninu fyrr en lánstímanum líkur. Vextir geta verið greiddir reglulega af láninu, en þeir geta verið endurlánaðir og bætast þá við höfuðstólinn."

Þetta má sjá í ársreikningi eignarhaldsfélagsins Caramba  sem Björn Ingi Hrafnsson á, ásamt eiginkonu sinni.

En 2005 fær Björn Ingi 60 miljónir í lán hjá KB banka og skuld Caramba er þá tæpar 62 miljónir.

Björn Ingi ákvað að selja hlutabréfin í KB banka á milli þess sem hann skilaði ársreikningi 2005-2006 fyrir Caramba. Félagið græddi því 23 miljónir á þessum sem hann þurfti aldrei að leggja krónu út fyrir.

En það er samt svo makalaust að þegar blaðamaðurinn Ingi F Vilhjálmsson á DV. er að spyrja Björn Inga nánar út í þetta þá man hann ekki hvort þetta hafi verið kúlulán eða ekki. En var viss um aða þetta væri allt löglegt. En honum fannst samt eiginlega ekkert athugavert við það að vera að barska þetta meðan hann var aðstoðarmaður forsætisráðherrans.

Það má svona í framhaldi minna á í framhaldi að Björn Ingi Hrafnsson var stoppaður af í útrásarbarskinu með REI og OR. Sem ekki búið að leiða til lykta ennþá.

Siðleysi Björns Inga er algjört og siðferðilegt atgerfi hans er ekkert.

Þetta finnst mér.

 


Framsóknarflokkurinn ætlar sjálfur að mynda ríkisstjórn !!!

Sigmundur Davíð  formaður Framsóknarflokksins ræður ekki við spillingaröflin í Framsóknarflokknum.

Nú hefur baktjaldarliðið látið í sér heyra og ákveðið að möguleiki Framsóknarflokksins að mynda ríkistjórn með gamla Sjálfstæðisflokknum sé raunhæfur möguleiki .

Sama plottið og það sem gerðist í Reykjavíkurborg.

Milli Framsóknar og Sjálfstæðismanna.

Framsóknarflokkurinn þolir ekki þá skoðun sem Samfylkingin og Vinstri græn ætla að gera á peningakerfinu, á orkukerfinu REI og OR og fl.

En Framsóknarflokkurinn vill ekki velta við öllum steinunum núna.

Nú er Sjálfstæðisflokkurinn í molum og sárum þá sér Framsóknarflokkurinn þennan möguleika á að bjóða Sjálfstæðisflokknum upp í dans og þá yrði Valgerður Sverrisdóttir Forsætisráðherra. Fyrst allra kvenna.

Og litli Sjálfstæðisflokkurinn Frjálslyndir munu styðja slíkt samband. Hann er hvort sem snýttur úr handakrikanum á þeim flokki.

Ef þessi stjórnarmyndun misheppnast þá verður uppreisn í þjóðfélaginum og Guð hjálpi Sjálfstæðismönnum og Framsóknarmönnum þá.

Þetta finnst mér.


mbl.is Telur forsendur fyrir stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 85234

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 85
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband