1.1.2009 | 13:33
Ég vissi það, hann hefði átt að sleppa áramótaávarpinu !
Forsætisráðherran hefði átt að sleppa áramótaávarpinu sínu. Þar kom ekkert fram sem ekki hafði komið fram áður enda skilur enginn hvað Geir Hilmar er að segja.
Áramótaskaupið var það besta í mörg ár og var bara hið eina sanna áramótaávarp, sem þjóðin þurfti.
En það hefði að vísu mátt vera nokkuð beittara.
Svo hefði alveg mátt sleppa Ólafi Ragnari líka við þurfum ekki á ráðleggingum eða væmnishjali frá þessu þotuliði.
Verkin þurfa að tala sagði það ekki einhver og það þarf að ráðast á vandan núna.
En það verður sennilega ekki gert fyrr en allt er fyrnt eða búið að eyðileggja öll mikilvæg gögn, því sama fólk er enn við völd.
Ekki byrjar nýtt ár öðruvísi en hið gamla endaði á skúrkarnir komast frá þessu án þaess að þurfa að gjalda neins eða taka út neinar refsingar.
Veður árið 2009 á vonbrigða mér heyrðist það á áramótaávörpum þessara þotuliða.
Þetta finnst mér.
![]() |
Brýnt að herða reglur um hegðan á fjármálamarkaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2008 | 17:24
GAS -GAS -GAS... Var Ingibjörg Sólrún nokkuð handtekin ?
Mikil mótmæli við Hótel Borg fóru að virðist aðeins úr böndunum og þá var það lögreglan sem beitti óeirðagasi og handtók fólk sem hafði sig í frammi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í Kriddsíldarþættinum sem leystist síðar upp í pólitíska skítalykt, að þetta væri ekki þjóðin þetta væru sennilega Arabar .ubs einu sinni enn talar Ingibjörg Sólrún niður til þjóðarinnar.
Fyrst sagði hún á mótmælafundi í Háskólabío þar sem var fullt út úr dyrum að þetta fólk væri ekki þjóðin.
Nú í dag segir hún að þessir mótmælendur séu ekki þjóðin heldur einhverjir Arabar.
Þetta sannar bara það sem sagt er að Ingibjörg Sólrún er ekki í takt við þjóð sína.
Og svo bætti Forsætisráðherran grautfúll yfir því að hafa ekki komist í kriddsíldina ,í fréttum áðan að svona mótmæli hafi ekkert að segja, ríkistjórnin muni ekkert mark taka á svona .
Hrikalegur hroki er þetta.
Hann veit greinilega ekki að það er allt að springa.
Þetta finnst mér.
![]() |
Fólk slasað eftir mótmæli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2008 | 14:49
Þetta er ekki þjóðin...þetta eru Arabar.....
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir talar einu sinni enn niður til mótmælenda, fyrst sagði hún við tæplega tvöþusund manns í Háskólabío að þeir væru ekki þjóðin.
Núna segir hún í Kriddsíldinni að þessi hópur sé ekki þjóðin heldur einhverjir úr Arabaheiminum..
Það er alltaf betur og betur að koma í ljós að þetta fólk æi ræikistjórninni og á Alþingi er alveg komið úr sambandi við þjóðina og vill ekkert samband við hana.
Svona tala bara þeir sem eru með höfuðið ofan í sandinum.
Þetta finnst mér.
![]() |
Beitti piparúða á mótmælendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2008 | 08:35
Vona bara að Geir Hilmar Haarde sleppi áramótaávarpinu núna !
Ég vona bara að Geir Hilmar Haarde sleppi því að tala einu sinni enn niður til þjóðarinnar.
En auðvitað má búast við því í hefðbundu áramótaávarpi hans.
Það eru þúsundir manna sem trúa ekki einu einasta orði sem Geir Hilmar segir í dag.
Þetta finnst mér bara liggja í augum uppi miðað við þá blaðamannafundi og viðtöl sem hann hefur átt við þjóðina í gegnum fjölmiðla hingað til.
Hann hefur ekkert sagt og ef hann hefur sagt eitthvað þá er það ekki satt
Nú er það nýjasta að hann ætlar ekki að höfða mál á hendur Bretum. Frétt er um það á visir.is
Nei þrælaþjóðin mun bara fá að borga þetta sukk.
Þetta er bara ekki í lagi.
Þetta finnst mér.
![]() |
Umsókn í þjóðaratkvæði? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2008 | 20:51
Nú þarf að innsigla Fjármálaeftirlitið !
Á visir.is er sagt frá því að Fjármálaeftirlitð fékk ábendingar um mjög mikilar peningatilfærslur frá Íslandi og til Luxemburgar í gegnum Kaupþing, en gerðu ekkert í málinu.
Þarf ekki að innsigla fjármálaeftirlitið og setja starfsfólk og stjórn í einagrun ?
Þeir fá vísbendingar um hrikalegt fjármálasvindl fyrir mörgum mánuðum en gera ekkert í málinu.
Nú þarf að fá til landsins Interpool lögregluna til að rannsaka aðkomu eftirlitsins að hruni bankana og klúðri og eftilitsleysi stofnuninar á bönkunum áður en allt hrundi.
Þarf ekki að setja Ríkistjórnina, seðlabankastjórana,seðlabankastjórnina í einangrun ?
Meðan Interpool skoðar þeirra þátt í valdnýðslunni,ráðningu nýrra stjórnenda í bankana og áherslur, ákvarðanatökur, lagasetningar og ígrip þessara aðila í bankamálin þegar allt hrundi og eftir hrunið.
Mín skoðun er sú að Íslenskir aðilar geti ekki skoðað þessi mál, Ísland er svo lítið að það kemur alltaf einhverstaðar að skyldleika, frændleika,vinskap, eða öðrum tengslum.
Það var sagt að allt ætti að vera upp á borðinu og nú er að renna út umsóknarfrestur sérstaks dómara í málinu. En ekki fæst samt upp gefið hverjir sóttu um dómara starfið.
Skrítið þetta gegnsægi sem talað er um.
Það er eitthvað sem ríkistjórnin hefur miskilið eða túlkar eftir sínu höfði.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2008 | 16:35
40 - 50% hækkun á flugeldum !
Ég held að ummæli Jóns Magnússonar Alþingismanns, skipti engu máli varðandi flugeldakaup.
Það er peningabudda landsmanna sem ákveður hvort hægt sé að kaupa flugelda og sprengiefni.
Það eru 10.000 manns atvinnulaust og trúlega eyðir það ekki atvinnuleysisbótum sínum með því að kveikja í þeim.
Og verðlagning flugeldasölunar hefur hækkað 40 - 50 % milli ára.
Ég segi bara þeir sem ætla að kaupa flugelda kaupð þá hjá Hjálparsveitum, þeir einu eiga það skilið að versla með þessa hluti og eina fjáröflunarleiðin sem skilar þeim einhverju til rekstar hjálpasveitana.
Einkaaðilar eiga bara að skammast sín að ráðast inn á þennan markað.
Íþróttafélög fá sínar tekjur í gegnum lottó og getraunir allt árið og ættu að láta þar við sitja.
Ég held að þetta verði mjög lélegt flugeldaár.
Gott fyrir öll gæludýrin sem sum hver sturlast á þessum tímum ef minna er um sprengingar.
Þetta finnst mér.
![]() |
Flugeldasalan hafin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.12.2008 | 15:43
Að ráðast á velferðarkerfið !
Já Geir Hilmar Haarde telur að það sé sjálfsagt að skattleggja velferðakerfið og sjúga út úr því einhverja aura og sér í lagi þarf að hækka gjöld á þeim sem verða veikir, eru veikir, eða þurfa nauðsynlega að fara í aðgerðir til að halda lífi.
"Flestir geta staðið undir þessum hækkunum" segir Geir Hilmar og brosir eins froskur framan í myndavélina, en hvað um þá sem ekki geta tekið á sig þessa hækkanir Geir Hilmar ?
Hvað með þá ?
"Tekjutapið er t.d. vegna aukina atvinnuleysisbóta."
Einmitt vegna beinna aðgerða ríkistjórnar Geirs Hilmars Haarde í atvinnumálum. Þá fá sjúklingar og veikir að kenna á því.
Hvað með hátekjuliðið hvervegna ertu að vernda það ?
Hvar ætlar þú að skera niður næst ?
Loka deildum langveikrabarna eða hjá krabbameinsveikum börnum?
Það er verið að loka geðdeildum fyrir börn og unglinga.
Afhverju hækkar þú ekki skatta og gjöld af kosnaði við langveik börn ?
Og þetta samþykkir Samfylkingarhækjan án þess að depla auga.
Af hverju segir þú ekki af þér Geir Hilmar áður en þú ferð niður í vökina sem er að myndast í kringum þig ?
Þetta finnst mér.
![]() |
Standa undir gjaldtöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2008 | 15:06
Rosalegt gjafmildi eða hitt þó heldur !
Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingarmálaráðherra er ein af þeim fáu ráðherrum í ríkistjórninni sem er niður á jörðinni.
Og er vinur litla mannsins í raun.
Hún er sú sem alltaf er að reyna að bæta úr hlutunum finnst mér.
Nú hefur hún náð að kreista fram 5 miljónir til styrktar,félags - og hjálparsamtaka.
Það er bara hrein skömm 5 miljónir eru svipuð upphæð og ráðherrar ríkistjórnarinnar eyddu í frægar einkaþotuflugferðir á síðasta ári.
Bara ein ferð kostaði rúmar 5 miljónir, en það voru farnar nokkrar.
En auðvitað er það allt annað mál.
Hefði ekki verið í lagi að vera dálítið rausnarlegri og hafa þetta í mælikvarða t.d. þeirrar risnu og ferðalaga sem ráðherrar notuðu til ferðalaga og skemmtana t.d á OL og víðar.
Nei ég segi bara svona. Styngur mann dálítið svona nánasarframlög.
Þetta finnst mér.
![]() |
5 milljónir til styrktar félaga- og hjálparsamtaka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2008 | 23:46
Gleðileg Jól siðblinda ríkistjórn !
Siðblinda ríkistjórn Gleðileg jól vonandi komist þið vaggandi frá jólaborðinu.
Meðan þúsundir Íslendinga kemst varla að borðinu án hjálpar frá Jóhannesi i Bónus eða Björgólfi Guðmundssyni sem gefa hjálpastofnunum og hjálparsamtökum tugi og hudruðir miljóna króna í gegnum fyrirtæki sem þeir eiga í peningagjöfum og matargjöfum.
Þá er ríkistjórn íslands að herða álögur á fólk skattalega, eins og öryrkja,sjúklinga og ellilífeyrisþega.
Þessar hækkanir á atvinnuleysisbótum " Jóhanna mín "eru bara eitt besta kosningabragð Samfylkingar um árabil. Sem sagt bara kostnaður sem ekki er innistæða fyrir.
Það fara senn kosningar í hönd. Ekki satt ? Gott útspil Jóhanna !
Ríkistjórn Íslands er einhuga um að koma atvinnulífinu í kalda kol, ríkistjórn Íslands er einhuga um að hér verði mesta atvinnuleysi og örbyrgð í framtíðinni.
Ríkistjórn Íslands finnst allt í lagi að 5000 - 6000 manns eigi ekki fyrir jólunum.
Ríkistjórn Íslands finnst allt í lagi þó 10.000 manns sé atvinnulaust.
Ríkistjórn Íslands finnst allt í lagi þó 5000 - 6000 þusund manns fari úr landi eftir áramót.
Þið skulið hugsa um þetta.
Jólin eru bara hátíð þeirra sem efni hafa á því að halda jól nú orðið.
Hjálparstofnanir ráða ekki lengur við þetta vandamál á Íslandi.
Þessir ráðamenn segja bara það er engin þörf á breytingum.
Við höfum okkar miljónir i laun á mánuði.
Bíðið bara róleg þið borgið þetta hvort sem er.
Þetta finnst mér harðasta jólakveðja til almenning fyrr og síðar.
Vildi bara vekja athygil ykkar á þvi að sumir Íslendingar eiga bara í verulegum erfiðleikum nú um jólin.
Þetta finnst mér.
![]() |
Flýta hækkun atvinnuleysisbóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.12.2008 | 15:10
Gleðileg Jól
Kæru vinir.
Bestu óskir með Gleðileg jól til ykkar allra.
Hinir fá engar kveðjur að þessu sinni en það hefur verið mælst til að menn spari og hjá mér verða þeir sem telja þann hóp sem ekki eru vinir mínir að vera án jólakveðja frá mér í sparnaðarskini.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 103
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 85
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar