Seðlabankastjórinn vill ekki vinna með ríkistjórninni !!

Vandin sem ríkistjórnin og landsmenn allir standa frammi fyri er sá að Davíð Oddsson neitar að verða við tilmælum ríkistjórnarinnar um aðgerðir í gjaldeyrismálum og fjármagnsöflun erlendis.

Hann ætlar að láta spádóm sinn um fasteignaverðhrun í tveggja stafatölu rædast.

Hann ætlar að reyna að koma bönkunum á kné eða láta þá tapa miljörðum á miljörðum ofan.

Hann hefur áður sýnt t.d. Kaupþingi puttan .

Ég er farinn að halda að Davíð Oddsson miskilji starf sitt og haldi að hann sé einvaldur í því embætti sem hann réði sig í sjálfur.

Svona vinnubrögð þekkjast ekki nema hjá ákveðnum hópi manna sem kendur er við Sikiley.

Og ríkistjórnin ætlar að láta auman embættismann koma öllu þjóðfélaginu á kné.

Segið Seðlabankastjóranum upp störfum hann er ekki starfi sínu vaxinn.

Þetta er bara ekki í lagi.

Þetta finnst mér.


mbl.is Gengi krónunnar í sögulegu lágmarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsókn á Baugsmáli þolir ekki dagsljósið !!

 Á visir.is í dag er viðtal við Formann Alsherjarnefndar Birgir Ármansson.

Formanni Alsherjarnefndar Birgir Ármannssyni finnst ekki við hæfi að rannsaka, meinta aðkomu Davíðs Oddssonar, Björns Bjarnarssonar, Halldórs Blöndals, Sólveigar Pétursdóttur, Árna Mathiesen og fl. þingmanna og ráðherra Sjálfstæðisflokksins að Baugsmálinu svo kallaða.

Birgir Ármansson hlustar ekki á að almenningur þurfi skýringar á miljarðakróna útgjöldum þar sem engu var sparað til að hálfu ríkisvaldsins til að koma ákveðnum einstaklingum og fyrirtæki á kné.

En loka niðurstaða í Baugsmálinu liggur fyrir og niðurstaðan kallar á skýringu fyrir landsmenn hver hin raunverulega ástæða fyrir hinni stórfeldu rannsókn var í raun og veru.

Þá þarf líka að rannsaka aðkomu Saksóknara og Ríkislögreglustjóra sem báðir voru dæmdir óhæfir og urðu að víkja frá rannsókninni.

Nei Birgir Ármannsson sker sig í hóp þessara afla innan Sjálfstæðisflokksins sem starfa ferkar í myrkrinu en að vera með hlutina gegnsæja og í dagsbirtunni.

Birgir Ármannsson sver sig í hóp þeirra afla sem vilja ekki að sannleikurinn og ásetningurinn með þessari svo rosalegu rannsókn á Baugi komi fram í dagsljósið.

Þetta finnst mér.


Sjálfstæðisflokkurinn er bara frík...frík...Útfríkaður

Nú er að  koma fram skemmdin sem Borgastjórnarflokkur Sjálfstæðismanna í Reykjavík er að valda Sjálfstæðisflokknum á landsvísu.

Eitthvað sem dónalegi formaðurinn sagði að ekki mundi gerast.

Fyrirgefðu Geir H. Haarde hvað ég er dónalegur að minnast á þetta.

En heldur þú virkilega að það sé nóg að skipta um einhvern leiðtoga í forustu flokksins í anstöðu við 40% flokksmanna eins og þú lést Vilhjálm Þ. gera án þess að hann þurfi að axla ábyrgð rosalega ertu eitthvað tæpur.

Já eða bara það að enginn í Borgarstjórnaflokknum þurfi að axla ábyrgð og segja af sér vegna embættisglapa og bara það eitt að setja í Borgarstjórastól einhvern mann sem 90% Reykvíkinga vill ekki hafa sem Borgarstjóra og 70 % landsmanna er á móti Ólafi F.Magnússyni sem Borgarstjóra.

Þú skilur ekki þjóðartaktinn eða bara villt ekki heyra það sem fólk vill.

Sjálfstæðisflokkurinn er bara ömurlegt dæmi um fólk sem misbeitir valdi sínu í þágu þeirra ríku og valdamestu innan þjóðfélagins, hyglar þeim mest.

En er svo heppinn að vera með Félagshyggjuflokkshækju sem gerir bara allt sem Sjálfstæðisflokkur segir og vill.

Sú stefna sem keyrð er af Sjálfstæðisflokknum að gera þá ríkari, ríkari á eftir að skila árangri í að fá nýja ríkistjórn eftir næstu kosnigar.

Þessi Borgarstjórnarskrípi Sjálfstæðismanna eiga eftrir að draga flokkinn ennþá meira niður sem betur fer.

Hanna Birna Kristjánsdóttir erfðaprinsessa mun ekki ná einu eða neinu til að auka fylgi við flokkinn, svona frekjudós og framapotari er bara ekki á réttum stað núna, eða er á réttum stað fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Þetta finnst mér.

 

 


mbl.is Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar í könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Unglingar áreita börn kynferðislega...vaxandi vandamál !!

Í helgarblaði DV. er sagt frá vaxandi vandamáli sem af unglingum stafar. En tilkynningum til Barnaverndarstofu hefur fjölgað um tæp 70 % á undanförnum fimm árum.

Og er rætt við Braga Guðmundsson forstjóra Barnaverndarstofu.

Skýringu á þessu má meðal annars finna í því að fólk er meðvitarða um þetta en áður og mikil umræða um þesi mál hefur hjálpað til við að beina kastljósinu að þessum málum.

Vandamálið má sennilega rekja til klámefnis á netinu sem þessir unglingar leita í og fá því oftast brenglaða mynd af kynlífi.

En þriðjungur gerenda í kynferðibrotamálum gegn börnum eru sjálfir ólögráða og því börn í lagalegum skilningi.

Þarna er nú eitthvað meira en lítið að.  Samfélagsgerðin er að breytast.

Þetta finnst mér.


Fyrrverandi Borgarstjóri hissa á slyðruganginum í sjálfri sér !!

Borgarstjórin fyrrverandi sló úr óg í með framkvæmdir við Sundabraut og mislægu gatnamótin við Kringlumýrarbraut.

Og allt er við  það sama, þessi mál vegna Sundabrautar og Kringlumýrarbrautar eru bara orðin svona egó verkefni hjá hverjum og einum Borgarfulltrúa  í gegnum tíðina en alldrei sem fyrr mest fyrir kosningar.

Svo er bara ekkert gert í málinu. þetta verður kannsi allt gert 2024 ?

Borgarstjórn mun aldrei komast að neinni lausn með þessi mál.

Skynsamlegast væri fá bara fjárfesta til að leggja í þetta og þeir gætu síðan tekið toll af þessum mannvirkjum um einhverja framtíð.

Þetta færi þá í framkvæmd og engin hætta á að þetta yrði ekki hagkvæmt, sjáum bara Hvalfjarðargöng.

Stjórnmálamönnum er ekki treystandi til að standa að svona málum. Og það er von að uppgjafa Borgarstjórum finnist málin í lélegum farvegi.

Hún ætti þá að gera eitthvað í málunum núna fyrst hún telur sig vera komna á æðra stjórnstig og talar niður til Borgarfulltrúa núna.

Þetta finnst mér.


mbl.is Sundabrautar saknað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarndýr inn á hálendinu !!!

Draumspakan mann dreymdi fyrir þremur bjarndýrum .

Og nú í morgun fundu ferðamenn spor eftir bjarndýr  í fönn nálægt Hveravöllum.

Mér finnst bara vera spursmál hvenær það verður mannsfall ef  fleiri bjarndýr eru á reiki einhverstaðar.

Og það tók alveg steinin úr að senda eigi hjálparsveitir inn á hlendið að leita að hugsanlegum bangsa.

Er ekki allt í lagi með þetta fólk sem stýrir öryggismálum. Það á að senda skyttur og sérþjálfaða meindýraeyða með sérþjálfaða hunda til að leita að svona dýri.

Áður en einhver verður drepinn annar en “björninn”.

Ekki einhverja unglinga í skáta -og björgunarsveitum

Þetta finnst mér.


mbl.is Þriðji björninn á Hveravöllum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verða ráðherraskipti hjá Sjálfstæðisflokki í haust !!

Tveir Ráðherrar Sjálfstæðisflokks munu hætta ,sem ráðherrar.

Björn Bjarnarsson Dómsmálaráðherra, sem mun nú fara að undirbúa sig sem fulltrúi Íslands í Öryggisráðinu.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Menntamálaráðherra mun hætta af persónulegum ástæðum og draga sig í hlé frá stjórnmálum.

Í staðinn fyrir Björn Bjarnarsson Dómsmálaráðherra, kemur Bjarni Benediktsson alþingismaður.

Í staðinn fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur kemur Guðfinna Bjarnardóttir þingmaður.

En auðvitað er þetta leyndarmál og alveg víst að þau muni neita þessu ef þau verða spurð um þetta, en þetta mun gerast samt sem áður á n.k. haustmánuðum.

Og formaður sjálfstæðisflokksins finnst þetta örugglega mjög dónalegt af mér að segja frá þessu.

Hann er svo viðkvæmur fyrir dónum.

En þessu hefur lítill Sjálfstæðisfugl í búri Sjálfstæðismanna hvíslað að mér og litlir sjálfstæðir fuglar segja ekki ósatt.

En engin staðfesting er á þessum skrifum mínum og þetta er eittvað sem menn sjá bara fyrir í spákúlunni sinni.

Þetta finnst mér.


Auðvitað drápu þeir Hvítabjörninn !!

Þetta er nú alveg furðulegt með allri þeirri tækni sem til er var ekki hægt að sjá að dýrið var svona illa farið og sært eins og fréttir berast nú af því.

Bjarndýrirð í Skagafirði var fellt nú rétt áðan.

Enn ein fjöður í hatt Umhverfisráðherrans.

Það er eins og lögreglan hafi enga stjórn á þessu fjólmiðlafólki og öðrum sem eru að reyna að vekja athygli dýrsins á sér en það var talin orsök þess að dýrið var fellt, það tók á rás að fjölmiðlamönnum og öðrum sem þarna voru að horfa á.

Það á ekki að vera með þessa vitleysu að reyna að bjarga svona dýrum sem villast til landsins.

Við erum ekki að vinna að útrýmingu þó drepum eitt og eitt dýr. 

Mín skoðun er að það eigi bara að drepa svona dýr strax.

Hvað er dýrið búið að vera sært lengi ?

Það verður annars  að kaupa búnað til að geta  náð svona dýri strax ef á að ná því lifandi.

En væri ekki rétt að leita betur á þessu svæði af Hvítabjörnum maður hefur það á tilfiningunni að fleiri dýr gætu verið á ferðinni.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ísbjörninn að Hrauni dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjallkrækill fórnarlamb hlýnandi loftslags !!!

 Í Náttúrufræðingnum nýjasta Tímariti Hins íslenska náttúrfræðifélgas er mjög athygilsverð grein eftir Dr. Hörð Kristinsson.

Þar er fjallað um þá flóru Íslands og víðar sem er í útrýmingarhættu, það á meðal er plantan fjallkrækill (sagina caspitosa)  og að “vísbendingar séu um að plantan sé á undanhaldi í flóru Íslands”

Þetta er rosalega fræðandi og vel skrifuð grein og hvet ég fólk til þess að lesa þessa grein um hvað hlýnun á fjallaplöntur íslenskrar flóru hefur.

Þetta finnst mér.


Breytingar verða í Ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins !!!!

Á visir.is í dag er Bjarni Benediktsson spurður að því í viðtali hvort hann sé að hætta í pólitík. 

Ég hef nokkuð lengi vitað að breytingar yrðu gerðar á Ráðherraskipan í liði Sjálfstæðismanna á kjörtímabilinu.

Og nú eru þetta bara spursmál í  5-7 vikur í viðbót.

En einn af æstu stjórnendum og ráðherra Sjálfstæðisflokksins mun hætta í stjórnmálum af persónulegum ástæðum.

Og í kjölfarið hefst mikil valdabarátta fyrir því embætti sem stjórnmálamaðurinn skilur eftir.

Þetta er ráðherra sem stýrir í dag mjög stóru ráðuneyti.

Heimasíðan "Orðið á götunni" segir frá vangaveltum og orðrómi um að Bjarni Benediktsson sé að hætta í stjórnmálum.

Og að Geir H. Haarde hafi boðið honum Ráðherrastól sem sé að losna.

 Bjarni Benediktsson  er búinn að bera að til baka þann orðróm.

Hvort Bjarni Benediktsson verður næsti kandidat í ráðherrastól  veit ég ekki, ég held að Sigurður Kári "yfir gjammari"Sjálfstæðismanna komi líka sterklega til greina.

Þetta finnst mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband