Við fáum að sjá vandræðin áfram í Reykjavík !

Hanna Birna Kristjánsdóttir nýr oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík er óhrædd við að takast á við vandræðin í Borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna í Reykjavík.

Á fundi í morgun í Valhöll hélt hún mjög daufa og klisjukenda ræðu um það sem hún ætlar að gera eða ætlar ekki að gera, því ekkert kom fram í ræðu hennar hvernig sætta eigi sjónarmiðin innan Borgarstjórnarflokksins.

Bara t.d. í síðustu viku skarst í odda með Júlíus Vífil og Gísla Marteini vegna gatnagerðar í Geirsgötu.

Hanna Birna virðist ekki átta sig á því og bara enginn Sjálfstæðismaður í Reykjavík  að meðan Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er í borgarstjórnarflokknum er verið að hygla honum fyrir þann skandala sem hann er búinn að vinna flokknum.

Reykvíkingar vilja ekki hafa Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í Borgarstjórnarflokknum.

Þannig að hún kemur ekki til með að snúa einu eða neinu við í fylgi við flokkinn í Reykjavík.

Nokkrir Borgarfulltrúar Sjálfstæðismanna létu ekki einu sinni sjá sig á þessum klisjufundi Hönnu Birnu í Valhöll í dag.

Það segir nú ýmislegt um sátt milli þesara Borgafulltrúa.

Þetta finnst mér.


mbl.is Vörn verður snúið í sókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég heiti Geir og ég er dóni !!!

Á visir.is í gær er sagt frá því að  þáttastjórnandinn Sindri Sindrasson ætlaði að taka viðtal við Forsætisráðherran svona á hlaupum.

Mikið var þetta pínlegt að sjá forsætisráðherran gera sig að algjöru fífli í gær, þegar Sindri Sindrasson þáttastjórnandi Markaðarins vildi spyrja ráðherran um gefin loforð í efnahagsmálum.

Geir H Harrde ætti að biðjast opinlegrar afsökunar á framkomu sinni við þáttastjórnandan, því nokkru seinna fékk Jóhanna Vigdís viðtal við “Geir Dóna” um sama efni.

Það er áhyggjuefni ef forsætisráðherran mismunar fréttamiðlum um viðtölum og skýringum á málefnum sem brenna á fólki.

Hverjum öðrum er hann þá að mismuna ? Jú fyrir utan fréttamann þá eru það náttúrlega Sjómenn, fiskverkafólk, líferisþegar( ekki samt þingmönnum og ráðherrum).

Nei ég hafði nú ekki mikið álit á honum fyrir vegna þess hve mikil strengjabrúða Davíðs Oddssonar hann er, en nú er þetta litla í virðingu sem ég bar til hans horfin.

Þetta finnst mér.


Íslenskir sjóræningar í Suðurhöfum svindla á Írum !!

 Á visir.is í dag er greint frá mótmælum Ískra sjómanna vegna innflutnings á fiski.

Mikil mótmæli eru í Írlandi vegna innflutnings á fisk frá Íslandi sem talin er vera veiddur við strendur Suður-Ameríku og fluttur til Íslands.
Og síðan seldur til Írlands sem Íslenskur fiskur á uppsprengdu verði á stórmörkuðum þar í landi.

 Í Írska blaðinu The Wexford People er greint frá því að innflutningurinn hafi valdið miklu uppnámi í Ískum sjávarútvegi. Og Írskir sjómenn geti ekki keppt við þennan “Íslenska fisk” í verði.

En á hverju kvöldi lendir flugvél með fullfermi á flugvellinum í  Cork. Sjómenn hafa nú fjölmennt og loka flugvellinum í CORK til að koma í veg fyrir losun fisksins úr flugvélum.

Þarf ekki að skoða hvaðan fiskurinn er að koma ekki kemur hann frá Íslandi þar sem nær rri því veiði bann er á þorski og flestum tegundum sem Írar hafa verið að kaupa af okkur ?

Er þetta nýja útrásin sjóræningaútásin ?

Þetta finnst mér.


Síðustu angar kolkrabbans hoggnir af honum !

Já hver man ekki eftir óskabarni þjóðarinnar Eimskpafélagi Íslands og öllum skipunum sem báru Íslensk fossanöfn.

Og það var eitt af sterkustu og virðigar mestu fyrirtækjum landsins.

Og þarna byrjaði ég  12 -15 ára sem sendill hjá Eimskipafélaginu og  bar alltaf hlýjar taugar til þessa fyrirtækis.

Það breyttist síðan með nýjum mönnum sem lögðu skipafélagið niður og byrjuðu að braska með önnur fyrirtæki  og arðinn af óskabarninu sem þeir hirtu.

Og skipin eru löngu horfin og óskabarnið varð bara að ljótum kolkrabba sem þessir aðilar voru sem beturfer að höggva síðustu armana af með því að tapa miljörðum króna í einhverri aulafjárfestingu sem fjármálasénin  sjá núna að voru algjörlega misheppnaðar og illa ígrundaðar.

Nú hafa bréf í þessu fyrirtæki lækkað um 28 % á tveimur dögum.

Þurfa  ekki kjölfestufjárfestarnr að leggja inn andvirði þessara 28% lækkunar ?

Mikið er ég fegin að hafa ekki á neitt í þessu fyrir tæki nema góða æskumynningu.

Þetta finnst mér.


mbl.is Stjórnendur Eimskips brugðust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósættið og valdabaráttan heldur áfram !!!

 Á vísir.is í dag er sagt frá uppákomu hjá Stjórn Faxaflóahafna.

Júlíus Vífill sem er formaður stjórnar Faxaflóahafna lét bóka að stjórnin féllist ekki á hugmyndir þær sem Umhverfis - og Samgöguráð með  Gísla Martein í fararbroddi hefðu samþykkt ”

Í byrjun mánaðarins sagði Gísli Marteinn að sátt væri um niðurstöðu starfshóps sem hann fór fyrir og fjallaði um Geirsgötustokk.

Í tillögum starfshópsins mun umferð úr göngunum koma upp við Miðbakka fyrir framan Tollhúsið. “

Stjórn Faxaflóahafna felst ekki á að umferð úr Geirsgötustokk komi upp við Miðbakka þar sem höfnin sé hluti miðborgarinnar. Auk þess er fjárhagslega hagkvæmt sameina göngin að mati Júlíusar.

,,Málið er ekki í upplausn,” segir Júlíus Vífill.  Og þetta er í góðu samkomulagi við Gísla Martein” Hvað er í góðu lagi… jú að menn séu ósammála ?

Hversvegna þarf þá að bóka þetta og hvers vegna er Júlíus Vífill að hóta öðrum sem koma að þessu, en eftir honum er haft  hann voni að stokkurinn fari í framkvæmd í þeirri mynd sem Faxaflóahafnir leggja til. ,,Ég mun beita mér fyrir því á ýmsum vígstöðum þar sem hugmyndin kemur inn á margt.”

Hvað er ágreiningur ef þessi samskipti gera það ekki ?

Þessum Borgarfulltrúum er ekki hægt að bjarga þeir eru bara forskrúfaðir í sjálfum sér.

Og nýji oddvitin hvað ætli hún blaðri nú ofaní hálsmálið á sjálfri sér með yfirlýsingum um samstöðuna.

Þetta er bara betra núna þeir bera enga virðingu fyrir Hönnu Birnu en þorðu ekki í  Vilhjálm Þ.

Þetta finnst mér.


Vörubílstjórar þagnaðir - Verkalýðshreyfingin dofin !!!!

Ekkert hefur heyrst í vörubílstjórum í lengri tíma, nema jú þeir ( eða reyndar bara einn) ætlar að stofna stjórnmálaflokk til að berjast fyrir málstaðinn. UBS…. þar með geta Ráðherra og lögregla hlegið saman og slegið á hvers annars bak fyrir vel heppnaðar aðgerðir.

Og eldsneytisverðið bara hækkar og hækkar, “olíufélögin hækkuðu verðið á bensínlítranum um 6 krónur í gær og verð á dísilolíu um 7 krónur. Algengt verð á bensínlítranum er 175,4 krónur og 191,8 krónur á dísil.”

Út um allan heim eru stöug mótmæli vegna olíuverðs, en verkalýðshreyfingin hér þegir þunnu hljóði og mér finnst rosalegt að  ekki skuli vera boðað til útifunda til að mótmæla þessu okri á eldsneyti og skattlagningu ríkisins.

Það þarf að stöðva atvinnulífið og bara sýna þessu spillingarbandalagi sem stofnað var til á Þingvöllum, sem stjórnar landinu að alvara er á ferðum.

Og að það eru til öfl í landinu sem svo sannarlega hafa fólkið á bakvið sig.

En það er kanski ekki von á neitt verði gert af hálfu Verkalýðshreyfingarinnar eða ASÍ en flestir sem stjórna þar orðið eru háskólamentaðir hvítflibbar sem hafa ekki í sér þessa verkalýðslund.

Þingvallarspillingarbandalagið ætla ekkert að gera í málunum það er engin samstaða um eitt eða neitt á þeim bæ.

Þessi öfl eins og ASÍ treystu sér ekki til að standa með Vörubílstjórum í þeirra aðgerðurm eða  hjálpuðu þeim á einn eða annan hátt.

Hvað með útgerðina ? Hvað með flugfélöginn ? Hvað með Olíuféögin ? Þau fá sitt hækkun á eldsneyti fer beint út í verðlag viðkomandi fyrirtækja.

Hvað með neytendur ? Þeir fá að borga brúsan .

Hversvegna eru ekki gerð tilboð frá ríkiskaupum í eldsneytisbirðir fyrir Ísland og olíufélögunum gert að sitja hjá í innkaupum og sett lög með verðþaki fyrir dreifinguna ?

Þetta er bara rosalegt.

Þetta finnst mér.


mbl.is Bensínhækkanir hafa áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húrra bara sammála !!

Stjórn Faxaflóahafna telur það féttnæmt að stjórnin skuli vera sammála um að leggja umferðina á Geirgötu og Mýrargötu í stokk. Þetta er mikið framfaraspor hjá stjórn þessarar stofnunar.

Vondandi að hinn nýji leiðtogi Sjálfstæðismanna hafi þegar létt á spennuni hjá þeim aðilum sem hafa ekki haft neinn tíma í Borgarmálefnin.

Heldur eingöngu verið að vinna að framboðsmálum sínum.

Gott að menn eru ánægðir með störf sín.

Þetta finnst mér.


mbl.is Stokkur á Geirsgötu mun bæta samgöngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gísli Marteinn er ekki sáttur !!!!

 Í viðtali á visir.is í kvöld segir Gísli Marteinn að hann sé mjög sáttur, en tóninn og svipbrigðin segja allt annað finnst mér.

Gísli Marteinn Baldursson fékk ekki að vita um ákvörðun Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar um oddvitaskiptin fyrr en korter í tilkynningun um fundinn á heimili Vilhjálms Þ.

Hann hefði geta komist þangað hefði hann verið svona ánægður og glaður yfir þessum tíðindum.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson heldur upptekknum hætti í samskiptum sínum við flokksfélaga og Borgarstjórnarfélaga sína í Sjálfstæðisflokknum.

Bara þetta tveggja manna tal.

Um daginn var það Kjartan Magnússon og Vilhjálmur Þ. sem skipulögðu valdaránið í borginni. Hin vissu ekkert um það fyrr en korter í undirskrift.

Núna voru það  Vilhjálmur þ. og Hanna Birna skipulögðu oddvitaskiptin og hver muni setjast í Borgarstjórastólinn.

Gísli Marteinn ætlar sko að berjast fyrir leiðtogasætinu fyrir næstu kosningar annars mundi hann vilja svara spurningum fréttamanna um það.

Hann hefur ekki lært neitt í samskiptum, núna þegar eiginlega mest á reynir fyrir Sjálfstæðisflokkinn um sameiningu og sættir angar Gísli Marteinn af fýlu og hroka.

Það mun ekkert breytast í borginni það eru skilaboðin sem Borgarfulltrúarnir eru að senda Reykvíkingum í dag.

Nýr foringi það skiptir engu….við förum bara okkar fram í OR í REI og í umhverfis- og Samgöngumálum, þetta finnst mér vera tónninn í þeim borgarfulltrúum sem hafa verið að tjá sig í fjölmiðlum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Hanna Birna oddviti strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki sátt um Hönnu Birnu !!!!

Það er mjög mikil óánæja innan Borgarstjórnarhópsins með val á Hönnu Birnu sem leiðtoga flokksins í Reykjavík.

Alveg sama hvað þetta einvala ótrúverðuga Borgarfulltrúalið Sjálfstæðisflokksins heldur fram,um sátt og samlyndi innan hópsins það er ekki til.

Þeim var skipað að gera þetta svona. Það eru allir komnir með hnífasettin í skotstöðu eftir þennan gjörning.

Og það er alveg öruggt mál að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var tekinn á teppið af forustusveitinni í Sjálfstæðisflokknum eftir síðustu skoðanakönnun.

Og honum skipað að leggja fram tillögu um að Hanna Birna yrði leiðtogi flokksins í Reykjavík og næsti Borgarstjóri.

Þá mun hún líka vera í forsvari fyrir hópinn í Reykjavík.

Hinir kandidatarnir sem eru búnir að berjast um að fá að leiða flokkinn eru mjög ósáttir með sinn hlut.

Og vildu fá að efna til prófkjörs meðal sjálfstæðismanna um þessi mál. Sem forustan hlustaði ekki á.

Nú má Ólafur F. Magnússson breyta um framkomu við Sjálfstæðismenn, það er kominn nýr foringi í brúnna.

Vonandi tekst Hönnu Birnu að stoppa eyðilegginguna í OR og REI sem þessi svo makalausi ósvífni formaður í stjórnum þessara fyrirtækja er að gera.

En þetta skiptir í raun afar litlu máli þessi leiðtoga skipti, Hanna Birna hefur ekki fullan stuðning innan hópsins og það verður til þess að málin eiga eftir að rekast á og tefjast eins og verið hefur.

Þessi breyting kemur alltof seint og sannið til að í næstu skoðanakönnun verður afar litlar breytingar að sjá á fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Það er búið að skemma grasrótina í flokknum þetta fólk getur engu breitt, það hefði þurft að stokka alveg upp og senda þetta mjög þreitta sjálfstæðisflokkslið í frí.

Þá ætti Sjálfstæðisflokkurinn kanski einhverja möguleika í Reykjavík.

Þetta finnst mér.


mbl.is Hanna Birna verður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sólrún týndi botninum af stefnu Samfylkingar í Borgarnesi !

Hver man ekki eftir eldmóðinum í Ingibjörgu Sólrúnu á frægum fundi í Borgarnesi.

Hann varð svo mikill að Davíð Oddsson þáverandi forsætisráðherra leist ekki á blikuna.

Og endaði með að draga sig í hlé og fór í Seðlabankan þorði ekki sjálfur að tapa fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og eftir lét þeim, sem honum fannst algjörir aular eins og Halldór og Geir.

Framsóknarflokkurinn hvarf bara eins og allir vita.

En Geir var ekki svo mikill auli eftir allt hann hélt sínu fyrir Sjálfstæðisflokkinn og myndaði ríkistjórn með Samfylkingunni, eitthvað sem Davíð  Oddson hefði  aldrei getað vegna flokkshroka í honum sjálfum.

Þá var talið um hina tvo turna. En núna er bara einn turn eftir sem Ingibjörg og Geir sitja bæði í.

Stefna Samfylkingarinnar er orðin nær jafn lituð og stefna Sjálfstæðisflokksins.

Hennar yfirlýsingar varðandi Baugsmálið núna eru bara koddahjal og hafa enga merkingu.

Menn ættu að rifja upp yfirlýsingar hennar í Borgarnesi og bera þær saman núna.

Hún stendur bara ekki við eitt eða neitt frá því að hún opnaði á sér kjaftinn í Borgarnesi og dró fólk til sín á þeim forsenntum sem heillaði fólk.

Nú er það komið í ljós þetta var bara allt í plati.

 Hún sér ekki lengur grasrótina í flokknum sínum.

Það er farin af henni mesti sjarmin í pólitíkini.

Nú er bara um að gera að leggjast nógu lágt til að halda friðinn og halda stólunum og völdum og beigja sig fyrir Sjálfstæðisflokknum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Rannsókn og ákæra ekki í samræmi við tilefnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband