Er Íslenska vistkerfið tilbúið fyrir ný dýr ?

40 þusund Norskar býflugur var verið að flytja inn í landið til hunangsframleiðslu.

Er bara ekki allt í lagi með Umhverfisstofnun að leyfa þetta, eða eru þetta fúskarinr hjá Landbúnaðarstofnun sem leyfa innflutning á þessu líkt og þeir leyfðu innflutning á rottunum til ræktunar forðum daga.

Vistkerfi Íslands er mjög viðkvæmt og hefur verið raskað nokkrum sinnum t.d. í Vestmannaeyjum þegar Kanínan reyndi að útrýma Lundanum, þar greip maðurinn inn í.

Og fyrir löngu síðan  var fluttur til landsins Minkur, sem nú er á áætlun að útrýma á næstu árum.

Ætla menn aldrei að læra neitt.

Ísbjörninn passaði t.d ekki fyrir Íslenska vistkerfið og var því eytt.

Það liggur líka fyrir nýtt frumvarp Landbúnaðarráðherra að leyfa innflutning á hráu kjöti sem er líka ógn við vistkerfið vegna hættu á smitsjúkdómum.

Þetta er bara með eindæmum. Það hefði ekki átt að leyfa þetta .

Þetta finnst mér.


mbl.is Býflugur fá leyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugsmenn verða sýknaðir í dag !!

Hæstiréttur mun kveða upp dóm kl 16:00 í dag í Baugsmálinu. Ég er alveg viss um að Jón Ásgeir verður sýknaður og dómur héraðsdóms yfir Tryggva Jónssyni verður snúið við.

En Jón Gerald verður sekur fundinn og dómnum yfir honum þyngdur.

Þar með líkur þessu "mikla sakamáli" sem æðstu embættismenn og ráðherrar á sínum tíma unnu að af mikilli heift gegn Baugi.

Það er mín skoðun að eftir að niðurstaða Hæstaréttar hefur verið lesin í dag, ættu ýmsir embættismenn að segja af sér.

Því þetta verður líka dómsúrskurður gagnvart þeim.

Þetta finnst mér.


mbl.is Dómur í Baugsmáli kveðinn upp í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álit landsmanna skiptir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson engu máli... hann er að hætta í pólitík !!!

Reykjavík er höfuðborg allra landsmanna og nú vilja aðeins 5 % landsmanna að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson setjist aftur í Borgarstjórastólinn.

Og honum finnist þetta sé gagnrýni á sig persónulega en skilur hana samt ekki.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,Kjartan Magnússson og Ólafur F. Magnússson fögnðu rosalega að þeir hefðu skrifað undir málefnasáttmála milli aðila þegar valdarán var framið í borginni fyrir eitthvað 100 dögum.

Meðan hinir Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins  fengu ekki að vera með í ráðum stóðu hnípnir hjá.

En núna efast sitjandi Borgarstjóri um að gera hefði átt þennan málefnasamning sem var í upphafi þessa samstarfs kjölfesta Borgarstjórnar.

Hann verður að fara að taka hausinn upp úr sandinum, það talar enginn heilvita maður ofaní sandinn.

En mesta gagnrýni af þeirra í Klofningstríóinu  á Tjarnarkvarttetinn  er að þau hefðu ekki gert málefnasamning.

Þau í Tjarnarkvartettinum sögðu einfaldlega á sínum tíma það væri verið að vinna að málefnasamningi, en fyrst yrði unnið að meta stöðu stofnana og málefna í borginni til að sjá hvernig hlutirnir stæðu i raun og veru.

Þetta fannst Klofningstríói Sjálfstæðisflokksins alveg ófært og tóku völdin.

Allir vita hvernig málin standa í borginni hún er stjórnlaus.

Af hverju læðist þú ekki í burtu  Vilhjálmur Þ. og lætur þig bara hverfa.

Já og þú Ólafur F. verið bara samferða í burtu þið eruð búnir að eyðileggja margra ára vinnu í borginni með framkomu ykkar og vinsældir ykkar eu komnar niður í einar tölu í %.

Þetta finnst mér.


mbl.is Vilja Hönnu Birnu sem borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrottar í lögreglubúningum á Akranesi kærðir !!

  Í DV í dag á bls 6-7 er allsvakaleg lýsing á húsbroti lögreglu á Akranesi.

Lögregla réðst inn á heimili Ólafs G. Aðasteinssonar og Mörthu E. Kristínar Lund, við þriðja mann án þess að hafa handtöku- eða húsleitarheimild.

Aðdragandan má rekja til ársins 2006 þegar vini Ólafs var hent út af veitingastað á Akranesi fyrir að hafa farið með bjór inn á staðinn, þeir félagar voru á leiðinni heim þegar  lögregla stöðvaði þá og handtók með miklu harðræði. 

Ólafur hlaut mikla áverka við handtökuna og einig þegar á lögreglustöðina var komið vegna barsmíða og sparka að hálfu lögreglu í hann.

Ólafur hefur verið mög ósáttur við þessar handtökur og hefur ítrekað mótmælt þeim við lögreglu.

Síðan var það í jan 2007 að barið var að dyrum á heimili Ólafs og Mörthu og er þá komin lögregla til að handtaka Ólaf og voru þeir spurðir um heimildir til handtöku sem þeir svöruðu ekki.

En sögðu einhvern lögfræðing hjá ríkissaksónara hafa fyrirskipað það en leyfðu ekki Ólafi að tala við lögfræðinginn.

Aftur var beitt mjög miklu harðræði við handtöku þó Ólafur hefði sagt við þá að hann kæmi með þeim mótþróalaust, þyrfti bara að fá að kæða sig en þá réðust þeir á hann.

Og nú er málið formlega komið til ríkissaksóknara sem hóf þesa ólögmætu aðgerð að því virðist í fljótu bragði.

Ólafur segist ekki treysta ríkissaksóknara til taka raunhæft á málinu. Hver veit ?

Þetta finnst mér.


Guði sé lof að Sjalfstæðisflokkurinn sé að eyða sjálfum sér !

Borgarsstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna er á réttri braut þetta er glæsilegur árangur á skömmum tíma og heldur áfram að falla í áliti hjá Reykvíkingum.

Þetta fólk sem situr sem valdaránshafar í Reykjavík þurfa nú alvarlega að fara að biðjast afsökunar á framkomu sinni gagnvart Reykvíkingum,en meiri hluti Reykvíkinga vill ekki sjá þetta fólk í þeim stöðum í Borgarstjórnar fólk Sjálfstæðisflokksins hafa hrifsað til sín.

Segið af ykkur og biðjist afsökunar á framkomu ykkar og farið frá völdum.

Sér í lagi finnst mér rosaleg farmkoma Ólafs F. Magnússonar sem aðeins 11 % Reykvikinga styður.

Hann hefur verið að jagast á því að hann sé að vnna fyrir fólkið, ég spyr bara hvaða fólk?

Það vill enginn í raun að hann sé borgarstjóri og nú stríðir hann alveg gegn vilja meirihluta Reykvíkinga.

Það þýðir ekkert fyrir ykkur Borgarfulltrúar að koma fram og segja þetta er nú bara skoðanakönnun því þetta er nú það sem Reykvíkingum finnst.

Þetta er minnsta fylgi sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur nokkru sinni fengið í könnunum Gallup og flokkurinn fengi fjóra borgarfulltrúa ef þetta yrðu úrslit kosninga en hefur sjö nú.

Þetta er bara glæsilegt hjá ykkur haldið bara hausnum áfram ofan í sandinum það  verður best fyrir Reykjavík.

Og nú er þessi vinsældabylgja Sjálfstæðismanna í Reykjavík farin að hríslast út í landsmálapólitíkina.

Þetta er bara það besta sem gat gerst að krakkaklíka fremdi valdarán í Reykjavík

Þetta finnst mér.


mbl.is Fylgi D-lista aldrei minna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttafólk vill ekki búa í litlum bæjum !!!!

Í helgarblaði DV. er farið yfir það á bls. 14 -15  hvernig í raun flóttafólki hefur vegnað á þeim stöðum sem því hefur verið holað niður á síðustu 12 árum á Íslandi.

Árið 1996 komu 30 manns frá Krajina til Ísafjarðar þeir eru allir farnir.

Árið 1997 komu 17 manns til Hornafjarðar ein fjölskylda er þar eftir.

Árið 1998 komu 23 manns frá Krajina til Blönduós þeir eru allir farnir.

Árið 1999 komu 27 frá Kosovo til Dalvíkur þar er einn eftir.

Árið 1999 komu 25 frá Kosovo  til Hafnarfjarðar engin veit hvað hefur orðið um þá.

Árið 1999 komu 23 frá Kosovo til Fjarðarbyggðar þeir eru allir farnir.

Árið 2000 komu 24 frá Krajina til Siglufjarðar þeir eru allir farnir.

Árið 2001 komu 23 frá Krajina til Reykjanesbæjar allir eru þar ennþá.

Árið 2003 komu 24 frá Krajina til Akureyrar allir eru þar ennþá.

Árið 2005 - 2007 komu 61 frá Kólumbíu til Reykjavíkur 52 eru eftir.´

Árið 2008 er áætlað að taka 30 flóttamenn frá Palestínu til Akranes.

Ég hef fylgst með þeirri umræðu hér um komu þessara einstaklinga frá Palestínu til Akranes.

Það má segja að umræðan þar sé á mjög lágu plani og einkennist af hroka, fljótfærni og gífuryrðum.

Lætin urðu það mikil útaf þessu að bæjarstjórnin féll, og einn bæjarfulltrúana gekk úr Frjálslyndaflokknum til liðs við Sjálfstæðisflokkinn.

Eingöngu vegna þess að aðrir fjálslyndir vildu fara hægar í sakirnar þar á meðal  Félagsmálastjórinn á Akranesi.

Hann taldi að ekki hefði verið staðið nægilega vel að undirbúningi  vegna þessara flóttamanna frá Palestínu til Akranes og mörgum grundvallar spurningum ósvarað.

Ég held að það sé rétt Akranes er of lítill bær til að taka við þessu flóttafólki.

Það væri nær að Reykjanesbær, Reykjavík eða Akureyri taki við þessu flóttafólki frá Palestínu en ekki einhver krummskuð sem geta ekki uppfyllt nema að hluta þeirra skilyrða sem stór bæjarfélög geta.

Þetta finnst mér.


Nú er möguleikinn fyrir Ólaf F. Magnússson að koma sínum að í OR og REY !!

Loksins er byrjað að stíga hænufet í að standa við samkomulag sem gert milli flokkana í Borgarstjórn.

Nema það hefði átt að reka báða forstjóranana.

 Guðmundur Þðoroddson er látinn hætta og kemur mér ekki á óvart.

Það hefði átt að láta Hjörleif Kvaran hætta líka. Hann hefur ekkert að gera þarna miðað við þær kröfur um menntun og reynslu sem gera á til þessa starfs sem forstjóri OR og REY ættu að hafa.

Nú verður að sjá hvort Borgarstjórinn ráði ekki einhvern úr sinni ermi í þennan stól.

Ég er alveg viss um það.

Þetta finnst mér.


mbl.is Guðmundur hættir hjá OR og REY
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekkert að marka einhverja skjaldborg um orkumál !!

Ég held að Samfylkingin átti sig ekki á því að Sjálfstæðisflokkurinn ræður ollu í orkumálum þjóðarinnar og orkuauðlindum hennar.

Sjálfstæðisflokkurinn stjórnar Landsvirkjun, OR, REY, Hitaveitu Suðurnesja og svona væri hægt að telja áfram.

Þá er á borðinu ennþá að virkja Urriðafoss, Þjórsárver, Bitruvirkjun og fl. og fl

Ég skil ekki alveg þessa hamingju í formanni Iðnaðarnefndar um að söguleg sátt hafi náðst um ekki neitt og einhverja skjaldborg um verndun auðlinda.

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn stefnir að virkja allt og taka eignarnámi það sem hann fær ekki með góðu.

Þetta finnst mér.


Nóg af orku...þarf enga Bitruvirkjun !!!!!

 Á visir.is í kvöld kemur yfirlýsing frá forstjóra OR

Forstjóri OR, Hjörleifur Kvaran, segir að það sé hægt að efna öll loforð og væntingar Ölfusbúa, og hins erlenda sólarrafhlöðuframleiðanda og kísilhreinsunarverksmiðjubyggjenda.

Þó búið sé að afskrifa Bitruvirkjun. Orkan frá þeim borholum og virkjunum á Hengilsvæðinu dugi alveg.

Hvers vegna var verið að eyða miljörðum króna í undirbúning fyrir virkjnir á þessu svæði ef þess þurfti ekki með?

Er nokkuð mark takandi á þessum forstjóra er þetta ekki bara eitt bullið enn frá honum ?

Þetta OR fyrirtæki er bara fársjúkt af spillingu og rugli.

Þetta finnst mér.


Engill Dauðans - IDOL stjarnan Kalli Bjarni afplánar dóm sinn á hóteli !!!!

Idol stjarnan Kalli Bjarni sem tekin var með 2 kg að fíkniefnum þegar hann kom til landsins á sínum tíma.

Gerir það bara gott á hótel Kvíabryggju

Hann neitaði að gefa upp samstarfsmenn eð hverjir ættu efnið og var dæmdur í fangelsi að vísu mjög vægur dómur. Miðað við dóminn sem Íslendingurinn fékk í Færeyjum

Hann mun afplána dóm sinn á kvíabryggju sem er hálf opið fangelsi, með öllum hugsanlegum búnaði og flatskjáum í hverju herbergi og marskonar þægindum.

Mér finnst þetta gróf móðgun við réttarkerfið að mylja undir svona afbrotamenn.

Mín skoðun er sú að það eigi að loka þessa menn inn á sérstökum stofnunum og henda lyklinum.

Mér finnst þetta vera meðal verstu glæpamanna sem eru á ferðinni.

Þetta finnst mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband