Siðblindi Borgarstjórinn er ennþá með hausinn ofan í sandinum !!!

Röksemdafærsla Borgarstjórans í Reykjavík vegna skoðunarkannar vegna flugvallamála í Reykjavík, sýnir hvað hann er gjörsamlega lokaður.

Það var bara verið að spyrja um hvort fólk í Reykjavík vildi hafa flugvöllinn í vatnsmýrinni eða ekki  48 % vilja það.

Þetta hlutfall er úr öllum flokkum. En það skilur  Ólafur F. Magnússon ekki.

Það var ekki verið að spyrja um fylgi Ólafs F. Magnússonar í þessari könnun, hinsvegar var það gert um daginn í fimmhundruð manna úrtaki þá studdu 10 manns kappan senni lega allt í fjölskyldunni hans. Hann er bara með 2% fylgi.

Þessar röksemdarfærslur Ólafs F. Magnússonar eru svo ótrúverðugar að það er eins og hann sé með hausinn ofan í fullri vatnsfötu og sé að fullvissa fólk um að hann blotni ekki á höfðinu.

Mér finnst Ólafur F. Magnússson  spilltasti Borgarstjóri sem setið hefur enda var hann ekki kosinn af fólkinu í það emblætti.

Hann framkvæmdi valdarán í nafni annars flokks sem hann er ekki  lengur í og hefur því ekki kjörgengi fyrir Frjálslyndaflokkinn, hann er í Íslandshreyfingunni sem ekki kom að síðustu kosningum í Reykjavík þeir buðu ekki fram.

Ólafur F. Magnússson er einn siðspilltasti stjórnmálamaður allra tíma, enda er þetta smitandi, því borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru alveg eins siðblindir.

Þetta finnst mér.


mbl.is Borgarstjórinn fagnar niðurstöðu skoðanakönnunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er að verja spillingu Íslandshreyfingarinnar !

Á visir.is í dag segist Ásta Þorleifsdóttir standa vörð um málefnin. 

Ásta Þorleifsdóttir varaformaður OR  og  segist standa vörð um málefnin, hvaða málefni eiginlega.

Eina sem þetta fólk  í Íslandshreyfingunni er að verja er valdarán sem það gerði í nafni Frjálslyndaflokksins.

Þetta fólk er að verja spilligu Ólafs F. Magnússsonar vegna mannaráðninga og framkomu við almenning í Reykjavík, valdagræðgi og tækifærisinnaðar ákvarðanir.

Það eru málefnin sem Ásta Þorleifsdóttir er að verja í dag.

Þetta finnst mér.


Hanna Birna verður aldrei Borgarstjóri !!!!

Á visir.is í dag er sagt frá skoðanakönnun, þar sem rúmlega 40% vilja að Hanna Brirna verði næsti Borgarstjóri. 

Þetta lið sem er með henni í Borgarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna eru þvílíkir eiginhagsmunaseggir að engin innan hópsins verður valin í það embætti.

Þó tel ég að Hanna Birna sé sú manneskja sem ég gæti treyst fyrir Borgarstjórastarfinu.

Næsti Borgarstjóri í Reykjavík verður ráðinn í embættið utan Borgarstjórnarflokksins.

Þessir Borgarstjórnarfulltrúar sem eru búnir að ná undir sig helstu nefndarstörfum og valdastofnunum í borginni og gera allt til að belgja sig út leyfa ekkia að einhver úr hópnum verði Borgarstjóri, enda eiga þeir ekki viðreinsar von þegar þessu kjörtímabili líkur.

Og það að hafa verið undir forustu eins mest spilta Borgarstjóra sem hefur verið á stóli eins og Ólaf F. Magnússonar verður þeim ekki til framdráttar.

Ef eitthvað er í raun hægt að segja um Borgarstjórnarflokk Sjálfstæðismanna þá er þarna saman safn af því allra lélegasta fólki sem er í pólitík.

Þetta finnst mér.


Frambjóðendur Íslandshreyfingarinnar eru siðblindir !!!!!!!

Hver frambjóðandi  Íslandshreyfingarinnar á fætur öðrum, sem kjósendur í Reykjavík höfnuðu á sínum tíma, er nú troðið í störf á skrifstofu Borgarstjóra.

Og ómerkilegheitin hjá þessu nána samstarfsfólki er að segja upp í opið geðið á fólki að ekki sé um pólitíska ráðningar að ræða.

Fyrst ber að nefna Margréti Sverrisdóttur sem stofnaði Íslandshreyfinguna, sem engin getur víst unnið með.

Samanber aðkomu hennar að Frjálslyndaflokknum sem hún var stofnandi að líka.

Hún var kosin af stuðningsfólki F listans til starfa í Borgarstjórn.

Þegar kosningar voru afstaðnar stofnaði hún Íslandshreyfinguna og er varaformaður hennar.

En neitar að víkja sæti fyrir kjörna fulltrúa Frjálslyndaflokksins í Borgarstjórn.

Ólafur F. Magnússon var í fyrsta sæti á lista Frjálslyndaflokksins í Reykjavík en um leið og hann hafði tryggt sér sæti í Borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Frjálslyndaflokkinn gekk hann í Íslandshreyfinguna og neitar að víkja sæti fyrir aðra kjörna fulltrúa Frjálslyndaflokksins.

Þetta eru nú heilyndin hans Ólafs F. Magnússonar

Ásta Þorleifsdóttir er líka í Íslandshreyfingunni og var á lista Frjálslyndaflokksins, hún situr í helstu nefndum í Borgarstjórn fyrir Frjálslyndaflokkinn. Ólafur F. Magnússon valdi hana í nefndir og hennti Margréti  Sverrisdóttur út úr mikilvægum nefndum og ráðum.

Þá er það flokkaflakkarinn Jakob Frímann Magnússon , sem hefur verið hafnað af Reykvíkingum sama í hvaða flokki hann hefur boðið sig fram. Nú var hann ráðinn af Ólafi F. Magnússyni í eitt valda mesta embætti Reykjavíkurborgar.

Jakob Frímann skipaði eitt efsta sæti framboðslista Íslandshreyfingarinnar í Suðvesturkjördæmi honum var hafnað í kosningum. Nú vinnur hann undir merkjum F lista Frjálslyndaflokksins.

Nú var verið að ráða Svanlaugu Jóhannsdóttur fyrrum samstarfsmann Jakobs Frímanns og frambjóðenda í efstu sætum framboðslista Íslandshreyfingarinnar.

Svo segir þetta fólku upp í opið geðið á Reykvíkingum þetta eru ekki pólitískar ráðningar.

Hvað er eiginlega með Ómar Ragnarsson formann Íslandshreyfingarinnar, er hann líka orðin svona siðblindur að hann sé búinn að tapa áttum.

Eða er bara vaðið yfir hann ?

Getur verið að honum finnist í lagi að fólk sem starfar og er í þungaviktarstöðum hjá Íslandshreyfingunni vinni undir merkjum Frjálslyndaflokksins.

Hvers konar siðblinda er þetta og bara ósvífni hjá þessu flokkaflakkafólki, eða með öðrum orðum þessum pólitísku viðrinnum Íslandshreyfingarinnar.

Þetta finnst mér.


Sætið í Öryggisráðinu hvarf vegna hvalveiðana !!!!

Bretar eru æfir yfir hvalveiðum Íslandinga og róa nú ollu til að fá þjóðir til að styðja einhverja aðra en Íslendinga í sætið lausa í Öryggisráðinu.

Mér er nú alveg sama um það.

Öll dýraverndunarsamtök í heiminum hafa mótmælt þessum veiðum.

Bretar eru að mínu mati að skipta sér af innanríkismálum á Íslandi og ætti Utanríkisráðherran að kalla sendiherra Breta á teppið út af þessum ummælum sem hann hefur við haft um Íslensk innanríkismál hvalveiðarnar.

Hriðjuverkasamtökin  Wattson og Greenpace hafa líka látið í sér heyra og hótað aðgerðum gegn Íslendingum.

Það þarf að bregðast við ég vil getað borðað Hvalkjöt án þess að  Bretum komi það  við.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ágreiningur um hvalveiðar lítið mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dóma fyrir veggjakrot og skemdarverk á eignum á að þyngja !!!!

Lögreglan hefur verið að handsama undanfarið veggjakrotara í Reykjavík og er það vel.

Mér finnst að það eigi að herða refsingar fyrir svona skemdarverk og það dugar ekkert annað en að það komi við peningabudduna hjá þeim sem gera svona eða hjá þeim sem bera ábyrgð á svona fólki sé það undir lögaldri.

Hundrað þúsund á hvert hús sem spreyjað er á og  hundrað dagar skilorð til við bótar fyrir hvert hús.

Og birta myndir af þessum mönnum og konum öðrum til viðvörunar.

 Þetta finnst mér.


mbl.is Tveir 14 ára drengir spreyjuðu á vegg í miðbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ert þú tilbúin(n) að hjálpa Rakel Ágústsdóttur ????

Í síðdegisútvarpi Útvarps Sögu 12. maí sl. var var gestur þáttarins Rakel Ágústsdóttir. Saga hennar snertir alla. Skoðaðu þetta núna.

“Rakel Ágústsdóttir er
fædd á Landspítalanum í Reykjavík 11.júní árið 1980. Hún fæddist
alheilbrigð 10 vikum fyrir tímann en fékk heilahimnubólgu þegar hún var
10 daga gömul. Það varð til þess að hún fékk heilalömun CP.
Heilalömun
veldur því að ákveðnar stöðvar heilans virka ekki sem skyldi. Rakel
þarf mikla aðstoð við allar daglegar þarfir, allt það sem við teljum
sjálfsagt eins fara í bað, klæðast, fara í bað og ganga til hvílu. 
 Hún er elst systkina sinna, hún tvær systur og tvo bræður.

Á sínum yngri árum flutti hún mjög oft milli staða, en bjó alltaf við góðar aðstæður
þannig að hún gat farið um allt á hjólastólnum sínum.
 Rakel
fór í leikskóla og grunnskóla. Hún missti mikið úr einu ári í skólanum
í kjölfar skurðaðgerðar sem olli því að hún varð að taka það að nýju.
Rakel kláraði grunnskólann og fór í Menntaskólann við Hamrahlíð en
hætti þar vegna kennaraverkfalls. 

Rakel flutti að heiman árið 2001 í íbúðakjarna í Breiðholti þar sem henni
leið ágætlega enda komin í sér íbúð. Þó íbúðin væri þröng fannst Rakel
gott að standa á eigin fótum. Árið 2007 var henni boðið að flytja í
svipaðan íbúðakjarna í Grafarvogi og hún sér ekki eftir að hafa ákveðið
að slá til með það. Sá kjarni er á góðum stað, þar búa þrjár stelpur
auk hennar. Rakel líður ótrúlega vel á nýja staðnum, er mun
sjálfstæðari en áður. 
 
Hún ber armband með takka sem hún ýtir á þegar hana vantar þjónustu. Eins og skilja má er hún
svolítið einangruð en á sín áhugamál sem hún unir sér vel við. Hún á
rosalega fína tölvu og notar msn mikið til að tala við vini og
kunningja sem margir búa í útlöndum. Tölvan hennar er líka full af
myndum af dönsku konungsfjölskyldunni, einkum af Friðriki krónprins og
fjölskyldu hans.  

Rakel ber miklar tilfinningar til Danmerkur sem byrjaði um árið 1995 þegar
Jóakim, yngri bróðir Friðriks kvæntist Alexöndru. Hún fylgist vel með
og les fréttir af konungsfjölskyldunni og á margar myndir af þeim, upp
á vegg og í tölvunni sinni. Henni finnst þau æðisleg. Jóakim skildi við
Alexöndru og er nú trúlofaður konu að nafni Marie, en þau ætla að gifta
sig 24. maí, sama dag og Eurovision söngvakeppnin fer fram. Það þýðir
að sá dagur verður erfiður fyrir Rakel vegna þess að hún er mikill
aðdáandi söngvakeppninnar. Hana langar bæði að horfa á brúðkaupið og
keppnina, en það kemur í ljós hvort hún velur. 
 
Rakel
er búin að fara sex sinnum til Danmerkur , á hverju ári undanfarin 5
ár. Henni finnst alltaf jafn gott og skemmtilegt að koma þangað. Það er
dýrt fyrir hana að komast til útlanda því hún þarf að borg fyrir sjálfa
sig og einn eða jafnvel tvo starfsmenn sem hún þarf að hafa sér til
halds og trausts. Stundum þarf hún líka að greiða þeim laun. Það þýðir
að hún gæti þurft að borga hátt í hálfa milljón fyrir nokkurra daga
ferð, ef ekki meira, með öllu sem til þarf. 

Hún lifir aðeins á örorkubótum en reyndar er til styrktarsjóður þar sem hún getur sótt um styrk til að borga
aðstoðarfólki sínu en það má ekki gera það ár eftir ár. Þess vegna væri
gaman að fólk gæti látið örlítið fé af hendi rakna til að gera henni
kleift að upplifa draumana sína um heimsóknir til Danmerkur. 
 

Henni líður mjög vel þar sem hún býr núna – er miklu sjálfstæðari en áður.
Það angrar hana svolítið að hafa ekki liðveislu því það er svo margt
sem hana langar að gera, eins og að fara
 á kaffihús eða í Kringluna.Það sem styttir Rakel stundirnar er tölvan hennar, svo er hún með fjöldann allan af dönskum sjónvarpsrásum.  
Rakel
langar að læra meira, jafnvel fara í skóla en að minnsta kosti bæta við
sig dönsku og ensku. Hún veit ekkert frekar en við hvað framtíðin ber í
skauti sér en vonandi verður hún henni hamingjurík.

Reikningurinn hennar er: 515-14-611114 og
kennitalan er: 110680-5629


Það verður engin niðurstaða í kvöld !!!

Í kvöld er áætlað að halda fund í OR og ræða málefni og framtíð REI þar sem allir í stjórninni hafa sína skoðun á málinu.

Það verður fróðlegt að heyra eftir fundinn að engin niðurstaða hafi náðst frekar en venjulega.

Þetta fólk sem er í stjórn OR er bara ekki að skilja þetta með OR og REI.

Það hefur ekkert lært af endalausum mistökum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Framtíð REI tekin fyrir í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að míga í sama skóinn !!!!

Allir ráðherrar Samfylkingarinnnar eru á móti hrefnuveiðum. Og bla…bla…bla..bla…

Allir ráðherrar Samfylkingarinnar eru á móti stóriðju og virkjanaframkvæmdum næstu árinn..Bla..bla…bla.

Allir ráðherrar Samfylkingarinnar eru sammála aðförinni að sjómönnum og fiskverkafólki..bla..bla. bla…

Allir ráðherrar Samfylkingarinnar eru sammála aðförinni að bændum núna…bla..bla..bla..

Ef marka má ummæli þeirra undanfarið.

 En Sjálfstæðisflokkurinn ræður þessu og sendir ráðherrum Samfylkingar “puttan”.

Samfylkingin er bara þessi veika hækja Sjálfstæðisflokksins sem fær ekki rönd við reist og kosningarloforðin, eru eins og hlandbuna ofaní sama kosninga loforðaskóinn, sem er orðinn alltof stór og passar ekki þessari ríkistjórn.

Samfylkingin  er að gleypa ofaní sig flest öll stóru kosningaloforðin.

Þetta finnst mér.


Miklar líkur á að Guðmundur í Birginu verði sýknaður !!!!!

Ef marka má röksemdafærslu ýmsa lögmanna undan farið vegna máls Guðmundar í Birginu má reikna með því að málinu verði vísað heim í hérað aftur.

En þetta hefur verið mjög ítarlega rakið  í DV undanfarið.

Og dómur héraðsdóms hefur verið ógildur.

Vegna ýmsa formgalla í rannsókn þessa máls.

Þetta er bara ekki í lagi að menn sem eru að rannsaka og leggja fram ákærur skuli klúðra málunum næstum því alltaf.

Þetta finnst mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband