Frambjóðendur Íslandshreyfingarinnar eru siðblindir !!!!!!!

Hver frambjóðandi  Íslandshreyfingarinnar á fætur öðrum, sem kjósendur í Reykjavík höfnuðu á sínum tíma, er nú troðið í störf á skrifstofu Borgarstjóra.

Og ómerkilegheitin hjá þessu nána samstarfsfólki er að segja upp í opið geðið á fólki að ekki sé um pólitíska ráðningar að ræða.

Fyrst ber að nefna Margréti Sverrisdóttur sem stofnaði Íslandshreyfinguna, sem engin getur víst unnið með.

Samanber aðkomu hennar að Frjálslyndaflokknum sem hún var stofnandi að líka.

Hún var kosin af stuðningsfólki F listans til starfa í Borgarstjórn.

Þegar kosningar voru afstaðnar stofnaði hún Íslandshreyfinguna og er varaformaður hennar.

En neitar að víkja sæti fyrir kjörna fulltrúa Frjálslyndaflokksins í Borgarstjórn.

Ólafur F. Magnússon var í fyrsta sæti á lista Frjálslyndaflokksins í Reykjavík en um leið og hann hafði tryggt sér sæti í Borgarstjórn Reykjavíkur fyrir Frjálslyndaflokkinn gekk hann í Íslandshreyfinguna og neitar að víkja sæti fyrir aðra kjörna fulltrúa Frjálslyndaflokksins.

Þetta eru nú heilyndin hans Ólafs F. Magnússonar

Ásta Þorleifsdóttir er líka í Íslandshreyfingunni og var á lista Frjálslyndaflokksins, hún situr í helstu nefndum í Borgarstjórn fyrir Frjálslyndaflokkinn. Ólafur F. Magnússon valdi hana í nefndir og hennti Margréti  Sverrisdóttur út úr mikilvægum nefndum og ráðum.

Þá er það flokkaflakkarinn Jakob Frímann Magnússon , sem hefur verið hafnað af Reykvíkingum sama í hvaða flokki hann hefur boðið sig fram. Nú var hann ráðinn af Ólafi F. Magnússyni í eitt valda mesta embætti Reykjavíkurborgar.

Jakob Frímann skipaði eitt efsta sæti framboðslista Íslandshreyfingarinnar í Suðvesturkjördæmi honum var hafnað í kosningum. Nú vinnur hann undir merkjum F lista Frjálslyndaflokksins.

Nú var verið að ráða Svanlaugu Jóhannsdóttur fyrrum samstarfsmann Jakobs Frímanns og frambjóðenda í efstu sætum framboðslista Íslandshreyfingarinnar.

Svo segir þetta fólku upp í opið geðið á Reykvíkingum þetta eru ekki pólitískar ráðningar.

Hvað er eiginlega með Ómar Ragnarsson formann Íslandshreyfingarinnar, er hann líka orðin svona siðblindur að hann sé búinn að tapa áttum.

Eða er bara vaðið yfir hann ?

Getur verið að honum finnist í lagi að fólk sem starfar og er í þungaviktarstöðum hjá Íslandshreyfingunni vinni undir merkjum Frjálslyndaflokksins.

Hvers konar siðblinda er þetta og bara ósvífni hjá þessu flokkaflakkafólki, eða með öðrum orðum þessum pólitísku viðrinnum Íslandshreyfingarinnar.

Þetta finnst mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þú segri fréttir.

Ég hélt að Magga væri á leiðinni í Samfylkinguna en Íslandshreyfingin væri að mestu einungis nafnið og kennitalan til þess að fá styrkinn til stjórnmálaafla til þess að standa undir kosningabaráttunni.

Sigurjón Þórðarson, 24.5.2008 kl. 09:14

2 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæll Sigurjón.

Ég veit eiginlega ekki hvar hún er niður komin eða hvert hún er að fara  og er nú nokkuð sama.

Hún er allavega skráð sem varaformaður íSLANDSHREYFINGARINNAR.

Hinsvegar er ég þeirrar skoðunar að  þetta fólk allt saman er búið að brenna allar pólitískar brýr að baki sér.

Nú þarf að vanda til verks í Reyjavík fyrir næsta slag þar.

Þetta finnst mér.

Guðmundur Óli Scheving, 24.5.2008 kl. 13:24

3 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Það þarf að vanda til verks í Reykjavík fyrir næstu Borgarstjórnarkosningar.

Þetta finnst mér.

Guðmundur Óli Scheving, 24.5.2008 kl. 13:37

4 Smámynd: Guðmundur Óli Scheving

Sæl Anna.

Þakka þér ábendinguna, þetta  er alveg rétt hjá þér.

Þakka þér þitt innlegg.

Guðmundur Óli Scheving, 28.5.2008 kl. 21:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

Er með bloggsíðu : http://blogg.visir.is/gudmunduroli

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 83987

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband