Færsluflokkur: Vefurinn
9.4.2009 | 13:10
Innbyrðisátök og spilling Sjálfstæðismanna !
Ég hef skrifað mörgum sinnum um spillingu Sjálfstæðismanna vegna REI og OR og GGE nú er þetta allt komið fram og á eftir að koma meira í ljós. Það átti að liðka fyrir málunum að borga í Sjálfstæðisflokkinn 30 miljónir króna.
Orkan var næsta útrásardæmi ,Hannesar Smárassonar og Bjarna Ármannssonar.
Það þýðir ekki lengur að segja við okkur, að Borgarstjórnarfulltrúarnir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Björn Ingi Hrafnsson og Guðlaugur Þór Þórðarsson hafi ekki stuðlað að valdayfirtöku FL-group og GGE á REI og OR á sínum tíma.
Sem síðan var komið í veg fyrir af VG og Samfylkingu.
Hvaða fyrirgreiðsur áttu þessir menn að fá, við vitum um Kúlulán Björns Inga , við vitum um ráðherradóm Guðlaugs Þórs en hann var gerður að ráðherra strax að loknum kosningum , tekin fram fyrir marga reyndari og eldri flokksmenn. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson er ennþá í borgarstjórn og er í þessum orkumálum ennþá.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Hanna Birna börðust í Borgarstjórn Reykjavíkur fyrir því ,að Samsonhópurinn fengi lóðirnar við Hverfisgötu og Hafnarlóðina við Tónlistarhúsið undir hörfuðstöðvar Landsbankans.
Hvað verður nú um þá skítaholu ? Þetta fólk er bara gerspillt finnst mér.
Og ég yrði ekki hissa á að fyrrverandi ráðherrar og Borgarstjórnarmenn yrðu fundnir sekir um glæpsamlegt athæfi og frjármálamisferli.
Þarf ekki að opna kosningasóði allra frambjóðenda, líka í prófkjörum ?
Þetta eru skemmtilegir tímar.... ekki kannski fyrir suma.
Þetta finnst mér.
![]() |
Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt 11.4.2009 kl. 10:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.4.2009 | 22:53
Fólk segir sig úr Sjálfstæðisflokknum !!!
Mikil reiði hefur brotist út meðal kjósenda Sjálfstæðisflokksins.
Og fólk segir sig úr Sjálfsæðisflokknum nú eftir fregir af mútuþægni Geirs Hilmars fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins frá Landsbankanum og FL group.
Þegar síðan þessi fyrirtæki Fl og Landsbanki, fóru í þrot voru skipuð yfir þessum fyrirtækijum fylgisveinar Sjálfstæðisflokksins og meðreiðarsveinar og SUS félagar Geirs HIlmars. Til hvers?
Það er bara rosalegt eins og búið er að uppnefna og ráðast á fyrrverandi, stjórnendur FL groop að götustrákarnir hafi síðan gefið 30 miljónir til Sjálfstæðisflokksins.
Til hvers voru þessar greiðslur, við skulum hafa í huga Hitaveitu Suðunesja, OR og REI og hvernig Hannes Smárasson og Bjarni Ármannsson voru allt í einu orðnir aðal mennirnir í að hirða orkugeiran, en það var stöðvað sem betur fer.
Hverng stóð á þessari úthlutun á hafnarlóðinni og lóðinni í hjarta Reykjavíkur fyrir Landsbankan, hverjir réðu þar.
Jú Sjálfstæðismenn.
Þeir eru búnir að grafa holuna sína og byrjaðir að moka yfir.
Allar skoðanakannanir sýna að fylgið hrynur af þeim þökk sé framkomu þeirra á Alþingi .
Þetta finnst mér.
![]() |
Skilað til lögaðila |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt 11.4.2009 kl. 10:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.4.2009 | 10:51
Skattar....ekki skattar...Skattar....ekki skattar !!!
Bjarni Benediktsson sem er hrærður eins og skyr sagði í sjónvarpinu þegar formenn flokkana voru fyrir svörum með stefnumál sín, að það yrði að setja á skatta til að mæta þessum þrengingjum.
Í eldúsdagsumræðum sagði hann aftur á móti að ekki kæmi til greina að hækka skatta.
Það stendur ekki steinn yfir steini í furðulegum og vanmáttalegum tilburðum Sjálfstæðismanna með stefnumál sín, eiginlega finnst mér Sjálfstæðisflokkurinn leiðtoga laus.
Ótrúleg framkoma þessa stjórnmálaflokks á Alþingi í málþófi og flokks sem sætir nú rannsókn frá yfirvöldum vegna styrkja frá Baugsfélagi 30 miljónir takk fyrir.
En verst er að enginn kannast við þetta. Skrítið og náttúrulega ekki satt.
Hverjir kjósa þetta stjórnmálaafl, sem virðist ekki eiga sér neina hliðstæðu í heiminum nema ef væri samtök ættuð frá Sikiley.
Þetta finnst mér.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2009 | 00:23
Rotþró Sjálftæðisflokksins er fólkið við stjórnvölinn !
30 miljónir frá götustrákunum. Takk...Takk....
Nú hamast þeir við að segja ekki benda á mig ég veit ekkert.
Fyrrverandi Ráðherrar þingmenn segjast ekki hafa vitað neitt. En þeir vissu allir um um breytingarnar sem áttu að gerast þremur dögum eftir að styrkurinn frá FL-group var afhentur.
En framkvæmdastjórarnir láta ekki ná í sig, enda trúlega vita þeir ekkert heldur um þennan styrk.
Ætli reikningar Sjálfstæðisflokksins hafi ekki legið frammi við uppgjör. Kom kanski kvittunin frá FL-group eftir að reikningar voru til sýnis.
Þetta svo kallaða skítlega eðli virðist því vera orðið að krabbameini í æðstu stjórn Sjálfstæðisflokksins, enginn virðist muna eitt eða neitt og enginn þykist vita eitt eða neitt.
Ótrúleg meðhöndlun á gegnsæi siðferði hjá Sjálfstæðismönnum.
Hverjir ætla að kjósa þetta lið ?
Þetta finnst mér.
Vefurinn | Breytt 11.4.2009 kl. 10:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stjórnnarskrárnefnd með Sjálfstæðismenn og Framsókn í forustu vildu fá álit erlendra Álrisa til að segja um hvernig best væri fyrir þá að nýta auðlindirnar.
Er þetta ekki sjúkt.
Þetta stjórnmálapakk sem nú er að hverfa á braut sem betur fer, skilur eftir sig sviðna jörð alstaðar ekkert nema spilling og ógeðlegheit.
Og eftir að hafa hlustað á Borgarafundin á Ísafirði í kvöld í afspyrnu lélegum sjónvarpsþætti þá kom í ljós að öllu þessu verður haldið áfram.
Nú er alveg klárt að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur náð að festa okkur Íslendinga í neti því sem gerir útlendinga að drottnunum yfir Íslandi.
Þökk sé Sjálfstæðisflokknum, Framsóknarflokknum og nú síðast Samfylkingunni.
Er þetta ekki eitthvað sem þarf að forðast að kjósa yfir sig aftur.
Þetta finnst mér.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2009 | 17:47
Sjálfstæðisflokkurinn gyrðir niðrum sig !
Málþófið hjá Sjálfstæðisflokknum á Alþingi er skandall. Það sýnir svo ekki verður um villst að Sjálfstæðisflokkurinn er komin í málefnalega þurð og þar af leiðandi með allt niðrum sig.
Hann getur ekki verið sammála einu eða neinu sem lagt er fyrir Alþingi þessa daga ,jafnvel þó tilllögur og breytingar frá Sjálfstæðisflokknum hafi verið settar inn í hin ýmsu frumvörp.
Ég vona bara að Jóhanna Sigurðardóttir haldi þingmönnum við efnið á Alþingi, fram á kosningadag, ef Sjálfstæðismenn halda þessu málþófi og töfum áfram.
Þetta er nýjum formanni Sjálfstæðisflokksins til háborinnar skammar.
Þetta finnst mér.
![]() |
Hlé á þingfundi vegna framboðsfundar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.4.2009 | 01:03
Frumvarp til að koma böndum á Framsóknar - og Sjálfstæðisflokkinn !
Frumvarp Fjármálaráðherra um stofnun hlutafélags til að stuðla að endurskipulagningu þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja, er í raun heiftarleg aðför að ræningjum og meðreiðarsveinum þeirra úr Framsóknar- og Sjálfstæðisflokknum.
Að ræningjum sem fengu á silfurfati, Landsbankann, Glitni, Kaupþing, Síman, Íslandspóst, Icelandair,VÍS og fl.og fl.
Það þarf að koma þessu frumvarpi í gegn strax og þeir sem eru búnir að vera að hóta ríkistjórninni aftur og aftur með að styðja ekki þetta og þetta eru nú búnir að pissa í skóinn sinn .
Fylgið við Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn fer núna í sögulegt lámark 19 dögum fyrir kosningar sem betur fer.
Þjóðin er ekki heimsk Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð. Þjóðin skilur vel að það þarf að setja bönd á óráðsíuna og tækifærasinnana og flokksræðið í þessum báðum flokkum.
En það vill ekki Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn.
Þó hefur verið tekið tillit tli athugasemda nefnarminnihluta og óskir um lagfæringar hafa verið gerðar.
En þessir flokkar Sjálfstæðisflokkurinn og hækjan hans vilja ekki dansa í sama takti og þjóðin.
Þetta finnst mér.
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2009 | 16:02
Friðar- og Umhverfissinninn Barack Obama !
Ég verð nú að segja það að sá tónn sem sleginn er núna að hálfu Bandaríkjamanna meða forsetan Barack Obama í fararbroddi er rosalega jákvæður.
Hann vill að heimurinn verði laus við kjarnorkuvopn og segist ætla á næstunni, sjálfur að stíga raunhæf skref í þá áttina.
Hann ætlar að fá öll kjarnorkuríkinn til að fækka kjarnorkuvopnum sínum.
Hann sagði samt í morgun að ef að áfram stafaði hætta af kjarnorkubrölti Írana mundu Bandaríkjamenn halda áfram með smíði á flugskeytavarnarkerfi.
En verst er að hvorki Iranir eða Norður-Korea hlusta á Bandaríkjamenn og eru því stöðugt verið að örga heiminum og nágranaríkjum af þessum aðilum.
Hann vill taka að sér forustu hlutverkið í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.
Hann vill koma til Íslands og fá beint í æð sjálfbæra orkunýtingu Íslendinga.
Hann var líka að biðja erlendar þjóðir að taka við föngum frá Guantanamo- fangabúðunum á Kúpu en hann er að loka þeim þar eru ennþá 250 manns.
Þettta eru miklar breytingar á stefnu Bandaríkjamanna og ekkert nema gott um það að segja.
Þetta finnst mér.
![]() |
Þjóðarleiðtogar fordæma eldflaugarskot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.4.2009 | 21:44
Forseti Alþingis og níu þingmenn gætu stöðvað málþófið !
Í 56 og 57 grein laga um þingsköp Alþingis nr.55 31.maí 1991 segir :
56. gr. Forseti gefur þingmönnum venjulega færi á að taka til máls í þeirri röð er þeir beiðast þess þá er dagskrármálið er tekið fyrir. Þó getur hann vikið frá þeirri reglu við ráðherra, sem hlut á að máli, og framsögumann, svo og til þess að ræður með og móti málefni skiptist á, eða til þess að þingmaður geti gert stutta leiðréttingu eða athugasemd er snertir sjálfan hann. Forseti getur leyft þingmönnum að veita stutt andsvar við einstökum ræðum strax og þær hafa verið fluttar. Skal þá sá er vill svara bera fram ósk um það við forseta. Andsvari má einungis beina að máli ræðumanns en ekki öðru andsvari.
1) Heimilt er forseta að stytta ræðutíma hvers ræðumanns í þessum umræðum.
1) Orðaskipti í andsvörum mega ekki standa lengur en í fimmtán mínútur í einu.
1)
L. 161/2007, 17. gr.
57. gr. Ef umræður dragast úr hófi fram getur forseti úrskurðað að ræðutími hvers þingmanns skuli ekki fara fram úr ákveðinni tímalengd. Forseti getur stungið upp á að umræðum sé hætt og einnig getur forseti lagt til, hvort heldur í byrjun umræðu eða síðar, að umræðum um mál skuli lokið að liðnum ákveðnum tíma. Eigi má þó, meðan nokkur þingmaður kveður sér hljóðs, takmarka ræðutíma við nokkra umræðu svo að hún standi skemur en þrjár klukkustundir alls. Tillögur forseta skulu umræðulaust bornar undir atkvæði og ræður afl atkvæða úrslitum.
Sömuleiðis geta níu þingmenn krafist þess að greidd séu atkvæði um það umræðulaust hvort umræðu skuli lokið, umræðutími eða ræðutími hvers þingmanns takmarkaður.
1)
Nú hefur verið samþykktur takmarkaður umræðutími eða ákveðinn ræðutími hvers þingmanns og skal þá forseti skipta umræðutímanum í heild sem jafnast á milli fylgismanna og andstæðinga máls þess sem er til umræðu, án þess að hann sé bundinn við í hvaða röð þingmenn hafa kvatt sér hljóðs, eða milli flokka ef hentara þykir.
Ákvæði þessarar greinar ná einnig til ræðutíma ráðherra.
Hvers vegna er ekki gripið í taumana og þessi vitleysa Sjálfstæðismanna á Alþingi stöðvuð ?
Þetta finnst mér.
![]() |
Enn langt í land eftir 36 tíma umræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2009 | 22:19
Þrjúhundruð manns fékk fjóra miljarða að láni !!!!!!
Frá þessu er sagt á visir.is.
Þrjú hundruð manns fékk fjóra miljarða að láni með veði í sjálfu sér eða i ónýtum veðum í ónýtum bönkum og fjármálastofnunum.
Seðlabankinn beit svo hausinn af skömminni með að lána þessum bankaskrípum fimmhundruð og sjötiu miljarða korter í gjaldþrot. Þrátt fyrir að öll ljós og bjöllur væru hringjandi.
Kom svo ekki fyrrverandi Seðlabankastjóri fram í fréttum í kvöld og réttlætti þennan gjörning.
Þetta segir tvímælalaust að þessir bankastjórar eru og voru algjörlega vanhæfir og alvarlegir örlagavaldar í Íslensku efnahagshruni.
Það er núna fyrst sem eitthvað er byrjað að gerast í rannsóknum og aðferðafræði í sambandi við efnahagshrunið.
Tafir má skrifa á Sjálfstæðisflokkinn og öll þau lagafrumvörp mörg regluverk gáfu ekki þeim stofnunum nein völd eða möguleika á rannsóknum.
Sjálfstæðisflokkurinn er bara svo rosalega illa inn í þessu fjármálasukki að þeim fannst nauðsynlegt að byggja skjaldborg um sína menn.
Þetta finnst mér.
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 48
- Sl. viku: 99
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 81
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar