Færsluflokkur: Dægurmál

Vakna nú mín Þyrnirós......

Guðlaugur Þór Þórðarsson er alveg kominn á fulla ferð í sinni kosningabaráttu til formanns Sjálfstæðisflokksins og til Alþingis.

Hann skrökvar því náttúrlega að hann sé ekki búinn að ákveða sig í formannsslaginn eða kannski ekki vaknaður.

Af Þyrnirósarsvefninum sem Sjálfstæðismenn eru margir hverjir ennþá sofandi í.

En Guðlaugur Þór sagði á Bylgjunni síðdegis Sjálfstæðisflokkurinn ætti að biðja þjóðina afsökunar á því að hafa sofnað á verðinum. Og komið öllu í bál og brand.

ÚBS...Gleymdi Guðlaugur ekki að vekja Davíð Oddsson og Geir Hilmar áður en hann vegur svona að forustunni. Já hann talar um "mistök" og "við stóðum okkur ekki", "sofnuðum á verðinum"......

Er ekki nokkuð seint í rassinn gripið að fara að biðjast afsökunar á einhverjum misgjörðum eftir þyrnidrifna slóð Sjálfstæðisflokksins gegnum tíðina.

Ísland gjaldþrota. Bankarnir gjaldþrota. Heimilin gjaldþrota. Atvinnulífið gjaldþrota.Tugþúsundir atvinnulausir. Þúsundir manna á leið úr landi.

Hvers vegna sagði hann ekki af sér, sem ráðherra fyrst hann segist vera löngu vakaður af Þyrnirósar svefninum ?

Nei Guðlaugur Þór Þórðarsson er ekki vaknaður af Þyrnirósarsvefni Sjálfstæðisflokksins.

Þetta fynnst mér.


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn boðar aðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvíts skúrkar eru þessir menn og konur sem stjórnað hafa Íslandi undan farin ár !!!

Það er ótrúlegt að þegar frumskýrslur um efnahagsástandið á Íslandi líta dagsins ljós.

Að ísland sé gjaldþrota á mælikvarðanum sex sinnum gjaldþrota.

Kemur líka fram í erlendum sjónvarpsþætti á BBC fyrrverandi forsetisráðherra þjóðarinnar og upplýsir þjóina að hann hafi ekki talað við Gordon Brown vegna þeirra vandræða sem Bretar komu  'islendingum í með að beita hryðjuverkalögum á Íslendinga.

Og ekkert sé búið að ákveða í þessum málum annað en að stinga höfðinu upp í rassgatið á sér og aðhafast ekki neitt gagnvart Bretum ekki einu sinni tala við þá.

Það er alveg sama hvert er litið alltaf ber að sama brunni afglöp og ráðleysi Íslenskra stjórnvalda.

En enginn ber ábyrgð nema fólkið sem þarf að borga fyrir þessi stjórnlegu mistök og græðgisviðbjóðinn hjá þessu þotu - og útrásarliði.

Það er talið að það vanti 7000 - 8000 miljarða króna í fjármálagöt bankana sem  fyrrverandi eigendur  þeirra hafa trúlega skotið undan.

Eða aldrei komið með heim til Íslands.

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er alveg úti á túni er bara að rannsaka eitt mál er tengist bönkunum þessi deild er algjörlega vanmáttug til að takast á við þetta verkefni.

Við þurfum að fá INTERPOOL til að taka á þessum málum.

Hver veit nema efnahagsbrotadeildin sé of tengd þessari útrásarvíkingum, eða bönkunum, eða stjórnmálamönnum, eða fjölmiðlum.

Þessir útrásarvíkingar sumir hverjir eiga íbúðir í stórborgum erlendra ríkja upp á tugi miljarða.

En auðvitað eiga þeir ekki neitt.

Handsamið þetta fólk látið það standa skil á gerðum sínum og frystið eignir þeirra.

Meðan verið er að rannsaka þeirra mál.

Látum Bretana og Hollendingana hafa Icesavereikningana til að glíma við Bretarnir eru orsakavaldar fyrir því sem gerðist.

Við verðum að fara að girða okkur í brók, bretta upp ermar og taka á vandamálinu sem við eigum við að stríða í efnahagsmálum í dag.

Hætta þessu endalausa þrefi á Alþingi um mál sem skipta ekki neinu máli en ráðast á vandan öll sem eitt.

Þetta finnst mér.


Ég spáði þessu á síðasta ári, þeir ætla ekki að laga Suðurlandsveg !!

Loforð um bættar samgöngur á Suðurlandsvegi eru í uppnámi.

Það á ekki að fara í að tvöfalda akgreinar eins og búið var að lofa.

Það á að skoða málin einu sinni enn.

Og hræra í öllu kerfinu hérna Sunnanlands.

Það er allt niður njörvað á Norðurlandi og allt þar á áætlun í kjördæmi Ráðherrans í vegamálum og mannvirkjagerð. 

Hvað þarf mörg dauðaslys á þessum Suðurlandsvegi til viðbótar svo Alþingismenn og sér í lagi Ráðherrar átti sig á alvarleika málsins, af hverju var þessum handónýta Samgönguráðherra ekki skipt út.

Þetta er bara grafalvarlegt.

Ég lýsi Ráðherra Samgöngumála ábyrgan fyrir dauðaslysum sem verða á veginum þar til loforð um endur bætur hafa verið gerðar í algjöri sátt við Sunlendinga og þá vegfarendur sem um veginn fara.

Þetta finnst mér.


Hann ætti þá bara að bjóða sig fram meðal öldunga !!

Á visir.is heldur Jón Baldvin áfram að vekja á sér eftirtekt.

Jón Baldvin Hannibalsson heldur áfram darraðar dansinum við pólitíska ellikerlingu.

Hann heldur að þjóðin vilji fá hann í framboð núna til að færa dagatalið til ársins 1970 eða álíka.

Hann heldur bara að hann sé eina vonin fyrir Ísland.

 Og þó að sperrileggir eins og Egill Helgasson styðji Jón Baldvin, en jón Baldvin er búin að vera fastagestur í þáttum hans undan farin misseri.

Þá hefur það bara ekkert að segja.

Þá er bara verið að nota karlgreiið  til að láta hann verða sér til skammar með alskonar yfirlýsingum, það er svo mikil gúrkutíð á þeim bæ, að allar mögulegar fléttur eru reyndar.

Jón Baldvin ætti að ganga til liðs við eldriborgara og koma sér á þing þannig ef hann er að sálast úr athyglisþörf.

 Þá kæmi nú í ljós hvaða fylgi hann hefði.

Annars hafa þessir gömlu fyrirgreiðslupólitíkusar ekkert að gera í stjórnmál í dag þeir eru útbrunnir.

Þetta finnst mér.


Jón Baldvin Hannibalsson er tímaskekkja !!!!

Jón Baldvin Hannibalsson fór mikinn á fundi Samfylkingarinnar í dag.

Hann heldur, að hann gamalmennið sem er fast í fortíð liðinna tíma, hafi einhvern hljómgrunn hjá þjóðinni.

Jón Baldvin Hannibalsson er einn mesti lýðskrumari sem uppi hefur verið, í hans stjórnuartíð í flokkum  Jafnaðarmanna hefur hann alltaf silgt  þessum flokknum í arma Sjálfstæðisflokksins.

Þá hefur flokkurinn klofnað aftur og aftur vegna þröngra skoðana ekóistans Jóns Baldvins. 

Má nefna Bandalag Jafnaðarmanna og Þjóðvaka ,sem stofnaðir voru vegna stefnu eða frekar stefnuleysis í forustutíð hans.

Jón Baldvin Hannibalsson er annað hvort elliær eða kannsi er þetta bara þetta sem búast má við af þessum tækifærissinna, reyna að koma í gang einhverjum ómældum leiðindum milli fólks þegar þarf í raun samstöðu með forustusveitinni.

Jón Baldvin Hannibalsson sagði að Davíð Oddsson minnti hann á Adolf Hitler síðustu dagana í birginu.

Það má vel vera að Davíð líkist Hitler, en Jón baldvin minnir mig á hin undirförla yfirmann SS Heinrich Himmler, eða brjálæðinginn Josef Mengele, hugnyndafræði Jón Baldvins er að níða skogin af forustu Samfylkingarinnar.

Og hóta að snúa aftur eins og Davíð hefur gert líka, þetta heitir að míga í skóinn sinn og þurfa síðan að drekka hlandið úr honum.

Finnst Jóni Baldvini virkilega þörf á niðurrifs öflum í þjóðfélaginu í dag eins og hann hefur alltaf staðið fyrir.

Fella gengið…..Lög á Sjómenn….Lög á Kennara…..Matarskatt…Pólitíska bitlinga….Pólitíska Bankastjóra…Flokksræði….Fyrirgreiðslu Pólitík……….

Nei takk Jón Baldvin Hannibalsson þinn tími er búinn. Þú hefur ekkert að bjóða nema leiðindi.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ingibjörg Sólrún ekki að hætta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknarflokkurinn ætlar ekki að styðja ríkisstjórnina !!!!!!

Það vantaði ekki að Sigmundur Davíð kæmi,skoraði og sigraði og kom á þessari ríkistjórn sem nú situr, á þann stall sem hún er á í dag. 

Stall  vonleysis.

Með loforðum sem Sigmundur Davíð réði ekkert við. Flokksfélagið og þingflokkurinn ræður.

Það var von að Guðni og Bjarni vildu hætta.

Flokkseigendafélag Framsóknarflokksins með Siv Friðleifsdóttur, og Valgerði Sverrisdóttur nú í fararbroddi

ætlar ekki að veita neinum þeim málum ríkisstjórnarinnar sem mest liggur á  ,með breytingum  eða brautargengi nýrra mála , sem setja manneskjuna ofar en flokksræðið er.

Nú er bara nýjar kröfur daglega og málþóf. Já Sjálfstæðisflokkurinn heillar þessar Framsóknarþingmenn ennþá.

Þeir hafa ekkert lært.

Eina sem kemst að hjá þessu fólki er valdhroki Framsóknarflokksins í sinni verstu mynd, vill ekki þetta vill ekki hitt.

Einmitt málefni sem skipta ekki neinu máli núna eru sett á oddinn í niðurrifs flokki Framsóknar.

Hvar er Sigmundur Davíð núna ætlar hann ekki að standa við stóru orðin ?

Sem hann gaf þjóðinni og forsetanum.

Nei enn og aftur virðist Framsóknarflokkurinn míga í alla brunna og kveikja sinu alstaðar og reyna að drekkja heimilsköttum sem verður á vegi hans.

Það verður að hefja mótmæli aftur við Alþingishúsið, þessir þingmenn virðast ekki skilja neitt.

Þetta finnst mér.


mbl.is Gagnrýna afgreiðslu meirihluta viðskiptanefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð Oddsson er í 19 sæti yfir örlagavalda efnahagshrunsins í heiminum !!!!

 Á visir.is er sagt frá kosningu hjá tímaritinu TIME.

Bandaríska tímaritið TIME hefur sett saman lista yfir 25 menn og konur sem teljast bera alla ábyrgð á  kreppunni í heiminum í dag. Og fjármálahruninu.

Davíð Oddsson er þar í 19.sæti yfir þessa örlagavalda.

Búið er að reka alla þessa aðila úr stöðum sínum nema Davíð Oddsson hann neitar að segja af sér.

Þetta er bara ótrúlegt Davíð Oddsson í hópi manna sem lögðu heiminn í rúst vegna valdagræðgi og spillingar eins og segir í TIME.

Hér er hægt að sjá listann og taka þátt í kjörinu.

Þetta finnst mér.


Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar lugu að þjóðinni !!!!

Geir Hilmar Haarde sagði í viðtali við Stephen Sackur á BBC News í morgunn, að hann hafi ekki talað við Gordon Brown eftir að Bretar settu hryðjuverkalög á Íslendinga.

En þessi sami maður Geir Hilmar Haarde sagði oft aðspurður að þessi mál væru í góðu ferli.

Og þetta yrði ekki liðið.

Hvað er það sem Geir Hilmar Haarde þarf að reyna að fela fyrir þjóðinni og Davíð Oddsson veit um ?

Bullið og lygin sem þessi maður Geir Hilmar Haarde og samflokksráðherrar hans í síðustu ríkistjórn hafa boðið þjóðinni upp á að trúa á undanförnum mánuðum, gera Baron Munchausen að sannleikspostula miðað við lygavefinn sem þetta fólk hefur ástundað.

Hryðjuverkalögunum Bresku var aldrei mótmælt af æðstu stjórnvöldum á Íslandi.

Þetta var bara sett í ferli.... já lygaferli.

Hver er hlutur Jóhönnu Sigurðardóttur og Samfylkingarinnar í þessu máli ?

Kannski við fáum eina útgáfuna enn um þessi mál.

Þetta stjórnmálapakk er allt að míga í sama skóinn að hilma yfir með hvort öðru, alla vega sé ég það þannig.

Þetta stjórnmálapakk á Alþingi ætlar ekki að leysa málin það er með skrílslæti í Alþingi, framm í köll, málþóf og fyrirspurnir um mál og málefni sem ekki þarf í þessa neyðar umræðu í þjóðfélaginu.

Ég held að Geir Hilmar Haarde ætti að segja af sér þingmennsku, mér finnst að ef einhver hafi drullað upp á bak þá er það Geir Hilmar Haarde.

Honum finnst ekki ástæða til að biðjast afsökunar.

Þetta finnst mér.


Í þessu eru Íslendingar bestir !!!

Gervigreind Íslendinga er með endæmum góð, svo góð að ESB hefur ákveðið að veita Tölvunardeild Háskólans í Reykjavík 300 miljóna kr styrk í þetta  mikilvæga verkefni.

Það hefur nefnilega lengi verið að brjótast í mér að Íslendingar væru sennilega rosalega greindir, en eftir þetta bankahrun sé ég að það voru bara örfáir örvitar með gervigreind sem komu Íslendingum svo sannarlega á heimsgreindarskrá.

Ástæðilaust finnst mér að vera að verðlauna þessa Útrásarvíkinga með gervigreindina og hina sem tóku þátt í darraðardansinum.

Ótrúlegt að Íslendingar með gervigreind skuli fá 300 miljóna styrk frá ESB þegar við erum ekki í ESB.

Eru bara ekki einhverjir með gervigreind hjá ESB að afgreina okkur.

Frá þessu er sagt á visir.is í dag.

Þetta finnst mér


Hundruð miljóna hent út um gluggan hjá Borgarstjórn Reykjavíkur !!!!

Mér tókst það, mér tókst að fá mínum vilja framgengt, er Júlíus Vífill Ingvarsson vafalaust að meina þegar hann fagnaði ógurlega, að nú væri búið að slá af hugmyndir fyrri borgarstjórna Sjálfstæðisflokksins og sér í lagi áhuga og beitingu Gísla Marteins Baldurssonar fyrir því að leggja umferð um Mýrargötu í stokk.

Nú á að grafa göng fyrir umferðina.

Það er hægt að fara alveg aftur til ársins  t.d. 2004  þá er gerð t.d. endurskipulagning á Mýrargötu og slippsvæði og ákveðið að setja Mýrargötuna í stokk, þar var fjögra manna stýrihópur undir stjórn Steinunar Valdísar Óskarsdóttur og hinum ýmsu embættismönnum Reykjavikurborgar sem tengjast þessari mannvirkjagerð.

Allar götur þar til núna hefur verið rætt um að setja umferðina í stokk.

Í mars 2007 er settur stýrihópur vegna uppbyggingar í Örfyrisey en þar gleymdist stokkurinn í fyrri hluta samgönguáætlunar. í stýrihópnum voru  Björn Ingi Hrafnsson,Dagur B Eggertsson,Gísli Martein Baldursson,Hanna Birna Kristjánsdóttir og Árni Þór Sigurðsson. Sturla Böðvarsson þá Samgönguráðherra gerði samt ráð fyrir að þessi mannvirkjagerð yrði á öðru tímabili samgönguáætlunar þess árs.

Í febrúar 2008 er sagt frá samþykkt um að unnið skuli að skipulagningu og undirbúnings vinnu við þetta skipulag að setja Mýrargötuna í stokk og að sögn Gísla Marteins Baldurssonar á þeim tíma að þróunarvinna og hönnunarvinna komin á lokastig.

Í júní 2008 er sagt frá því að hluti Geirsgötu fari líka í stokk og framkvæmdum verði lokið 2010 og þessi stokkur tengist öðrum stokk frá Mýrargötu.

Í september 2008 fundar Borgarstjóri, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Kristján Möller Samgönguráðherra um fyrirhugaðan umferðarstokk undir Geirsgötuna og Mýrargötuna. Fulltrúar allra flokka utan Vinstri grænna hafa samþykkt að fara þessa leið.

Vinstri Grænir hafa verið á móti þessum stokkamálum frá upphafi.

Og nú að byrja upp á nýtt, nýtt hönnunarferli fyrir jarðgöng fyrir Mýrargötu og Geirsgötu og hudruðir miljóna króna í undirbúningi árum saman í undirbúningi og hönnun fyrir stokk ónít.

Svo ætlar þessi söngfugl sem nú stjórnar þessari vitleysu að bjóða sig fram til Alþingis, er ekki bara allt í lagi með svona fólk.

Finnst þessu fólki sem svona hagar sér bara allt í lagi að gera hvað sem er með peninga Reykvíkinga ?

Og Borgarstjórin er sjálf búin að kúvenda stefnu sinni í skiplagsmálum og ekki í fyrsta skipti.

Enn eitt skipulagsslysið í uppsiglingu með stuðningi Framsókansrflokksins en í skiplagsráði situr einmitt Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsókarflokksins.

Þetta finnst mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband