Mér finnst alveg ótrúlegt að ekki skuli reynt að halda úti fiskvinnslunni.
Og halda lífi í sjávarþorpunum. En hvert af öðru leggja sjávarþorpin upp laupana.
Og mótvægispeningar frá ríkisjóði notaðir til að kaupa fisk til vinnslu í sjávarþorpunum sem eru að leggjast af. Frá öðrum þjóðum sem er að selja fisk á alþjóðamörkuðum.
Þetta gætum við gert meðan við hvílum fiskimiðin okkar.
Hvers vegna er ekki lagt meira fé í fiskeldið og unnið markvisst að því, að við getum alveg verið sjálfbær með sjávarafurðir til framtíðar litið.
Mér finnst alveg makalust að það eigi bara að fórna heilum starrfstéttum og byggðalögum.
Það er skammsýni og vel í anda þeirra ákvarðana sem teknar voru með aflasamdrátt á síðasta ári.
Þá ætti ekki að vera neitt mál heldur að hefja sjórræningjaherferð á mið annara þjóða með stóru dýru skipunum okkar og við halda sjómennskunni okkar þannig.
Þetta finnst mér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.