Dagur nr. 2 í mótmælum.....Mótmælin halda áfram í alla nótt !!!

Það hefur fjölgað í mótmælendahópnum jafn og þétt í allt kvöld.

Og eru kröftug mótmæli ennþá með trommuslætti og bálkesti  og hrópum við Alþingishúsið.

Mikið lið lögreglu er á staðnum og varalið í viðbragðsstöðu.

Þetta er það sem Geir Himar vill, hann vill að allt endi með ósköpum.

Ég er hræddastur um að það endi með því að þessir ráðherrar og þingmenn  verði dregnir út úr sínum fílabeinsturnum á hárinu og hýddir opinberlega. En auðvitað er þetta bara óskhyggja.

Forsetinn á að setja þingið og ríkistjórnina af og setja þjóðstjórn sem setur nýja stjórnarskrá og undirbýr kosningar strax.

Það á að leysa upp sveitastjórnir og boða til kosninga jafnhliða sveitastjórnum og fólk á að fá að velja fólk af listum sem það treystir en ekki einhverjar flokksvélar.

Kjósa á nýjan forseta líka á sama tíma.

Það er bara alsherjar bylting í gangi og þessir 63 aular sem kosnir voru til ábyrgðar eiga ekki að fá tækifæri aftur þeirra tími er liðinn.

Þetta finnst mér.


mbl.is Jólatréð brennt á bálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Rétt, höldum áfram og gefumst ekki upp.

Arinbjörn Kúld, 21.1.2009 kl. 00:37

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

byltingin er hafinn !! 

Óskar Þorkelsson, 21.1.2009 kl. 00:38

3 Smámynd: Björgvin Kristinsson

Hjartanlega sammála í allflestum atriðum... og ef forsetinn gerir þetta nú að veruleika ætti kannski að gera hann að þjóðhetju þrátt fyrir allt...
Það finnst mér allavegana....

Björgvin Kristinsson, 21.1.2009 kl. 00:42

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Sammála þér... það er eina lýðræðislega lausnin við þessum vanda.

Brynjar Jóhannsson, 21.1.2009 kl. 01:12

5 Smámynd: Óskar Steinn Gestsson

Annars heyrist mér á samfylkingarfólki að það sé hallarbylting í gangi þar. En dagur tvö byrjar hjá mér á sama tíma og í dag hálftíma fyrir þingfund og núna mæti ég með nesti! Sjáumst.

Óskar Steinn Gestsson, 21.1.2009 kl. 01:21

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Að vera á leiðinni inn í mestu heimskreppu síðari tíma. ESS- kynslóðin með silkihendur búinn að missa allt úthald eftir 45. mín. Getur ekki einu sinni unnið meir en 8 tíma á dag. Heilisfræði í skólakerfinu hefur lagt niður alla hagnýta kennslu fyrir mörgum árum. Heimilin ekki með eldhúsi. Aðgangur að ódýrum fiski í heilu enginn og búið að leggja alla kartöflugarða niður í bakgörðum.

IMF var lofað af Seðlabanka að Íslendingar væru fljótir að vinna sig úr kreppu. Ég set spurningamerki við ESS kynslóðina.

Júlíus Björnsson, 21.1.2009 kl. 03:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

Er með bloggsíðu : http://blogg.visir.is/gudmunduroli

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 83914

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband