Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er hætt afskiptum af stjórnmálum frá og með landsfundi Samfylkingarinnar núna í mars.
Hún dregur sig í hlé vegna veikinda.
Dagur B Eggertsson ætlar ekki í dag að gefa út yfirlýsingu vegna formanskjörs en hann mun gera það á næstu dögum.
Þó er rétt að geta þess að lítill fugl hvíslaði að mér í kvöld að Stefán Jón Hafstein sé að undir búa heimkomu og skellir sér sennilega beint í formansslaginn rétt fyrir landsfundinn.
Vegna breytra aðstæðna í Samfylkingunni.
Það þarf ekki að hafa áhyggjur af gamalmenninu Jóni Baldvini Hannibalssyni hann á enga möguleika og á náttúrulega að draga sig í hlé komi fram ný framboð og hann á eftir að gera það.
Þá er ekki gott að segja hvernig fer ef fleiri vilja bjóða sig fram.
Þetta er bara að verða spennandi.
Þetta finnst mér.
Rökrétt að Jóhanna taki við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Dægurmál | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Umræðan, Vefurinn | Facebook
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
- annaeinars
- arikuld
- arndishauks
- utvarpsaga
- reykur
- kaster
- birgitta
- gattin
- brylli
- dansige
- danth
- egvania
- finni
- gelin
- gudbjorng
- straumar
- hallkri
- heidistrand
- hlf
- heimssyn
- snjolfur
- don
- fridust
- jakobjonsson
- jenje
- jon-o-vilhjalmsson
- prakkarinn
- juliusbearsson
- larahanna
- veffari
- olinathorv
- omarragnarsson
- svarthamar
- skari60
- fullvalda
- nimbus
- sigurjonth
- tara
- vga
- thj41
- heilsa
- kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hættið að tala um "gamalmennið" Jón Baldvin Hannibalsson, sjötugan unglinginn að snerpu og skýrri hugsun auk reynslu og menntunar.
Churchill tók við völdum í síðara skiptið 76 ára og þegar Adenauer dró sig í hlé 87 ára tók hinn "ungi" Ludvig Erhard við og var ekki nema skugginn af þem gamla. ("Der Alte" var hann reyndar kallaður.)
Ómar Ragnarsson, 8.3.2009 kl. 23:25
Sæll Ómar.
Já þetta er rétt hjá þér auðvitað er þetta til skammar að tala svona . En hann er samt vandræðaunglingur
Guðmundur Óli Scheving, 9.3.2009 kl. 00:14
Það er einfaldlega ekki borin nógu mikil virðing fyrir fólki á þeirri einföldu forsendu að allir eiga inni skilyrðislausa virðingu óháð aldri, stöðu, kynþætti, trú, kyni eða eignum. Fólk verður frekar að vinna sér inn óvirðingu en virðingu. Ég sé ekki betur en að Jón Baldvin sé afbragðs kandídat, enda hefur hann ómetanlega þekkingu, skýra hugsun og er laginn við að sjá hlutina fyrir sér frá mörgum sjónarhornum samtímis - það þarf fólk eins og hann, með afbragðs gagnrýna hugsun - sem hefur meiri áhuga á almannaheill en þeim hópum sem hann tilheyrir.
Hrannar Baldursson, 9.3.2009 kl. 00:37
Sæll Hrannar.
Ég er ekki sammála þér að við þurfum á aðstoð Jóns Baldvins að halda núna á þessum tímapunti, hann hefur nú ekki hingað til vandað forustunni kveðjuna.
Hann hefur sjálfur manna mest stuðlað að klofningi jafnaðarmanna í gegnuim tíðina t.d. þegar Bandalag Jafnaðarmanna og Þjóðvaki fóru í sér framboð.
Skil bara ekki hvað þú ert að reyna legga út af setningu minni um "gamalmennið "
Þakka þér innlitið
Guðmundur Óli Scheving, 9.3.2009 kl. 09:07
Sæll Guðmundur Óli: Þetta var meiri almenn pæling um hvernig ég upplifi samfélagið, en ekki dómur um það sem þú varst að segja. Það má vel vera að Jón Baldvin valdi deilum, en hann gerir það þó af heilindum.
Hrannar Baldursson, 9.3.2009 kl. 09:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.