Sjálfstæðismenn eru að halda þingflokksfund þessa stundina. Eða alla vega í dag.
Trúlega er verið að finna leið til þess að Guðlaugur Þór, Illugi Gunnarsson, Þorgerður Katrín, Tryggvi Þór og trúlega einhverjir fleiri bjóði sig ekki fram.
Sjálfstæðisflokkurinn er núna í ofsa frjálsufalli og ekkert fær bjargað þessu flokksræskni, nema að einhverjir af þessum ættmennum Gróu á Leiti sem eru í framboðum verði látnir hætta við framboð.
Þetta er bara ótrúlegt að enginn vill kannast við eitt eða neitt, nema kjáninn hann Geir HIlmar, sem með sínum yfirlýsingum jós bara eldmat á svínaríið með lyginni í sjálfum sér. Hann hlýtur að vera náskyldur umræddri Gróu.
Þvílíkt samansafn af skítælum.
Ekki er betra ástand hjá Framsóknarógeðinu þar fær engin að vita hvað, VÍS, Alcoa, Fjarðarál,KB banki,Landsbanki. Glittnir, FL group hafa gefið til Framsóknarflokksins.
Sú ákvörðun að segja ekki neitt, upplýsa ekki neitt hjálpar Framsóknarflokknum að verða loksins, ekki að neinu.
Nei það verður að taka á þessu þessir Sikileyjarhópar mega ekki komast upp með þetta.
Þetta finnst mér.
Athugasemdir
Sæll Guðmundur Óli.
það sem ég er að reyna segja er þetta:
Sú klika sem ræður flokknum er í raun bara mafía. Mafíuforinginn sem sjálfur varð að vinna sig upp ákveður að einhverjir skulu fara í eitthvað tiltekið fyrirtæki þegar það er nauðsynlegt, til að óska eftir styrk fyrir flokkinn.
Sá aðili sem ber ábyrðina á þessu hefur mikið vald. Hann er sá seki. Ekki hann einn, vegna þess að inn í klíkunni eru meðreiðarsveinarnir sem allir vonast til þess að komast í stöðu mafíu foringjans.
Allir þessir aðilar eru bundnir raunverulegum þagnareiði. Allir hafa þeir orðið að vinna sig upp.
Háttsetti maðurinn og menn hans, sem hafa og hafa haft vald yfir landinu í áratugi geta hrætt fyrirtækin til að greiða styrki.
Þegar lærlingarnir mæta í fyrirtækin vita þeir sem stjórnafyrirtækjunum hver stendur á bak við sendilinn.
Framkvæmdastjórarnir finnst sem þeir verði að svara kröfu foringjans. Það er svo margt í húfi fyrir fyrirtækið.
Nákvæmlega mjög svipuðum svipum er beitt til að neyða einstök fyrirtæki til að vera í samtökum atvinnurekenda og skrifa undir og samþyggja eið þess efnis að fyrirtækin hlýði forystu SA í einu og öllu.
Kveðja, Mr. Oddsson bic boss
Kristbjörn Árnason, 10.4.2009 kl. 22:16
Sæll Kristbjörn.
Þetta er alveg rétt það er unnið eftir ákveðnu kerfi í fjáöflunarleiðum.
Og klíkumyndun er klíkumyndun
Og Sendillinn fer ekki í að veiða hákarlana.
það eru hákarlar sem veiða hákarla.
En sjáðu nú valdhrokan hjá nýja formanninum Í Sjálfstæðisflokknum.
Hann veit nú um allt þetta svínarí, en þorir ekki að hreifa við valdablokkinni.
Sannaðu til eftir páskana verður allt vitlaust ef að Bjarni Ben talar einu sinni enn niður til þín eða mín…fólksins.
Guðmundur Óli Scheving, 11.4.2009 kl. 08:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.