Skuldavandi heimilana er ekki eins mikill og af er látið, sagði Jóhanna Sigurðardóttir Forsætisráðherra á Alþingi í dag
Jóhanna sagði langstærstan hluta heimila í landsinu búa við viðráðanlega greiðslubyrði vegna fasteigna- og bílalána.
Þetta kæmi fram í nýjum niðurstöðum Seðlabankans. Um væri að ræða um 60% af húsnæðisskuldum landsmanna.
Maður gæti haldið að einhver hefði fundið minnismiða fyrrverandi Seðlabankastjóra og komið honum á framfæri núna.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson rembist eins og rjúpan við staurinn að setja á flata niðurfellingu á skuldir Jafnframt sagði Jóhanna Seðlabankann hafa komist að þeirri niðurstöðu að hugmyndir um flata niðurfellingu skulda væri ófær og að sú leið myndi kosta ríkissjóð gríðarlegar fjárhæðir.
Og þær fjárhæðir eru ekki til þó að þær séu ekki nema brotabrot af launum skilanefndana.
Og því verður heimilunum ekki hjálpað frekar en komið er.
Er þá ekki bara næstur Austurvöllur .
Þetta finnst mér.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.