Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins ganga í Samfylkinguna !

Mikil óánægja er meðal nokkra þingmanna Sjálfstæðisflokksins, um er að ræða þingmann úr Norðvesturkjördæmi sem var hafnað af kjósendum ,þingmann úr Kraganum og þingmann úr Suðurkjördæmi.

Þegar ríkistjórnin lagði fram frumvarp í gærkvöldi vegna gjaldeyrirsviðskipta og Sjálfstæðismenn ætluðu sér að hefja málþóf og tafir við málið.

Kvöddu þessir þingmenn sér hljóðs. Og töldu sig ekki lengur eiga samleið með Sjálfstæðisflokknum.

Ekki er nú gæfuleg byrjunin hjá nýja formanni Sjálfstæðisflokksins.

En farið hefur fé betra.

Heyrst hefur að hugsanlega séu fleiri á leiðinni frá Sjálfstæðisflokknum og ekki neinn hissa á því.

Þetta verður bara meira og meira spennandi þetta vor......

En auðvitað er þetta bara Aprílgabb....GrinLoLSmile

Bara lífga daginn aðeins við.

Þetta finnst mér.


Ég er ekki frjálshyggjan, ég er hrært skyr !

Bjarni Benediktsson lýsir sjálfum sér sem hræðru skyri á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins.

Nú segir hann líka að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki Frjálshyggjuflokkur…. Halló Halló Bjarni…

Sjálfstæðisflokkurinn hefur notað frjálshyggjuna í ýktrimynd sinni svo um munar. Því er komið sem komið er.

Hvað stendur frjálshyggjan fyrir hver eru hennar gildi athugum hvað Wikipedia segir um frjálshyggjuna.

Frjálshyggjumenn samtímans telja, að margvíslegar breytingar megi gera á velferðarkerfinu án þess að kjör lítilmagnans versni. Til dæmis þurfi ekki að styrkja efnafólk af þeirri ástæðu einni, að það eigi mörg börn, sé orðið aldrað eða eigi við örorku að stríða. Þótt ríkið kosti skóla og sjúkrahús, geti það leyft einkaaðilum að reka slík fyrirtæki og neytendum að velja um þau.

Frjálshyggjumenn samtímans telja, að rétta ráðið gegn fátækt í þriðja heiminum sé ekki að veita ríkjum þar svokallaða þróunaraðstoð,sem renni ósjaldan í bankareikninga valdsmanna, heldur stuðla þess í stað að frjálsum viðskiptum við fyrirtæki og alþýðu. Valið sé um þróun án aðstoðar eins og í Hong Kongeða aðstoð án þróunar eins og á Grænhöfðaeyjum

Frjálshyggjumenn samtímans telja, að vandann af mengun og sóun náttúruauðlinda megi leysa án víðtækra ríkisafskipta. Skilgreina með einkarétt á náttúrugæðum, og þá hætti menn að sóa þeim, en eigendurnir taki þess í stað að sér að gæta þeirra.

Frjálshyggjumenn samtímans telja reynsluna sýna, að minnihlutahópar geti betur treyst markaðnum en ríkinu. Markaðurinn spyrji ekki, hvernig bakarinn sé á litinn (eða hver stjórnmálaskoðun hans eða kynhneigð sé), heldur hvernig brauðið sé á bragðið.

Íslensk rit

Arnljótur Ólafsson: Auðfræði (1880, endurpr. 1988).

Atli Harðarsson Vafamál (1998).

Hannes H. Gissurarsson Fiskar undir steini (Kaflar um réttlætishugtök F.A.Hayeks og Roberts Nozicks (2001)

Hannes H. Gissurarsson  Frjálshyggjan er mannúðarstefna (1992)

Hannes H Gissurarsson  Hvar æa maðurinn heima ? (Kaflar um John Locke og John Stuart Mill (1994)

Hannes H Gissurarsson  Hvernig getur Ísland orðið ríkasta land í heimi ( 2001)

Jónas H Haralz  Velferðarríki á villigötum (1981)

Lausnarorðið er frelsi (1994, bók með fyrirlestrum Friedemans, Hayeks og fleiri frjálslyndra gesta á Íslandi)

Ólafur Björnsson Frjálshyggja og alræðishyggja (1978)

Ólafur Björnsson Einstaklingsfrelsi og hagskipulag (1982)

Þið getið líka notað GOOGLE og þar kemur svo sannarlega uup upplýsingarbanki um frjálshyggju Sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina.

 Sjálftæðisflokkurinn er frjálshyggju- og tækifærisinnaður eiginhagsmunaflokkur.

Þetta finnst mér.


Verður Ísland olíuríki í skjóli BYKO ?

 Miklar væntingar eru gerðar til ólíufundar á Drekasvæðinu frá þessu er sagt á visir.is í kvöld.

Norskur spámaður Terje Hagevang sem er sérrfræðingur Noregs í Jan Mayen svæðinu, og líkir því við verðmætustu olíusvæði heims.

Nýjustu hljóðbylgjumælingar sem gerðar voru á Drekanum í fyrra lofa góðu og mikill áhugi er meðal olíufélaga að kaupa upplýsingarnar.

Við hliðina á ráðhúsi Oslóborgar er olíuleitarfyrirtækið Sagex Petrolium með höfuðstöðvar sínar.

Sagex er að fimmtungi í eigu íslenskra fjárfesta og með starfsemi í sex löndum.

Þar ræður ríkjum jarðeðlisfræðingurinn Terje Hagevang en fáir þekkja betur möguleika Jan Mayen-svæðsins en hann. Hann rannsakaði það fyrst fyrir þrjátíu árum og var lengi ráðgjafi íslenskra og norskra stjórnvalda.

En hvaða Íslendingar eiga í þessu olíufyrirtæki jú en ekki hver ,Útrásarvíkingurinn Jón Helgi Guðmundsson forstjóri Norvik Group , sem rekur meðal annars Kaupás og BYKO.

Þarna er því beðið á hliðarlínunni eftir að komast í  íslenska olíudæmið.

Já spennanadi ….

Þetta finnst mér.


Lífeyrissjóðirnir á kafi í hagsmunapólitík !!

Það er alveg ljóst að stjórnendur Lífeyrissjóðana tóku fullan þátt uppbyggingu á kúlunánakerfinu, falshlutabréfavæðingunni, peningaþvættinu og annari uppbyggingu Bankakerfisins í anda frjálshyggju og hagsmunapólitíkur.

Tugir ef ekki hudruðir miljarða hafa tapast í viðskiptum Lífeyrirsjóðana og Bankana.

Engin veit hvað stjórnedur lífeyrissjóðana hafa í raun fengið í sinn hlut í gegnum bankana ,alla vega hafa þeir stjórnendur sett sig í launaflokka hálaunafólks jafnvel ofurlauna.

Hverjir af þessum stjórnendum hafa fengið t.d Kúlulán ?

En enginn af þessum stjórnendum eru til búnir að axlaábyrgð og víkja, segja af sér, nei nú ætla þeir að bíta hausinn af skömminni með því að lækka lífeyrir um 10% til lífeyrisþega.

Vegna óstjórnunar og gróðafrjálshyggju stjórnenda lífeyrisjóðina.

Vona að sérstakur saksóknari skoði  alvarlega, þátt stjórnenda lífeyrisjóðina í bankahruninu.

Þetta finnst mér.


mbl.is Gagnrýna glysferðir og skrautsýningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúverðug forusta !

Já ekki er hún nú gæfuleg þessi nýja forysta Sjálfstæðisflokksins, Skyrhræringur, Kústapilsafeykir ,Sægreifastólpi, Vandarkyssir, Sögusmetta, Frjálshyggjubóla, yfirþinggjammari,Leiðindaskjóða og Leppalúði og enn er ekki allt upp talið.

Og stefnuskráin bara það sama og síðast og þar áður og þar áður.

Árframhaldandi frjálshyggja, Áframhaldandi einkavinavæðing, Áframhaldandi Stóriðja…….

Ekki má svo gleyma Davíð Jesú Krisni Oddssyni sem tókst á svo eftirminnilegan hátt i gær að koma Sjálfstæðisflokknum niður fyrir hið allra lægsta plan í siðmenningu sem hægt er.

Enda verður ekki uppsveifla í Sjálfstæðisflokknum fyrr en eftir kosningar þegar tryggt verður að hann verður í minnihluta og í stjórnarandstöðu.

Þetta lítur bara vel út fyrir hina flokkana.

Þetta finnst mér.


mbl.is Nýrri kynslóð treyst til verks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð Oddsson kann ekki að nota GOOGLE !!!!

Víst er að Davíð Oddsson kom illilega upp um sig hann treysti Morgunblaðinu alveg blint og  Gúgglaði nafn Seðlabankastjórans  eftir þeim upplýsingum  sem þar voru, en þar var stafsetningarvilla og því fór sem fór.

Engar upplýsigar eru til um Svein Harald Oygaard !

Einn bloggvinur minn á mbl.sendi frá sér frábæran pistil skoðið hann  slóðinn er :

http://baldurragnarsson.blog.is/

Það er bara gaman af þessu og svo var kátt íhöllinni og  náhirðin hló og klappaði... þvílík skömm.

Þetta finnst mér.


Jesú Kristur og ég.....

Davíð Oddsson reyndi að lýsa særindum og það sem hann telur aðför að sér sem píslargöngu Krists á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins, en þar birtist hann allt í einu og heimtaði að fá að tala yfir Sjálfstæðislýðnum.

Ekki þótti honum ástæða til að biðjast afsökunar á einu eða neinu.

Ekki ræddi hann mistök sín í Seðlabankanum en fram hefur komið núna ,að á fundi með ríkistjórninni 7 feb. 2008 minntist hann ekki á nein vandræði eða yfirvofandi hættu á bankahruni.

En 12 feb. 2008 er til minnisblað frá Seðlabankastjóranum um er talað um möguleika á erfiðleikum í bankakerfinu.

Hann sagði að Björgvin Sigurðsson hefði sett drengja met í að leka upplýsingum til fjölmiðla.

Hann ræðst ómaklega að sitjandi Seðlabankastjóra með lákúrulegu skíteðli sem honum einum er svo tamt.

Ræða Davíðs Oddssonar einkennis af hroka, tillitsleysis og valdhroka.

Hann kallar þóðina söfnuð og talar niður til hennar eins og vanalega

Guði sé lof að hann fór þessa píslargöngu.

Þetta finnst mér.


mbl.is Vilhjálmur: Ómakleg ummæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar hefur þú það Sigmundur Davíð !

Reiknimeistarar Seðlabankans komast að þeirri niðurstöðu um 20 % niðurfellingu skulda sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Framsóknarflokkurinn laggði til, er ekki raunhæf tillaga vegna kosnaðar sem slíkt hefur í för með sér.

Þetta er alveg í anda þess sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafði reiknað út og tjáð sig um fyrir stuttu.

Það virðist vera að þessar tillögur Sigmundar Davíðs og Framsóknarflokksins hafi verið búnar til í örvæntingu og hennt fram án þess að forsentur fyrir tillögunum hefðu einhverja innistæðu.

Það er ekki furða að fylgi við Framsóknarflokksins hrynji og er bara vel, þegar fram koma bullukollar og tilllögur í þeim anda sem við erum búin að sjá í fari Framsóknar í gegnum tíðina.

Og maragr hverjar hafa tillögur Framsóknarmann leitt okkur einmitt á þann stað sem við erum á í dag.

Ég segi ekki meiri framsókn takk.

Þetta finnst mér.

 

 


Afsakið, Afsakið... ég axla ábyrgð !!!!!!

Þetta er bara ótúlegt "Fokking Fokk".

Geir Hilmar og Ingibjörg Sólrún biðjast afsökunar á  framferði sínu í síðasta stjórnarsamstarfi.

Og Geir Hilmar reyndar líka á framferðii sínu með Framsóknarhækjuna sér við hlið  þegar mest allar afdrifaríku ákvarðanir síðasta áratugs voru teknar.

Ákvarðanir sem hafa leitt Ísland í gjaldþrot.

En Geir Hilmar hlífir einum mesta valdníðingi allra tíma við að biðjast afsökunar, hrokagikknum sem þurfti að koma í burtu með setningu laga, nokkuð sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins stóðu fyrir sjálfir.

Sama var um Ingibjörgu Sólrúnu hún gleymdi sér alveg í einkaþotufluginu.

Afsökunarbeiðni er bara ekki trúverðug.

Og það er ekkert af þessu fólki að axla einhverja ábyrgð.

Ef það væri að axla ábyrgð mundi það láta sig hverfa.

En það gerir það ekki reynir að troða sér í framboð alstaðar og notar flokksvélina, flokkseigandafélögin sér til framdráttar þetta fólk kann ekki að skammast sín.

Meira segja Kúlulánaspekulantar, sem sérstakur saksóknari ætlar að yfirheyra og er samdóma álit allra um að sá gjörningur sé algjörlega siðlaus og jafnvel lögbrot, skiptir þetta fólk ekki neinu máli.

Það bíður sig fram engu síður.

Verkalýðshreyfinginn algjörlega búinn að drulla á sig með að hleypa þessu Hagfræðingahópi að kjötkjötlum verkafólks,

 Lífeyrisjóðirnir í rúst, launamál fólks í algjöru bulli.

 Hálaunastefna ASÍ meðal æðstu stjórneda alveg í anda Viðskiptaráðherrans sem finnst ekki neitt athugavert við laun skilanefndarmanna með 3.2 miljónir á mánuði.

Sjáum bara hvað gerðist hjá HB Granda.

Hverjir tóku þar í taumana, jú Almenningur.

Ekki Verkalyðsforusta ASÍ.

Nei nú er nóg komið, því var lofað af þessari ríkistjórn að kosningalögum yrði breytt og komið á persónukosningum.

Lygi....Lygi... Lygi pólitísk refskák og hrossakaup, vegna hræðslu um að detta af þingi letu þau loforð gufa upp.

Ég segi stoppum þetta ferli setjum í gang aftur mótmæli með öllum þeim krafti sem hægt er að gera stoppum þessar flokksvina kosningar af.

Fáum þessar breytingar sem barist var fyrir.

Jóhanna Sigurðardóttir kröfur byltinarinnar eru ekki til sölu og eru ekki umsemjanlegar.

Þetta finnst mér.


Fimmtán ára MS sjúklingi neitað um lyf !!!

Í helgarblaði DV er fjallað um hina fimtán ára Hörpu Sóleyju Kristjánsdóttur sem hefur greinst með hin hræðilega sjúkdóm MS.

 Hún öðlaðist nýlega von um bjarta framtíð þegar hún fékk samþykki fyrir nýju lyfi Tysabri, það breyttist á augabraði í reiði og hræðslu þegar henni var neitað um lyfið á síðustu stundu.

Þetta er svo dýrt lyf að Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að þetta sé eitt af því sem eigi að spara.

 Hver anskotinn er þetta, er ekki komin tími til að hreinsa til í þessu auma embættismannakerfi ,sem ekki sér þörf á þessuí heilbrigðisþjónustu  fyrir MS og eru því tilbúin að sem leggja líf nokkra tugi manna í rúst.

Nei það er t.d. meiri ástæða að hafa stjórnendur skilanefndana á 3.2 miljóna launum á mánuði.

Hverskonar rugl er þetta látið þetta fólk sem þarf á þessu lyfi að halda fá það strax.

Þetta finnst mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 100
  • Frá upphafi: 85230

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 82
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband