20.1.2009 | 10:48
Nú þurfa stjórnvöld virkilega að gæta sín !!!!!!
Það er reiði, reiði , reiði og meiri reiði og eykst dag frá degi.
Geir Hilmar Haarde er búinn að leiða þjóðina ofaní þvílikt spillingarfen ,að enginn núlifandi maður hefur heyrt eða séð annað eins.
Öflin sem ráða í þjóðfélaginu eru sýnilega gjörspillt. Það eru bara allir sammála um það.
Og það virðast snúast mest í kringum Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn.
Og verndari spillingaraflana í dag er enginn annar en Forsætisráðherran Geir Hilmar Haarde.
Svínaríð í kringum bankana er alltaf að verða stærra og meira.
Ósvífnin er að koma betur og betur í ljós, að Forsætisráðherran, Seðlabankastjórinn, Fjármálaráðherran, Viðskiptamálaráðherran, Utanríkisráðherran Fjármálaeftirlitið, Embættismenn í fjármála-viðskipta- og forsætisráðuneyti, Bankastjórar, Bankaráð, greiningarstjórar vissu öll um aðsteðjandi vanda í efnahagslífinu en hunsuðu og földu allar upplýsingar um þessi mál frá Mars 2008.
Sumt af þessu fólki var sett í skilanefndir bankana sem réðu síðan í störf Bankastjóra, fólk sem tók þátt í svínarínu og fjármálasvindlinu.
Nú er búið að gefa út handtökuskipanir á hendur fólki sem getur ekki staðið í skilum vegna t.d ástandsins í þjóðfélaginu.
Bara nauðsynlegt að handtaka og fangelsa í hudraðatali venjulega þegna þessa lands.
En svíðingarnir allir, sem eru orsakavaldar fyrir ástandinu ganga lausir og eru allir farnir erlendis í paradísirnar sínar, í friðinn og þægindin.
Ég er hræddur um að stíllinn yfir mótmælum fólks eigi eftir að breytast eitthvað til hins verra miðað við aðgerðir og aðgerðarleysi stjórnvalda.
Af hverju leysir Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson ekki upp þing og setur ríkistjórnina af og setur neyðarstjórn á.
Áður en borgarstyrjöld brýst út á Íslandi.
Hann hefur til þess lagaheimildir í Stjórnarskránni.
Þetta gengur ekki lengur.
Það verður að grípa í taumana.
Það verður að stoppa þetta bull.
Þetta finnst mér.
![]() |
Hvetja til mótmælastöðu við Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.1.2009 | 19:53
Framsóknarflórinn mokaður !
Nýr formaður Framsóknarflokksins var kjörinn í dag Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Og flokkseigenda félaginu var sýnd langatöng. Og hafnað.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var búinn að vera í Framsóknarflokknum í rúman mánuð.
Það er alveg ljóst að það átti að hreinsa spillinguna og fortíðina burt úr valdastöðum flokksins, vonandi hefur það tekist með þessum breytingum.
Sama gerðist við varaformannskjör þar var Siv Friðleifsdóttur hafnað, en Birkir J. Jónsson alþingismaður náði kjöri
Og enn og aftur við kosningu ritara urðu breytingar, þar náði kjöri Eygló Harðardóttir.
Ég vil óska þessu fólki til hamingju með kosningarnar.
Það er alveg ljóst að Framsóknarflokkurinn vill hreinsa til og byrjar í sínum ranni.
Vonandi tekst fólki í öðrum flokkum að hreinsa til í sinum flokkum, hreinsi fortíðina út þetta fólk sem búið er að vera á Alþingi s.l. 20 ár samfleitt á að hætta núna.
Það er ekki nóg að hreinsa bara Framsóknarflórinn.
Þetta finnst mér.
![]() |
Sigmundur kjörinn formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.1.2009 | 20:33
Flokkseigendafélag Framsóknar farið að smala atkvæðum á flokksþinginu !
Hið svo kallaða Flokkseigendafélag Framsóknarflokksins er farið að láta að sér kveða inn á flokksþingi Framsóknarmanna.
Fyrrverandi ráðherrar í spillingararmi flokkseigendafélagsins vilja ekki neinar aðrar breytingar á gildum Framsóknar en að maður úr hópi Flokkseigendafélags Framsóknar setjist í formanssætið.
Það það skal verða misheppnaði hallarbyltingar kóngur úr Kópavogi.
En obs... hann er ekki á þingi og verður því áhrifalaus blesaður drengurinn.
Og ekki er þetta efnilegt allar líkur eru á að Siv Friðleifsdóttir verði næsti Varaformaður Framsóknarflokksins en getur ekki unnið með Hallarbyltinarkóngnum úr Kópavogi.
Eftir formanskjörið á morgun þá bara hverfur Framsóknarflokkurinn endanlega.
Takk fyrir það.
Sjáið bara næstu skoðanakönnun um fylgi flokkana.
Þetta finnst mér.
![]() |
Kappræður formannsframbjóðenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.1.2009 | 23:36
Hin græna hækja Samfylkingar er komin fram !!
Valgerður Sverrisdóttir hin siðblinda, formaður Framsóknarflokksins kemur fram og segir það er ekkert okkur framsóknarmönnum að kenna með þetta ástand sem nú er.
Ja hérna
Og núna finnst þessari konu aðalmálið að koma Íslendingum undir ESB.
Hún stóð að því að láta Búnaðarbankan, Samvinnutrygginar, Vís og fl.ogfl. í hendurnar á sínum mönnum.
Það er allt tapað en vinirnir hennar og flokksgæðingar miljarðamæringar, það er ekkert Framsóknarflokknum að kenna.
Hún var Bankamálaráðherra í ríkistjórnum síðustu ára. Það er samt ekkert henni að kenna.
Henni tókst að lokum á sínum ferli að láta flokksfélgið eftir völdin í flokknum og eyða síðustu framsóknarhugsjóninni fyrir sitt framapot.
Valgerður Sverrisdóttir hefur gert Framsóknarflokkinn núna, að hinni grænu hækju Samfylkingarinnar með að ná í gegn baráttumáli sínu að vilja láta Íslendinga undir stjórn svíðingana sem ráða í ESB eins og t,d. þá sem beita litla þjóð hryðjuverkalögum.
Þetta er Framsóknarflokknum líkt. Það er ekkert honum að kenna nema spilling .spilling..SPILLING
Og í framhaldi af bankaógeðinu sem hún Valgerður var þáttakandi að þá reyndu Framsóknarmenn í borgarstjórn Reykjavíkur með Björn Inga Hrafnsson í fararbrjósti að hirða Orkuveitu Reykjavíkur og REI af Reykvíkuigum til að láta sína vildarvini hafa fyrir lítið.
Nei það er ekkert Framsóknarflokknum að kenna það sýnir svo sannarlega spillingarsaga flokksins.
Þetta finnst mér.
![]() |
Framsókn vill sækja um ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Umboðsmaður Alþingis hefur ekki fengið svör frá Borgaryfirvöldum hvort OR sé að starfa á sviði einkaréttar eða á sviði opinberar stjórnsýslu.
Það er enn verið að moka ofaní REI - holuna af hálfu Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna.
Í gær var á heimasíðu umboðsmanns sagt frá fyrirspurn hans til borgarstjórnar á gamlársdag, um framgang málsins. Þar kemur fram að honum hafi ekki verið kynntar frekari ákvarðanir eða ráðagerðir um breytingar á reglum um meðferð eigendavalds sveitarfélaganna innan OR eða um stöðu fyrirtækisins almennt frá því í svari við bréfi sem hann ritaði í febrúar 2008.
Hvar eruþessir aðilar sem fóru hamförum í REI málinu forðum daga og ætluðu að snúa við öllum steinum og draga fólk til ábyrðar. Kanski orðið undir einhverjum steininun sem velta átti við kannski var þeim bannað að velta við einhverjum steinum?
Þetta er bara spilling,spilling,spilling það er reynt að draga það að skýra fólki frá hvað gerðist í Raun og veru.
Það á bara að láta fólk gleyma þessu, öllu svínaríinu í kringum þetta REI og OR mál, hvernig Framsóknarflokkurinn með Björn Inga Hrafnsson og Sjálfstæðisflokkurinn með Vilhjálm Þ Vilhjálmsson ætluðu að afhenda; Fl-groop þar sem Hannes Smárasson var aðalmaðurinn orkufyrirtækin á silfurfati of réðu síðan aðal samningamann Orkuútrásarinnar Bjarna Ármannson.
Þetta fólk sem stjórnar borginni núna er bara ekki í lagi það svarar ekki lögskipuðu eftirlitsvaldi eins og Umboðsmanni Alþingis.
Þetta er bara skandall.
Þetta finnst mér.
![]() |
Umboðsmaður spyr enn um REI-mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.1.2009 | 21:41
Bandalag Jafnaðarmanna að lifna við ?
Njörður P. Njarðvík prófessor setti fram mjög athyglisverðar og góðar hugmyndir í Silfri Egils á sunnudaginn.
Um breytingar á Íslenskri stjórnskipan og stofnun nýs lýðveldis.
Hjarta mitt tók kipp og ég gladdist mjög að heyra próferssorinn leggja upp hugmyndafræði og stefnumál Vilmundar Gylfassonar, formans fyrrum Bandalags Jafnaðarmanna frá árunum 1983.
Þessar hugmyndir hafa farið eins og eldur í sinu um þjóðfélagið núna síðan viðtalið var birt.
Auðvitað þarf aðeins að skerpa á þessum hugmyndum miðað við tíðarandan og tókst próferssornum það mjög vel.
Þetta er nefnilega heilbrigð skynsemi og andsvar við þeirri spillingu sem nú viðgengst hjá stjórnmálamönnum og embættismönnum.
Ég vona bara að Njörður P. Njarðvik fylgi þessu eftir og stofni hreyfingu með slíka hugmyndafræði í baráttubrjósti.
Ég styð þessar hugmyndir, ég studdi þær hér áður fyrr þegar ég vann fyrir Landsnefnd og framkvæmdanefnd BJ 1986.
Það er kannski smá von um að þjóðin sameinist um þessi mál núna.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2009 | 12:27
Íslenska ríkistjórnin er háþróuð lygamaskina !
Forsætisráðherran, Seðlabankastjórinn, Fjármálaráðherran,Viðskiptaráðherran er kvartettin sem laug helst að þjóðinni þegar fall bankana var í algleymingi.
Menntamálaráðherran og Utanríkisráðherran samþykktu fyrir sitt leiti ósóman.
Hinium í ríkistjórninni var sagt að halda sig á mottunni og þeigja.
Nú í dag er að koma betur og betur í ljós að, búið var til sjónarspil um að Rússar ætluðu að lána okkur mikla peninga og að norðurlöndin ætluðu að lána okkur líka mikla peninga.
Það stóð aldrei til að rússar ætluðu að lána okkur eitt eða neitt. Það voru velyrði fyrir læanum á norðurlöndunum ef Íslendingar uppfylltu ákveðin skilyrði, þetta var ekki nefnt fyrr en byrjað var að krefjast svara og menn fórusjálfir að leita svara.
Efnhagshrunið er hægt að skrifa að mestu leiti á vanhæfa stjórnendur í Seðlabankanum,Fjármálaráðuneytinu,Viðskiptaráðuneytinu, Forsætisráðuneytinu.
Þá er ljóst núna að stofnanir eins og Fjármálaeftirlitið, Kauphöllin, Hagstofan voru ekki með á nótunum og stjórnendur þessara stofnana eiga að segja af sér eða það á bara aðsetja þá af.
Þá voru það eigendur og æðstu stjórnendur Bankana sem settu í gang svo ótrúlegt ferli með hlutabréf og bjuggu til alskonar viðmiðunarstaðla til að fela þessar raunverulegau staðreyndir.
Þá komu fram á sjónarsviðið alskonar fólk sem titlað var greiningarstjórar, framkvæmdastjórar alskonar sviða innan banknana, sem er að vísu alveg horfið núna.
En núna eru komnir Nýrir bankar en með sömu stjórnendum og áður, það eru sömu stjórnendur í Seðlabankanum og áður, Það er sama fjármálaeftirlit og áður,það er sama fólk við stjórnvölin alstaðar og nú að rannsaka sjálft sig.
Okkur var sagt að Bretar yrðu sóttir til saka af Forsætisráðherranum, en það var bara ein lygin.
Engin fær að vita um hvaða vaxstaprósenta er á láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum,engin fær að vita til hvað langs tíma það lán er. Eða heildar lánsfjárhæð.
Þetta er bara ekki í lagi.
Það er bara verið að ljúga að fólki daglega.
Og enginn vill eða ætlar að bera ábyrgð
Þetta finnst mér,
![]() |
Íslensk stjórnvöld harðlega gagnrýnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.1.2009 | 21:00
Nýr hershöfðingi NATO á Íslandi ?
Bullið í Ingibjörgu Sólrúnu um að Nato geti séð um friðargæslu milli Ísralela og Palestínumanna, sýnir svo ekki verður um villst að hún er blinduð af eigin hroka og valdnýðslustefnu.
Nató er hernaðarbandalag og hefur hagsmuni að gæta fyrir Ísraelsmenn, vegna stuðnings USA við þá.
Muslimar og Rússar munu aldrei samþykkja aðkomu NATO á þetta svæði.
Það eru Sameinuðuþjóðirnar sem eiga að koma á vopnahléi. Og senda friðargæslusveitir á þetta svæði.
Og það á að refsa Ísraelsmönnum harkalega fyrir að virða ekki niðurstöður Öryggisráðsins. En öll ríki sem eiga aðeild að Sameinuðuþjóðunum skulu hlýta niðurstöðu ráðsins segir í reglum þess.
Og Ísrael er aðili að Sameinuðuþjóðunum.
Er ekki ástæða frekar, Ingibjörg Sólrún að sýna hug okkar í verki og kalla Sendiherra Ísrael á teppið og síðan vísa honum úr landi.
Við getum ekki verið þekkt fyrir að hýsa meinta morðingja ?
En alla vega finnst Ingibjörgu Sólrúnu meira til NATO koma en Sameinuðuþjóðana, maður skilur þetta ekki alveg.
Þetta finnst mér.
![]() |
Samþykkt öryggisráðs SÞ fagnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2009 | 20:29
Hin fræga "bláa hönd" aftur í Forsætisráðuneytið !!!!
Er þetta ekki stórkostlegt að einn helsti starfsmaður Davíðs Oddssonar á sínum tíma Guðmundur Árnasson, sem oft var nefndur hin "bláa hönd" er settur í Forsætisráðuneytið í verkefni sem lýtur að því að samræma aðgerðir og stýra upplýsingaflæði.
Þetta telja Sjálfstæðismenn að muni styrkja starfið í efnahagsuppbyggingunni,
Gott og vel nú er Samfylkingin komin ansi langt í burtu frá þeim raunveruleika að vera með í upplýsingarflæði frá sínum ráðuneytum.
Það verður þessi verkefnastjóri "Bláa höndin" sem hefur síðasta orðið með upplýsingarflæði til almennings .
Er þetta trúverðugt ?
Þetta finnst mér.
![]() |
Ráðuneytisstjóri í sérverkefni fyrir stjórnarráðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.1.2009 | 00:15
Mikil hætta á blóðugum átökum !
Stjórnvöld hilma yfir öllu sem varðar Bankahrunið, sömu stjórnendur vinna að sömu málum og áður í kerfinu.
Enginn þarf að bera ábyrgð á gjörðum sínum þetta sagði Ingibjörg Sólrún í gær.
Hún sagðist treysta þessum einstaklingum, sem staðnir hafa verið að því að brjóta stjórnsýslulög og fl.
Hún treystir aðilum sem vita hverjir bera ábyrgð á vandamálum líðandi stundar, sem neita að segja þjóðinni hverjir bera ábyrgð að þúsundir manna töpuðu aleigu sinni.
Þúsundir manna missir atvinnuna og Ísland er gert gjaldþrota land.
Síðan er ráðist á aldraða, öryrkja og sjúka með að setja gjóld á þetta fólk ef það verður veikt og fer á sjúkrahús.
Landsbyggðin er sett á útsölu í heilbrigðiskerfinu.
Svínaríið og sukkið heldur áfram, útrásarvíkingarnir koma fram hver af öðrum í fjölmiðlum og segjast ekki bera neina ábyrgð þetta sé all öðrum að kenna.
Ríkistjórnin neitar sjálf að taka á málunum við Breta.
Þetta endar með alsherjar mótmælum um allt land og átökum,sem munum leiða til þess að ríkistjórnin verður að segja af sér.
Það er rosaleg reiði í fólki og hún á eftir að brjótast betur út.
Þetta finnst mér.
![]() |
90 manns fyrir utan Sólvang |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 103
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 85
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar