18.6.2009 | 17:23
Verður Ásdís Halla Bragadóttir næsti Bæjarstjóri í Kópavogi ?
Mikið ósætti er innan Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi um eftirmann Gunnars Birgissonar úr röðum bæjarfulltrúana allir vilja verða Bæjarstjórar.
Tilmæli hafa borist frá flokksforustuinni um að halda samkomulaginu við Framsóknarflokkinn og ráða sem fyrstí stöðu Bæjarstjóra einhvern fyrir utan Bæjarstjórnina.
Ásdís Halla Bragadóttir er ein af þeim fáu sem gæti sætt þessar valdaklíkur sem eru í Kópavogi.
Þessu hvíslaði lítill sjáfstæður fugl í morgun er hann flaug hjá....
Nú er bara að bíða og sjá.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2009 | 21:03
Vestmannaeyingum fækkar !
Vestmannaeyingum kemur til með að fækka á næstunni en skurðdeild Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja var lokað tímabundið 1. júní í sparnaðarskyni.
Barnshafandi konur í Vestmannaeyjum eru ósáttar við að skurðdeildinni á sjúkrahúsi bæjarins hafi verið lokað í sumar. Þeim er ráðlagt að fara upp á land til að fæða.
Og ef svo verður fæðst ekki Vestmannaeyingar í bráð út í eyjum. Þannig að bara bætist við aðflutta eyjamenn
Þetta er ekki gott fyrir bæjarfélagið og raskar allri tölfræði ekki satt.
Mér finnst að það þurfi að framleiða fædda Vestmannaeyinga.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2009 | 22:12
Trúðarnir á Alþingi !!!!
Skrílslæti, óvirðing, vanvirðing og Trúðstilburðir var það sem þjóðin fékk að sjá í öllum fréttatímum kvöldsins af alþingi í dag. Bara óborganleg ósvífni í Framsóknarmönnum.
Trúðaleikhús Framsóknarmanna með formanninn Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Eygló Harðardóttur í aðalhlutverkium sýndi frumsamið verk um hvernig ekki á að koma fram við forseta þingsins og þingheim.
Ég hlustaði á Útvarp Sögu í morgun sem aðra morgna þar fékk Sigmundur Davíð að leika lausum hala sem "Trúður Dagsins "að mér fannst.
Það var ekkert annað en svartnættið, voleysið og vonleysið framundan.
Og hann var spurður um ráð. Engin svör. Bara einhverjar klisjur sem ekki virka legngur
Hann hefur engin ráð og ekki Framsóknarflokkurinn heldur.
Mér finnst Sigmundur Davíð vera orðinn einn af fjósamönnunum sem ég lýsti í pistli hér um daginn.
Fjósamönnum sem vinna í Framsóknarfjósinu smá tíma og hverfa mjög snökkt líka. Og skilja ekkert eftir sig annað en minningu um einhver trúðslæti.
Þetta finnst mér.
![]() |
Óásættanleg framkoma forsetans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.6.2009 | 21:59
ICESAVE eru pólitísk hrossakaup hjá Samfylkinguni fyrir ESB !
Icesave-reikningarnir eru orðnir skiptimynt Samfylkingariinnar í pólitískum hrossakaupum til ESB aðeildar.
Því nú er búið að semja við Breta og Hollendinga um Icesave og þá koma hinar þjóðirnar hver af annari og þjóðir hafa hótað okkur eins og Þjóðverjar vena aðeildar að ESB.
Bretar settu á okkur hryðjuverkalög og Hollendingar og Bretar saman knúðu á við Alþjóðagjaldeyrissjóðin til að setja ákveðin skilyrði fyrir lánunum. sem Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn samþykktu og komu í gegnum þingið á sínum tíma.
Ráðherrar Samfylkingarinnar keppast um að reyna að fá ríki til að styðja aðeild Íslendinga að ESB verði sótt um aðeild. Fyrst fór Össur í frægan túr á eigin vegum vegna ESB, því engin í ríkistjórninni kannaðist við að hann væri í erindum ríkistjórnarinnar. Túrinn var greiddur af ríkinu.
Svo var það Jóhanna sem eyddi helginni með Forsætisráðherrum hinna Norðurlandana og var að leita eftir stuðningi.
Ekki er einu sinni vitað hvort meirihluti er á Alþingi fyrir samningum um ICESAVE reikningana eða ESB dæminu.
Hundruð manna farin að mótmæla þessum samningum á Austurvelli og fólk er handtekið .Rúmlega 25000 manns búni að skrá sig á mótmæli á Andlitsbókinni gegn Icesave.
Erum við bara ekki aftur á byrjunarreit ?
þetta finnst mér.
![]() |
Nokkrir handteknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.6.2009 | 21:39
Kom hin vanhæfi saksóknari syni sínum undan ábyrgðum vegna mistaka ?
Þetta er ekki hægt, mestu glæpamenn sögunar í EVROPU frá stríðlokum eins og lýst hefur verið í erlendum fjölmiðlum undan farið. Eru lausir við ábyrgð gerða sinna.
Um þetta er fjallað á vísir.is
Já Komast upp með að verða ábyrgðarlausir á lánum ,sem þeir hafa fengið fyrir hrun Íslenska Bankakerfisins.
Saksóknarinn vanhæfi tengist málinu á tvenna vegu annars vegar hefur hann tafið framgang málsins vegna einhverja mistaka hjá embættinu eins og það er orðað.
Eða að föðurumhyggjan fyrir syninum sínum sem stjórnaði fyrirtækinu EXISTA sem átti stærstan hluta í Kaupþingi hafi vegið meira enn að upplýsa málið strax.
Og sonurinn samþykkti að fella niður persónulegar ábyrgðir þessara manna sem stóðu fyrir þessu hruni og óráðsíu.
Eru þetta þau skilaboð sem fólk fær núna að "svíðingarnir" komast upp með að vera ekki ábyrgir fyrir gjörðum sínum.
Þetta er bara orðið meira en helvítis "FOKKING FOKK"
Nú er að bregðst við Jóhanna og Steingrímur, það þarf að setja neyðarlög strax sem afturkallar þessar fyrri heimildir þessara manna.
Það þarf að setja ríkissaksóknaran af strax...strax...strax.
Ég bara trúi þessu ekki...hvað eru þessar skilanefndir og bankastjórar eiginlega að gera dags daglega bara leggja kappla, eða rifja upp stundirnar í SUS þar sem þeir hafa flestir verið.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Já mér finnst rosalegt að hægt sé að stofna einhverja sjóði sem ekki heyra undir nein skattaákvæði ,
Þetta gerist hérna á Íslandi. Korter í bankahrun á kveður Sigurjón Árnasson fyrrverandi bankastjóri Landsbankans að lána sjálfum sér 40 miljónir úr fjávörslurreikningi 3, sem er i raun lífeyrissjóður Sigurjóns.
En hvers vegna þetta form á reikning. Jú mjög einfallt. Þarna er bara mjög klár maður á ferðinni
Greiðslur í viðbótarlífeyfirssparnað er til að mynda ekki skattskyldar.
Þá eru lífeyrissjóðsreikningar af þessu tagi ekki aðfarahæfir og peningar sem þar geymdir því ósnertanlegir.
Þetta er tær snilld og von að ekki náist í Sigurjón til að upplýsa meira um þetta.
Ætli Steingrímur viti af þessu stór gati í kerfinu. Hvað eiga margir svona reikninga af þessu þotuliði.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.6.2009 | 22:25
Þær skipta engu máli þessar sjómannsdruslur !!!!
Já þetta eru reyndar skilaboðin sem verið er að senda sjómönnum.
En ekki er gert ráð fyrir að þyrla verði til taks 10 daga á ári.
Hagræðing hjá Gæslunni er það kallað.
Það er of dýrt að bjarga mannslífum allt árið bara sleppa 10 -15 dögum.
Og björgunargeta þeirrar Þyrlu sem eftir er verður 20 mílur frá landi.
Ekki nóg með það heldur verður þjónusta og eftirlit varðskipa stórlega dregin saman.
Þetta er sko kallað að spara á stjórnmálamanna máli.
En hjá almenningi er þetta kölluð aðför að Sjómönnum og fjölskyldum þeirra.
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.6.2009 | 20:59
Eva Joly leysti "niðrum"ríkistjórnina í Kastljósi kvöldsins !!!!
Og ekki er eru þau falleg svona berstrýpuð.
Það er rosalegt að skinja hjá stjórnvöldum þetta viðhorf..þetta reddast...við sjáum bara til....þetta eru óþarfa áhyggjur....þetta verður leyst seinna.....
Mikil hrikaleg skömm er þetta hjá ríkistjórninni að setja ekki ríkissaksóknaran Valtý Sigurðsson fyrr af og bara afdráttarlaust strax þegar kom í ljós að hann tengist óbeint eða reyndar beint EXISTA þar sem sonur hans var innsti koppur í búri og EXISTA er jú til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.
Ef ríkistjórnin gengur ekki að þessum kröfum rannsóknardómarans EVU JOLY og setur Valtý núna af og setur meiri peninga í embætti sérstaks saksóknara.
Þá er komið upp verulegt "FOKKING FOKK" á Austurvelli held ég.
Verður bara þjóðin að taka í taumana og herkja þennan mann úr embætti og hætta ekki fyrr en búið er að gera það.Fyrst það á að dragast að nýr saksóknari verið settur eins og skilja má á Dómsmálaráðherranum.
Og líka þarf að berjast fyrir að peningar til embættis sérstaks saksóknara verð í því umfangi sem þarf að vera....við skulum hlusta á EVU JOLY.
Ætla menn ekki að taka ráðleggingum þessarar konu Evu Joly sem ráðin var til að aðstoða Íslendinga við að hafa hendur í hári þeirra sem trúlega hafa komið eignum og penigum undan.
Eða á að láta þessa menn sem búnir eru að leggja allt í rúst á Íslandi nota peningana til að komast undan.
Nú bíður maður spenntur eftir viðbrögðum Jóhönnu og Steingríms.
Þetta finnst mér.
![]() |
Björn verður ríkissaksóknari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
9.6.2009 | 21:49
Afhverju er ekki þessum ráðuneytisstjórum skipt út ?
VG ráðherrarnir Steingrímur J Sigfússon Fjármálaráðherra og Katrín Jakopsdóttir Mentamálaráðherra vilja alveg ólm hafa Sjálftæðisráðuneytisstjórana Baldur Guðlaugsson og Guðmund Árnasson (Bláu höndina), sér við hlið.
Sama er upp á teningnum í Sjávarútvegsráðuneytinu þar er ennþá ráðuneytisstjórinn sem vann myrkrana á milli fyrir stjórnarskipti minnihlutastjórnarinnar að koma reglugerðinni um hvalveiðarnar í gagnið sem bara í raun er óþverrabragð af ennþá.
Svona er alstaðar í öllum ráðuneytum þar eru gamlir jaxlar og gamalar konur, sem eitt sinn voru án efa kjarnakonur við völd og þurfa núna sem svo oft áður að beigja sig niður í duftið þegar ekki fara saman viðhorf þeirra og ráðherrana eða ríkistjórna.
Ekki svo að segja að þessir menn og konur séu ekki ágætir í störfum sínum, en þeir/þær eru bara í hinu liðinu og bera ábyrgð á fjölmörgum axarsköftum fyrri stjórnvalda í tíð frjálshyggju og útrásarfarsa.
Mér finnst að það eigi að breyta lögum þessir ráðuneytisstjórrar eiga bara að fylgja þeim ráðherrum sem eru í sama lit á hverjum tíma.
Þeir eiga ekki að hafa æviráðningu
Og eiga bara að sitja í 4 ár í einu.
Og fá að halda áfram ef þeirra maður nær kjöri í kosningum.
Mér finnst þetta ráðuneytastjórabull núna eitthvað sem er mjög illa lyktandi.
Um þetta er fjallað á visir.is
Þetta finnst mér.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.6.2009 | 21:41
Þetta heldur áfram, reiðin hjá fólki fer stig magnandi !
Fólk safnast saman reiðara en áður og reiðin virðist vera að magnast.
Svoleiðis var á Austurvelli í dag.
Útrásarvíkingarnir í sæluvímu einhver staðar, annarstaðar á hnettinum og lifa bara nokkuð flott að manni skilst.
Enda búnir að koma sér vel fyrir og sumir komnir með ríkisfang í öðrum löndum og jafnvel öðrum heimsálfum.
Jafnvel órekjanlegir og eftirvill óþekkjanlegir.
Það hefur ekkert bólað á þeim í fjölmiðlum síðan þeir voru hraktir úr fyrirtækjunum og bönkunum og hin dauðkalda staðreynd að Ísland var orðið gjaldþrota að þeirra völdum lá fyrir.
En þeir eru á fullu að selja fasteignir sínar hérlendis og erlendis og bara ótrúlegt að ekki sé búið að setja þá inn meðan verið er að rannsaka spillinguna og svikamyllurnar í kringum þá.
En meðan verið er að rannsaka málin "innan gæsalappa" er verið að setja Íslenska þjóð í fjötra sem seint eða aldrei verða leystir.
Þetta er hið grænrauða Ísland í dag.
Þetta finnst mér.
![]() |
Hrekkur ekki fyrir skuldum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar