Færsluflokkur: Umræðan

Hverskonar fífl er þessi organisti á Selfossi?

Í meintum kynferðisbrotamálum sem tengjast Gunnari Björnssyni sóknarpresti á Selfossi kemur allt í einu fram organnisti sem var vel kunnugt um að séra Gunnar hafi leitað á stúlkurnar.

Þó hann hafi aldrei séð hann gera það með berum augum.

Ortganistin segist hafa skynjað vanlíðan stúlknana í kórnum, en ekkert gert meira í málinu, bara leyft því að þróast, mér finnst liggja við að organnistinn sé bara samsekur Gunnari Björnssyni, reynist Gunnar verða sekur fundinn um þessi meintu kynferðisbrot.

Hann segist hafa verið ábyrgðarmaður stúlknana á þessum tíma en ákvað að aðhafast ekkert.

Þetta er bara ekki í lagi.

Þetta finnst mér.


mbl.is Þriðja stúlkan kærir sóknarprestinn á Selfossi
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Á að hafa svívirt og nauðgað börnum sínum og vinum þeirra !!!!!

í DV í dag er sagt frá Háskólakennara sem talið er að hafa svívirt og nauðgað börnum sínum og vinum þeirra.Það virðist nóg af svona níðingum út um allt.

Þetta að börn þori að opna sig meir og meir er vegna hinnar miklu umræðu og fræðslu til barna um þessi mál. Það er lykillin að upp kemst um þessa níðinga.

“Háskólakennari hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 11. apríl vegna gruns um að hann hafi ítrekað nauðgað börnum sínum fjórum, dætrum og syni, á fimmtán ára tímabili.

Þá hefur borist kæra vegna brota gegn stúlku utan fjölskyldunnar, vinkonu einnar dóttur kennarans.

Elstu brotin voru framin fyrir hartnær fimmtán árum síðan. Nýjustu brotin voru framin í vetur.”

Þetta finnst mér.


Gleymdi ekki einhver að taka pillurnar sínar ?

Það hlýtur bara að vera eitthvað að, þessir aðilar í Borgarstjórn sem hafa verið að tjá sig vegna umæla og skoðana Ólafs F. Magnússonar um skiplagsmáli í Vatnsmýrinni eru að tala út og suður í sama flokki .

Gísli Marteinn segir eitt og Hanna Birna segir annað og bara búa til skýringar við ummæli Borgarstjórans.

Þeir vilja ekki tala um það sem Ólafur F. Magnússson sagði með íbúum Reykjavíkur og marg oft er búið að spila í fréttatímum og fréttaskýringaþáttum.

Þau vilja endilega skýra út eitthvað sem hann sagði ekki, eitthvað sem hann meinnti en sagði ekki.

Það mætti halda að þau séu öll á lyfjum og hafi gleymt að taka pillurnar sínar.

Því þvílíkt rugl er það sem kemur frá þeim, það er bara talað út og suður.

Þið verðið bara að átta ykkur á þessu bulli í ykkur þið getið ekki starfað saman það er bara svona einfalt.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ólafur segist ekki hafa skipt um skoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prestur, Prestur ertu kannski stóðhestur ? !!!!

Já það eru nú svo að það eru daglega neikvæðar fréttir frá Selfossi undan farið.

Nú hefur Sóknarpresturinn verið kærður af tveimur stúlkum fyrir kynferðiðlega áreitni og talið að fleiri kærur séu á leiðinni.

Ubs …ætli Guð hafi leiðbeint honum Sóknarprestinum á Selfossi….Hann nefnilega leiðbeindi  Birgis - leiðtoganum forðum daga á svipuðum nótum .

Aðrar fréttir voru það að Sýslumaðurinn á Selfossi  kærir mann sem lendir í bifreiðaslysi ásamt konu sinni er kærður á móti vilja konunar.

Já það eru sannarlega stórmenni þarna á Suðurlandi.

Þetta finnst mér.


mbl.is Umkvörtun vegna sóknarprests barst kirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er GAS....Þetta er GAS.. var bara auglýsing !

Þetta er gas, þetta er gas var öskrað í aðgerðum lögreglu á Suðrlandsvegi fyrir stuttu síðan.

En nú hefur komið í ljós að þetta var mögnuð auglýsing fyrir lögregluskólan en í kjölfarið hafa 90 manns sótt um inngöngu í skólan.

En fyrir nokkru síðan var talað um að fáir létu skrá sig í skólan.

Og það væri lítil endunýjun.

Það þarf því að endurtaka þessa auglýsingu með “Gasið” af og til svo fólk fái áhuga á störfum lögrelunar.

Þetta finnst mér.


mbl.is Það sem gerðist var óumflýjanlegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

+ 5 Rottuútköll á viku hjá Reykjavíkurborg !!!!!

Guðmundur Björnsson, meindýraeyðir Reykjavíkurborgar segir í Fréttablaðinu í dag að á síðasta ári hafi verið farið í 274 útköll vegna rottu og það sé mun sjaldgæfara að rottur sjáist í borginni ef við deilum þessum útköllum á 52 vikur eru þetta 5.2 rottuútköll á viku.

Það er nú allnokkuð finnst mér.

Þetta eru bara tölur frá Reykjavíkurborg. En heimildir frá Meindýraeyðum í Félagi Meindýraeyða sýna að rottuútköll sem þeir eru að sinna eru 2-3 á viku til viðbótar.

Þetta er í raun sama talan ár eftir ár sem Reykjavíkurborg er að sýna og þýðir í raun að einungis tekst að halda stofninum í horfinu.

Ekkert raunhæft er  gert til að útrýma þessu markvist úr holræsunum.

Eða fundin betri leið til að útrýma þessum vágest en gert er í dag, sem auðsýnilega er ekki að virka alveg.  En það er hægt að útrýma þessum vágest, sér í lagi í svona litlu skólpkerfum eins og er hér á landi.

Ég held að formaður umhverfisnefndar ætti að leggja peninga í útrýmingu á Rottum og bjóða þetta verkefni út til meindýraeyða, fyrst Reykjavíkurborg getur ekki annað en haldið Rottustofninum í sömu tölu ár eftir ár.

Nú er lag fyrst eins og Guðmundur Björnsson segir réttilega að það eru komnar sýur og skiljur sem Rottur komast ekki í gegn en halda sig þess vegna í skólplögnum.

Þetta finnst mér.


Þetta lyktar af spillingu !!!

 DV í dag segir frá miljónasamning Akrnesbæjar við tölvufyrirtækð Securstore.

Sem sonur forseta bæjarstjórnar hafði keypt hlut í ásamt endurskoðenda Akranesbæjar sem er líka endurskoðndi fyrir Secustore. 

Hrein tilviljun ?

Þá eru aðrir eigendur tveir fyrrverandi starfsmenn Glitnis, þeir Bjarni Ármannson og Örn Gunnarsson.

Hrein tilviljun ?

Ekkert óeðlilegt við þetta  segir forseti bæjarstjórnar Akranes.

En Örn gunnarsson er einmitt sonur forseta bæjarstjórnar sem greiddi athvæði gegn því í Apríl að bjóða út tölvuþjónustuna.

En vildi að gengið yrði strax til samninga við Securstore.

Þetta lyktar af skítalykt .

Þetta finnst mér.


Full seint í rassinn gripið þegar menn eru búnir að skíta á sig !!!!

Þessar uppsagnir á Landsspítala eru til komar fyrir mörgum mánuðum, þegar stjórnendur Landsspítalans og Heilbrigðisráðherra ákváðu að standa við þetta vaktafyrirkomulag einhliða.

Sem þau vinna ekki sjálf eftir.

Og gætu ekki unnið eftir.

Eina svarið hjá Hjúkrunarfræðingum var að segja upp störfum. Þau geta ekki unnið eftir þessu nýja vaktakerfi.

Guðlaugur Þór reyndu að skilja það !!!

Sára lítil fundarhöld hafa verið hjá þessum aðilum nema síðustu daga.

Og þá er lausnin sú að fresta þessu vaktakerfi þar til í haust. Og reyna að leysa vandan á þessum mánuðum.

Er ekki allt í lagi með með þetta fólk sem stjórnar spítalanum og ráðherran var ekki full seint að grípa í rassinn, eða var hann kanski að sýna þessu fólki beran rassinn.

Þetta er svo alvarlegt mál að lýsingarorð sem maður þekkir duga ekki til að lýsa stöðunni í dag.

Vonandi Ráðherrans vegna deir enginn vegna þessa ástands sem er að skapast.

Mér bara ofbýður þetta tillitssleysi stjórnvalda.

Þetta finnst mér.


mbl.is Enn unnið að lausn deilunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð Oddsson á bara að skammast sín !!!!!!

Stefna ríkistjórnarinnar í peningamálum brást meðan stórframkvæmdir á Austurlandi stóðu yfir. Segir Davíð Oddsson kokhraustur.

Sem sagt stefna sú sem Davíð Oddsson lagði sjálfur grunninn að ásmt Halldóri Ásgrímssyni.

Gott að loksins skuli hann viðurkenna skipbrot útþennslustefnu sinnar og Sjálfstæðisflokksins.

En þetta eru einmitt  afleiðingar af óbeislaðri stóryðjustefnu og einkavæðingarstefnu Davíðs Oddssonar og Sjálfstæðisflokksins.

Þessar hremmingar sem eru í þjóðfélaginu í dag eru honum og fyrrverandi ríkistjórn að kenna.

Hann hélt bara að ef hann færi úr einu sæti í annað sæti að menn mundu ekki þora að gagnrýna störf hanns og skoðanir. Það eru bara komnir aðrir tímar vonandi.

Í þeim fílabeinsturni sem Davíð Oddsson situr í núna og stjórnar landinu eftir sínum duttlungum er hann vel varinn.

Hann lét breyta lögum um Seðlabankan sem sniðin eru að honum sjálfum en hann skipaði sjálfan sig sem Seðlabankastjóra í gegnum leppinn Halldór Ásgrímsson.

Þetta á sama við og um eftirlaunafrumvarpið þar sem þessir sömu aðilar græða mest allra.

Hann hefur trúlega fyrirskipað einum helsta yfirgjammaranum í flokknum, sem núna er formaður Alsherjarnefndar að afgreiða ekki breytingar við frumvarpið á þessu þingi.

Ég skora á þingmenn að leggja fram breytingar á lögum um Seðlabankan sem lúti að því að hægt sé að segja upp aflóga stjórnmálamönnum.

Og að sjá sóma sinn í því að breyta eftirlaunalögum þingmanna og ráðherra á þessu þingi.

Þetta finnst mér.


mbl.is Engin rök fyrir örvandi aðgerðum ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuðningur frá mannréttindakúgurum í austri mikilvægur ? !!!!

Ingibjörg Sólrún ljómaði af gleði í Silfri Egils þegar hún sagði þjóðinni að Kínverjar styddu  okkur i Öryggisráðið.

Það var auðvitað að mannréttindakúgarar styddu okkur.

Við höfum svo sem stutt svoleiðis hópa áður t.d þegar við Íslendingar einir fárra vetrænna þjóða studdum Rauðu knerana, forðum daga.

Hvað höfum við aða gera í þetta Öryggisráð ? Er ekki skynsamara að nota þessar hundraðir miljóna  króna t.d í að bæta kjör aldraða og öryrkja.

Þetta finnst mér.


mbl.is Stuðningur við framboð til Öryggisráðs eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 85236

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband