Færsluflokkur: Umræðan
16.5.2008 | 08:57
Ólafur F. Magnússon er að missa heilsuna !!
Ólafur F. Magnússon viriðst farinn að þjást af sama sjúkleika og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Jú um er að ræða minnisleysi og tækifærissýki og skyldum kvillum.
Og það vill svo heppilega til að annar læknir er þarna í námnda og gæti aðstoðað Ólaf F. ef hann þyrfti að taka sér veikindafrí.
Ólafur F. Magnússon ætti að athuga það.
Það er verra að hrynja svona niður og eiga ekki nema 10 stuðningsmenn til að aðstoða sig eins og sagt var frá í DV í gær.
Þetta finnst mér.
![]() |
Pólitísk ráðning á sérkjörum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2008 | 14:45
10 manns studdu Ólaf F. Magnússon í könnun DV í dag.
Af þessum tíu sem sögðust styðja borgarstjóra voru fjórir 60 ára og eldri. Hann nýtur helst stuðnings meðal þessa aldurshóps, eða 5 prósenta.
Í sömu könnun reyndist borgarstjórnin fallin. Ólafur F. tók við borgarstjórastólnum í janúar síðastliðnum þegar hann tók saman höndum með Sjálfstæðisflokki vegna þess að rífa átti húsin við Laugaveg 4-6 og vegna þess að honum þótti meirihluti sinn með vinstri grænum, Framsóknarflokki og Samfylkingu ekki hafa afrekað nóg á hundrað dögum.
Þetta síðasta afrek hans að ráða pólitískt viðrini í embætti eins af æðstu embættismönnum Borgarinnar tók síðan steinin úr.
Ólafur F. Magnússon segðu af þér þú ert búinn að svívirða Reykvíkinga nóg.
Þetta finnst mér.
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2008 | 20:28
Kjósendur sviknir...einu sinni...einu sinni ...en !!!!
Nú þarf að breyta kosningalögum til Alþingis og Sveitarstjórnarlögum gagnvart frambjóðendum.
Þetta er með öllu óþolandi hvernig sviksemi fólks sem kemst til metorða í pólitík haga sér.
Menn sem kosnir eru til ábyrgðastarfa fyrir ákveðinn stjórnmálaflokk eru kosnir samkvæmt áherslum flokksins sem mótaðar eru á flokksþingum og alskonar stofnunum og ráðum innan flokkanna.
Þar er listabókstafurinn tákn fyrir þann stjórnmálaflokk sem viðkomandi frambjóðenda er annaðhvort stillt upp af trúnaðarráði flokksins, eða haldið er prófkjör þar sem einstaklingar eru valdir til að vinna fyrir ákveðinn flokk sem hefur listabókstaf, af félögum í flokknum.
Það er aldrei verið að kjósa persónulega kosningu þeð er verið að kjósa fyrir heildina undir ákveðnum listabókstaf. Og sá sem velst í forustusæti fyrir flokkinn hefur varamenn en það þarf að skila minnst 50 manns á framboðlista fyrir hvern listabókstaf.
Síðan þarf stuðningsfólk á bakvið þessar 50 sem eru í framboði og það eru mörghundruð manns.
Því skil ég ekki þessa endalausu vitleysu að maður/kona sem kosin er fyrir x lista getur bara sí svona ákveðið að vinna allt í einu fyrir Y lista .
Þessi sami X listamaður ákveður síðan að gerast Y listamaður og segir sig frá X listanum og fer að vinna fyrir Y listan, en heldur kjörsæti sínu fyrir X listan sem hann vill ekki vinna meira fyrir.
Er það ekki bara siðlaust að segja upp starfi sínu sem Sveitarstjórnarmaður eða Alþingismaður en halda samt áfram að vinna sem slíkur þegar ekkert fylgi er lengur á bakvið manninn/konuna.
Nei það vill ekkert af þessu siðspilta Sveitastjórnarfólki, Borgarfulltrúum eða Alþingismönnum breyta þessu eða setja skýr ákvæði um þessi mál.
Það hefur aðeins örfáum sinnum gerst að menn hafa boðið sig fram í eigin nafni í Bæjar-og Sveitarstjórnar- og Alþingiskosningum.
Ég ætla ekki að telja það upp menn geta bara farið sjálfir og lesið söguna.
Þetta óréttlæti þarf að stöðva, sá sem er kosinn fyrir X getur ekki flutt kosningarsigur sinn yfir á Y þegar honum/henni hentar.
Þetta finnst mér.
![]() |
Lýsa yfir stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.5.2008 | 21:38
Þökk sér þér Ólafur F. Magnússon, Kjartan Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrir að fella Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík !!!
Þetta er bara könnun þetta er bara könnun.. munum við heyra Borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem eru í strútslíki með höfuðið ofan í sandinum garga á næstunni.
Þetta er bara yndislegt þvílík niðurlæing fyrir þetta fólk sem hefur verið að eyða miljörðum króna af peningum okkar Reykvíknga, í kofakaup víðvegar um bæinn.
Áframhaldandi bullrekstur með OR og REI.
Allt sem unnið var til að upplýsa það mál var sópað undir teppið og falið.
Algjör óstjórn engin stjórn bara eitthvað og eitthvað gert í dag eða á morgun.
Hélduð þið virkilega að Reykvíkingar væru eins vitlausir og þið með því að styðja ykkur áfram.
Þettta finnst mér.
![]() |
Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar mikið í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2008 | 08:32
Ekkert að marka orðagjálfur Ingibjargar Sólrúnar !!!!
Ingibjörg Sólrún sagði í fréttum að það stæði til að afnema hið umdeilda eftirlaunafrumvarp. Undirbúningur væri á lokastigi.
Þetta er bara bull samstarfsflokkurinn og þá ekki stjórnarandstaðan veit ekkert um þetta.
Lagaprófesorar segja að ekki sé hægt að afnema eignarréttarákvæði.
Nema brjóta stjórarskárlög. Ekki veit ég til að eigi að breita eignarréttarákvæðum.
Þatta er svo stórt mál að ætla sér að keyra það í gegnum þingið með einhverju offosi á nokkrum dögum, minnir helst á aðferðir ákveðinna hópa kenda við Sikiley.
Framsóknarflokkurinn ásamt Sjálfstæðisflokknum stóðu að þessum lögum á sínum tíma.
Það verður fróðlegt að sjá hvað hefur breyst í Sjálfstæðisflokknum til að geta breytt þessum lögum ?
Það er ekkert gefið í þessu máli og langt í land að það nái fram að ganga, miðað við framgang þessara tillagna um breytingar nú í alsherjarnefnd.
Þetta var bara Ingibjargar brella svona vorleikur.
Þetta finnst mér.
![]() |
Höfðu ekki heyrt af fyrirhuguðu eftirlaunafrumvarpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2008 | 12:32
Sjálfstæðismenn í Borgarstjórn eiga að efna til prófkjörs núna !!!
Sjálfstæðismenn í Borgarstjórn Reykjavíkur virðast ekki hafa aldur né þroska við að takast á við þau vandamál og verkefni sem blasa við og þeir hafa komið sér í.
Tildæmis málefni OR og REI þar er kominn í lykilstöðu maður sem ætlar ekki að fara eftir þverpólitískri niðurstöðu um lausn og framtíðarfyrirkomulag vegna vandamála þessara fyrirtækja.
Nei þar á engu að breyta.
Skipulagsmál eru komin út og suður, Krakkahópurinn þarna í Borgarstjórn brýtur hvern samninginn á fætur öðrum í svokölluðum málefnasamningi milli þeirra og Ólafs F. Magnússsonar.
Og alveg makalaust að heyra síðan Hönnu Birnu og Gísla Martein skýra út aftur og aftur hvað Ólafur F. Magnússon meini þegar hann kemur öllu í bál og brand með sínum frægu yfirlýsingum.
Málefni Barnaverndamála fóru líka út og suður á tímabili. Þegar ráðið var í stöðu formanns Barnavernarráðs án þess að tala við viðkomandi.
Málefni flugvallarinns í Vatnsmýrinni í upnámi þar sem ágreinigur Sjálfstæðismanna og Ólafs F. Magnússsonar er í algleymingi.
Sundabrautarmálið á byrjunarreit aftur og aftur.
Gatnamótin við Kringlumýrarbraut í endalausum uppákomum.
Menntastefna beið skipsbrot varðandi tilraunaverkefni með 5 ára börn, sem hefur tekist mjög vel til í öðrum löndum en ekki hér.
Fyrigreiðslupólitík í úthlutunarmálum byggingarlóða endalaust klúður Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, t.d úthlutunina á Lynghaga, í Örfyrirsey, Í Vatnsmýrinni svo eitthvað sé nefnt.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík með alla vega þetta fólk í forustusveit sem treystir ekki hvort oðru alveg sama hvað það er að bulla um samstöðu í fjölmiðlum.
Þetta fólk er að berjast um völdinn innbirðis og á meðan er ekki samstaða um forustu í borgarmálum.
Það sem þetta fólk ætti að gera núna er að segja af sér losa sig við þennan Borgarstjóra sem nú situr.
Pólitískum lífdögurm Ólafs. F Magnússonar er viðhaldið af Sjálfstæðisflokknum.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík ættu að efna til prófkjörs til að fá úr því skorið hvaða einstaklingur Sjálfstæðismaður/ kona í Reykjavík sé foringi flokksins í Borgarmálum.
Skynsamlegast er bara að segja af sér núna og hverfa frá þessari vonlausri innbryrðis valdabaráttu og byggja flokkinn upp á nýtt með ótvíræðum foringja.
Þetta finnst mér.
![]() |
Ástandið veldur sjálfstæðismönnum áhyggjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2008 | 11:08
Fylgið hrynur af Samfylkingunni !
Síðan hin baneitraða ræða hennar Ingibjargar Sólrúnar í Borgarnesi forðum daga leit dagsins ljós, bundu margir við vonir um breytingar í stjórnmálum þegar jafnaðarmenn fylktu sér um Ingibjörgu Sólrúnu í síðustu kosningum.
Þá var talað um að ekkert dyggði annað en til að koma hlutunum í almennilegt horf annað en að félagshyggjustjórn tæki við og því var Kaffibandalagið sett á stofn fyrir kosningar.
Það var bara til að slá ryki í augu fólks Sjálfstæðisflokkurinn var alltaf það sem Ingibjörg Sólrún stefndi á samstarf við.
Þá var talað um nú skyldi Sjálfstæðisflokkurinn fá að súpa tevatnið, en núna lepur Ingibjörg Sólrún tevantnið með Geir Haarde og þykir gott .
Og loforðin og helstu stefnumál sem virtust gefa fólki áheit á breytingar og gerðu það að verkum að Smfylkingin varð stór.
En nú er bara komið pirrelsi í Ingibjörgu Sólrúnu þegar menn eru að minnast á að hún standi við kosningaloforðin.
Nú er hún farin að sætta sig við vinnubrögð Sjálfstæðisflokkins eins og að frysta mál í nefndum s.s Lífeyrisfrumvarpið, hótanir embættismanna um að stofnanir beiti eignarnámi til að halda áfram virkjanaframkvæmdum þvert á yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar.
Sjávarútvegurinn lagður niður að stórum hluta. Og nú stendur hún að því að leggja Landbúnaðinn í rúst líka.
Álverin eru í burðarliðnum um allt land og Ingibjörg getur ekki stoppað neitt.
En hún fékk að hervæða landið aftur og nú verða herþotur frá ríkjum hinna staðföstu þjóða alltaf með viðveru á landinu.
Ásamt því að NATO verður með aðalheræfingar sína á Íslandi og í Íslenskri lögsögu.
Og hvað jú fylgið hrinur af Samfylkingunni og enginn er hissa nema Ingibjörg Sólrún og verður bara pirruð ef menn eru eitthvaðað spyrja hana út í loforðin og gengi flokksins
Þetta finnst mér.
![]() |
Bændur uggandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 18:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.5.2008 | 16:35
Meint lögbrot presta eiga ekki að heyra undir fagráð þeirra !!!
Maður skilur ekki alveg hvað þessum prestum gengur til í fagráði kirkjunar,þegar þeir vilja endilega vera varnaraðilar presta sem grunaðir eru um kynferðislega áreitni og kannski annað verra.
Svona fagráð er ekkert annað en bull, það eru hér stofnanir og Lögregla sem samkvæmt lögum eiga að sinna svona málum.
Ekki einhver hópur manna sem verja annan aðilan og gera hinn aðilan tortryggilegan.
Ef menn vita ekki hvaða ár er ,er árið 2008 og svona ráð á að leggja niður tafarlaust.
Það liðu t.d. 10 dagar frá því að mál prestsins á Selfossi kom upp þar til að það var ákveðið að kæra.
Búið að þvæla málinu í prestakerfinu áður en löggildir aðilar komu að málinu.
Þetta er bara ekki í lagi.
Þetta finnst mér.
![]() |
Fagráð ræddi ekki við meintan þolanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2008 | 18:35
Biskupinn er verndari kirkjunar og prestaskarans !
Karl Sigurbjörnsson Biskup hefur enga þekkingu til að vísa ábug ábendingum frá fagfólki hjá opinberum stofnunum um að fagráð á vegum kirkjunar sé að eyðileggja og skaða mál sem snúa að meintum kynferðisofbeldismönnum innan kirkjunar.
Sem verndari presta og kirkjunar finnst honum sjálfsagt að sitja alstaðar við borðið.
Það hafa komið einmitt upp mál áður sem fagráðið fór höndum um eins og í máli Ólafs Skúlassonar Biskups ,hann var bara ámynntur eftir að kirkjan skoðaði málið og hann var sendur úr landi í ákveðinn tíma.
Og málið dautt, En fórnarlömbin eru trúlega enn í sárum.
Þá sögðu sig úr þjóðkrikjunni þúsundir manna vegna afskipta kirkjunar af því máli.
Biskupinn er sennilega búinn að gleyma því.
Mér finnst þó þú sitjir í einhverjum fílabeinsturni sem andlegur leiðtogi þjóðkirkjunar þurfir þú að sjá lengra en nef þitt nær
Það er sama skítalyktin af þessu máli Biskup núna og áður ef kirkjan ætlar að eyðileggja þetta mál líka með sínum afskiptum.
Þetta finnst mér.
![]() |
Biskup: Afar þungbært |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2008 | 20:40
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson vissi einn Sjálfstæðismanna af ráðningu Jakobs Frímanns !!
Enn og aftur er það Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sem ekki segir félögum sínum í Sjálfstæðisflokknum frá áformum Ólafs F. Magnússonar, með ráðningu vinar síns Jakobs Frímanns í starf framkvæmdastjóra borgarmála.
Ef marka má ummæli Ólafs F. í Kastljósi í kvöld.
En enginn Sjálfstæðismaður vildi tjá sig við frétastofur. Nú eru Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á fundi og láta ekki ná í sig.
Því var hvíslað að mér að það væri verið að undirbúa að skipta Ólafi F. út og fá stuðning frá Óskari Bergssyni til að halda Sjálfstæðismeirihlutanum.
Þetta er bara að leysast upp í alsherjar klúður á öllum sviðum Borgarmeirihlutans, þar sem ekki er hægt fyrir þessa Borgarfulltrúa að vinna saman.
Þetta verður spennandi á næstu dögum.
Þetta finnst mér.
![]() |
Ráðning í samræmi við reglur Reykjavíkurborgar" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 56
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 44
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar