Færsluflokkur: Umræðan
27.4.2008 | 20:05
Engin mannréttindi fyrir Innflytjendur,Fatlaða eða Samkynhneigða !!
Borgarstjóri ætti að skammast sín alvarlega að tala svona niður til þessara hópa í þjóðfélaginu eins og hann gerði í fréttum í gærkvöldi, hópa sem þurfa uppbyggingu og mótvægisaðgerðum að halda og vinna þarf gegn staðalímyndum kynjanna.
Hann ætlar að leggja niður mannréttindaskrifstofu borgarinnar.
Málflutningur Borgarstjórans í fréttum í gærkvöldi eru byggðar á vanþekkingu á málaflokknum, fordómum og virðingarleysi gagnvart minnihlutahópum og borgarbúum öllum.
Efling mannréttindaskrifstofunnar snérist alls ekki um stjórnkerfi. Hún snérist um að ráða inn starfsfólk til að skrifstofan gæti sinnt þeim verkefnum sem henni ber samkvæmt mannréttindastefnu borgarinnar. Sú stefna var unnin í þverpólítískri sátt og samþykkt með öllum greiddum atkvæðum, þ.m.t. akvæði Ólafs F. Magnússonar.
Hvers virði eru atkvæði Olafs Friðriks Magnússonar þegar á reynir ? Mér finnst þau ekki hafa nein gildi.
Þetta finnst mér.
![]() |
Vilja ræða málefni mannréttindaskrifstofu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2008 | 17:56
Erum við að styðja hryðjuverkamenn ?
Nýlega var hér á landi Mahmoud Abbas , líka þekktur sem Abu Mazen, núna forseti Palestínu.
Ráðmenn héldu varla vatni yfir heimsókninni. En það er kanski allt í lagi að rifja aðeins upp blóðidrifna sögu PLO, (Palestinian Liberation Organization), en 1960 voru stofnuð samtök ýmissa lykilhópa Palestínumanna og var Arafat t.d. einn af stofnendum Fatah-hreyfingarinnar sem er hryðjuverkahópur sem hefur alla tíð síðan barist gegn ísraelskum stjórnvöldum eða í um 40 ár.
Frá Kaíró hélt Arafat til Kuwait og 1964 hélt hann til Jórdaníu til að stýra árásum al-Fatah á Ísrael. Sama ár voru Frelsissamtök Palestínu, PLO, (Palestinian Liberation Organization), stofnuð en þau eru samtök ýmissa lykilhópa Palestínumanna.
Sá hópur sem er í dag Hamas en Hamas, skammstöfun fyrir Harakat al-Muqawamah al-Islamiyyah (Arabíska: Íslamska andspyrnuhreyfingin), er klofningur út úr PLO og hafa þessir tveir flokkar Fatah flokkur Abbas og Hamas tekist á um aðferðir til að byggja upp hið Palestíneska ríki,.
Hamas vann kosningar síðast þegar kosið var og er með meirihluta á Palentískaþinginu.
Ísraelsríki, Bandaríkin, Evrópusambandið og fleiri lönd hafa skilgreint samtökin sem hryðjuverkasamtök
Arafat hafði forgöngu um það að Fatah varð meðlimur í PLO á sínum tíma
Arafat var fyrst kjörinn formaður framkvæmdastjórnar PLO og varð síðar yfirmaður hermála þeirra.
Í dag stýrir Mahmoud Abbas , líka þekktur sem Abu Mazen, hinum hófsamara armi PLO og er forseti Palestínu. Þetta heitir ekki lengur opinberlega PLO
Hann vann enga síður sem aðalráðgajfi Arafats í gegnum tíðina.
Hann hefur því alveg sömu blóðurgu hendurnar og fyrrum talsmaður PLO eða Arafat.
Hin armurinn er Hamas en það er hin hernaðarlegi armur eða í daglegu tali hryðjuverkasamtök.
Mér þótti því nokkuð skondið að sjá að pilsuföldum var lyft og heldrimanna viðbúnaður var á Bessastöðum 22. apríl er hryðjuverkahöfðingi var leiddur til háborðsins.
Ég sé ekki alveg hver munurinn er á þesu í dag og var fyrir einhverjum misserum nema að komin eru fínni orð um starfsemi PLO.
Erum við ekki að opna einhverjar bakdyr að landinum okkar með að gerast bandamenn vafasamra félagasamtaka.
Þetta finnst mér.
Umræðan | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2008 | 21:20
Bílstjórarnir eru búnir að drulla upp á bak !
Það er svo mikill fnikur orðin af þessum mótmælum að allir eru að forða sér frá þessum félagsskap
Samúð með Vörubílstjórum er alveg horfin í þjóðfélaginu, nú safnast bara með þeim skríll og unglingar og eru með skrílslæti og ofbeldi gegn lögreglu.
Engar raunhæfar kröfur hafa verið laggðar fram við stjórnvöld að hálfu vörubílstjóra, þeir hafa bara sýnt af sér ofbeldi og það er nú alltaf þannig að með ofbeldi það leiðir af sér meira ofbeldi.
Nú eiga þeir yfir höfði sér málaferli og fangelsisdóma allt að 8 árum.
Trúlega þurfa þeir líka að bera allan kostnað sjálfir af skemmdum á ökutækjum sínum í þessum ólöglegu mótmælum sínum.
Meira segja forustusveitin þykist ekki þekkja hvern annan, Sturla Jónsson sagðist ekki þekkja þennan mann sem réðst á kögregluna á Kirkjusandi.
En síðar kom í ljós að hann var í forustusveit vörubílstjóra . Þetta er nú samstaða.
Þetta finnst mér.
![]() |
Íhuga að kæra lögregluna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2008 | 10:33
Kalli Bjarni farinn úr landi !!!
Vinir og ættingjar eru áhyggjufullir. Hann er farinn úr landi trúlega til Noregs.
Það hefði betur verið gert sem ég lagði til hér í bloggi fyrir stuttu síðan að loka hefði átt Kalla Bjarna inni og henda lyklinum.
Nú segir frá því í DV í gær að Kalli Bjarni sé farinn úr landi.
En hann hefur udanfarið beðið afplánunar vegna fíkniefnabrota.Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness og slapp vel að mati lögmanns hans,
Kalli Bjarni átti að hefja afplánun sína í gær.
Allt bendir til þess að hann hafi fengið frestun á fangelsisvistinni því til hans sást í flugvél sem var á leið til Noregs í síðustu viku.
En fagmenn telja það mjög ólíklegt að maður með svona alvarlegan dóm hafi fengið frestun.
Er ekki eitthvað að að dæmdir menn geti bara farið út í heim og bara haldið áfram að haga sér eins og þeir vilja .
Afhverju eru þessir englar dauðans sem nást ekki settir í farbann ?
Þetta finnst mér.
Umræðan | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2008 | 14:49
Af hverju var ekki notað hláturgas ?
Vörubílstjórar ættu að sína smá biðlund, það er búið að óska eftir því við ESB að veittar verði undan þágur frá reglum bandalagsins vegna hvíldartíma. Þá er nefnd á vegum fjármálaráðherra að ljúka störfum um eldsneytisverð.
Þessi mótmæli vörubílsstjóra eru bara að verða alvarlega hlægileg. Þeir eru að mótmæla því að hafa hvíldartíma eins og annað fólk. Þeir eru að mótmæla of háu olíuverði þetta eru allt Disel bifreiðar. Sem er alveg rétt
Síðan eru sett í gang ólögleg mótmæli og allt fer úr böndum.
Síðan kemur bara skríll til að berjast með þeim klæddir í Nasistabúninga og kastað eggjum og grjóti í lögreglumenn að störfum.
Þjóðin stendur ekki lengur með þesum mönnum það sem þeir kalla þjóðina eru bara unglingar sem vilja eingvern hasar.
Þetta finnst mér.
![]() |
Lögregla beitir táragasi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2008 | 08:32
Ísland orðin ein helsta vígtönn NATO !
Þegar ljóst var að Ingibjörg Sólrún Gísladótttir yrði Utanríkisráðherra, bjuggust flestir við því að endurskoðað yrði ákvæði okkar Íslendinga sem ein af hinum staðföstu NATO þjóðum.
Flestir bjuggust við að nú yrði dregið úr þáttum okkar í stríðsreksti fyrir NATO og nafn Íslands yrði endanlega þurkað út af vafasömum lista sem Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson skrifuðu undir í nafni þjóðarinnar.
Margir héldu að með tilkomu Ingibjarga Sólrúnu í embætti Utanríkisráðherra yrðu breytingar á utanríkisstefnu í anda George W. Bush. sem sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafa svo lengi unnið eftir.
Loforðin frá foristu Samfylkingarinnar fyrir síðustu kosningar hafa bara verið kosningarbragð. Loforð um pólitískt samráð svikið, lítið bólað á afvopnunarboðskapi Samfylkingarinnar.
Það hefur heldur verið slegið í og unnið meira á forsentum NATO og unnið vel og örugglega að því að vígbúast að hætti NATO alla vega voru allar tillögur NATO á þotufundinum fræga samþykktar skilyrðislaust.
Þá ver ákveðið að auka áhrif íslands t.d. í Afganistan og senda þangað fleiri Íslenska menn þangað undir vopnum á vegum NATO.
Og mikil fagnaðarlæti brutust út hjá fultrúunum á fundinum í Búkarest yfir, uppsetningu bandaríska eldflaugavarnakerfisins í Mið- og Austur-Evrópu.
Menn tóku varla eftir því að Rússar sögðu þá upp samningum um takmörkun hefðbundins vígbúnaðar í Evrópu og boða viðbúnað af sinni hálfu.
Það eru fleiri þjóðir eru að vígbúast en Rússar, t.d. Kínverjar og Japanir.
Þessi stefna sem Ingibjörg Sólrún keyrir núna í utanríkismálum er ekki sæmandi friðelskandi lítilli þjóð.
Þetta finnst mér.
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2008 | 08:02
Útrás REI heldur áfram. Núna í Alaska !!!!!
Útrásin heldur áfram nú var verið að ganga frá undirbúnings verkefni í Alaska fyrir jarðvarmaveitu, sem mun knýa Álver og hitaveitu.
Hvað er bullukollurinn Kjartan Magnússon að rugla um sölu á REI ?
Fulltrúar Reykjavik Energy Invest (REI) fóru í síðustu viku til borgarinnar Anchorage í Alaska til að vinna að undirbúningi vegna hugsanlegs útboðs á jarðhitaréttindum.
Á sama tíma hefur stjórnarformaðurinn Kjartan Magnússon hefur verið að auglýsa REI til sölu.
REI hefur í samvinnu við Norðurál og Iceland America Energy kannað tækifæri tengd jarðhita í Alaska. Guðmundur segir að ein af þeim hugmyndum sem ræddar hafi verið sé að jarðhitavirkjunin muni knýja álver, auk þess sem heitt vatn muni fást fyrir hitaveitu.
Hvert er REI að fara ? Eða er það að koma ?
Er ekki nauðsynlegt að Kjartan Magnússon tali þannig að allir skilji. Og Þá líka þannig að Björn Bjarnasson sem aðrir Sjálfstæðismenn skilji.
Þetta finnst mér.
![]() |
Björn: Vandræðum OR sópað undir teppið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2008 | 15:07
Það vantar bara fleiri slys og helst dauðaslys !!!!
Ég er bara alveg gáttaður á þessari frétt um tvöföldun Reykjanesbautar.
"Framkvæmdir við þennan síðasta áfanga tvöföldunar Reykjanesbrautar eru á dagskrá eftir tvö til fjögur ár, að sögn Jónasar Snæbjörnssonar, svæðisstjóra Vegagerðarinnar.
Nú er breikkun brautarinnar frá kirkjugarðinum í Hafnarfirði og suður fyrir Krýsuvíkurvegamót, þar sem eiga að koma mislæg gatnamót, í umhverfismatsferli.
Kaflinn frá Krýsuvíkurgatnamótum og þangað sem tvöföldunin byrjar nú sunnan við Straum kemur þar á eftir. Jónas taldi að sá kafli gæti verið á áætlun á árunum 2010-2011 eða jafnvel síðar."
Stutt er síðan Samgönguráðherran gaf út að þessum framkvæmdum yrði hraðað.
Svo stoppar bara allt á Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er ekki eitthvað að stjórnsýslunni.
Það vantar bara fleiri slys og helst dauðaslys til að hreyfa við þessum ráðamönnum er ekki allt í lagi með þetta fólk.
Þetta er bara rosalegt.
Þetta finnst mér.
![]() |
Tvöföldun gæti dregist í 4 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2008 | 09:50
Ólafur F. Magnússon hótar stjórnarslitum !!!
Mikil fundarhöld eru núna á öllum vigstöðvum í Borgarstjórn Reykjavíkur.
Því framkoma Sjálfstæðisflokkins við samstarfsaðila í Borgarstjórn eru með eindæmum.
Minnihlutinn er að tala við borgarbúa í ráðhúsinu núna en mun funda saman eftir hádegi.
En fyrir fundinn í gær hjá REI sló Ólafur F. Magnússon í borðið þegar hann loks fékk að sjá þær tillögur sem Kjartan Magnússon huggðist leggja fyrir fundinn.
Neyðarfundi var komið á klukkutíma fyrir aðalfundinn til að breyta tillögu Kjartans Magnússonar.
Það er enginn þráður legnur milli Sjálfstæðisflokk og Ólafs F. Magnússonar það er bara tímaspursmál hvenær Ólafur F. Magnússon greiðir Borgarstjórnini náðarhöggið.
Þetta finnst mér.
![]() |
Tillaga um sölu á REI? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.4.2008 | 17:32
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokk í sjálfheldu !!
Fundi í Orkuveitunni var að ljúka og samþykkti meirihlutinn ótrúlega yfirlýsingu eftir 5 tíma þref.
Megin tilgangur Orkuveitu Reykjavíkur er að tryggja Reykvíkingum og öðrum notendum á heimamarkaði góða þjónustu á sem bestu verði en ekki að taka þátt í áhættusömum fjárfestingum erlendis.
En engin raunhæf tillaga var lögð fram um framtíðarsýn á REI.
Engin samstaða er um málefni REI innan Sjálfstæðisflokksins frekar en í haust sem leið.
Hvað var Kjartan Magnússon að gera eiginlega í Afríku annað en að auka áhættusama fjárfestingu þar.
Sem nú er verið að slá af.
Þetta finnst mér.
![]() |
Hörð gagnrýni á tillögu um REI |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 85236
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 45
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar