Færsluflokkur: Umræðan
Borgfulltrúi Sjálfstæðisflokksins Kjartan Magnússon talar þvert á allar fyrri samþykktir Sjálfstæðismanna um REI og OR.
Í samkomulagi sem hann stóð að og allir Borgarfulltrúarnir um að REI og OR yrðu alltaf almenningshlutafélög var bara orðaleikur.
Þessar yfirlýsingar í samstarfssamningi Ólafs F. Magnússonar og Sjálfstæðisflokksins um að fyrirtækin OR og REI yrðu í almannaeign var bara kjaftæði.
Nú þarf Ólafur F. Magnússon Borgarstjóri og verkstjóri Borgarstjórnar að skýra út fyrir almenningi þeim sem eiga REI og OR hvert sé verið að stefna ?
Hvað er um að vera í þessum hlandkoppi Sjálfstæðismanna Borgarstjórn ?
Þetta finnst mér.
![]() |
Skoða aðkomu fjárfesta og halda áfram verkefnum REI |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 08:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2008 | 08:18
Samúð mín er hjá Vestmannaeyingum !
Vestmannaeyingar eiga á brattan að sækja vegna samgöngumála hjá stjórnvöldum.
Sér í lagi er það erfitt hjá þesssum Samgöngumálaráðherra sem nú ríkir.
Hann hefur nefnilega ekki neinn áhuga fyrir neinum úrbótum eða lagfæringum á Suðurlandi, enda ekki hans kjördæmi.
Ég er alveg sammála þeim aðilum sem eru á móti Bakkafjararhöfn, það er bara ekki alveg í lagi með þá hugmynd fyrir utan þá hina gíkatísku viðhaldsþörf á hafnarmannvirkum.
Stærri og betri ferja er það sem allir sjá að er það rétta og ódýrast. Vonandi að það verði þá sendir einhverjir sem vit hafi á ferjum í ferjukaup......ekki grímseyjarferju gengið....
35 % eyjaskeggja hafa skrifað undir mótmæli en það er verst að Kristján Möller fer ekkert eftir óánægju Sunnlendinga í samgöngumálum.
Þetta finnst mér.
![]() |
Nýr Herjólfur mun betri kostur en Bakkafjöruhöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.4.2008 | 20:07
Annar Pólskur morðingi í fullri vinnu á Íslandi !
Guðamaðurinn og gítargaularinn Guðlaugur Laufdal veitti tveimur Pólverjum húsaskjól öðrum morðingja Slawomir Sikora og hinum meintum morðingja Premyslaw Plank sem búið er að handtaka núna.
Frétt um þetta er á vísir.is í dag.
Ætli vegir guðs séu malbikaðir ? Guðamaðurinn veit það trúlega ?
Pólverjarnir Slawomir Sikora og Premyslaw Plank voru þar til nýlega báðir leigjendur hjá Guðlaugi Laufdal athafnamanni og þáttastjórnanda á sjónvarpstöðinni Ómega.
Guðlaugur er líklega þekktastur fyrir þætti sem hann var með á sjónvarpsstöðinni Ómega fyrir nokkru en þá fékk hann viðurnefnið trúaði trúbadorinn.
Mér finnst það persónulega ekki réttnefni. Það vantar töluvert á að hann sé trúbador.
Hin Pólverjinn Slawomir Sikora steig svo fram í gær og sagði frá því að hann væri á flótta undan Premyslaw Plank þeim sem var handtekinn í gær.
Slawomir Sikora varð mjög frægur árið 1994 en þá myrti Sikora nefnilega tvo glæpamenn úr pólsku mafíunni sem reynt höfðu að kúga af honum fé.
Málið vakti mikla athygli í Póllandi og gerð var kvikmynd sem byggð var á sögu Slawomir Sikora. Myndin hlaut nafnið Dlug eða Skuld.
Viljum við hafa svona fólk hérna ? Ég held ekki .
Þetta finnst mér.
![]() |
Leiddur fyrir dómara í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hver anskotinn gengur á, hún vill bara að almenningur borgi fyrir fjárfestingafylleríið á bankaútrásinni.
Já leggja bara meiri álögur á hina vinnandi stéttir, öryrkjana ellilífeyrisþegana.
Því það þarf að borga til baka þessa hundruðir miljarða sem á að fá lánaða ekki satt.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra slær því föstu í samtali við danska blaðið Berlingske Tidende að allir bankar landsins geti reiknað með stuðning frá ríkisvaldinu ef þeir lenda í vandræðum.
Þotudrottningunni finnst betra að tjá sig erlendis um fjármálakreppuna á Íslandi heldur en að gera eitthvað í málunum hér heima.
Á bara að tala og tala og tala þar til allt stöðvast og heimilin fari endanlega á hausin ?
Ábyrgðaleysi ríkistjórnar og Seðlabankans er bara ótúrlegt.
Þetta finnst mér.
![]() |
Stjórnvöld styðja bankana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 12:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2008 | 15:04
Mikið ósætti er innan stjórnarflokkana !
Þó varla slitni slefan á milli þeirra, sem í sjálfri ríkisstjórninni sitja.
Er annað upp á borðinu hjá þingflokkunum og hinum ýmsu nefndum.
Þar er allt upp í loft út af frumvarpi Björns Bjarnarssonar með málefni löggæslunar á Keflavíkurflugvelli.
Þá situr allt fast í nefnd um breytingar á líferismálum þingmanna.
Orkulög eru föst í nefnd.
Breytingar á lögum um Háskólana er föst í nefnd.
Ágreiningur er um forgangsröðun í vegagerð og þar með sundarbrautarverkefnið.
Það er hægt að telja upp endalaust.
Fyrir utan það eru ráðherrar þessara ríkistjórnar mest lítð hérlendis til að fylgja eftir þessum málum og kalla eftir að málin fái afgreiðslu úr nefndum.
Það er mun skemmtilegra að vera á gengdarlausu og tilefnislausu flandri út um allan heim.
Þetta finnst mér.
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2008 | 10:56
Áskorun til allra Alþingismanna !!
Sameinist um að breyta lögum um Seðlabanka Íslands.
Og afnemið hina pólitísku stjórn Bankans.
Bankastjórn er : Davíð Oddsson formaður.
Eiríkur Guðnasson
Ingimundur Friðriksson
Einu sinni var Seðlanbankinn í skúffuformi í Landsbankanum.
Og Bankaráð Seðlabankans , sem er bara barn síns tíma þarf að leggja af.
Bankaráðið er skipað þessum:
Haldór Blöndal formaður
Jón Sigurðsson varaformaður
Erna Gísladóttir
Hannes Hólmsteinn Gissurarsson
Jónas Hallgrímsson
Sigríður Ingijörg Ingadæottir
Þar sitja menn og konur sem enga menntun hafa í Fjármálafræðum eða Hagfræði, þar eru líka þingmenn stjórnmálaflokka sem hættir eru störfum en hefur verið troðið þarna vegna flokkgæðingaháttar.
Breytið lögum sem sett voru 2001 af þáverandi stjórnarflokkum sem veittu Seðlabankanum alræðisvald í peningamálum, vaxtamálum, verðbólgumarkmiðum.
Þetta virkar ekki í dag að stjórnamálamenn stjórni svona stofnun eins og Seðlabankanum í anda liðinar tíðar.
Þessi Seðlabankastjóri sem nú ræður er búinn að tapa trúverðuleika fjármálastofnana hérlendis og erlendis.
Það er bara rosalegt.
Þetta finnst mér.
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.4.2008 | 08:34
Líkur eru á hriðjuverkárás á Danmörk !
Eftir upplýsingurm frá leyniþjónustu Danmerkur PET eru upplýsingar þannig að herskáir hriðjuverkamenn beini nú augum sínum að Danmörku. Og dönskum þegnum víða um heim.
Talið er að aukna hryðjuverka hættu megi helst rekja til umdeildra teikninga af Múhameð spámanni sem birtar voru árið 2005. Þær voru endurbirtar fyrr á þessu ári.
Osama bin Laden og Ayman al-Zawahiri voru lítt hrifnir af Múhameðsteikningunum.
Það er mín skoðun að við eigum að láta þessar viðvaranir PET okkur varða líka.
Þetta finnst mér.
![]() |
Aukin hryðjuverkahætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2008 | 09:14
Auðvitað áttar Samfylkingin sig á málinu Björn !!
Björn Bjarnarsson hefur ekki neinar áhyggjur af því ennþá að Samfylkingin styðji ekki frumvarp hans og breytingar á starfsemi lögreglu - og tollvarða á Keflavíkursvæðinu.
Og hann þarf þess ekki að hafa neinar áhyggjur, því Samfylkingin samþykkir allt sem Sjálfstæðisflokkurinn ber á borð fyrir Samfylkinguna.
Samfylkingin virðist vera jafnleiðitöm og forverar hennar Framsóknarflokkurinn í síðustu ríkistjórn.
En svona eru bara pólitískarhækjur það þarf að vera hægt að nota þær.
Björn væntir þess að Samfylkingarmenn átti sig í málinu.
Í viðtali við visir.is 9.apriíl segir hann m.a.:
Ég hef í sjálfu sér ekki heyrt neinar tillögur um annað frá Samfylkingunni eða einstökum þingmönnum hennar heldur hitt, að þeir vilji meiri tíma og betri rök. Þetta eru eðlileg viðbrögð stjórnmálamanna við máli, sem þeir hafa ekki kynnt sér til hlítar.
Já Björn Bjarnarsson er klár og þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu.
Samfylkingin áttar sig fljótlega á því hver ræður.
Þetta finnst fér.
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2008 | 08:15
Stendur Rússneska "mafían" bak við olíuhreinsunarstöðina ?
Það er nú dállítið dularfullt að ekki fæst upp gefið hvaða fyrirtæki það eru sem eru að hugsa um olíuhreinsistöðina á Vestfjörðum.
Það kallar á spurningar um að þar séu á ferðinni einhver fyrirtæki sem tengd eru vafasömum viðskiptaháttum ?
Íslenskur hátækniiðnaður, sem unnið hefur að kynningu olíuhreinsunarstöðvar hér á landi, segist ekki geta gefið upp á þessari stundu hvaða olíufyrirtæki séu að baki hugmyndinni um olíuhreinsunarstöðina.
Allir sem talað hefur verið sem eru þekktir í þessum bransa, neita að eiga einhvern þátt í þessum hugmyndum um olíuhreinsistöð.
Helst er stefnt á að hafa stöðina í Arnarfirði eða á Söndum í Dýrafirði.
Þetta eru bara landráðamenn sem hugsa svona um náttúruperlur Íslands.
Ég held að þetta sé bara hugarfóstur Ólafs Egilssonar , það séu engir fjárfestar konir að þessu enþá.
Þetta finnst mér.
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2008 | 08:28
Er Baugur að fara úr landi ?
Á visir.is og í Fréttablaðinu er greint frá miklum breytingum á starfsemi Baugs.
Nú er eitthvað mikið að gerast hjá Baugi. Það er verið að losa um flesta hluti sem ekki er hægt að nota erlendis. T.d. þessi Íslensku fyrirtæki í fjölmiðlageiranum,fjármálastarfsemi á Íslandi og fl.
Ég er alveg viss um að Baugur er að fara úr landi með höfuðstöðvar sínar.
Mál Baugs verður tekið fyrir hjá dómsstólum í mánuðinum.
Þeir ætla ekki að standa í þessu meira. Þeir eru vissir um að það verður allt gert til að fá þessa menn sakfelda. Já jafnvel fyrir að hafa tekið óvart bensín á vitlaust kort.
Þeir ætla að vera viðbúnir þessu og flytja fjárfestingarfyrirtækin úr landi og önnur bitastæð fyrirtæki.
Ríkið á eftir að verða af miljörðum króna þegar Baugur kveður. Þvílík hefur framkoma ríkisins verið.
Ég veit að þetta er sett upp á einfaldan máta , en það er oftast réttast.
Þetta finnst mér.
Umræðan | Breytt s.d. kl. 08:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 57
- Frá upphafi: 85236
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 45
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar