Færsluflokkur: Umræðan
7.4.2008 | 08:38
Þau vilja ekki lækka eldsneytisverð !!!!
Í Silfri Egils í gær voru þingmennirnir Illugi Gunnarsson, Álfheiður Ingadóttir. Kristinn H Gunnarsson og ráðherrann Þórunn Sveinbjarnardóttir spurð hvort þau mundu vilja lækka eldsneytisverð.
Öll svöruðu þau neitandi nema Kristinn H Gunnarsson. Enginn fulltrúi í umræðunum var frá Framsóknarflokki.
Miðað við þessar yfirlýsingar er alveg úti lokað að eldsneytisverð verði lækkað.
Þetta þýðir í raun að Alþingismenn eru í meirihluta að lækka ekki eldsneytisverð.
Þannig að aðgerðir Vörubílstjórana er bara misheppnuð aðgerð því miður og almennings álitið hefur snúist þeim í óhag vegna aðgerða þeirra sem eingöngu hefur beinst að hinum almenna borgara ekki ráðamönnum.
Þeir eru bara á núllpunti ennþá þeir hafa ekki náð til ráðamanna, því þeir hafa ekki mótmælt við ráðamenn ennþá. Svo það gagnast nú lítið að kaupa fleiri háværar flautur á bílana.
Þetta finnst mér.
![]() |
Bílflautur seldust upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.4.2008 | 11:53
Við hverju bjuggust Vörubílstjórar eiginlega !
Talsmenn Vörubílstjóra virðast mjög hissa á að engin niðurstaða skuli hafa orðið á fundi með Samgönguráðherra.
En það varð smá árangur hann ætlar að mælast til þes að vörubílstjórar verði ekki sektaðir meðan verið er að finna lausn á þessum málum.
Nú er komin tími fyrir þessa Vörubílstjóra og lúxus jeppa eigendur sem fá eldsneyti 12 -20 krónum ódýrara en almenningur að hætta að níðast á almenningi með lokun á helstu umferðaræðum þegar fólk er að fara í vinnu.
Það er dregið af fólki laun ef það mætir of seint, fólk missir tíma hjá læknum sem búið er að bíða í margar vikur jafnvel mánuði eftir að fá, fólk misti af tengiflugi erlendis sv eitthvað er nefnt.
Árna Mathiesen og öðrum ráðherrum þessarar ríkistjórnar er alveg sama um almenning.
Þeim er ekki sama um ef þeir komast ekki á fundi eins og t.d. á morgun ætlar Einar K. Guðfinnsson til Færeyja frá Reykjavíkurflugvelli.
Stjórnarráðið, ráðuneytin, Alþingishúsið,Hæstiréttur, Hérðsdómur, aðal birgðastöðvar Olíufélagana,skrifstofur Olíufélagana er vettfangur sem vörubílstjórar ættu að líta til þar eru þessir aðilar sem ákvarða um álögur og skatta. Ekki hin almenni borgari.
Þetta finnst mér.
![]() |
„Við erum bara sektaðir“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2008 | 16:22
Ráðherrann ræðst núna á bændur !!!!
Einar K. Guðfinnsson Landbúnaðar - og Sjávarútvegsráðherra skar á alla þætti fiskvinnslu og gerði fjölda sjómanna atvinnulausa með niðurskurði á kvóta, fyrir skömmu síðan.
Nú er komið að bændum. Nú er á borðinu frumvarp til laga um nýja matvælalöggjöf ef frumvarpið verður að lögum, verður leyfilegt að flytja hrátt kjöt inn í landið.
Einar segir þetta frumvarp gjörbreyta íslenskum landbúnaði og hafa mikið að segja fyrir neytendur. Löggjöfin sé neytendavæn sem hafi það markmið að leyfa innflutning á hráu kjöti til landsins.
Ég tek undir með Einari K Guðfinnssyni að þetta er tímamótafrumvarp því hefðbundinn landbúnður leggst af.
En hvað með dýrasmitsjúkdóma sem geta falist í hráukjöti. Við höfum verið laus við marga rosalega sjúkdóma áratugum saman og suma höfum við aldrei fengið.
En nú á að opna fyrir þá lei inni í landð.
Íslenskur hefðbundin landbúnaður á í vök að verjast og þetta frumvarp mun ganga frá honum.
Það verður gaman fyrir Einar K. Guðfinnsson að lesa annál þessa tímabils sem hann var ráðherra og sjá hvaða afrek hann hefur gert íslensku atvinnulífi, með að leggja niður burðarásir í íslenskum atvinnugreinum í stórum stíl.
Ef þetta frumvarp verður að lögum mun hefðbundinn landbúnaður leggjast af en heildsalar og innflytjendur munu gildna.
Matvælaverð mun lækka meðan frumvarpið er að slípast til og menn að finna hagstæðustu túlkanirnar.
Síðan mun allt hækka og tiltekið að fóður hafi hækkað erlendis, aðföng og launakosnaður, og eldsneytisverð hefur hækkað erlendis, fluttningskostnaður og fl. og fl bara sagan endalausa nema nú verðum við háð erlendri matvælaframleiðslu.
Því bændur hér á Íslandi munu ekki geta keppt við erlenda matvælaauðhringa.
Þetta finnst mér.
![]() |
Landbúnaðarráðherra boðar tímamótabreytingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.4.2008 | 12:21
Lögregla hunsar tilmæli Ríkissaksóknara vegna töku þvagsýna !
Ríkissaksóknari hefur óskað eftir því við lögreglu að hún afli einugis vottorða um magn ávana- og fíkniefna í blóði einstaklinga.
Þegar grunur fellur á menn og konur sem aka undir áhrifum. Það kom fram í sjónvarpi í gærkvöldi að t.d. íþróttamenn meiga ekki borða rúnstykki með byrki áður en þvagsýni er tekið úr þeim.
Því þá mælist eiturefni sem skylt er valmúa eða ópíumjurtinni en byrkifræ eru úr þeim stofni.
Þrátt fyrir það hafa mörg embætti gefið út ákærur byggðar eingöngu á niðurstöðum þvagsýna.
Þeir hafa komist að þeirri niðurstöðu, að menn séu undir áhrifum, þó að þeir séu það í raun ekki, segir Brynjar Níelsson lögmaður sem hefur verið manna ötullastur við að benda á þann galla á umferðarlögum, að hægt sé að sakfella ökumann fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þegar aðeins finnast umbrotsefni fíkniefna í þvagi sem bendir til að viðkomandi hafi neytt fíkniefna einhverju sinni, en ljóst að hann sé ekki lengur undir áhrifum "
"Héraðsdómur Vestfjarða sýknaði um miðja viku tvo menn af ákæru um akstur undir áhrifum fíkniefna, þrátt fyrir að umbrotsefni kannabis hafi fundist í þvagi þeirra. Er það í fyrsta skipti sem menn eru sýknaðir í slíkum tilvikum. Í tilefni af frétt um málin, sem Morgunblaðið birti sl. fimmtudag, sendi fulltrúi sýslumannsins á Suðurlandi blaðamanni tölvupóst. Þar kemur eftirfarandi fram: "
Þessir tveir dómar Héraðsdóms Vestfjarða eru mjög skrýtnir og alls ekki í samræmi við ríkjandi dómaframkvæmd í þessum efnum. Hér hjá okkar embætti hafa ca. 140 mál sem varða akstur undir áhrifum fíkniefna verið rekin fyrir héraðsdómi frá því að lagabreytingar urðu með lögum nr. 66/2006. Í allnokkrum þessara mála mældust aðeins fíkniefni í þvagi ökumanns. Í öllum þessum málum hafa ákærðir verið sakfelldir og ökuleyfissvipting jafnframt dæmd.
Þetta er bara ótrúlegt að menn skuli vísvitandi hunsa ráðleggingar þeirra sem þurfa að síðan að sækja mál á hendur grunuðum einstaklingum, með kannski ónýt gögn í höndunum.
Þetta finnst mér.
![]() |
Álit ríkissaksóknara hunsað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Breytt s.d. kl. 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2008 | 09:15
Þúsundir munu yfirgefa Samfylkinguna á næstu dögum og vikum !
Samfylkingin komst til þeirra valda sem hún er í dag með því að vera sá flokkur sem var andstæða Sjálfstæðisflokksins. Andstæðu turnarnir tveir.
Samsíða turnar í dag og annar fallandi.
Þjóðfélagið lék á reiðiskjálfi eftir fræga ræðu Ingibjargar Sólrúnar í Borgarnesi.
Kjörorðið Hreina Ísland var magnað upp til að ná atkvæðum af VG og fl sem umhverfismál voru í miklu fyrirrúmi hjá.
Hvíla átti stóryðjuna og hætta virkjunum næstu 10 árin.
Kaffibandalagið stofnað af heilindum stjórnarandstæðinga þá, nema augsýnilega Samfylkingin meinti ekkert af sínum kosningamálum, það var bara allt plat.
Sollu-brella .
Öll sú kjölfesta sem Samfylkingin byggði á er orðin að vörn um spillingu. Pólitískar ráðningar, virkjanir, stóriðja, atvinnuleysi hjá sjómönnum og fiskvinnslufólki, hernaðarvæðing sem aldrei fyrr, svo eitthvað sé nefnt.
Það sem er verið að gera eftir stefnuskrá og loforðum Samfylkingarinnar er í flestum tilfellum of stutt gengið og bara sýndarmennska.
Vonandi fáum við skoðanakönnun eftir helgi með fylgi flokkanna.
Þetta finnst mér.
![]() |
Umhverfisráðherra brást hlutverki sínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.4.2008 | 08:08
Það er aldeilis þeytingur á kerlingunni.....
Ingibjörg Sólrún fer til Bandaríkjana 11.apríl .n.k. til að hitta Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Trúlega verður þotan góða notuð aftur því þetta er svo ódýrt og svo cool að ferðast svona.
Þyrfti ekki Ingibjörg Sólrún að fara líka í brúnkumeðferð eins og hinar stjörnurnar ?
Trúlega fer Geir ekki með henni, hann er víst búin að bjóða hudruðum franskra flugvéla til æfinga í Keflavík seinna í mánuðinum.
Ætli Utanríkismálanefnd viti nokkuð um þetta ?
Þetta finnst mér.
![]() |
Utanríkismálanefnd Alþingis sniðgengin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég var ákafur stuðningsmaður aðgerða vörubílstjóra fyrst til að byrja með.
En eftir að hafa séð mótmæli þeirra í gær og þar sem lúxuskerrur á stæstu dekkjum sem til eru og eru mjög mengandi í fararbroddi fyrir mótmæum um hátt eldsneytisgjald þá fannst mér þetta ekki vera þeim til framdráttar.
Svo er líka þetta tal ráðherra blaðskellandi og hlæjandi að þessum aðgerðum sína hvað þeir líta málið alvarlega eða hitt þó heldur. Þeir ætla ekki að gera neitt.
Nei vörubílstjórar þurfa að breyta aðgerðum sínum. Þessar aðgerðir í morgun við kúagerði beindust einungis að fólki sem kemur þessu máli ekkert við.
Og sumt af þesu fólki varð fyrir seinkun og tapaði tengiflugi annarstaðar í heimnum og það eitt kemur hækkun eldsneytisverðs hér á Íslandi ekki við.
Þeir gætu alveg eins lokað fyrir aðkomu fólks á sjúrkahúsin.
Hversvegna loka bílstjórar ekki aðkomu stjórnmálamanna í Stjórnarráðið, Aþingi og í ráðuneytin.
Loka fyrir aðgengi til og frá heimilum ráðherranna og Alþingismanna bara svo eitthvað sé nefnt. Eitthvað sem kemur við kaunin á þeim sjálfum.
Þeim er alveg sama um almenning.
Ég er alveg sammála mönnum um að eldsneytisverð verði að lækka, en þessar aðgerðir eru að snúast gegn vörubólstjórum sjálfum.
Þetta finnst mér.
![]() |
Mestu tafir hingað til |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
1.4.2008 | 08:27
Er háskólarektor gunga ?
Kristín Ingólfsdóttir háskólarektor er sjálf að fara að dæma í máli Hannesar Hólmsteins, sem búið er að dæma í.
Það liggja fyrir niðurstöður frá Hæstarétti og Hannes Hólmsteinn er sekur fundinn.
Hvers vegna er Hannesi ekki vikið frá meðan rektorinn er að skoða pólitískan hug sinn?
Kannski að foringinn sem réði hana hafi hringt í hana?
Hvaða trúverðuleika hefur Háskóli sem vill verða í hópi þeirra bestu að hafa innan sinna vébanda dæmdan ritstuldarprofessor ? Ég bara spyr .
Þetta finnst mér
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2008 | 10:14
Lokið "helvítið" inni og hendið lyklinum !!!
Kalli Bjarni Idolstjarna var einu sinni fyrirmynd ungs fólks, núna engill dauðans en það eru þeir kallaðir sem sjá um sölu og dreifingu eiturlyfja.
Frá þessu segir á forsíðu DV í dag og inn á visir.is í dag.
Var handtekinn á föstudaginn ásamt samstarfskonu sinni.
Þar veitti Kalli Bjarni og vinkona hans mótspyrnu við handtöku þegar þau voru sett í járn. Ætli hann hafi fengi þetta efni fyrir að hilma yfir þá sem fjármagna eiturlyfjakaupin.
Ég held að sjónvarpstöðvarnar ættu að láta það vera hér eftir að taka svona fólk í einhver drotningarviðtöl eins og var gert hér forðum daga.
Hann kann augsýnilega ekki að skammast sín.
Þetta er bara rosalegt. Lokið þennan mann inni og hendið lyklinum segi ég.
Þetta finnst mér.
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2008 | 11:35
Borgaryfirvöld ættu að hlusta á Ísleif Jónsson !
Ísleifur Jónsson verkfræðingur, er án efa einn reyndasti sérfræðingur Íslands í bortækni.
Það er nefnilega það að hafa mannvirkin undir bergi sem er ekki næginlega gamallt og þétt til að halda sjávarþrýstiginum ofan ganga er bara umhugsunarvert.
Vonandi verður ákvörðun um Sundabraut bara frestað þar til ný borgarstjórn hefur verið kosin í næstu kosningum.
Þessi meirihluti er bara ekki að starfa saman að neinum málum, þau eru bara í innbyrðisátökum. Meðal annars um Sundabraut.
En hugmyndir Ísleifs Jónssonar eru mjög áhugaverðar finnst mér.
Þetta finnst mér.
![]() |
Varar við Sundagöngum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Umræðan | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Guðmundur Óli Scheving
Tenglar
Mínir tenglar
- http://radtak.blogcentral.is/ Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir
- http://tidarandinn.blogcentral.is/ Bara hin hliðin á mér
Bloggvinir
-
annaeinars
-
arikuld
-
arndishauks
-
utvarpsaga
-
reykur
-
kaster
-
birgitta
-
gattin
-
brylli
-
dansige
-
danth
-
egvania
-
finni
-
gelin
-
gudbjorng
-
straumar
-
hallkri
-
heidistrand
-
hlf
-
heimssyn
-
snjolfur
-
don
-
fridust
-
jakobjonsson
-
jenje
-
jon-o-vilhjalmsson
-
prakkarinn
-
juliusbearsson
-
larahanna
-
veffari
-
olinathorv
-
omarragnarsson
-
svarthamar
-
skari60
-
fullvalda
-
nimbus
-
sigurjonth
-
tara
-
vga
-
thj41
-
heilsa
-
kilopapa47
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar