Færsluflokkur: Umræðan

Verður vinaráðning í embætti Ríkisendurskoðanda í sumar ?

Sigurður Þórðarsson hefur óskað eftir því í bréfi til Forseta Alþingis að láta af störfum 1.júlí n.k.

Sigurður Þórðarsson er einn af fáum embættismönnum, sem ég ber mikla virðingu fyrir.

Hins vegar er ekki hægt að segja það sama, um þann embættismann sem er Forseti Alþingis.

Sá maður var ráðherra sem var búin að skanelera í ferjukaupum og fl. og var síðar settur í þetta embætti.

Þessum manni treysti ég ekki til að ráða embættismenn til starfa á faglegum nótum.

Reynslan sýnir bara að foringinn í baksætinu ræður og þannig held ég að verði í sumar.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ríkisendurskoðandi óskar eftir lausn frá starfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Mathiesen veður skítinn upp að öxlum !

Hversvegna er ekki Árni Mathiesen settur af sem ráðherra.

Mér finnst Árni Mathiesen algjörlega siðblindur eða bara nautheimskur.

Er ekki forsætisráðherran verkstjóri ríkistjórnarinnar ?Yfirleitt er það þannig almennt séð þegar menn standa sig ekki eru menn látnir fara.

En Forsætisráðherran vill ekkert segja um málið.

Í fréttablaðinu í dag er sagt frá að ein af röksemdum Árna Mathiesen fyrir ráðningu Þorsteins Davíðssonar hafi verið að Þorsteinn Davíðsson var varamaður í nefnd sem aldrei hefur starfað.

Lögfræðingar og þingmenn hafa lýst furðu sinni á árás Árna Mathiesen  á umboðsmann Alþingis.

Svo höfum við annan svona svipaðan og Árna ,en hann er Forseti Alþingis en honum ber að verja starfsmenn sína eins og Umboðsmann Alþingis.

Hann lætur ekki ná í sig og svarar ekki fyrirspurnum frá fréttamönnum.

Það verður að setja þennan Árna Mathiesen af ,hann er ekki hæfur í því starfi sem hann er í núna.

Þetta finnst mér.


mbl.is Telja að ráðherra eigi að biðja umboðsmann afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg ósvífni !

Ótrúleg ósvífni Ferðaskrifstofa og flugfélaga að hækka fargjöld strax á ferðum sem búið er að greiða.

Fólk sem er að fara erlendis á árinu er að fá auka reikninga vegna eldsneytishækkana að undan förnu.

Skrítið að ekki skuli vera beðið með þessa hækkun þar til seinna.

Eða þegar fólk er komið í startholurnar með að fara í ferðina.

Ætla þessi fyrirtæki að endurgreiða fólki ef eldsneytisverð lækkar ? Ég held ekki .

Þetta er bara rosalegt. Löglegt en siðlaust.

Þetta finnst mér.


mbl.is Eldsneytisgjald bætist við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversvegna er ekki forstjóri OR rekinn ?

Orkuveita Reykjavíkur gerði tilboð í hlut Hafnarfjarðar í Hitaveitu Suðurnesja  og var Hjörleifur Kvaran einn þeirra aðila sem útbjuggu samninginn enda löglærður.

Frétt er um þetta mál á visir.is í dag.

Hins vegar brjóta samningarnir við lög að mati Samkeppnisstofnunar og er verið að úrskurða í andmælarétti sem OR hefur lagt fram og er til meðferðar hjá Samkeppnisyfirvöldum.

Þessi sami Hjörleifur Kvaran átti stóran þátt í kaupauka - og kaupréttarsamingum OR og REI á sínum tíma.

Hann var ráðgjafi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar í ógleymanlegu klúðri.

Og  núna eiga eigendur OR yfir höfði sér að tæplega 15 prósenta hlutur í hitaveitunni  sem hefur verið metinn á 7,6 milljarða króna. 

Er komin á gjalddaga, sem var 12 mars s.l.

Og miðað við að dráttarvextir eru nú 25 prósent gætu vaxtagreiðslur numið allt að 1,9 milljörðum á ári, eða 158,3 milljónum á mánuði.

Það gerir 5,2 milljónir á dag.

Hvað á þessi maður sem mér virðist aldeilis óhæfur að fá að skanderlera lengi enn ?

Ég Reykvíkingar og aðrir eigendur í OR að súpa seiðið af endalausum mistökum sömu manna í stjórn OR ?

Þetta finnst mér.


Góður árangur lögreglu í miðbæ Reykjavíkur !

Það er hefur ekki farið framhjá neinum að átak hefur verið hjá Lögreglunni í Reykjavík, um að fólk gangi vel um og hætti að míga út um allt.

Og voru slík brot aðeins 18 í febrúar s.l.

Batnandi mönnum er best að lifa.

Það hefur rosalega mikið að segja að vera með háar sektir. Það skilar sér.

Þeir þora varla að míga upp við vegg sóðarnir í borginni um helgar,

Þetta finnst mér.


Froðusnakk Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar !

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson tjáir sig um sprautufíkla og ofbeldið í hverfinu sem hann býr í viðtali á visir.is gær.

Hann er fyrrverandi Borgarstjóri og formaður Borgraráðs. Ef einhver veit það ekki.

Það er í raun dapurlegt að heyra þennan mann tala á þeim nótum sem hann talar.

En Reykjavíkurborg undir hans forustu hefur ekki komið á neinni aðstöðu fyrir þetta fólk.

Eða verið með fyrirgreiðslu fyrir þetta fólk sem svona er komið fyrir.

Reykjavíkurborg hefur dregið úr fjárveitingum til Götusmiðjunar, til SÁÁ  og hætti alveg að aðstoða þetta fólk þegar Byrgið var lagt niður.

Það er því makalaust að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson skuli vera að tjá sig um þessi mál og vera búinn að hafa og hefur alla möguleika á að gera eitthvað í málunum, en gera ekkert annað en tala um málin, það er bara froðusnakk.

Það  á að láta verkin tala sagði þessi sami maður við kjósendur enn og aftur.

Það hefur ekkert skeð ennþá það er bara Vilhjálmur Þ. sem talar.

Þetta finnst mér.


Erlendar glæpaklíkur hafa fengið að starfa hér óáreittar !

Er Ísland að verða eitt besta góssenland fyrir alskonar glæpaklíkur? Ég held það. 

Nýasta dæmið er um hrottalegar innheimtur í breiðholtinu, þar sem fólk sem hefur heiðarlega atvinnu er barið til óbóta af fólki frá sama landi, sem vill fá hlut í tekjum þeirra.

Fyrir nokkrum dögum komst upp um erlenda eigendur veitingahúss í Reykjavík sem grunaður er um mansal á fólki frá sama landi.

Og hefur greitt þessu fólki sem hann hefur lokkað til landsins smánarlaun.

Þá réðst glæpagengi á lögreglumenn að störfum og slasaði nokkra þeirra.

Allar fangageymslur voru fullar um páskahelgina og þótti fréttnæmt á Ríkisútvarpinu að það voru allt útlendingar.

Nei er ekki komið að því að óska eftir að sakaferilsskrá fylgi með öllum útlendingum og hún sannreynd þegar fólk kemur hingað í atvinnuleit.

Það verður að taka hausinn upp úr sandinum og stöðva þetta hrikalega ofbeldi, þetta er áskorun til stjórnvalda.

Vísa skal frá landinu öllum þeim sem hafa fengið dóma á sig vegna ofbeldis, mansals,morða, rána og peningaþvættis.

Þetta finnst mér.


mbl.is Úrskurðaðir í gæsluvarðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Senda á glæpamenn til síns heima !

Það er alveg furðulegt að dæmdir ríkisborgarar frá öðrum löndum, en Íslandi skuli ekki verða reknir úr landi.

Einn af árásarmönnum á fíkniefnalögregluna í janúar sl.var handtekinn ásamt öðrum Litháa  á skemmtistað með E- töflur til sölu.

Það er verið að skoða dóminn yfir þessum glæpamönnum,með það fyrir augum að áfrýja til Hæstaréttar.

Það ætti að drífa í því.

Þetta finnst mér.


mbl.is Maður sem sló lögreglumann tekinn með fíkniefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Mathiesen mun þurfa að segja af sér !

Nú hefur Ráðherran umdeildi Árni Mathiesen sent Umboðsmanni Alþingis, rökstuðning sinn fyrir ráðningu Þorsteins Davíðssonar í Héraðsdómsembætti.

Það liggur nær augljóst fyrir, að ráðningin er byggð á þáttum sem ekki var óskað eftir í auglýsingu. Þá hefur það komið fram margoft hin persónulegu og félagslegu tengsl Árna Mathiesen við Þorstein Davíðsson höfðu mikið að segja við ákvarðanatöku Árna Mathiesen.

Þá er það líka ljóst að aldrei hefur verið farið á skjön við álit fagnefndar svo gróflega sem Árni Mathiesen gerði í þessu máli. 

Það er talið að umsögn Umboðsmanns Alþingis verði þannig að Árna Matthiesen verði ekki stætt að sitja lengur sem ráðherra.

Þetta skýrist á næstu vikum.

Þetta finnst mér.


Múhammeð fallegri en Jesú ?

Ég horfði á kastljós á föstudagskvöldið og horfði og hlustaði á Illuga Jökulsson og Salmann Tamimi ræða væntanlrga birtingu á mynd af spámanninm Múhammeð sem Illhugi hefur nú birt í tímaritinu “Sagan öll”

Ég verð að segja það að teikningin af Múhammeð í tímaritinu, hann er ólíkt fallegri en myndin  af  Jesú sem birtist af Krumma í gerfi Jesú Krists á krossinum í sjónnvarpsauglýsingu vegna söngleiks um Jesú Krist.

Ég gat ekki heldur fundið neina illsku eða reiði hjá Salmann Tamimi í þessum kastljósþætti, þeirra skoðanaskipti voru bara öllum til sóma.

Illugi Jökulsson á náttúrulega hrós skilið fyrir þessa umfjöllun sína um trúarbrögð.

Þetta finnst mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband