Færsluflokkur: Vefurinn

Það þarf að mótmæla, mætum öll í dag sukkið heldur áfram !!!

Það þarf að veita stjórnvöldum aðhald og knýja á að eftirlitsstofnanir vinni verkin sín.

Flest allir gömlu stjórnendur bankana eru  í störfum ennþá.

Skilanefndir bankana voru skipaðar af fyrrverandi SUS vinum í Sjálfstæðisflokknum og starfa í anda stefnu Sjálfstæðisflokksins og eru að draga lappirnar í  málefnnum bankahrunsins.

Þið munið að stefnan klikkaði ekki bara fólkið.

Þar eru afskrifaðir miljarðar skulda fyrirtækja sem verið er að selja til vildarvina og engin fær að vita hvað ríkisbankarnir tapa miklu.

Enginn fær að vita hvað sægreifunum hefur verið afhentir margir miljarðar í afskriftum.

Sérstakur rannsóknardómari var settur á af Birni Bjarnarssyni. Til að taka á og rannsaka bankaskandalan.

Það kemur síðan í ljós að hann hafði engin völd stofnanir gátu og geta neitað honum um gögn og þannig tafið málin. Vonandi verið að breyta því ?

Stjórnmálaleiðtogar og stjórnir stjórnmálaflokka raða gæðingum sínum á lista þvert á að krafa um prófkjör eða forval meðal flokksmanna hafi verið það sem fólk var að biðja um.

Þetta er bara helvítis fokkin fokk ennþá.

Látum sjá okkur æi dag á Austurvelli kl 15:00,

Veitum stjórnvöldum aðhald.

Þetta finnst mér.


Sjálfstæðisflokkur enn í minnihluta !!!!

Það er bara ánægjulegt að sjá þessa skoðanakönnun RUV.

Sjálfstæðisflokkurinn fær 20 menn, Farmsókn fær 8 menn en Samfylking fær 18 menn Vistri Grænir 17.

Frjálslyndir þurkast úr og önnur framboð koma ekki að manni.

Ef þetta yrði niðurstaða kosninga væru Framsókn og Sjálfstæðisflokkur í minnihluta.

Stjórnarflokkarnir héldu velli og mundu ekki þurfa að reiða sig á svikulan Framsóknarflokk.

Mér finnst þessi könnun RUV bara blása ansi miklum vindi í segl umbótaflokkana sem nú eru í minnihlutastjórn.

Það sem hefur verið gert af þessari ríkistjórn er það sem var óskað var eftir að yrði gert og meira er að koma til afgreiðsu í þinginu á næstu dögum og vikum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

29 þingmenn láta sig bara hverfa úr vinnunni !!!

Mjög umdeild eftirlaunalög voru afnumin á Alþingi í dag 34 greiddu atkvæði með niður fellingu og enginn greiddi athvæði á móti. En stór hluti þingmanna var ekki viðstaddur, skoðum hvernig þetta var:

já:
Atli Gíslason, Ágúst Ólafur Ágústsson, Álfheiður Ingadóttir, Árni Páll Árnason, Árni Þór Sigurðsson, Birgir Ármannsson, Birkir J. Jónsson, Bjarni Benediktsson, Björn Bjarnason, Eygló Harðardóttir, Grétar Mar Jónsson, Guðbjartur Hannesson, Guðfinna S. Bjarnadóttir, Gunnar Svavarsson, Helga Sigrún Harðardóttir, Helgi Hjörvar, Illugi Gunnarsson, Jón Magnússon, Karl V. Matthíasson, Katrín Júlíusdóttir, Kjartan Ólafsson, Magnús Stefánsson, Mörður Árnason, Ólöf Nordal, Pétur H. Blöndal, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Sigurður Kári Kristjánsson, Siv Friðleifsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Sturla Böðvarsson, Valgerður Sverrisdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þuríður Backman, Ögmundur Jónasson

leyfi:
Katrín Jakobsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir

fjarst.:
Arnbjörg Sveinsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Árni Johnsen, Árni M. Mathiesen, Ásta R. Jóhannesdóttir, Ásta Möller, Björgvin G. Sigurðsson, Björk Guðjónsdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Einar Már Sigurðarson, Ellert B. Schram, Geir H. Haarde, Guðjón A. Kristjánsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Herdís Þórðardóttir, Höskuldur Þórhallsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Bjarnason, Jón Gunnarsson, Kristinn H. Gunnarsson, Kristján Þór Júlíusson, Kristján L. Möller, Lúðvík Bergvinsson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Össur Skarphéðinsson

Gert 5.3.2009 14:52

Það voru bara 3 þingmenn í leyfi frá störfum hinir voru í skrepp eða felum.

Mikið er þetta gott að þetta er frá. Þetta er allt að koma.

Þessir 29 skammast sín sennilega svo rosalega en þeir samþykktu þennan óskapnað á sínum tíma.

Steingrímur verður ekki dregin fjarvist frá þessum þingmönnum sem ekki voru í vinnunni í dag ?

Þetta finnst mér.


mbl.is Eftirlaunafrumvarp samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Efnahagshrunsflokkarnir Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur í skrípaleik !!

Siv Friðleifsdóttir fer hamförum í þinginu og gengur erinda Sjálfstæðisflokksins við að eyðileggja störf og stefnu ríkistjórnarinnar í umhverfismálum.

Skömminn og skítalyktin af þessu samstarfi Framsóknar og annara flokka er með eindæmum.

Bara stundað málþóf til að eyðileggja tíman.

Það er von að Siv Friðleifsdóttir fari hamförum hún er að hverfa af þingi, ég hef heyrt að kjósendur í Kraganum séu bara búnir að fá sig fullsadda af henni og muni stroka yfir hana í prófkjörinu.

Hún mun ekki leiða flokkinn fyrir kosningarnar.

Framsóknarflokkurinn lofaði og gekk fram fyrir skjöldu með að styðja og verja minnihlutastjórnina og hjálpa til við að koma málefnum ríkistjórnarinnar í gegnnum þingið í anda stefnulýsingar og stjórnarsáttmála Samfylkingarinnar, Vinstri Grænna og Framsóknarflokksins sem hafði mikil áhrif á gerð stjórnarsáttmálans.

Nú er alveg sama hvaða mál ríkistjórnin eða einstaka ráðherrar koma fram með þá er þingflokksformaðurinn í Framsókn komin í stellingar með Sjálfstæðisflokknum.

Þetta er bara ömurlegt að dragbítar Framsóknarflokksins þæfa og tefja mál í nefndum  en lofuðu að hjálpa til við að leysa málin .

Það er orðið þannig að ekki er hægt að treysta á Framsóknarflokkinn í einu einasta máli sem ríkistjórnin ætlar fram með.

Trúðar Framsóknarflokksins á Alþingi hafa svo sannarlega sannað sig.

Þetta finnst mér.


mbl.is Fundað um stjórnarsamstarfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þið skuluð í þrot helvítin ykkar !!!!

Þannig finnst mér tónninn sem Baugi eru sendir í dag frá Glitni og Íslandsbanka .

En Glitnismenn og Íslandsbankamenn andmæltu beiðninni um greiðslustöðvun en fyrir tækið hefur verið í greiðslustöðvun í þrjár vikur.

Farið var fram á greiðslustöðvun í þrjá mánuði. En það vildu Glitnis-og Íslandsbankamenn ekki.

Málinu var frestað í Héraðsdómi Reykjavíkur fram yfir helgi.

Þetta risafyrirtæki og flaggskip Íslensnska fyrirtækja  hérlendis og erlendis fær að finna einu sinni enn fyrir hrægömmunum og nöðrueitrinu hjá þeim sem grætt hafa á tá og fingri á Baugi í gegnum tíðina.

Og fela sig núna bak við Glitni og Íslandsbanka.

Það skyldi þó ekki vera að SUS félagrnir í skilanefndunum standi í vegi fyrir því að Baugur hafi tækifæri á að endurskipuleggja fyrirtækið miðað við ástandið í Þjóðfélaginu.

Þetta fyrirtæki er með þúsundir manna í vinnu.

Þetta finnst mér.


Hræðsla Framsóknar að verða hækja Sjálfstæðisflokksins aftur er mikil !

Eilífðar uppákomur Framsóknarmanna gagnvart ríkstjórninni eru bara talandi dæmi um erfiðleikana og valdabaráttuna innan Framsóknarflokksins.

Gagnrýni Framsóknarflokksins á ríkistjórnina í tíma og ótíma er vatn á millu Sjálfstæðisflokksins.

En Sjálfstæðisflokkurinn mun sennilega hafa alla burði til að geta myndað ríkissstjórn að loknum kosningum þá með Framsókn.

Það er bara svo skrítið hvað fólk er fljótt að gleyma.

Það breytir ekki neinu þó að settur sé nýr göngustafur í forustusveit Framsóknar eða Sjálfstæðisflokk gamla flokksvélin ræður.

Það breytist ekki nema fólk fái að raða saman fólki á lista í kjörklefanum ,sem það teystir.

Þá fyrst er hægt að hreinsa til í þessu framboðsliði sem sumir hverjir eiga ekkert erindi á þing.

Þetta finnst mér.


mbl.is Gæti orðið mesta vinstri sveifla sem sést hefur hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna er Óskar Bergsson hræddur við opinbera rannsókn ?

 Á vísir.is er fjallað um meint spillingarmál Óskars Bergssonar sem voru til umræðu í Borgarstjórn í dag.

Ef Óskar Bergsson Borgarfulltrúi hefur hreinan skjöld og hefur farið eftir öllum siðalögmálum og er laus við alla spillingu hvað hefur hann þá að óttast með opinbera rannsókn á störfum hans fyrir Reykjavíkurborg.

Hann leysti niðrum sig sjálfur í pínlegu Kastljóssviðtali hér um daginn þar sem hann greinilega hefur ekki hugmynd um hvar siðferðimörk hans  liggja.

Ég vil að mál hans verði skoðuð.

Það eru líka fleiri þarna í Borgarstjórn sem þarf að skoða af opinberum aðilum vegna vina- og verkkaupatenglsla.

Þar má nefna eins og klúðrið með Heilsuverndarstöðina, REI og OR, Brjálæðið og skiplagsslysið við Höfðatún-Borgartún, Kaupin og bullið í kringum Laugaveg 4-6, Klúðrið við Mýrargötu,tengsl Borgarfulltrúa við eigið verktakafyrirtæki, Kosnað við menntun Borgarfulltrúa erlendis og fl.fl.

En byrjum á Óskari Bergssyni fáum opinbera rannsókn á verkin hans.

Þetta finnst mér.


Jóhanna Sigurðardóttir hættu að ljúga !!!!!!

Þið eruð að hafa okkur að fíflum.

Nú fer að koma að uppgjöri hjá Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J Sigfússyni.

Þið lofuðuð að koma með allt upp á borðið.

Taktu af þér magabeltið og sokkaböndin eins og þú hefur beðið karlmenn að taka af sér axlaböndin og  beltið í pólitískum skilningi.

Gerðu hreint fyrir dyrum og hreinsaðu Samfylkinguna af lygavef Framsóknar og Sjálfstæisflokks.

Þið lofuðuð að koma Seðlabankastjóranum frá. Það er það eina sem gerst hefur.

Hverjir eru skilmálar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart Íslendingum ? Afhverju er það leyndó ?

Er ég ekki einn af þeim sem þarf að borga þetta lán ?

Hversvegna er ekki flokksræðinu og ráðherravaldinu sturtað niður .

Þarf að hefja blóðugátök að nýju, við kjósum 25 apríl 2009 ekki voga þér að breyta því.

Afhverju er svona erfitt að hjálpa heimilunum og fyrirtækjunum ?

Hversvegna skiptir þú ekki út skilanefndum bankanna sem eru síðasta hálmstrá Sjálfstæðisflokksins og sjáðu bara því líka ósvífni sem þeir gera eftir kaupinn á Árvakri.

Eða verða skuldir heimilinna og fyrirtækja fellt niður eins og skuld Árvakurs sem ég þarf víst að borga líka núna.

Þú verndar Ingibjörgu Sólrúnu sem flaug í þotum útrásarliðsins til að mæra það á erlendri grund þegar allar viðvörunarbjöllur í heiminum hringdu.

Þú heyrðir ekki ferkar en aðrir í bjöllunum. Átt þú ekki að axla ábyrgð ?

Hvernig datt ykkur í hug að treysta hjárómatóni Framsóknarflokksins ?

Þið eruð bara ekki að standa ykkur .

Þetta finnst mér.


mbl.is 3 milljarðar sagðir afskrifaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bullukollurinn Gísli Marteinn Baldursson !!!!!

 Á visir.is er sagt frá undrun Gísla Marteins á lýðræðinu.

Gísli Marteinn Baldursson undarst hvernig lýðræðið virki hjá öðrum en sjálfum sér.

Fyrir áramót lét hann Reykvíkinga sjá fyrir sér í Skotlandi. En lýðræðiskjörinn varamaður hanns fékk ekki að leysa hann af í Borgarstjórn.

Þegar hann neitaði að taka sér leyfi frá störfum vegna skólagöngu sinnar erlendis.

 Hann vitnaði einmitt í Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að hún hefði farið erlendis í nám og verið í Borgarstjórn, en Ingibjörg Sólrún tók sér leyfi og varamaður kom strax í hennar stað.

Gísla Marteini finnst mikið að hjá öðrum flokkum en hefur hann ekki lesið ofanígjafarskýrslu nefndarinnar frægu úr Sjálfstæðisflokknum ,sem segir hverjir í raun beri ábyrgð á öllum vandræðunum sem við stöndum nú í dag.

En ef hann þorir ekki að lesa skýrsluna þá er hægt að upplýsa að það eru stjórnendur Sjálfstæðisflokksins sem hafa brugðist og þar með hann sjálfur.

 Hann hefur svo sannarlega tekið þátt í þessu útrásarpartíi t.d. í bullinu varandi Mýrargötuna, varðandi umhverfisslysið í Borgartúni, varðandi útrásina í REI þar lýsti hann margoft yfir að hann styddi fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í REI málinu, en það breyttist svo allt í einu.

Gísli Marteinn haltu endilega áfram að bulla svona í tíma og ótíma það er svo "lýðræðislegt".

Þetta finnst mér.


Auðvitað brást ekki stefna Sjálfstæðisflokksins heldur stefnuleysi !

Mikið rosalega  er það neyðarlegt þegar samansafn af mönnum sem hafa sömu stjórnmálaskoðanir og eru heilaþvegnir af einum manni, koma fram og reyna að segja heillri þjóð að "bull sé ekki bull", að "rigning sé ekki blaut" að stefna sé ekki stefna".

Endureisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins hefur talað og niðurstaða nefndarinnar er að Sjálfstæðisflokkurinn hafi enga stefnu og því hafi stefnan ekki brugðist heldur fólk sem var að vinna í nafni Sjálfstæðisflokksins .

Hverjir eru svo þessir spekingar sem láta Sjálfstæðismenn heyra það jú það eru  lögfræðingar, frægur Hagfræðingur úr Seðlabankanum, verkfræðingur, frambjóðandi út á landi svo dæmi séu tekin.

Sjálfstæðisfólk sem var ekki að fylgja eftir stefnu Sjálfstæðisflokksins brást og það sé nauðsynlegt að biðjast afsökunar á öllu sukkinu og svínaríinu sem mistök þessa Sjálfstæðisfólks hefur haft í för með sér.

En ekki er ástæða til að breyta neinu varðandi stefnuna í flokknum halda bara áfram þessu stefnuleysi sem dugað hefur svo vel hingað til.

Hverja á að biðjast afsökunar á að ekki sé búið gera neitt í málunum,  útrásarvikingana, ofurlauna bankastjórana, ríkstjórnina fyrrverandi og núverandi, Gordon Brown og Starling, hinar staðföstu þjóðir hverja spyr ég ?

Þetta virðist vera mjög erfitt en kannski ætti að taka í hendina á öllum, Já öllum þeim sem misstu ,sparnaðinn sinn, 15.000 manns án atvinnu, Heimilin sem eru að fara í þrot, Atvinnufyrirtækin sem eru að stöðvast, fólkinu sem er að flýja land.

Þetta er nú með endæmum menn skuli láta svona frá sér.

Og þó ekki maður sér svona hóp manna t.d. hjá Ingva Hrafni á INN á föstudögum, sem er bara ótrúlegt samansafn af Sjálfstæðismönnum þar hvernig menn níða skóinn af hinum og þessum í þjóðfélaginu sem ekki hafa sömu skoðun og þeir.

Þeir telja eins og nefndarmennirnir að allt sem gerst hefur sé öðrum að kenna en Sjálfstæðisflokknum.

Það sé fólkinu um að kenna.

Þetta finnst mér.

 


mbl.is „Heiðarlegt uppgjör“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 100
  • Frá upphafi: 85231

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 82
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband