Færsluflokkur: Vefurinn

Flokksræðið í fyrirrúmi hjá Sjálfstæðisflokki !!!

29 manns hafa boðið sig fram í Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Karlar fleiri en konur, bara eins og vanalega

Af þessum 29 eru 11 sem ekkert erindi eiga í framboð að mínu mati.

Þetta eru þeir sem mest hafa haft sig í frammi vegna frjálshyggjunar og verið í þingflokksliði  og þotuliði Sjálfstæðisflokksins.

Þetta er fólk sem á að bera ábyrgð á lagasetningum undan farna ára og útrásarbrjálæðinu, eftirlaunalaögum, einkavinavæðingunni.

Þetta fólk skilur ekki að kjósendur vilja þetta fólk í burtu.

Sjáið bara listan sem fylgir þessum pistli í fréttaskotinu.

Það þarf ekki að nefna nein nöfn þau eru á listanum.

Og ekki þarf að fjölyrða um að þegar frægir fortíðardraugar birtast í framboð, þá er nú fokið i flest skjól hjá Sjálfstæðisflokknum.

Sama er að gerast í öllum öðrum kjördæmum þessir Sjálfstæðismenn sem sitja núna á þingi og eru búnir að drulla mörgum sinnum á sig og um allt þjóðfélagið vilja endilega halda áfram.

En þetta er ekki bara Sjálfstæðisflokkurinn þó framboðsfresturinn sé útrunninn í þeim flokki.

Skoðum seinna hina frambjóðendurna í öðrum flokkum en Sjálfstæðisflokki eftrir að framboðfrestum líkur hverjir neita að víkja.

Þetta finnst mér.


mbl.is Geir gefur ekki kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi eitthvað lært af nasistum ?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kemur til með að velja fólk á uppstillingarlista ásamt öðrum vegna valdastöðu sinnar innan Framsóknarflokksins fyrir næstu kosningar.

Vonandi verður það ekki gert eins og þegar Nasistar völdu fólk til starfa í Útrýmingabúðir. En framsóknarflokkurinn hefur verið í útrýmingarhættu á undan förnum misserum.

En Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sendi fyrirspurn til vísindavefsins 12.09.2000 um það hvernig fólk hafi verið valið til starfa í Útrýmingarbúðum Nasista ?

Og hvort væru til þekkt dæmi um að menn hefðu óhlíðnast skipunum þar ?

Ég ætla ekki að tíunda svörin hér.

Það er sjálfsagt mjög gott að vita allt um þessi mál þegar menn þurfa að taka við slíkum búðum ,sem Sigmundur Davíð hefur tekið við.

Mér hefur fundist nokkuð margir yfirgefa þessar framsóknarbúðir með nokkru þjósti.

Vona bara að Sigmundi Davíð takist að standa við stjórnarsáttmálan. Sick

Þetta finnst mér.


mbl.is Sigmundur Davíð býður sig fram í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdaklíkur flokkana ætla að viðhalda óréttlætinu áfram !

Á mörgum stöðum ætla flokkarnir, flokkseigendafélögin og valdaklíkurnar ekki að leyfa prókjör.

Þeir ætla að stilla upp sínum gæðingum á listana.

Þetta ógeðslega spillingarlið ætlar að halda áfram og berja alla viðleitni góðra breytinga niður í svaðið.

Sjáum bara Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn og Samfylkinguna uppstillingar af flokksgæðingum til útbrunna Alþingismanna. Það má ekki heyra minnst á kynjajöfnun.

Það má ekki minnast á breytingar á kosningalögum með persónukosningu hjá Sjálfstæðisflokki og Framsókn.

Enda hafa Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn unnið saman markvisst í bandalagi að stoppa þetta af og tefja þetta réttlætismál.

Hvers vegna ? 

Jú þessir karlar og kerlingar sem þykjast eiga þingsætin eru hrædd um að verða strokuð út af listum.

Það þarf alveg að hreinsa þetta gamla lið út hjá Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, Vinstri Grænum, Samfylkingunni og Frjálslyndaflokknum.

Þau lifa öll í anda flokksræðis.

Þetta finnst mér.


Ég hélt að Ólína Þorvarðardóttir hefði verið að boða nýja tíma !

Þvílík vonbrigði það eru að Ólíina Þorvarðardóttir sem hefur verið einn harðasti gagnrínandi á ríkistjórn Samfylkingar og Sjálfstæðismanna og safnaði  rúmlega 7000 undirskriftum manna og kvenna, ásamt hópi annara manna í Nýju Lýðveldi að undanförnu.

Skuli nú ákveða að beina kröftum sínum að  einum fjórflokknum sem haldið hefur um taum spillingarinnar undanfarin misseri.

Þessi flokkur sem alls ekki vill kynjajafnrétti í prófkörum Samfylkingarinnar.

Virðist heilla Ólínu Þorvarðardóttur

Og nú er bara  að gefa Nýtt Ísland upp á bátinn. Því ekki getur hún setið við öll borð.

 En á vefsíðu Nýtt Ísland  segir m.a. um okkur:

Að þessari undirskriftasöfnun stendur hópur Íslendinga sem telur brýnt að hefjast nú þegar handa við að endurreisa traust í þjóðfélaginu og efla virðingu fyrir reglum lýðræðis og grundvallarstofnunum samfélagsins.

Fólkið í landinu þráir nýtt upphaf og nýjar leikreglur ásamt endurreisn þeirra gilda sem þjóðin hefur um aldir lagt rækt við, gilda á borð við heiðarleika, samvinnu, ábyrgð og jöfnuð.Við viljum með þessu framtaki mynda þverpólitíska breiðfylkingu um þau markmið sem koma fram í áskoruninni til forseta og Alþingis. Hópurinn er óháður öllum stjórnmálaframboðum og hagsmunaöflum.  Njörður P. Njarðvík,Ólína Þorvarðardóttir,Tryggvi Gíslason,Birgir Björgvinsson,

Kári Magnússon.

Þetta að vera óháður öllum stjórnmálaframboðum og hagsmunaaðilimu finnst mér hafa skolast eitthvað til hjá Ólínu

Ég stóð í þeirri meiningu að þetta afl ,Nýtt Lýðveldi ætlaði að standa fyrir utan hina fefðbundu stjórnmálaflokka og koma hinum fersku hugmyndum áfram í gegnum væntanlegt Stjórnlagaþing.

Nú hefur Ólína Þorvarðardóttir kosið að sameinast kosningavél Samfylkingarinnar, þannig að Nýtt Lýðveldi hefur í raun ekkert að gera með svona tækifærisinna á sínum snærum.

En auðvitað var þetta kannski fyrirsjáanlegt. Framapotarar eru margir æði slungnir.

Þetta finnst mér.

 


mbl.is Ólína ætlar í prófkjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er í lagi að skíta á gólfið af því að aðrir hafa gert það !

Óskar Bergsson skildi ekki eða vildi ekki skilja spurningu Þóru Arnósdóttur Kastljósspyrjanda í kvöld.

Þegar hún spurði hann um hvar siðferðimörk hans lægju eiginlega. Hann snéri bara upp á sig og sýndi þennan einstaka hoka og yfirgang, hann reyndi hvað eftir annað að taka stjórnina á þættunum yfir

Hvort honum findist eðlilegt að bjóða samflokksmönnum í Framsóknarflokknum til fundar og veislu á kosnað Reykvíkinga. það fannst honum greinilega í lagi.

Hann segir að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi haldið svipað boð árið 2004 þar sem 30-40 sveitarstjórnarmönnum flokksins hafi verið boðið í álíka boð. Hann hafi því talið sig vera í fullum rétti áður en hann hélt boðið og telur að svo sé enn.

Það er sem sagt í lagi að skíta á gólfið af því að aðrir hafa gert það.

Það er kannski við hæfi að minna á það að í Borgarstjórnarkosningum 2006 bauð Óskar Bergsson sig fram í 1-3 sæti í Reykjavík og lenti í þriðja sæti eftir að Anna Kristinsdóttir hafnaði öðru sætinu.

Ferill Óskars Bergssonar er frekar illa lyktandi finnst mér,árið 2002 réð Borgarfulltrúi Framsóknar Sigrún Magnúsdóttir, Óskar Bergsson í úttekt á einsetningu grunnskólans og síðar í eftirlitsverkefni hjá byggingardeild Reykjavíkurborgar án þess að þessi störf væru auglýst, hægt er að minnast að komu hans að málefnum Faxaflóahafna 2006 þar sem hann sat beggja vegna borðsins, kúvendingu í flugvallarmálinu eftir kosningar, hnífasettamálið innan Framsóknarflokksins 2008,  og fl.og fl. það er bara styklað á örfáum atriðum.

Það voru þeir félagar Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson og Gísli Martein Baldursson sem sammþykktu veisluhöld Óskars Bergssonar fyrir flokksfélaga sína í nóv 2008. Sem Reykvíkingar þurftu að borga 90.000 krónur veit ekki hvort það er satt, einhver sagði í dag á einhverjum miðlinum að þetta hefði kostað 300.000 kr.

Þetta fannst og finnst Óskari Bergssyni bara allt í lagi,

Þó efnagahgshrunið væri komið og umræðan í þjóðfélaginu kallaði á algjöran sparnað.

Svo er þessi maður búinn að bjóða sig fram, maður sem Reykvíkingar höfnuðu í síðustu kosningum.

Nei sumir skilja ekki að þeirra tími er liðinn og kemur ekki aftur.

Þetta finnst mér.


mbl.is Vill að Óskar Bergsson segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnubrögð Hafrannsóknarstofnunar eru ekki í takt við ástandið !

Hafrannsóknarstofnun leyfði ótakmarkaðar veiðar á Gulldeplu sem engar rannsóknir hafa  verið gerðar á.

Þeir hafa ekki hugmynd um hvaða fiskistofnar lifa á henni.

Nú er Gulldeplan horfin. Búið er að veiða 30.000 tonn.

Það er verið að leita að Loðnu en ekki er búið að gefa út neinar veiðiheimildir til flotans.

Þannig að ef Loðna finnst tekur það ákveðna daga fyrir Hafrannsóknarstofnun að komast á staðinn og meta ástandið.

Og þá er viðbúið þegar ákvörðun verður tekin, að verðmæti Loðnunar verði mjög rýrt þar sem hrognataka verður sennilega ekki lengur möguleg.

Það á að gefa út strax 30 - 50.000 tonna veiðikvóta til loðnuflotans svo hægt verði að hefja veiði á Loðnu strax og hún finnst.

Þetta finnst mér.


mbl.is Agnarlítinn loðnukvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vakna nú mín Þyrnirós......

Guðlaugur Þór Þórðarsson er alveg kominn á fulla ferð í sinni kosningabaráttu til formanns Sjálfstæðisflokksins og til Alþingis.

Hann skrökvar því náttúrlega að hann sé ekki búinn að ákveða sig í formannsslaginn eða kannski ekki vaknaður.

Af Þyrnirósarsvefninum sem Sjálfstæðismenn eru margir hverjir ennþá sofandi í.

En Guðlaugur Þór sagði á Bylgjunni síðdegis Sjálfstæðisflokkurinn ætti að biðja þjóðina afsökunar á því að hafa sofnað á verðinum. Og komið öllu í bál og brand.

ÚBS...Gleymdi Guðlaugur ekki að vekja Davíð Oddsson og Geir Hilmar áður en hann vegur svona að forustunni. Já hann talar um "mistök" og "við stóðum okkur ekki", "sofnuðum á verðinum"......

Er ekki nokkuð seint í rassinn gripið að fara að biðjast afsökunar á einhverjum misgjörðum eftir þyrnidrifna slóð Sjálfstæðisflokksins gegnum tíðina.

Ísland gjaldþrota. Bankarnir gjaldþrota. Heimilin gjaldþrota. Atvinnulífið gjaldþrota.Tugþúsundir atvinnulausir. Þúsundir manna á leið úr landi.

Hvers vegna sagði hann ekki af sér, sem ráðherra fyrst hann segist vera löngu vakaður af Þyrnirósar svefninum ?

Nei Guðlaugur Þór Þórðarsson er ekki vaknaður af Þyrnirósarsvefni Sjálfstæðisflokksins.

Þetta fynnst mér.


mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn boðar aðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvíts skúrkar eru þessir menn og konur sem stjórnað hafa Íslandi undan farin ár !!!

Það er ótrúlegt að þegar frumskýrslur um efnahagsástandið á Íslandi líta dagsins ljós.

Að ísland sé gjaldþrota á mælikvarðanum sex sinnum gjaldþrota.

Kemur líka fram í erlendum sjónvarpsþætti á BBC fyrrverandi forsetisráðherra þjóðarinnar og upplýsir þjóina að hann hafi ekki talað við Gordon Brown vegna þeirra vandræða sem Bretar komu  'islendingum í með að beita hryðjuverkalögum á Íslendinga.

Og ekkert sé búið að ákveða í þessum málum annað en að stinga höfðinu upp í rassgatið á sér og aðhafast ekki neitt gagnvart Bretum ekki einu sinni tala við þá.

Það er alveg sama hvert er litið alltaf ber að sama brunni afglöp og ráðleysi Íslenskra stjórnvalda.

En enginn ber ábyrgð nema fólkið sem þarf að borga fyrir þessi stjórnlegu mistök og græðgisviðbjóðinn hjá þessu þotu - og útrásarliði.

Það er talið að það vanti 7000 - 8000 miljarða króna í fjármálagöt bankana sem  fyrrverandi eigendur  þeirra hafa trúlega skotið undan.

Eða aldrei komið með heim til Íslands.

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra er alveg úti á túni er bara að rannsaka eitt mál er tengist bönkunum þessi deild er algjörlega vanmáttug til að takast á við þetta verkefni.

Við þurfum að fá INTERPOOL til að taka á þessum málum.

Hver veit nema efnahagsbrotadeildin sé of tengd þessari útrásarvíkingum, eða bönkunum, eða stjórnmálamönnum, eða fjölmiðlum.

Þessir útrásarvíkingar sumir hverjir eiga íbúðir í stórborgum erlendra ríkja upp á tugi miljarða.

En auðvitað eiga þeir ekki neitt.

Handsamið þetta fólk látið það standa skil á gerðum sínum og frystið eignir þeirra.

Meðan verið er að rannsaka þeirra mál.

Látum Bretana og Hollendingana hafa Icesavereikningana til að glíma við Bretarnir eru orsakavaldar fyrir því sem gerðist.

Við verðum að fara að girða okkur í brók, bretta upp ermar og taka á vandamálinu sem við eigum við að stríða í efnahagsmálum í dag.

Hætta þessu endalausa þrefi á Alþingi um mál sem skipta ekki neinu máli en ráðast á vandan öll sem eitt.

Þetta finnst mér.


Ég spáði þessu á síðasta ári, þeir ætla ekki að laga Suðurlandsveg !!

Loforð um bættar samgöngur á Suðurlandsvegi eru í uppnámi.

Það á ekki að fara í að tvöfalda akgreinar eins og búið var að lofa.

Það á að skoða málin einu sinni enn.

Og hræra í öllu kerfinu hérna Sunnanlands.

Það er allt niður njörvað á Norðurlandi og allt þar á áætlun í kjördæmi Ráðherrans í vegamálum og mannvirkjagerð. 

Hvað þarf mörg dauðaslys á þessum Suðurlandsvegi til viðbótar svo Alþingismenn og sér í lagi Ráðherrar átti sig á alvarleika málsins, af hverju var þessum handónýta Samgönguráðherra ekki skipt út.

Þetta er bara grafalvarlegt.

Ég lýsi Ráðherra Samgöngumála ábyrgan fyrir dauðaslysum sem verða á veginum þar til loforð um endur bætur hafa verið gerðar í algjöri sátt við Sunlendinga og þá vegfarendur sem um veginn fara.

Þetta finnst mér.


Hann ætti þá bara að bjóða sig fram meðal öldunga !!

Á visir.is heldur Jón Baldvin áfram að vekja á sér eftirtekt.

Jón Baldvin Hannibalsson heldur áfram darraðar dansinum við pólitíska ellikerlingu.

Hann heldur að þjóðin vilji fá hann í framboð núna til að færa dagatalið til ársins 1970 eða álíka.

Hann heldur bara að hann sé eina vonin fyrir Ísland.

 Og þó að sperrileggir eins og Egill Helgasson styðji Jón Baldvin, en jón Baldvin er búin að vera fastagestur í þáttum hans undan farin misseri.

Þá hefur það bara ekkert að segja.

Þá er bara verið að nota karlgreiið  til að láta hann verða sér til skammar með alskonar yfirlýsingum, það er svo mikil gúrkutíð á þeim bæ, að allar mögulegar fléttur eru reyndar.

Jón Baldvin ætti að ganga til liðs við eldriborgara og koma sér á þing þannig ef hann er að sálast úr athyglisþörf.

 Þá kæmi nú í ljós hvaða fylgi hann hefði.

Annars hafa þessir gömlu fyrirgreiðslupólitíkusar ekkert að gera í stjórnmál í dag þeir eru útbrunnir.

Þetta finnst mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 101
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 83
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband