Færsluflokkur: Dægurmál

Næsta ráðuneytis- og ráðherraskipan ?

Á meðan samsuðunefnir stjórnarflokkana vinna hörðum höndum við að samræma stjórnarsáttmála næstu ríkistjórnar.

Hefur komið fram að sameina eigi nokkur ráðuneyti.

Talað hefur verið um að setja á stofn t.d. eitt ráðuneiti fyrir innarríkis- og atvinnumál.

Í því ráðu yrðu, Sjávarútvegs -Landbúnaðar-Iðnaðarráðuneyti

Eða  Samgönguráðuneyti  og Iðnaðarráðuneyti

Þá yrði Umhverfisráðuneytið fellt undir Utanríkisráðuneytið.

Þá yrðu Fjármála -og Viðskiptamálaráðuneytið sameinuð.

Heilbrigðis- og Félagsmálaráðuneyti yrðu sameinuð

Svo væri Forsætisráðuneytið óbreitt.

Og Dómsmálaráðuneyti líka.

Menntamálaráðuneytið yrði óbreitt.

Já rosalegur sparnaður að fækka ráðherrum úr tólf í sjö eða átta.

Og hvernig gæti ráðherralistinn verið ?

Jóhanna Sigurðardóttir Forsætisráðherra.

Steingrímur Sigfússon  Fjármála og Viðskiptaráðherra

Össur Skarphéðinsson Utanríkis- og Umhverfisráðherra.

Ögmundur Jónasson Heilbrigðis- og félagsmálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir  Menntamálaráðherra

Árni Páll Árnasson  Atvinnumálaráðherra ,Sjávarútveg-,Landbúnaðar-,

Kristján Möller  Samgöngu - og Iðnaðarráðuneyti

Atli Gíslasson Dómsmálaráðherra.

En auðvitað eru þetta vangaveltur en samt aldrei að vita.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ný ríkisstjórn um næstu helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefna VG sveigð til, vegna möguleika á valdastólum !

Valdagræðgi VG er nú að koma betur og betur í ljós. Verið er að slá af helstu stefnumálum VG í ESB málinu.

VG er svo sannarlega að sýna takta fjórflokks í dag.

Stefna VG í Evrópusambandsmálum er þessi :

"Samskipti við Evrópusambandið ber að þróa í átt til samninga um viðskipti og samvinnu, m.a. á sviði menntamála, vinnumarkaðsmála og umhverfismála. Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópusambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað. Hagsmunir fjármagns og heimsfyrirtækja eru í alltof ríkum mæli drifkraftar Evrópusamrunans, miðstýring, skrifræði og skortur á lýðræði einkennir stofnanir þess um of.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð lýsir stuðningi við hvers kyns friðsamlega baráttu fyrir félagslegu réttlæti án landamæra og jafnframt vilja sínum til að taka þátt í þeirri baráttu hérlendis sem erlendis"

Á síðsta Landsfundi VG var samþykkt áliktun :

"Vinstrihreyfingin – grænt framboð telur nú sem fyrr að hagsmunum Íslands sé best borgið utan Evrópusambandsins.  Sjálfsagt er og brýnt að fram fari opin og lýðræðisleg umræða um samskipti Íslands og sambandsins. Landsfundur VG leggur áherslu á að aðild íslands að ESB eigi að leiða til lykta í þjóðaratkvæðagreiðslu. Landsfundur telur mikilvægt að fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu fái rækilega umræðu og að hliðsjón verði höfð af væntanlegum stjórnarskrábreytingum og hvað eðlilegt getur talist þegar afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar um framsal og fullveldi."

Nú er verið að taka ákvarðanir þvert á stefnu VG með að hafna ekki alfarið aðeild að ESB eins og segir í stefnulýsingu á heima síðu VG er aðeild að ESB hafnað.

Nei núna skal bara setja í gang batterí til að finna ásættanlega leið inn í ESB, svo valdastólar í ríkistjórn gangi ekki eitthvað annað. eða að það verði mynduð önnur tegund af ríkistjórn.

Önnur mál eins og vandi heimilana og fyrirtækja. Flótti fólks úr landi og atvinnuleysið. Eru mál sem koma á eftir ESB.

Er ekki allt í lagi með þetta fólk í VG og Samfylkingunni sem situr í ríkistjórn.

Þetta finnst mér.


mbl.is Stjórnarsáttmáli í smíðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biskupstárin, græða ekki sárin !

Biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson fannst ástæða til að biðja fórnarlömb kynferðislegs ofbeldis fyrirgefningar við upphaf Prestastefnu Íslands. Og meira að segja er möguleiki á að hann biðji einstaka einstaklinga fyrirgefningu í framtíðinni.

En frægt mál er frá liðinni tíð, ásakanir á Biskup Íslands þá Ólaf Skúlasson og fyrir stuttu síðan var Gunnar Björnsson sóknarprestur á Selfossi ákærður fyrir svipuð brot og Séra Ólafur.

En báðir þessir menn voru sýknaðir.

Og fórnarlömbin gerð tortryggileg og þurfa að lifa með þessari skömm alla ævi.

Nei Biskupstár finnst mér ekki eiga við núna,

Um þetta er fjallað í helgarblaði DV.

Þetta finnst mér.


Hefnd Davíðs er skuggi sjúks manns !

Í helgarblaði DV er magnað viðtal við Jóhannes Jónsson í Bónus.

Þannig er hann oftast kynntur til sögunnar " Jóhannes í Bónus".

Viðtalið er á tilfinngalegum nótum og alla vega snerti það mig inn að beini.

Hugsjónamaður sem er svo sannarlega er búinn að koma vöruverðinu niður á það plan sem raunhæft er og hefur markað stór spor í Íslenskt viðskiptalíf.

Áður fyrr var það heildsalaklúbbur Sjálfstæðisflokksins sem makaði krókinn og réði allri verslun, Bónus gjörbreytti þessu.

Það er von að valdablokkinn í Sjálfstæðisflokknum hrykki við.

Mér finnst Jóhannes Jónsson einnmitt alltaf vera niður á jörðinni, mér finnst hann alltaf vera sannur.

Ég mæli með að fólk lesi þetta viðtal við Jóhannes í Bónus.

Þetta finnst mér.


Baulað og mótmælt ofurlaunastefnu Verkalýðsforingjana !

1. maí Frídagur verkalýðsins er bara típískur rigningardagur þessara hátíðarhalda eins og svo oft áður.

Engar lausnir eða kröfur um raunhæfar lausnir var að heyra á þessum ræðumönnum sem töluðu á Austurvelli í dag og sér í lagi ekki  hjá Gylfa Arnbjörnssyni forseta ASÍ.

Þar heyrði bara þann tón að þetta yrði rosalega erfitt og fólk þyrfti að sætta sig við ýmsa hluti og taka á sig ýmsa hluti.

Ræða Gylfa einkenndist af þessu einstefnu klisjukenda hagfræðibulli ,sem löngu er búið að sanna sig að er úrelt en verkalýðshreyfingin eða forusta ASÍ vill viðhalda.

Þar var ekki beðist afsökunar tapi lífeyrisþega í lífeyrisjóðunum. 

En vegna fjárglæfrarspilamennsku stjórnenda Lífeyrissjóðana er nauðsynlegt að lækka lífeyrir.

Kauphækkanir eru allar fyrir bý.

Og ekkert er til ráða frá Verkalýðsforustunni. Ekkert...Ekkert....Ekkert

Enda var baulað og búáhöld barin í takkt við dropatakt rigningarinnar.

Þetta er dómstóll götunar að láta í sér heyra og vonandi að þessi Verkalýðsforusta fari að skammast sín og lækki ofurlaunin sín.

Þetta finnst mér.


mbl.is Nýjan sáttmála um stöðugleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúkarnir í bankalauginni !!

Í helgarblaði DV. og á Dv.is er sagt frá hvernig þetta bankastjóralið sleppur undan mörg hundruð miljónum króna skuldbindingum. Og fá að starfa áfram á ofurlaunum sem bankastjóri.

Eigendur fárfestingarbanka og fjárfestingafélaga flýja land og fela sig, einn í Noregi, nokkrir í London, í Rússlandi og einhverjir eru komnir með sitt til Kína.

Ég ætla að birta lítið dæmi úr DV. Ég skora á fólk að ná sér í helgarblað DV.

"Í lok mars árið 2007 var Kauphöllinni tilkynnt um viðskipti tveggja fruminnherja hjá Glitni sama dag. Helgi Anton Eiríksson, framkvæmdastjóri fjárfestingabankasviðs, og Birna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs, höfðu nýtt sér kauprétti. Hafði Helgi keypt fyrir 211 milljónir en Birna fyrir 185 milljónir króna.

Eins og frægt er orðið urðu „tæknileg mistök“ til þess að kaup Melkorku ehf., félags Birnu, gengu aldrei eftir. Hins vegar gengu kaup félags Helga sem heitir Krem ehf. eftir. Samkvæmt ársreikningi Krems ehf. fyrir árið 2007 var tap félagsins þá 62,4 milljónir króna.

Samkvæmt ársreikningi Krems ehf. fyrir árið 2007 sést að skuldir eru skráðar 238 milljónir króna. Á þeim tíma sem lánið var tekið stóð gengisvísitalan í 120 stigum. Hún stendur nú í 225 stigum og því má áætla að skuldir Krems ehf. séu núna 445 milljónir króna."

Ef kaup Birnu hefðu gengið eftir má áætla að skuld hennar vegna þeirra hefði verið 208 milljónir í lok árs 2007. Miðað við núverandi gengi skuldaði Birna nú bankanum 390 milljónir króna.

Samkvæmt ársreikningi Melkorku ehf., sem var ekki skilað inn fyrr en í september 2008, er félag hennar skuldlaust. Skráð hlutafé er 500 þúsund krónur sem er lágmarksupphæð við stofnun einkahlutafélags. KPMG er endurskoðandi Melkorku ehf.

Í yfirlýsingu sem Birna sendi frá sér í lok október á síðasta ári sagði hún að Glitnir hefði boðið sér fimm ára kúlulán fyrir kaupunum. Það hefði átt að greiða með einni greiðslu árið 2012. Að sögn Birnu óskaði hún eftir atkvæðisrétti á aðalfundi Glitnis í febrúar 2008. Þá kom í ljós að engin hlutabréf voru skráð á félag Birnu. Þegar Birna óskaði eftir atkvæðisrétti á aðalfundi Glitnis höfðu bréf hennar sem hún keypti á 184 milljónir króna lækkað um tæp 30 prósent. Verðmæti þeirra hafði því rýrnað um 55 milljónir króna."

Af hverju er þetta fólk ekki sett í farbann eða bara lokað inni, af hverju er þetta fólk ekki látið sæta ábyrgð ?

Af hverju er ekki bankalaugin hreinsuð ?

Þetta finnst mér.


Einræðisherrann Davíð Oddsson !!!!

Í DV í dag er sagt frá innihaldi bókar eftir Ólaf Arnarson sem heitir "Sofandi að feigðarósi", þar rekur blaðamaðurinn Jóhann Hauksson ýmsa þætti í samskiptum Davíðs Oddsonar við aðra og einleik hans í valdakerfi Sjálfstæðisflokksins.

Ólafur Arnarsson er fyrrverandi framkvæmdarstjóri þingflokks Sjálfstæðismanna og aðstoðarmaður Ólafs G Einarssonar fyrrverandi Menntamálaráðherra.

Upplýsingar í blaðinu um innihald bókarinnar er magnað.

Og raunar ekkert eftir annað enn að færa það sem þar stendur í lögreglumál á hendur einum spilltasta embættismanni sem nokkurn tíma hefur verið uppi .

Það var von að menn í Sjálfstæðisflokknum þyrðu ekki að gera neitt, mudu sennilega allir  hafa farið á bak við lás og slá, eiga það sennilega eftir.

Ráðlegg öllum að lesa þessa góðu grein Jóhanns Haukssonar.

Þetta finnst mér.


Burt með þetta fólk sem verið er að stroka út af listum !!

Núna eftir kosningarnar hefur komið í ljós að fólk sem hefur boðið sig fram hefur og náð kjöri er ekki vinsælt

Mikið af fólki er strokað út af listum í kosningunum, þetta hefur líka verið gert í prófkjörunum en það virðist bara ekki skipta neinu máli.

Það má því segja að í prófkjörum/ forvölum hefur þetta fólk náð kjöri innan síns hóps og með fjárhagslegri aðstoð fyrirtækja.

Og sum þeirra hafa fallið niður lista. En það skilur það ekki að það er verið að hafna þessu fólki.

Einn sagði ég tek þetta ekki persónulega þó það sé strokað yfir mig. Sjáið bara helvítis hrokan.

Ein féll útaf þingi og sem ráðherra en segist vilja halda á fram sem ráðherra.

Er ekki allt í lagi með þetta fólk ?

Einn sagði þetta er nú allt innan skekkjumarka. Skekkumarka hvers ?

Ég segi ef  300 - 2000 útstrikanir eru á einstakling á sá hinn sami að víkja af lista.

Þetta finnst mér.


mbl.is Engar breytingar í RN
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlar eru að reyna að stýra stjórnarmyndunarferlinu !

Fjölmiðlar hafa í þessari eindema "gúrkutíð" frétta, hjakkað og hjakkað í fari ESB drullupollsins. Endalaust sömu spurningarnar daglega og sömu svörin frá forustumönnunum dag eftir dag.

En nú er ekki unnið dag og nótt við stjórnarmyndun eða verið að lemja fram aðgerðir vegna heimilana og fyrirtækjana.

Nei núna er nægur tími.

Og fjölmiðlum finnst þau mál bara ómerkileg.

Það er í gildi ennþá verkefnaskrá minnihlutastjórnar Samfylkingarinnar og VG.

Og hvert er hún kominn ?

Í fyrsta lið verkefnaskráarinnar Um aukið lýðræði,jöfnuður og upplýsingar.

Þar hefur verið farið í alla undirliði verkefnalistans. En Sjálfstæðisflokkurinn stöðvaði samt þáttinn um aukið lýðræði landsmanna, með málþófi og dónaskap enda hafa þeir svo sannarlega uppskorið eftir því.

Í öðrum lið verkefnaskrárinnar Um endurskipulag í stjórnsýslu

Þar er búið að fara í alla undirliðina.

Í fjórða lið verkefnaskrárinnar Aðgerðir í þágu heimilana

Í  þeim undirliðum er búið að gera ótal lagabreytingar og er sá listi tæmdur.

Í fimta lið verkefnaskrárinnar Aðgerðir í þágu atvinnulífsins

Þar er búið að gera ýmsar lagabreytingar á hinum ýmsu málaflokkum, en Sjálfstæðisflokkurinn kom í veg fyrir að hægt  var að leggja nokkur frumvörp fram vegna ,málþófs í Stjórnarskrárfrumvarpinu.

Í sjötta lið verkefnaskrárinnar Aðgerðir til að byggja upp fjármálakerfið og greiða úr vanda fyrirtækja

Hafa hlutirnir gengið hægar fyrir sig enda sitja í þessum skiptanefndum bankana menn og konur sem Sjálfstæðisflokkurinn valdi til verka úr smiðju sinni.

Að vísu er komin sérstakur saksóknari og alþjóðlegur ráðgjafi

Í sjöunda lið verkefnaskrárinnar Alþjóðasamningar og Evrópusamstarf

Þar var nefnd að störfum sem átti að standa skil á úttekt á Evrópumálum og viðhorfum hagsmunaaðila til Evrópusambandsins Nefndin átti að skila skýrslu um þessi mál 15.apríl 2009

Hefur einhver séð þessa skýrslu ?

Þar segir líka að stjórnarflokkarnir séu sammála um að aðeild að ESB verði aldrei ákveðin nema í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Og hvað eru fjölmiðlar þá að bulla um þessar gjár og ósamkomulag.

Þeir hinir sömu ættu að lesa verkefnaskrá ríkistjórnarinnar sem er í fullu gildi þar sem ekki er búið að leysa þessa minnihlutastjórn frá völdum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Ekki víst að langt sé í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýir hagrfæðingar, skáld, rithöfundar og embættismenn !

Þetta er nú í grunninn nýja fólkið sem á eftir að setjast inn á Alþingi. Nýir Alþingismenn.

Mér sýnis svona fljótt á litið að litlar breytingar verði á fjórflokksmunstrinu núna og sem var.

Borgarahreyfingin fellur einmitt mjög vel inn í fjórflokkakerfið sýnist mér alveg stefnulaus hreifing nema í einu máli að breyta Stjórnarskránni.

Undanfarna daga hafa gömlu brínin í flokkunum komið fram með alskonar yfirlýsingar til að minna á að þeir og þær ráði því sem þáða þarf í krafti hefðarinnar inn á Alþingi.

Nú eru fréttamenn búnir að þvaðra og blaðra og móta einhverja niðurstöðu með þjóðinni um ESB bullið sem ekkert er búið að ræða.

En skoðanakannanir hafa sýnt hingað til að þjóðin vill ekki fara í ESB

Og setja það í öndvegi jafnvel þó allir stjórnmálaflokkarnir hafi sagt marg sinnis að kosningarnnar hafi snúist um efnahagsmál ,atvinnuleysið, gjaldeyrirsmálin,Heimilinn.

Ekki veit ég hvort þetta nýja fólk sem flest er úr yngra kantinum hefur þann þroska að verða Alþingismaður kannski ætti að setja einhver aldurstakmörk á Alþingismenn.

Eins og krafist er af vegna Forsetans eða þrjátíu og fimmára aldurstakmark

Það ætti líka að gera kröfu um almenna menntun. Þetta er nú opinbert starf og í öllum stofnunum samfélagains þar sem auglýst er eftir fólki er krafist menntunar.

Þetta finnst mér.


mbl.is Heillandi starfsvettvangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 44
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 85182

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband