Færsluflokkur: Umræðan

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur skipt um skoðun í flugvallarmálinu !!

Það er bara ánægjulegt að ráðherra Samfylkingarinnar skuli hafa komið vitinu fyrir Borgarstjórnarflokk Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Flugvöllurinn verður kyrr.

Frá þessu er sagt á visir.is

Í burðarliðnum er samkomulag um nýja samgöngumiðstöð fyrir flug og aðrar samgöngur.

Í síðustu Borgarstkjórnarkosningum var hörðust og heitust umræðan um að flugvöllurinn færi burt og voru Sjálfstæðismenn harðastir  með því máli.

Nú er  það ekki til  lengur í dæminu. Búið að kúvenda.

Bara gott mál

Þetta finnst mér.


Skýr skilaboð til verkalýðsforingja og lífeyrissjóðsforstjóra !

Gunnar Páll Pálsson formaður VR var felldur í kosningu í dag.

En miklar óánægju hefur gætt vegna setu hans og ákvarðanatöku í stjórn Kaupþings.

Eins fyrir þá yfirgengdarlegu launastefnu sem hann sjálfur starfaði eftir og bílakost sem hann notaði.

Til hamingju VR félagar með að hafa tekið í taumana.

Stjórn VR ætti að segja af sér en hún hefur mært upp þessa meintu spillingu formannsins.

Ég held að það væri í lagi að skoða núna þessa verkalýðsforingjahjörð sem er að nálgast miljónina í tekjur á mánuði og þessa forstjóra lífeyrissjóðana, sem hafa ákveðið laun sín sjálfir í gegnum tíðina.

Í hvaða nefndum innan fjárfestingafélaga og bankana hafa þessir aðilar verkalýðsforustunar setið ?

Hverjir gáfu þeim leyfi til að fjárdfesta í áhættuskuldabréfumu og ágættufjárfestingum erlendis ?

Hvað er tap lífeyrissjóðana yfir höfuð mikið og hver ber á byrgð á því ?

Þarf ekki að taka í rassgatið á þessari hagfræðingahjörð, sem stjórnar núna verkalýðshreyfingunni ?

Þetta finnst mér.

 


mbl.is Kristinn kosinn formaður VR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tryggvi Þór Herbertsson frambjóðandi fékk 150 miljóna kúlulán !!!!

Í DV í dag er sagt frá að Tryggvi Þór Herbertsson prófessor  og forstöðumaður Hagfræðideildar Háskólans í Reykjavík, fékk 150 miljóna kúlulán hjá Askar Capital þegar hann var forstjóri fjárfestingarbankans.

Hann seldi síðan einkahlutafélagið sitt sem hét Varnagli til Askar þegar hann hætti og slapp við að borga 70 miljónir þegar einkahlutafélagið var selt til Askar.

Það eru einmitt svona viðskiptahættir sem leiddu til bankahrunsins.

Og þessi maður var helsti ráðgjafi ríkistjórnarinnar fyrrverandi og er núna í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi.

Hefur þessi maður eitthvað að gera á Alþingi Íslendinga ? Ég segi nei.

Þetta finnst mér.


Nú þegir Geir Hilmar, var hann að ljúga að þjóðinni ?

Tryggvi Þór Herbertsson fyrrum efnahagsráðunautur, fyrri ríkistjórnar sagði á Stöð 2 fyrir nokkru síðan, að hann hefði sagt Geir Hilmari frá boði breska fjármálaeftirlitsins, um að taka Iscesave reikningana í Breska lögsögu.

Það vantaði 30 miljarða tryggingu frá Landsbankanum til að gera þetta.

En Seðlabankinn neitaði Landsbankanum um þetta og knúði á með að setja  hin frægu neyðarlög svo hægt væri að rústa fjármálakerfinu og taka yfir bankana og fjármálafyrirtækin yfir.

Þá svöruðu Bretar þannig að setja á Íslendinga Hryðjuverkalög, sem ekki einu sinni fyrrverandi Seðlabankastjóri, sem hefur þó lýst því yfir að hann viti allt um þetta hrun.

Hann sá  ekki fyrir þetta rosalega gjaldþrot og keðjuverkanir sem dunið hafa yfir.

Og Geir Hilmar sagði margoft að hann hefði ekki vitað af þessum ICESAVE reikningum fyrr en löngu seinna.

Hefði ekki verið ráð fyrir Geir Hilmar að hringja í BROWN og koma þessum ICESAVE reikningum í breska lögsögu og láta afnema hryðjuverkalögin.Þegar hann vissi loksins um þessa reikninga. Og liðka fyrir þessum málum.

En Geir Hilmar sagði marg oft, að þetta væri allt í ferli og það væri verið að skoða þessi mál.

En það var í raun ekkert verið að gera. Þeir voru saman í þessari fölsku upplýsingarmiðlun, Geir Hilmar, Árni Mathiesen, Björgvin Sigurðsson, Davíð Oddsson, Eiríkur Guðnasson.

Þeir voru bara að hagræða sannleikanum og þegar fréttamenn vildu fá greinarbetri svör, voru þeir kallaðir dónar og annað verra eins og allir muna.

En það verst er að ,það er að koma æ betur í ljós  að Geir Hilmar sagði þinginu ekki satt um ICESAVE reikningana og skuldir þjóðarinnar.

Vonandi krefst þingið skýringa frá Geir Hilmari Haarde.

Þetta kemur vonandi í ljós við rannsókn málsins.

Hver eiginlega tekur mark á þessum Sjálfstæðismönnum í dag ?

Eru þetta ekki þeir sem ollu mesta skaðanum í öllu hruninu ?

Þetta finnst mér.


mbl.is Skuldir þjóðarbúsins meiri en áður var talið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei ég er ekki Íslendingur !

Aukin andúð er á Íslendingum erlendis, kunningjar mínir voru á ferðinni í Skandinavíu og Evrópu og í Englandi í síðustu viku.

Þeir upplifðu að verða fyrir aðkasti, fyrir það að vera Íslendingar og fannst þeir jafnvel vera í hættu.

En það var hrækt á þá og stuggað við þeim á veitingastað í London.

Eftir það sögðu þeir þeim sem spurðu hvaðan þeir væru, að þeir væru frá Svíþjóð.

Og gátu því klárað viðskiptaferð sína áfallalaust.

Ekki á þetta eftir að lagast eftir fréttir dagsins með Burðarás-Straum fjárfestingabanka litu dagsins ljós.

Eitthvað þarf nú að breyta lögum og reglugerðum um ábyrgðarskyldu Íslenska Ríkisins vegna fjárfestinga fjárglæframanna á erlendi grundu.

Hvað bætast næu mörg hundruð miljarðar við skuldabirgðina.

Nei nú þarf að taka alvarlega á þessum útrásarskussum og finna eignir þeirrra og peninga sem faldir eru um allan heim eins og svo marg oft hefur verið haldið fram í fjölmiðlum.

Og færa þá heim til Íslands.

Þetta finnst mér.


mbl.is Á annað hundrað missa vinnuna í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða Dagur B Eggertsson eða Stefán Jón Hafstein næstu formenn Samfylkingarinnar ?

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er hætt afskiptum af stjórnmálum frá og með landsfundi Samfylkingarinnar núna í mars. 

Hún dregur sig í hlé vegna veikinda.

Dagur B Eggertsson ætlar ekki í dag að gefa út yfirlýsingu vegna formanskjörs en hann mun  gera það á næstu dögum.

Þó er rétt að geta þess að lítill fugl hvíslaði að mér í kvöld að  Stefán Jón Hafstein sé að undir búa heimkomu og skellir sér sennilega beint í formansslaginn rétt fyrir landsfundinn.

Vegna breytra aðstæðna í Samfylkingunni.

Það þarf ekki að hafa áhyggjur af gamalmenninu Jóni Baldvini Hannibalssyni hann á enga möguleika og á náttúrulega að draga sig í hlé komi fram ný framboð og hann á eftir að gera það.

Þá er ekki gott að segja hvernig fer ef fleiri vilja bjóða sig fram.

Þetta er bara að verða spennandi.

Þetta finnst mér.


mbl.is Rökrétt að Jóhanna taki við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann taldi sig ekki þurfa að segja Geir eitt eða neitt !!!!

Fyrrum efnagahagsráðgjafi ríkistjórnarinnar, fyrrverandi hefur upplýst að honum hafi verið kunnugt um boð Breska fjármálaeftirlitsins vegna Icesave reikningana 5 oktober 2008.

En tilboðið hljóðaði upp á að færa reikningana undir Bresk yfirvöld.

Tryggvi Þór sagði Geir Hilmari ekki frá þessu fyrr en tíminn var útrunnin að koma reiknuingum undir Breta.

Og þá höfum við það líka að Geir Hilmar sem marg oft hefur lýst því yfir að hann hafi ekkert vitað um þessi mál. Hefur vitað allt um þetta Icesave mál.

Þetta kom fram á visir.is í dag.

Nú er þessi sami Tryggvi Þór að bjóða sig fram í prófkjöri…ætli hann hafi sagt Geir Hilmari frá því ?

Þetta  finnst mér.


Þetta er bara ógeðslegt !!!!

Samfylkingarfólk hefur nú sýnt það og sannað að það vill endilega halda skrípaleiknum áfram.

Það standa yfir prófkjör um allt land.

Og samfylkingin vill ekki breyta neinu sem skiptir máli. Flokksræðið er fyrir öllu.

Sömu skemmdu eplin í boði og áður.

Það er ótrúlegt og bara óhuggulegt að Björgvin Sigurðsson skuli yfir höfuð hafa boðið sig fram miðað við þær ásakanir og klúður sem hann gerði vegna  Bankahrunsins.

Afsögn hans var bara þetta ógeðlega kosningabragð sem fólk hefur auðsýnilega fallið fyrir….. ja hérna

Og hann á sennilega eftir að sæta rannsókn sérstaks Sakssóknara vegna Bankahrunsins, hann þarf sennilega næst að segja af sér þingmennsku.

Hverskonar bull er þetta eiginlega og með hina ráðherrana og þigmennina sem eru að bjóða sig fram .

Kunnið þið ekki að skammast ykkar, þið sem búin eru að sitja á þingi undanfarin ár og áratugi og í ríkistjórnum.

Það er ykkur að kenna meðal annars hvernig komið er. Þið bara viljið ekki skilja þetta.

Ég segi bara burt með ykkur allavega þar til búið er að rannsaka ykkar hlut í hruni og gjaldþroti Íslands

Ætlar þjóðin að sætta sig við þetta að þessir klúðrarar efnahagsmála komist aftur til valda.

Ég mótmælti þessu á Austurvelli í dag.

Það hefðu kannski fleiri mátt koma við vorum þó rúmlega 400 manns sem þarna mótmæltum í dag.

Þetta finnst mér.


mbl.is Afsögnin skipti miklu máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf að mótmæla, mætum öll í dag sukkið heldur áfram !!!

Það þarf að veita stjórnvöldum aðhald og knýja á að eftirlitsstofnanir vinni verkin sín.

Flest allir gömlu stjórnendur bankana eru  í störfum ennþá.

Skilanefndir bankana voru skipaðar af fyrrverandi SUS vinum í Sjálfstæðisflokknum og starfa í anda stefnu Sjálfstæðisflokksins og eru að draga lappirnar í  málefnnum bankahrunsins.

Þið munið að stefnan klikkaði ekki bara fólkið.

Þar eru afskrifaðir miljarðar skulda fyrirtækja sem verið er að selja til vildarvina og engin fær að vita hvað ríkisbankarnir tapa miklu.

Enginn fær að vita hvað sægreifunum hefur verið afhentir margir miljarðar í afskriftum.

Sérstakur rannsóknardómari var settur á af Birni Bjarnarssyni. Til að taka á og rannsaka bankaskandalan.

Það kemur síðan í ljós að hann hafði engin völd stofnanir gátu og geta neitað honum um gögn og þannig tafið málin. Vonandi verið að breyta því ?

Stjórnmálaleiðtogar og stjórnir stjórnmálaflokka raða gæðingum sínum á lista þvert á að krafa um prófkjör eða forval meðal flokksmanna hafi verið það sem fólk var að biðja um.

Þetta er bara helvítis fokkin fokk ennþá.

Látum sjá okkur æi dag á Austurvelli kl 15:00,

Veitum stjórnvöldum aðhald.

Þetta finnst mér.


Sjálfstæðisflokkur enn í minnihluta !!!!

Það er bara ánægjulegt að sjá þessa skoðanakönnun RUV.

Sjálfstæðisflokkurinn fær 20 menn, Farmsókn fær 8 menn en Samfylking fær 18 menn Vistri Grænir 17.

Frjálslyndir þurkast úr og önnur framboð koma ekki að manni.

Ef þetta yrði niðurstaða kosninga væru Framsókn og Sjálfstæðisflokkur í minnihluta.

Stjórnarflokkarnir héldu velli og mundu ekki þurfa að reiða sig á svikulan Framsóknarflokk.

Mér finnst þessi könnun RUV bara blása ansi miklum vindi í segl umbótaflokkana sem nú eru í minnihlutastjórn.

Það sem hefur verið gert af þessari ríkistjórn er það sem var óskað var eftir að yrði gert og meira er að koma til afgreiðsu í þinginu á næstu dögum og vikum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 99
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband