Færsluflokkur: Umræðan

Ég fékk 850 miljónalán sem ég þarf ekki að borga..ha.ha..ha !!!!

Forsíða DV segir okkur í dag frá ævintýralegri siðspillingu Finns Sveinbjörnssonar bankastjóra, þegar hann segir það var annar taktur og hugsanaháttur þegar þetta gerðist. Og í dag stjórna ég banka ha. ha. ha.

Hann er að gera það sama aftur hann er að veita kúlulánafyrirtækjunum og þeim sem tóku kúlulánin endanlausar afskriftir.

Afhverju var ekki öllum boðin kúlulán Finnur ? Afhverju bara einhverjum útvöldum ?

"Eignarhaldsfélag í eigu Finns Sveinbjörnssonar, þáverandi bankastjóra Icebank og núverandi bankastjóra Kaupþings, fékk 850 milljóna króna kúlulán frá nokkrum bönkum til að kaupa hlutabréf í Icebank árið 2007. Finnur seldi félagið þegar honum var sagt upp störfum sem bankastjóra Icebank í árslok 2007. Tæplega 16 milljóna króna skuld vegna vaxtakostnaðar var skilin eftir inni í félaginu.

Finnur staðfestir þetta í samtali við DV. Kúlulánið fékk hann frá SPRON, BYR, Sparisjóðnum í Keflavík og Sparisjóð Mýrarsýslu, að sögn Finns. Hann segir að SPRON og BYR hafa verið stærstu lánveitendurna á bak við kúlulánið en sparisjóðirnir tveir seldu samtals rúmlega 45 prósent hlut sinn í bankanum þegar Finnur fékk kúlulánið. Hluti þessa eignarhluta var seldur til Finns og annarra lykilsstjórnenda í Icebank.

Aðspurður hvort Finnur myndi þiggja slíkt tilboð ef það stæði honum til boða í dag segir bankastjórinn að hafa megi margar skoðanir á slíkum viðskiptum. „Ég myndi sennilega hugsa mig vandlega um ef mér byðist að kaupa hlutabréf í fjármálafyrirtæki núna því það er svo mikil óvisa á fjármálamörkuðum,“ segir Finnur. Svo segir Finnur um lánið: „Við getum alveg verið hreinskilnir við hvor annan. Auðvitað hefur margt breyst í þjóðfélaginu: Stemningin, viðhorf og gildismat í samfélaginu er öðruvísi en áður. Ég held að við getum bara horft í eigin barm og viðurkennt hreinskilningslega að við hugsum öðruvísi og metum hlutina öðruvísi heldur en var,“ segir Finnur."

 Þetta er bara siðleysi og ekki í takt við það sem stefna ríkistjórnarinnar stendur fyrir.

Þetta finnst mér.


Þurfa einhverjir ráðherrar að segja af sér ?

Nú verða ráðherrar að gera grein fyrir fjárhagsmálum sínum eftir að rikisstjórn Íslands laggði fyrir Alþingi í gær  reglur um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings .

Eigi þegar í stað að gilda um ráðherra í ríkisstjórninni.

Þurfa einhverjir að segja af sér ?

Gæti verið að einhverjir þeirra hafi fengið kúlulán ?

Gætu þeir verið launaðir hjá einhverjum samtökum eða fyrirtækjum ?

Gæti verið að þeir sætu báðum megin við borðið ?

Það á eftir að draga til tíðinda sannið til.

Þetta finnst mér.


mbl.is Reglur gildi strax fyrir ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útvarpsstjóra sagt upp störfum !

Páli Magnússyni Útvarpsstjóra var sagt upp störfum í dag hann fékk uppsganarbréf afhent um það efni. Frá þessu er sagt á visir.is í dag

 Í bréfinu segir meðal annars.

“ Ljóst er að þú ert með öllu óhæfur til að annast rekstur ríkisfjölmiðils okkar Íslendinga. Áframhaldandi rekstur Ríkisútvarpsins undir þinni stjórn er líklegt til að þessi áður virðulega stofnun þjóðarinnar verði að athlægi á alþjóðavettvangi. Nú þegar, í kjölfar margumtalaðs Kastljósviðtals við erlendan fræðimann í friðarmálum, er Íslenska ríkisútvarpinu er líkt við fjölmiðla í einræðisríkjum á ráðstefnum og í fyrirlestrum um slík mál,”

Það var Ástþór Magnússon formaður Lýðræðishreyfingarinnar, sem rak Pál Magnússon Útvarpsstjóra.

Mjög gott framtak hjá Ástþóri Magnússyni.

Þetta finnst mér.


Réttað yfir skrímslinu Josef Fritzl í Austurríki !!!

Austurríkismönnum hryllir við þessum réttarhöldum yfir skrímslinu Josef Fritzl.

“Elísabet Fritsel var átján ára gömul er Jósef faðir hennar bað hana um að hjálpa sér að bera eitthvað dót ofan í kjallara.

Þaðan átti Elísabet ekki afturkvæmt í tuttugu og fjögur ár.

Öll þessi ár var hún kynlífsleikfang föður síns sem fór niður í kjallarann og nauðgaði henni þegar hann langaði til.

Sjö sinnum gerði hann hana ófríska og þegar eitt barnið dó henti hann líkinu í miðstöðvarofn fjölbýlishússins þar sem þau bjuggu. “

Þetta er bara eitt rosalegasta mál sinnar tegundar sem upp hefur komist í heiminum.

Þvílík grimmd. Þvílík geðveiki.

Frá þesu er sagt á visir.is

Þetta finnst mér.


Pólitískt bankaráð Seðlabankans aftur á ferðinni !

Var ekki verið að breyta Seðlabankalögum ?

Var ekki verið að reka pólitikstkjörnu Bankastjórana og pólitíska Bankaráðið ?

Var ekki talað um að setja ópólitísktfagráð  á laggirnar svo kallað peningastefnuráð ?

Var ekki krafan um að fagmenn, ekki stjórnmálamenn eða þingmenn yrðu fengnir til starfa í slíku ráði ?

Nú eftir helgina ætlar Alþingi að kjósa nýtt bankaráð Seðlabankans, þannig að við fáum að sjá nýjar pólitískar hækjur halda áfram þar sem frá var horfið.

Þetta er bara ekki í lagi.

Þetta heldur bara áfram sama leyndin sama spillingin sama "fokking fokk"  og þeir sem eru að rannsaka málin hafa ekki aðgang að upplýsingum nema í afar takmörkuðu magni.

Það eru pólitíkusar sem loka flestum leiðum eins og greinilega má sjá í yfirstöðnum prófkjörum þar sem sáralitlar breitingar hafa orðið svo litlar að þær skipta engu máli.

Þetta verður bara eins og áður á valdi flokkeigendafélagana.

Þetta finnst mér.


Ætlar verklýðshreyfinginn og ASÍ bara að horfa á verkafólk niðurlægt ?

Verkalýðshreyfingin gekk fram fyrir skjöldu eftir efnahagshrunið og samþykkti að fresta launahækkunum verkafólks meðan fyrirtæki kæmust upp úr erfiðleikum og kreppu.

En þá ákveða stjórnendur eins stærsta útgerðarfélags landsins að greiða sér arð upp á 150 miljónir króna.

Ég hef ekki séð eitt einasta orð um þessi mál frá ASÍ forustunni,Aðeins formaður verklýðsfélags Akranes hefur tjáð sig um þetta.

Stjórnarmenn hjá  HB Granda neita að tjá sig og Kristján Loftsson sem er einn stjórnarmanna bara skellti á fréttamann þegar hann var spurður út í þessar greiðslu,

En er ekki nýbúið að rétta þeim manni möguleika upp á hundruðir miljóna króna með hvalveiðum ?

Nei nú verða bara stóru fyrirtækin og þar með HB Grandi að hækka laun starfsfólks síns og standa við alla samninga.

Svo er hægt að skoða hvað fyrirtækið skuldar og  eftir að búið er að greiða skuldir og laun er hægt aðskoða hvort einhver ástæða er til arðgreiðslna.

Þetta finnst mér.


Fyrrverandi og sitjandi ráðherrar og þingmenn fá útreið !!!

Prófkjör eru nú um helgina hjá stjórnmálaflokkunum, fyrstu tölur hafa verið birtar eftir mjög ltla talningu.

En það er samt lagt út frá þeim.

Í Reykjavík kemst  Ásta Ragnheiður Jóhanesdóttir Félagsmálaráðherra ekki á blað og Mörður Árnasson varaþingmaður kost ekki heldur á blað fyrir Samfylkinguna.

Í Reykjavík hefur Illugi Gunnarsson forustu í fyrsta sæti með yfirburði yfir Guðlaug Þór.

Guðlaugur Þór sagði að þetta væri einn mesti kosningarsigur sinn ef þetta yrði niðurstaðan.

Ég segi bara þvílíkt rugl í manninum fyrrverandi ráðherra og því með bullandi forgjöf er í öðru sæti, hann er ekki vinsæll.

Bjarni Benediktsson er í efsta sætinu í Kraganum fyrir Sjálfstæðismenn og valtrar yfir Varaformann Sjálfstæðisflokksins og fyrrum ráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sem ætti að öllu að hafa einhverja forgjöf.

Í kraganum er Árni Páll í efsta sæti og Katrín Júíusdóttir í öðru, en fyrrverandi ráðherra Þórunni Sveinbjarnardóttur  fyrrverandi Umhverfisráðherra er hafnað.

Já en ekki er búið að telja öll atkvæði. En þetta er spennandi.

Þetta finnst mér.


mbl.is Árni Páll sigraði í Kraganum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi verður nú friður í Frjálslyndaflokknum !

Nú eru farnir úr forustusveit Frjálslydaflokksins niðurrifsmennirnir og öfgasinnar sem búnir eru að sundra frjálslyndaflokknum.

Einn er farinn til Sjálfstæðisflokks og verður að öllum líkindum ekki kosinn inn. En hann er í prófkjöri í dag.

Hinn er búinn að vera og hefur ekki stuðning innan Frjálslyndaflokksins.

Hann hefur tapað í prófkjöri og kjöri til formanns.

Einn af niðurrifsmönnunum gekk í Framsóknarflokkinn og þar var honum hafnað sem Frjálslyndumframsóknarmanni .

Þó hef ég heyrt að tveir af þessum mönnum ætla fram með sér framboð í sínum Kjördæmum .

Eða jafnvel í Reykjavík.

Ég óska Guðjóni Arnari til hamingju með formannskjörið.

Vonandi verður lífi blásið í þennan flokk að nýju, en flokkurinn hefur verið ákveðn rödd sem má ekki fjara út.

Vona bara að frjálslyndiflokkurinn taki fylgi frá fjórflokkunum.

Þetta finnst mér.


mbl.is Guðjón Arnar kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðleysi og græðgi Sægreifa og "Auðmanna" er bara lögreglumál !

Stjórnendur  HB  Granda telja sjálfsagt að úthluta sjálfum sér 184 miljónir króna í arð.

Frá þessu er sagt á visir.is

En fengu verkaðlýðsfélögin til að falla frá kauphækkun verkafólks til að koma á móti Atvinnurekendum vegna fjármálakreppunar og vanda fyrirtækja í sjávarútvegi.

Hver anskotinn er að gerast ,kunna menn ekki að skammast sín, þessir stjórnarmenn HB Granda eru ekki alveg á flæðiskeri staddir eins og Árni Vilhjálmsson, Kristján Loftsson og Ólafur Ólafsson.

Skammist ykkar og látið þessa ákvörðun ganga til baka og standið við kauphækkanir við starfsfólk ykkar.

En rifja má upp að HB Grandi er búinn að hirða meginhluta af öllum kvóta landsins til sín í gegnum árin.

Ég segi nú er nóg komið Steingrímur Sigfússon taktu allan kvóta úr ríkisbönkunum og af sægreifunum og ríkisvæðið allan kvótan og breytið lögum þannig að kvótanum verði úthlutað til byggðalagana.

Færið kvótan til þjóðarinnar aftur. Stoppum þessa spillingu og siðleysi.

Þetta finnst mér.


Stór hluti Framsóknarmanna vill verða hækja Sjálfstæðisflokksins !

Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 vill stór hluti Framsóknarmanna að Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur myndi næstu ríkistjórn eftir kosningar nú í vor.

Sem þýðir raunar miðað við stærð flokkana að Framsókn verður hin eina sanna stuðningshækja Sjálfstæðisflokksins ef þeim tekst að mynda ríkistjórn eftir næstu kosningar.

Þessi könnun sannar það bara aftur og aftur að orð forustumanna Framsóknarflokksins um að það sé vinstri sveifla innan Framsóknarflokksins er bara bull.

Maður skilur ekki alveg að fólk skuli leggja lag sitt við þessa flokka sem bera helstu ábyrgð á bankahruninu, einkavinavæðingunni og frjálshyggjubullinu á undaförnum áratug.

Og nú vilja menn bara halda áfram og tjalda ölllu til að sameinast í þessi spillingaröfl á ný undir handleiðslu flokseigendafélagana í þessum flokkum.

Þetta er bara ótrúlegt. Mestu örlagavaldar í Islensku þjóðlífi eru verðlaunaðir í fylgiskönnunm meðal fólks.

Hvað er að fólki ?

Þetta finnst mér.


mbl.is Flestir vilja stjórn S og V
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 99
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband