Hey...manni viltu kaupa fyrir mig....?

Ég var staddur fyrir framan áfengisverslun, í dag, þegar ung stúlka stöðvaði mig með þessum orðum "Hey.. manni viltu kaupa fyrir mig". Og nokkrar ungar stulkur voru á sveimi á bílaplaninu gjóandi augunum til okkar.

Ahverju kaupir þú ekki sjálf spurði ég, bara gleymdi skírteininu heima, allt í lagi sagði ég hérna er 300 kall og farðu heim í strætó og náðu í skírteinið.

Rosalegur fýlusvipur kom á hana og hún strunsaði í burtu að leita að nýjum "manni" til að kaupa fyrir sig.

Vona bara að menn láti slíkt ekki henda sig að kaupa vín fyrir unglinga undir aldri .

Það er verslunarmannahelgi fram undan ekki satt.

Þetta finnst mér.


Sumir þingmenn vita greinilega ekki hvað einelti er !

Hún hló..hún hló..hún skelli,skelli hló þannig upplifðu nokkrir þingmenn, vandræða viðbrögð þingmanna sem hlóu og kölluðu frammí, þegar Birgitta Jónsdóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar talaði um mjög alvarleg samskiptamál á Alþingi Íslendinga eða einelti.

Eftir að hafa séð upptöku frá þessu á Alþingi var ég bara agndofa.

Það sem sló mig einna mest var að þingmaðurinn Ólína Þorvarðardóttir hafði sig mikið í frammi, með hlátri og frammíkalli.

En þessi sama Ólína Þorvarðardóttir hröklaðist úr starfi rektors á Ísafirði einmitt vegna ásakana meðal annars um eineilti við starfsmen í Framhaldsskólanum. Hún hefur sýnilega ekkert lært í mannlegum samskiptum.

Yfirleitt þegar hún er gagnrýnd talar hún niður til fólks eða bara kallar þá dóna, þú hún sé í öllu falli mesti dónin sjálf. Finnst mér.

Nei auðvitað þurfa þingmenn, sem aðrir að opna augun fyrir þessum hlutum líka varðandi eineltið, það er ekki nóg að setja lög og halda að þau nái ekki inn á vinnustaðinn Alþingi, þetta er nefnilega til staðar á þeim vinnustað.

Þetta finnst mér.


Bjöllusauðir á Alþingi !!!

Forseta Alþingis er sýndur puttinn aftur og aftur af þingmönnum.

Þingmenn gera í því að óvirða Alþingi og forseta  Alþingis og eru með trúðsleiki í pontu Alþingis eins og Þingmenn Sjálfstæðisflokksins og þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar voru uppvísir af í dag.

Fyrir nokkru dögum síðan þurfti að áminna  Þingmann Samfylkingarinnar og þar áður formann Framsóknarflokksins vegna framkomu þeirra við Alþingi og forseta Alþingis.

Ég segi bara þetta eru nú meiri bjöllusauðirnir. Sem ekki skilja hvers vegna forssetin slær í bjölluna.

En ég tek ofan fyrir forseta Alþingis að stoppa þessa trúðsleiki af hjá þingmönnum.

Þetta finnst mér


Að sitja hjá er "eigin sannfæring" tveggja aumkunnarverða kvenna !!!

Rosalegir aumingjar eru þessar konur sem hafa það að sannfæringu sinni sitja hjá þegar atkvæðagreiðsla um eitt rosalegasta mál þjóðarinnar frá sjálfstæðisstofnun er lagt fyrir Alþingi.

Konur sem ekki hafa látið deigan síga í umræðunni um þessi ESB mál á undanförnum mánuðum.

Senda svo þjóðinni puttan með afstöðu sinni á ögurstundu. Já þingflokksformaður VG og Varaformaður Sjálfstæðisflokksins voru sér til ævarandi skammar á Alþingi í dag.

Maður hélt að þessar konur væru með bein í nefinu og þyrðu að standa og falla með atkvæði sínu en svo var ekki.

Þessar konur í mínum huga eru bara ómerkilegar finnst mér og ekkert mark takandi á þeim og ég treysti þeim ekki.

Eigin sannfæring í kosningum í svona málum eins og ESB er bara að vera með eða á móti, það er engin málamiðlun til.

Og því er þetta kjaftæði um innri sannfæringu bara kjaftæði alla vega hjá þessum tveimur konum.

Þetta finnst mér.


Sannfæring þingmanna á útsölu í sölum Alþingis !!!

Nú um hádegið vonandi kemur í ljós hvaða þingmenn hafa selt "eigin sannfæringu sína" sannfæringuna, sem þeim var svo tíðrætt um fyrir síðustu kosningar.

Nýir þingmenn komu sumir inn með miklum hvelli og ætluðu svo sannarlega að umbreyta þessu spillta samfélagi þingmanna og vinnubragða á Alþingi sem sumum fannst með sinni sannfæringu.

Þingmenn VG voru eitil harðir að ekki yrði farið í ESB og eru algjörlega á móti aðeild og seldu kjósendum það, því það er þeirra sannfæring sem nú gengur kaupum og sölu í sölum Alþingis.

Meira segja hefur forustusveitinn reynt að berja alla sína þingmenn til hlíðni og þar á meðal að breyta yfirlýstri sannfæringu sinni.

Með mikla möguleika á framabrautinni ef tillaga ríkistjórnarinnar um ESB verður samþykkt.

Sama er að segja um sigurvegara kosningana síðustu Borgarahreyfinguna, þar virðist alveg vera á huldu hvað eigin sannfæring þingmannanna er í dag og virðist mér sannfæring þeirrar hreyfingar aðallega snúast orðið um að fá meira vægi innan ríkistjórnarsamstarfs og jafnvel ráðherrastól þegar verður hrókerað næst á því heimili.

Farmsóknarmenn eru áberandi klofnir í afstöðu sinni og eru að breyta skoðunum sínum nær daglega, en enginn tekur mark á þeim flokki lengur, sanfæring þeirra hefur löngum verðið út úr korti.

Sjálfstæðismenn eru líka að tala út og suður, þar var samþykkt afgerandi á Landsfundi að ekki yfði farið í ESB nú i stjórnarandstöðu kemur annað upp á borðið og eru menn að skipta um skoðun og sannfæringu sína daglega.

Um Samfylkinguna þarf ekkert að ræða Jóhanna Sigurðardóttir ætlar í gegn með þetta og eru þingmenn hennar allir njörvaðir undir hæl hennar með að samþykkja aðeildarviðræður við ESB. Sannfæringin er látin róa fyrir flokksveldið.

Ég held að þetta verði ekki samþykkt.

En ef þetta verður samþykkt finnst mér að forsetinn ætti að skoða hver hans eigin sannfæring er í þessu máli og hafna að skrifa undir eitt eða neitt í sambandi við aðeild að ESB.

Þetta finnst mér.


Davíð Oddsson mun rústa Sjálfstæðisflokknum endanlega !

Takk Davíð takk,takk,takk.

Davíð Oddsson kemur fram í hverju drotningarviðtalinu af öðru í fjölmiðlum..

Hann kemur fram hvað eftir annað með upplýsingar ,sem hefðu jafnvel breytt öllu fyrir fyrrverandi ráðamenn að vita um,  sem voru að burðast við að vinna í málunum eftir hrunið, sem Davíð Oddsson virðist hafa stjórnað með glæsibrag.

Davíð Oddsson ætlar að rústa Sjálfstæðisflokknum endanlega, hann virðist  búa yfir upplýsingum sem aðrir hafa ekki haft.

Meira segja síðast í frægu Morgunblaðsviðtali þá vitnaði hann í ýmis gögn og skýrslur, sem kom síðar í ljós að ekki voru til, en alla vega hafa þær ekki fundist ennþá.

Svo maður bara spyr sig hvað vakir fyrir Davíð Oddssyni annað en að rústa Sjálfstæðisflokknum og koma síðan inn sjálfur sem foringi á ný.

En hann áttar sig ekki á því að það er önnur kynslóð tekin við í Sjálfstæðisflokknum og verið að reyna að hreinsa svínastíuna til að koma í veg fyrir aðra frjálshyggjusvínapest aftur.

Nei ég trúi ekki einu einasta orði sem  Davíð Oddsson hefur fram að færa, hann er bara brjóstumkennanlegur ,bitur eldrimaður sem vill eyðileggja eins mikið og hann getur fyrir þjóðinni.

Er hann ekki búin að gera nóg ?

Þetta finnst mér.


Sjálfstæðiskratin Ragnheiður Ríkharðsdóttir styður ríkisstjórnina í ESB !

Fyrrum Bandalags Jafnaðarmaðurinn og síðar Bæjarstjóri Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ,  ætlar að styðja tillögu ríkistjórnarinnar um umsókn að ESB. Eftir því sem hún segir sjálf.

En félagar hennir flestir í Sjálfstæðisflokknum ætla að fella tillöguna.

Já það er er mjög stutt í jafnaðarmanninn Ragnheiði Ríkharðsdóttur  en ég held að hún muni standa núna með Sjálfstæðismönnum og fella tillöguna.

Hún er nú líka þessi týpa að þurfa mikla athygli eins og sumir þessara þingmanna sem nýkomnir eru á þing.

Það er ekki nóg að segja þetta fyrir afgreiðslu tillögunar það gildir eingöngu þegar hún ýtir á hnappinn.

Vona bara að hún haldi sig við Sjálfstæðismennina og felli þessa tillögu ríkistjórnarinnar  en verði ekki að sýna einhverja takta í  jafnaðarkrata hugsjónum sem hún er augsýnilega búin að gleyma.

Ég hef ekki trú á að hún styðji  tilögur ríkisstjórnarinnar.

Þetta finnst mér.


Tvöföld atkvæðagreiðsla til ESB er lýðræði !

Birgitta Jónsdóttir þingmaður Borgarahreyfingarinnar, heldur áfram baráttu sinni fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum á Alþingi. Hún hleypur allavega ekki af vetfangi eins og sumir þingmenn, sem hafa sömu skoðun og hún hefur, hafa gert.

Rosalegur kosnaður er samhliða þessari umsókn, ef af verður ekki undir miljarði. Já í allri kreppunni og niðurskurðinum finnst Jóhönnu Sigurðardóttur og hennar fylgisveinum mál málana aðeild að ESB.

Bullið í sumu af þessu fólki í Samfylkingu og Vinstri Grænum er bara rosalegt, það hefur komið fram margoft að við munum fá einhverja sérmeðferð vegna auðlinda okkar í vatni og sjávarútvegi og annara hluta.

Samþykktir landsfunda Vinstri Grænna í gegnum tíðina hafa verið sveigðar til með frumvarpi ríkistjórnarinnar sem VG á aðeild að og verið er að fjalla um í þinginu.

Nú horfa fyrrum nýlenduþjóðir eins og Bretar, Hollendingar, Spánverjar gæðgisaugum til auðlinda okkar eins og fiskimiða,drykkjarvatns,orkuvera og nýja olíusvæðisins austur af landinu.

Við verður ekki spurð um eitt eða neitt varðandi auðlindirnar með tímanum, ef við göngum inn í ESB.

Þetta er bara glapræði að vera að sækja um aðeildarviðræður á þessum tíma.

Þetta finnst mér.


mbl.is ESB-umræða heldur áfram á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgðarlausir þingmenn eða hvað ?

Nýir þingmenn sem náðu kosningu í síðustu kosningum, ákváðu að yfirgefa þingfund í dag.

Annar þingmaðurinn er frá Vinstri Grænum og að eigin sögn var beittur þrýstingi frá flokksystkynum sínum í Evrópumálinu, bara lagður í einelti af flokksystkynum sínum af því að hann fór að sannfæringu sinni.

Samt neita allir flokksfélagarnir að svo hafi verið að hann hafi verið beittur þrýstingi. 

Það er því bara krafa að Ásmundur Einar Daðasson upplýsi hverjir hafa beitt hann þrýstingi, formaðurinn svór það af sér í fréttum í kvöld.

Og hann Ásmundur stóðst ekki álagið og flúði bara af vetfangi.

Annar þingmaður og  úr Sjálfstæðisflokki Ásbjörn Óttarsson ákvað líka að yfirgefa þingsalinn til stuðnings Ásmundi.

„Ég fór ekki inn á alþingi til að láta kúga mig, og hefði gert það nákvæmlega sama og Ásmundur í þessari stöðu,” segir Ásbjörn.

En hvað þetta er fallegt að sjá “bræðra kærleik” andstæðra skoðanabræðra koma svona fram á síðustu dögum þingsins fyrir sumarfrí.

Það hefði nú verið ábyrgðar meira  fyrir þessa þingmenn að gera grein fyrir atkvæði sínum og  segja bara  nei takk við atkvæðagreiðslu á þessu svo rosalega máli.

En sumir þurfa bara athygli og það tókst svo sannarlega.

En þeir eiga svo eftir að greiða þessu frumvarpi brautargengi þegar kemur að því sannið til.

Þetta finnst mér.


Fengu fálkaorðuna eftir helmingaskiptareglunni !

Tveir af þessum "snjöllu viðskiptamönnum í Útrásinni" þeir Sigurður Einarsson og  Björgólfur Guðmundsson voru  sæmdir hinni íslensku fálkaorðu eða riddarakrossinum. Sem betur fer var aðeins farið á fyrsta stig orðunar. En hverjir eru í orðunefndinni sem ákveður hver fær og hver ekki ?

Jú það eru allt þekktir einstaklingar úr athafnalífi og pólitík.

Orðunefnd skipa eftirfarandi:

Ólafur G. Einarsson, fyrrv. ráðherra og fyrrv. forseti Alþingis, formaður orðunefndar
Jón Helgason, fyrrv. ráðherra
Rakel Olsen, framkvæmdastjóri
Ólafur Egilsson, fyrrv. sendiherra
Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður UNICEF
Örnólfur Thorsson, orðuritari

Þarna er bara Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn sem skipa orðunefnd.

Og einstaklingarnir Sigurður Einarsson, fyrrverandi Stjórnarformaður Kaupþingsbanka (áður Búnaðarbanka) og Björgólfur Guðmundsson fyrrverandi Stjórnarformaður og eigandi Landsbankans. (sem alltaf hefur verið undir hæl Sjálfstæðismanna)

En til viðbótar verður Forsætisráðherran í þessu tilfelli (Geir Hilmar Haarde) ég birti hér 3. grein orðulaga

3. gr.

Nefnd sex manna ræður málefnum orðunnar. Eftir tillögu forsætisráðherra kveður forseti Íslands fimm einstaklinga, sem sæmdir eru og bera heiðursmerki orðunnar, til setu í nefndinni til sex ára í senn. Heimilt er að endurkveðja nefndarmenn til setu í nefndinni, þó ekki lengur en til þriggja ára til viðbótar, og tilnefnir forsætisráðherra formann nefndarinnar. Ráðherra má ekki eiga sæti í nefndinni. Forsetaritari er orðuritari og skipar sjötta sætið í nefndinni. Nefndarstarfið er heiðursstarf án launa.

Þá er einig hægt að taka orðuna til baka  eins og segir í 13. grein:

13. gr.

Stórmeistari getur, að ráði orðunefndar, svipt hvern þann, sem hlotið hefur orðuna en síðar gerst sekur um misferli, rétti til að bera hana.

Og hvað hafa þessir menn ekki orðið uppvísir af en misferli. Þessir menn eiga ekkki að halda þessari viðurkenningu.

Þetta finnst mér.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Guðmundur Óli Scheving

Höfundur

Guðmundur Óli Scheving
Guðmundur Óli Scheving

Mikill áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélgagsmál. 

Meindýraeyðir

Sími: 857 7200    Þú hringir ef þig vantar aðstoð !

 

 Netfang : gudmunduroli@simnet.is

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband